{"id":1721,"date":"2017-12-30T21:00:11","date_gmt":"2017-12-30T21:00:11","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/_ri_ja-m%c2%97seb%c2%97k-14-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:30:20","modified_gmt":"2024-05-06T22:30:20","slug":"thridja-mosebok-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-14-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 14. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Hreinsun holdsveikra<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201e\u00deetta eru l\u00f6g um \u00fea\u00f0 \u00feegar holdsveikur ma\u00f0ur skal \u00farskur\u00f0a\u00f0ur hreinn og leiddur fyrir prest. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Presturinn skal ganga \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar og sko\u00f0a hann. Sta\u00f0festi hann a\u00f0 hinn holdsveiki s\u00e9 or\u00f0inn heill af holdsveikinni <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> skal presturinn l\u00e1ta s\u00e6kja tvo lifandi, hreina fugla, sedrusvi\u00f0, h\u00e1rau\u00f0an \u00fer\u00e1\u00f0 og \u00eds\u00f3p handa \u00feeim sem l\u00e6tur hreinsa sig. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal presturinn gefa fyrirm\u00e6li um a\u00f0 sl\u00e1tra \u00f6\u00f0rum fuglinum yfir leirkeri me\u00f0 lindarvatni. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann taka lifandi fuglinn, sedrusvi\u00f0inn, h\u00e1rau\u00f0a \u00fer\u00e1\u00f0inn og \u00eds\u00f3pinn og d\u00fdfa \u00fev\u00ed \u00f6llu \u00e1samt fuglinum, sem er lifandi, \u00ed bl\u00f3\u00f0 fuglsins sem var sl\u00e1tra\u00f0 yfir lindarvatninu. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skal hann st\u00f6kkva vatninu sj\u00f6 sinnum \u00e1 \u00feann sem l\u00e6tur hreinsa sig af holdsveiki. Presturinn skal \u00farskur\u00f0a hann hreinan og l\u00e1ta fuglinn, sem lifir, flj\u00faga burt.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> S\u00e1 sem l\u00e6tur hreinsa sig skal \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn, raka af s\u00e9r allt h\u00e1r og ba\u00f0a sig \u00ed vatni og ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 hreinn. Eftir \u00fea\u00f0 m\u00e1 hann koma inn \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar en hann skal hafast vi\u00f0 fyrir utan tjald sitt \u00ed sj\u00f6 daga. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00c1 sj\u00f6unda degi skal hann raka af s\u00e9r allt h\u00e1r, h\u00f6fu\u00f0h\u00e1r, skegg og augnabr\u00fanir. \u00deegar hann hefur raka\u00f0 af s\u00e9r allt h\u00e1r skal hann \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og ba\u00f0a l\u00edkama sinn \u00ed vatni og ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 hreinn.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00c1 \u00e1ttunda degi skal hann taka tv\u00f6 l\u00fdtalaus hr\u00fatl\u00f6mb og eina l\u00fdtalausa veturgamla gimbur, enn fremur \u00ferj\u00e1 t\u00edundu \u00far efu af f\u00ednu mj\u00f6li bl\u00f6ndu\u00f0u ol\u00edu \u00ed kornf\u00f3rn og einn l\u00f3g af ol\u00edu. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Presturinn, sem hreinsar, skal l\u00e1ta manninn, sem l\u00e6tur hreinsa sig, taka s\u00e9r st\u00f6\u00f0u \u00e1samt f\u00f3rnargj\u00f6funum frammi fyrir augliti Drottins vi\u00f0 dyr samfundatjaldsins. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Presturinn skal taka anna\u00f0 hr\u00fatlambi\u00f0 og f\u00e6ra \u00fea\u00f0 \u00ed sektarf\u00f3rn \u00e1samt l\u00f3g af ol\u00edu. Hann skal veifa \u00fev\u00ed frammi fyrir augliti Drottins. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Hann skal sl\u00e1tra lambinu \u00e1 sama sta\u00f0 og hann sl\u00e1trar syndaf\u00f3rnard\u00fdrunum og brennif\u00f3rnard\u00fdrunum, \u00e1 helgum sta\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 sektarf\u00f3rnin ver\u00f0ur eign prestsins eins og syndaf\u00f3rnin, h\u00fan er h\u00e1heil\u00f6g.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Presturinn skal taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i sektarf\u00f3rnard\u00fdrsins og bera \u00fea\u00f0 \u00e1 h\u00e6gri eyrnasnepil, h\u00e6gri \u00feumalfingur og h\u00e6gri st\u00f3rut\u00e1 \u00feess sem l\u00e6tur hreinsa sig. