{"id":1723,"date":"2017-12-30T21:00:11","date_gmt":"2017-12-30T21:00:11","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/_ri_ja-m%c2%97seb%c2%97k-16-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:30:20","modified_gmt":"2024-05-06T22:30:20","slug":"thridja-mosebok-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-16-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 16. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Fri\u00f0\u00fe\u00e6gingardagurinn<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se eftir a\u00f0 tveir synir Arons l\u00e9tust \u00feegar \u00feeir gengu fram fyrir Drottin. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se:<br \/>\u201e\u00c1varpa\u00f0u Aron, br\u00f3\u00f0ur \u00feinn, og seg\u00f0u a\u00f0 hann megi ekki hven\u00e6r sem er ganga inn \u00ed helgid\u00f3minn inn fyrir fortjaldi\u00f0, fram fyrir loki\u00f0 sem er ofan \u00e1 \u00f6rkinni. \u00de\u00e1 mun hann ekki deyja \u00feegar \u00e9g birtist \u00ed sk\u00fdi yfir lokinu.<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Aron skal koma inn \u00ed helgid\u00f3minn me\u00f0 nautk\u00e1lf \u00ed syndaf\u00f3rn og hr\u00fat \u00ed brennif\u00f3rn. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Hann skal kl\u00e6\u00f0ast heil\u00f6gum l\u00ednkyrtli og vera \u00ed l\u00ednbuxum n\u00e6st s\u00e9r og hn\u00fdta um sig l\u00ednbelti. Hann skal setja \u00e1 sig vefjarh\u00f6tt \u00far l\u00edni. \u00deetta eru heil\u00f6g kl\u00e6\u00f0i og \u00feess vegna skal hann ba\u00f0a l\u00edkama sinn \u00ed vatni \u00e1\u00f0ur en hann kl\u00e6\u00f0ist \u00feeim.<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hann skal taka vi\u00f0 tveimur geith\u00f6frum fr\u00e1 s\u00f6fnu\u00f0i \u00cdsraelsmanna \u00ed syndaf\u00f3rn og einum hr\u00fat \u00ed brennif\u00f3rn.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal Aron f\u00e6ra fram sinn eigin nautk\u00e1lf sem \u00e6tla\u00f0ur er til syndaf\u00f3rnar og fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir sj\u00e1lfan sig og fj\u00f6lskyldu s\u00edna.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann s\u00e6kja b\u00e1\u00f0a geithafrana og f\u00e6ra \u00fe\u00e1 fram fyrir auglit Drottins vi\u00f0 inngang samfundatjaldsins. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal Aron kasta hlutkesti um geithafrana og er annar hluturinn fyrir Drottin og hinn fyrir Asasel. <span class=\"nedan_mal\" title=\" Skr\u00edmsli sem tali\u00f0 var a\u00f0 h\u00e9ldi til \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni.\">[<\/span> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skal Aron lei\u00f0a fram geithafurinn, sem hlutur Drottins f\u00e9ll \u00e1, og f\u00e6ra hann \u00ed syndaf\u00f3rn. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En geithafurinn, sem hlutur Asasels f\u00e9ll \u00e1, skal hann f\u00e6ra lifandi fram fyrir auglit Drottins til fri\u00f0\u00fe\u00e6gingar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 senda hann \u00fat \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina til Asasels.<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Aron skal f\u00e6ra fram sinn eigin nautk\u00e1lf sem \u00e6tla\u00f0ur er til syndaf\u00f3rnar og fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir sj\u00e1lfan sig og \u00e6tt s\u00edna.<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Hann skal taka gl\u00f3\u00f0arker fullt af gl\u00f3andi kolum af altarinu frammi fyrir augliti Drottins og b\u00e1\u00f0a l\u00f3fa fulla af muldu ilmandi reykelsi, fara me\u00f0 \u00fea\u00f0 inn fyrir fortjaldi\u00f0 <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> og leggja reykelsi\u00f0 \u00e1 eldinn frammi fyrir augliti Drottins. \u00de\u00e1 hylur reykelsissk\u00fdi\u00f0 loki\u00f0 sem er yfir s\u00e1ttm\u00e1lanum svo a\u00f0 hann deyi ekki. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i nautk\u00e1lfsins og st\u00f6kkva \u00fev\u00ed me\u00f0 v\u00edsifingri ofan \u00e1 loki\u00f0 framanvert. Hann skal einnig st\u00f6kkva nokkru af bl\u00f3\u00f0inu me\u00f0 v\u00edsifingri sj\u00f6 sinnum frammi fyrir lokinu.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal hann sl\u00e1tra hr\u00fat \u00fej\u00f3\u00f0arinnar sem \u00e6tla\u00f0ur er til syndaf\u00f3rnar. Hann skal fara me\u00f0 bl\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00far honum inn fyrir fortjaldi\u00f0 og fara me\u00f0 \u00fea\u00f0 eins og hann f\u00f3r me\u00f0 bl\u00f3\u00f0 nautk\u00e1lfsins og st\u00f6kkva \u00fev\u00ed b\u00e6\u00f0i \u00e1 loki\u00f0 og frammi fyrir lokinu. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deannig fri\u00f0\u00fe\u00e6gir hann fyrir helgid\u00f3minn vegna \u00f3hreinleika og afbrota \u00cdsraelsmanna, vegna allra synda \u00feeirra. \u00c1 sama h\u00e1tt skal hann fara me\u00f0 samfundatjaldi\u00f0 sem er me\u00f0al \u00feeirra, mitt \u00ed \u00f3hreinleika \u00feeirra.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Enginn ma\u00f0ur m\u00e1 vera vi\u00f0staddur \u00ed samfundatjaldinu fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann gengur inn til a\u00f0 fri\u00f0\u00fe\u00e6gja \u00ed helgid\u00f3minum og \u00fear til hann gengur \u00fat. \u00deegar hann hefur fri\u00f0\u00fe\u00e6gt fyrir sj\u00e1lfan sig, fj\u00f6lskyldu s\u00edna og allan s\u00f6fnu\u00f0 \u00cdsraels <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> skal hann ganga \u00fat og a\u00f0 altarinu, sem stendur frammi fyrir augliti Drottins, og fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir \u00fea\u00f0. Hann skal taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0inu \u00far nautk\u00e1lfinum og geithafrinum og bera \u00e1 horn altarisins allt \u00ed kring. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Hann skal st\u00f6kkva nokkru af bl\u00f3\u00f0inu me\u00f0 v\u00edsifingri sj\u00f6 sinnum \u00e1 altari\u00f0. \u00deannig hreinsar hann \u00fea\u00f0 af \u00f3hreinleika \u00cdsraelsmanna og helgar \u00fea\u00f0. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deegar hann hefur loki\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir helgid\u00f3minn, samfundatjaldi\u00f0 og altari\u00f0 skal hann f\u00e6ra fram \u00feann geithafur sem er \u00e1 l\u00edfi.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Aron skal \u00fe\u00e1 leggja b\u00e1\u00f0ar hendur \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 geithafursins, sem er \u00e1 l\u00edfi, og j\u00e1ta yfir honum \u00f6ll afbrot \u00cdsraelsmanna, allar misgj\u00f6r\u00f0ir \u00feeirra og syndir. Hann skal leggja \u00fe\u00e6r \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 geithafursins og reka hann s\u00ed\u00f0an \u00fat \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina me\u00f0 manni sem b\u00ed\u00f0ur fer\u00f0b\u00fainn. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Geithafurinn ber \u00feannig \u00f6ll afbrot \u00feeirra \u00fat \u00ed \u00f3bygg\u00f0ina.<br \/>\u00deegar ma\u00f0urinn hefur reki\u00f0 geithafurinn \u00fat \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> skal Aron ganga aftur inn \u00ed samfundatjaldi\u00f0, fara \u00far l\u00ednkl\u00e6\u00f0unum, sem hann f\u00f3r \u00ed \u00feegar hann gekk inn \u00ed helgid\u00f3minn, og skilja \u00feau \u00fear eftir.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal hann lauga l\u00edkama sinn \u00ed vatni \u00e1 helgum sta\u00f0 og fara aftur \u00ed f\u00f6t s\u00edn. S\u00ed\u00f0an skal hann ganga \u00fat og f\u00e6ra brennif\u00f3rn sj\u00e1lfs s\u00edn og \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. \u00deannig fri\u00f0\u00fe\u00e6gir hann fyrir sj\u00e1lfan sig og \u00fej\u00f3\u00f0ina. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Hann skal l\u00e1ta m\u00f6r syndaf\u00f3rnard\u00fdrsins l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af altarinu.