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal presturinn taka nokku\u00f0 af ol\u00edunni og hella \u00ed vinstri l\u00f3fa sinn. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Presturinn skal d\u00fdfa h\u00e6gri v\u00edsifingri \u00ed ol\u00eduna, sem er \u00ed vinstri l\u00f3fa hans, og st\u00f6kkva me\u00f0 fingri s\u00ednum d\u00e1litlu af ol\u00edunni sj\u00f6 sinnum frammi fyrir augliti Drottins. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Auk sektarf\u00f3rnarbl\u00f3\u00f0sins skal presturinn bera nokku\u00f0 af ol\u00edunni, sem eftir er \u00ed l\u00f3fa hans, \u00e1 h\u00e6gri eyrnasnepil, h\u00e6gri \u00feumalfingur og h\u00e6gri st\u00f3rut\u00e1 \u00feess sem l\u00e6tur hreinsa sig. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 sem \u00fe\u00e1 er eftir af ol\u00edunni \u00ed vinstri l\u00f3fa prestsins skal hann setja \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 \u00feess sem l\u00e6tur hreinsa sig og presturinn skal fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir hann frammi fyrir Drottni.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal presturinn f\u00e6ra syndaf\u00f3rnina og fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir \u00feann sem l\u00e6tur hreinsa sig vegna \u00f3hreinleika hans. \u00de\u00e1 skal presturinn sl\u00e1tra brennif\u00f3rnard\u00fdrinu. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Presturinn skal \u00fev\u00ed n\u00e6st l\u00e1ta brennif\u00f3rnina \u00e1samt kornf\u00f3rninni l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af altarinu. \u00deannig fri\u00f0\u00fe\u00e6gir presturinn fyrir manninn og ver\u00f0ur hann hreinn.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> S\u00e9 ma\u00f0urinn f\u00e1t\u00e6kur og hafi ekki r\u00e1\u00f0 \u00e1 \u00feessu skal hann taka eitt lamb \u00ed sektarf\u00f3rn. Skal \u00fev\u00ed veifa\u00f0 til \u00feess a\u00f0 fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir hann. Enn fremur skal hann f\u00e6ra einn t\u00edunda af f\u00ednu mj\u00f6li bl\u00f6ndu\u00f0u ol\u00edu \u00ed kornf\u00f3rn og einn l\u00f3g af ol\u00edu, <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> tv\u00e6r turtild\u00fafur e\u00f0a d\u00fafur eftir \u00fev\u00ed sem hann hefur r\u00e1\u00f0 \u00e1. Skal \u00f6nnur vera \u00ed sektarf\u00f3rn en hin \u00ed brennif\u00f3rn. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00c1 \u00e1ttunda degi fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var \u00farskur\u00f0a\u00f0ur hreinn skal hann f\u00e6ra \u00feetta prestinum a\u00f0 dyrum samfundatjaldsins fram fyrir auglit Drottins. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Presturinn skal taka vi\u00f0 lambinu, sem \u00e6tla\u00f0 er \u00ed sektarf\u00f3rn, \u00e1samt l\u00f3g af ol\u00edu. Presturinn skal \u00fev\u00ed n\u00e6st veifa \u00fev\u00ed frammi fyrir augliti Drottins. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Presturinn skal sl\u00e1tra lambinu sem \u00e6tla\u00f0 er \u00ed sektarf\u00f3rn. \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i sektarf\u00f3rnard\u00fdrsins og rj\u00f3\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e1 h\u00e6gri eyrnasnepil, h\u00e6gri \u00feumalfingur og h\u00e6gri st\u00f3rut\u00e1 \u00feess sem l\u00e6tur hreinsa sig. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal presturinn taka nokku\u00f0 af ol\u00edunni og hella \u00ed vinstri l\u00f3fa sinn. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal presturinn st\u00f6kkva me\u00f0 v\u00edsifingri h\u00e6gri handar nokkru af ol\u00edunni, sem er \u00ed vinstri l\u00f3fa hans, sj\u00f6 sinnum fyrir framan auglit Drottins. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Presturinn skal rj\u00f3\u00f0a d\u00e1litlu af ol\u00edunni, sem eftir er \u00ed vinstri l\u00f3fa hans, \u00e1 sama sta\u00f0 og sektarf\u00f3rnarbl\u00f3\u00f0i\u00f0, \u00e1 h\u00e6gri eyrnasnepil, h\u00e6gri \u00feumalfingur og h\u00e6gri st\u00f3rut\u00e1 \u00feess sem l\u00e6tur hreinsa sig. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 sem \u00fe\u00e1 er eftir af ol\u00edunni \u00ed vinstri l\u00f3fa prestsins skal hann setja \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 \u00feess sem l\u00e6tur hreinsa sig til \u00feess a\u00f0 fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir hann frammi fyrir Drottni. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal hann f\u00e6ra fram a\u00f0ra turtild\u00fafuna e\u00f0a a\u00f0ra ungu d\u00fafuna eftir \u00fev\u00ed sem hann hefur r\u00e1\u00f0 \u00e1, <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> a\u00f0ra \u00ed syndaf\u00f3rn, hina \u00ed brennif\u00f3rn, \u00e1samt kornf\u00f3rninni. \u00deannig fri\u00f0\u00fe\u00e6gir presturinn frammi fyrir augliti Drottins fyrir mann sem l\u00e6tur hreinsast.\u201c<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00deetta eru l\u00f6g um \u00feann sem hefur haft holdsveikiskellu en hefur ekki n\u00e6gileg efni til a\u00f0 standa straum af hreinsuninni.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Skellur \u00e1 h\u00fasum<\/h3>\n<p><a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og Aron og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u201e\u00deegar \u00fei\u00f0 komi\u00f0 inn \u00ed Kanaansland sem \u00e9g afhendi ykkur til eignar og \u00e9g l\u00e6t holdsveikiskellu koma \u00e1 eitthvert h\u00fas \u00ed eignarlandi ykkar, <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> skal eigandi h\u00fassins koma til prests, tilkynna honum \u00fea\u00f0 og segja: M\u00e9r s\u00fdnist eitthva\u00f0, sem l\u00edkist holdsveikiskellu, vera \u00e1 h\u00fasinu. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal presturinn gefa fyrirm\u00e6li um a\u00f0 r\u00fdma h\u00fasi\u00f0 \u00e1\u00f0ur en hann kemur til a\u00f0 sko\u00f0a skelluna svo a\u00f0 ekki ver\u00f0i allt \u00f3hreint sem \u00ed h\u00fasinu er. A\u00f0 \u00fev\u00ed loknu skal presturinn ganga inn til a\u00f0 l\u00edta \u00e1 h\u00fasi\u00f0.<br \/> <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> Hann skal sko\u00f0a skelluna og sta\u00f0festi hann a\u00f0 dj\u00fapar skellur s\u00e9u \u00e1 veggjum h\u00fassins, gulgr\u00e6nar e\u00f0a rau\u00f0leitar, sem vir\u00f0ast liggja d\u00fdpra en m\u00farveggurinn umhverfis, <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> skal presturinn ganga \u00fat a\u00f0 dyrum h\u00fassins og loka \u00fev\u00ed \u00ed sj\u00f6 daga. <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00c1 sj\u00f6unda degi skal presturinn koma aftur og sko\u00f0a \u00fea\u00f0. Sta\u00f0festi hann a\u00f0 skellan hafi brei\u00f0st \u00fat um m\u00farveggi h\u00fassins <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> skal hann gefa fyrirm\u00e6li um a\u00f0 steinarnir me\u00f0 skellunum skuli fjarl\u00e6g\u00f0ir og \u00feeim hent \u00e1 \u00f3hreinan sta\u00f0 utan vi\u00f0 borgina. <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann l\u00e1ta skafa allt h\u00fasi\u00f0 a\u00f0 innan. Kalki\u00f0, sem skafi\u00f0 er af veggjunum, skal flytja \u00fat fyrir borgina og fleygja \u00fev\u00ed \u00e1 \u00f3hreinan sta\u00f0. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal s\u00e6kja a\u00f0ra steina og koma \u00feeim fyrir \u00ed sta\u00f0 hinna fyrri. \u00c1 sama h\u00e1tt skal taka n\u00fdtt kalk og kalka h\u00fasi\u00f0 a\u00f0 n\u00fdju.<br \/> <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> Myndist holdsveikiskella aftur og brei\u00f0ist \u00fat um h\u00fasi\u00f0 eftir a\u00f0 steinarnir hafa veri\u00f0 rifnir burt og h\u00fasi\u00f0 hefur veri\u00f0 skafi\u00f0 og kalka\u00f0 a\u00f0 n\u00fdju, <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> skal presturinn koma aftur til a\u00f0 sko\u00f0a \u00fea\u00f0. Sta\u00f0festi hann a\u00f0 skellan hafi brei\u00f0st \u00fat um h\u00fasi\u00f0 er \u00feetta illkynju\u00f0 holdsveiki \u00e1 h\u00fasinu. \u00dea\u00f0 er \u00f3hreint. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal r\u00edfa h\u00fasi\u00f0 og flytja alla steina, vi\u00f0 og kalk \u00far \u00fev\u00ed \u00fat fyrir borgina \u00e1 \u00f3hreinan sta\u00f0.