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> En ma\u00f0urinn, sem rak geithafurinn til Asasels, skal \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og ba\u00f0a l\u00edkama sinn \u00ed vatni. Eftir \u00fea\u00f0 m\u00e1 hann fara aftur inn \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00deegar k\u00e1lfurinn og geithafurinn hafa veri\u00f0 f\u00e6r\u00f0ir \u00ed syndaf\u00f3rn og bl\u00f3\u00f0 \u00feeirra bori\u00f0 inn \u00ed helgid\u00f3minn til fri\u00f0\u00fe\u00e6gingar skal flytja \u00fe\u00e1 \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar og brenna \u00ed eldi h\u00fa\u00f0ir \u00feeirra, kj\u00f6t og gor. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> S\u00e1 sem brennir \u00feetta skal \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og ba\u00f0a l\u00edkama sinn \u00ed vatni. Eftir \u00fea\u00f0 m\u00e1 hann fara aftur inn \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar.<br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00deetta skal vera f\u00f6st regla hj\u00e1 ykkur um aldur og \u00e6vi: \u00c1 t\u00edunda deginum \u00ed sj\u00f6unda m\u00e1nu\u00f0inum skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 fasta og ekki vinna neitt verk, hvorki innf\u00e6ddir n\u00e9 a\u00f0komumenn sem b\u00faa \u00e1 me\u00f0al ykkar, <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00feessum degi er fri\u00f0\u00fe\u00e6gt fyrir ykkur svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 hreinsist. Frammi fyrir Gu\u00f0i ver\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0 hreinir af \u00f6llum syndum ykkar. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 hv\u00edlast algj\u00f6rlega og fasta, \u00fea\u00f0 er \u00e6varandi regla.<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Presturinn, sem hefur veri\u00f0 smur\u00f0ur og settur til a\u00f0 gegna prestsemb\u00e6tti \u00ed sta\u00f0 f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, skal fri\u00f0\u00fe\u00e6gja. Hann skal b\u00faast l\u00ednkl\u00e6\u00f0um, hinum helgu kl\u00e6\u00f0um, <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> og fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir hi\u00f0 allra helgasta, samfundatjaldi\u00f0 og altari\u00f0, fyrir prestana og alla \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inum. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00deetta skal vera f\u00f6st regla hj\u00e1 ykkur um aldur og \u00e6vi. Einu sinni \u00e1 \u00e1ri skal fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir \u00cdsraelsmenn vegna allra synda \u00feeirra.\u201c<br \/>Aron ger\u00f0i eins og Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fri\u00f0\u00fe\u00e6gingardagurinn 1 Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se eftir a\u00f0 tveir synir Arons l\u00e9tust \u00feegar \u00feeir gengu fram fyrir Drottin. 2 Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se:\u201e\u00c1varpa\u00f0u Aron, br\u00f3\u00f0ur \u00feinn, og seg\u00f0u a\u00f0 hann megi ekki hven\u00e6r sem er ganga inn \u00ed helgid\u00f3minn inn fyrir fortjaldi\u00f0, fram fyrir loki\u00f0 sem er ofan \u00e1 \u00f6rkinni. \u00de\u00e1 mun hann ekki deyja \u00feegar \u00e9g birtist \u00ed sk\u00fdi yfir lokinu. 3 Aron skal koma inn \u00ed helgid\u00f3minn me\u00f0 nautk\u00e1lf \u00ed syndaf\u00f3rn og hr\u00fat \u00ed brennif\u00f3rn. 4 Hann skal kl\u00e6\u00f0ast heil\u00f6gum l\u00ednkyrtli og vera \u00ed l\u00ednbuxum n\u00e6st s\u00e9r og hn\u00fdta um sig l\u00ednbelti. Hann skal setja \u00e1 sig vefjarh\u00f6tt <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1723","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1723","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1723"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1723\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1723"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}