<br \/> <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> S\u00e1 sem gengur inn \u00ed h\u00fasi\u00f0 \u00e1 me\u00f0an \u00fea\u00f0 er loka\u00f0 ver\u00f0ur \u00f3hreinn til kv\u00f6lds. <a name=\"47\"><span class=\"versanumer_2007\">47<\/span><\/a> S\u00e1 sem leggst til svefns \u00ed h\u00fasinu skal \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og s\u00e1 sem neytir matar \u00ed h\u00fasinu skal \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn.<br \/> <a name=\"48\"><span class=\"versanumer_2007\">48<\/span><\/a> Komi prestur og sko\u00f0i h\u00fasi\u00f0 og sta\u00f0festi a\u00f0 skellan hefur ekki brei\u00f0st \u00fat eftir a\u00f0 h\u00fasi\u00f0 var kalka\u00f0 a\u00f0 n\u00fdju, skal presturinn \u00farskur\u00f0a h\u00fasi\u00f0 hreint. Skellan hefur l\u00e6knast. <a name=\"49\"><span class=\"versanumer_2007\">49<\/span><\/a> Hann skal s\u00e6kja tvo fugla, sedrusvi\u00f0, h\u00e1rau\u00f0an \u00fer\u00e1\u00f0 og \u00eds\u00f3p til \u00feess a\u00f0 hreinsa h\u00fasi\u00f0 af synd. <a name=\"50\"><span class=\"versanumer_2007\">50<\/span><\/a> Hann skal sl\u00e1tra \u00f6\u00f0rum fuglinum yfir leirkeri me\u00f0 lindarvatni. <a name=\"51\"><span class=\"versanumer_2007\">51<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann taka sedrusvi\u00f0inn, \u00eds\u00f3pinn og h\u00e1rau\u00f0a \u00fer\u00e1\u00f0inn \u00e1samt fuglinum sem er lifandi og d\u00fdfa \u00ed bl\u00f3\u00f0 fuglsins sem sl\u00e1tra\u00f0 var og \u00ed lindarvatn. \u00de\u00e1 skal hann st\u00f6kkva \u00fev\u00ed sj\u00f6 sinnum \u00e1 h\u00fasi\u00f0. <a name=\"52\"><span class=\"versanumer_2007\">52<\/span><\/a> \u00deannig hreinsar hann h\u00fasi\u00f0 me\u00f0 fuglsbl\u00f3\u00f0i, lindarvatni, lifandi fugli, sedrusvi\u00f0i, \u00eds\u00f3p og h\u00e1rau\u00f0um \u00fer\u00e6\u00f0i. <a name=\"53\"><span class=\"versanumer_2007\">53<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann l\u00e1ta fuglinn, sem lifir, flj\u00faga burt \u00far borginni. \u00deannig fri\u00f0\u00fe\u00e6gir hann fyrir h\u00fasi\u00f0 og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur hreint.\u201c<br \/> <a name=\"54\"><span class=\"versanumer_2007\">54<\/span><\/a> \u00deetta eru l\u00f6g um allar tegundir holdsveiki og um \u00fatbrot, <a name=\"55\"><span class=\"versanumer_2007\">55<\/span><\/a> um holdsveiki \u00e1 kl\u00e6\u00f0um og h\u00fasum, <a name=\"56\"><span class=\"versanumer_2007\">56<\/span><\/a> um b\u00f3lgu, hr\u00fa\u00f0ur og lj\u00f3sa bletti. <a name=\"57\"><span class=\"versanumer_2007\">57<\/span><\/a> \u00deetta eru lei\u00f0beiningar um \u00fea\u00f0 hven\u00e6r eitthva\u00f0 er \u00f3hreint e\u00f0a hreint.<br \/>\u00deetta eru l\u00f6g um holdsveiki.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hreinsun holdsveikra 1 Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i: 2 \u201e\u00deetta eru l\u00f6g um \u00fea\u00f0 \u00feegar holdsveikur ma\u00f0ur skal \u00farskur\u00f0a\u00f0ur hreinn og leiddur fyrir prest. 3 Presturinn skal ganga \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar og sko\u00f0a hann. Sta\u00f0festi hann a\u00f0 hinn holdsveiki s\u00e9 or\u00f0inn heill af holdsveikinni 4 skal presturinn l\u00e1ta s\u00e6kja tvo lifandi, hreina fugla, sedrusvi\u00f0, h\u00e1rau\u00f0an \u00fer\u00e1\u00f0 og \u00eds\u00f3p handa \u00feeim sem l\u00e6tur hreinsa sig. 5 \u00de\u00e1 skal presturinn gefa fyrirm\u00e6li um a\u00f0 sl\u00e1tra \u00f6\u00f0rum fuglinum yfir leirkeri me\u00f0 lindarvatni. 6 \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann taka lifandi fuglinn, sedrusvi\u00f0inn, h\u00e1rau\u00f0a \u00fer\u00e1\u00f0inn og \u00eds\u00f3pinn og d\u00fdfa \u00fev\u00ed \u00f6llu \u00e1samt fuglinum, sem <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1721","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1721","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1721"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1721\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1721"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}