{"id":1718,"date":"2017-12-30T21:00:11","date_gmt":"2017-12-30T21:00:11","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/_ri_ja-m%c2%97seb%c2%97k-11-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:30:19","modified_gmt":"2024-05-06T22:30:19","slug":"thridja-mosebok-11-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-11-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 11. kafli"},"content":{"rendered":"<h2 class=\"millifyrirsogn_2007\">Lagab\u00e1lkur um hreint og \u00f3hreint <\/h2>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hrein d\u00fdr og \u00f3hrein<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og Aron og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201e\u00c1varpi\u00f0 \u00cdsraelsmenn og segi\u00f0: Af \u00f6llum st\u00f3rgripum jar\u00f0arinnar megi\u00f0 \u00fei\u00f0 eta \u00feessa:<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 megi\u00f0 eta st\u00f3rgripi sem hafa klofna h\u00f3fa, hafa klaufir og j\u00f3rtra.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> En \u00feessi d\u00fdr, sem a\u00f0eins j\u00f3rtra e\u00f0a a\u00f0eins hafa klofna h\u00f3fa, megi\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki eta:<br \/>\u00dei\u00f0 megi\u00f0 ekki eta \u00falfalda; \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 telja hann \u00f3hreinan \u00fev\u00ed a\u00f0 hann j\u00f3rtrar en hefur ekki klofna h\u00f3fa; <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 telja klettagreifingja \u00f3hreinan \u00fev\u00ed a\u00f0 hann j\u00f3rtrar en hefur ekki klofna h\u00f3fa; <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 telja h\u00e9ra \u00f3hreinan \u00fev\u00ed a\u00f0 hann j\u00f3rtrar en hefur ekki klofna h\u00f3fa; <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 telja sv\u00edn \u00f3hreint \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur klofna h\u00f3fa, \u00fea\u00f0 hefur klaufir en j\u00f3rtrar ekki.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 megi\u00f0 hvorki neyta kj\u00f6ts \u00feessara d\u00fdra n\u00e9 snerta hr\u00e6 \u00feeirra, \u00feau skulu vera ykkur \u00f3hrein.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00deessi lagard\u00fdr megi\u00f0 \u00fei\u00f0 eta: \u00d6ll d\u00fdr sem hafa ugga og hreistur og lifa \u00ed vatni, hvort heldur sj\u00f3 e\u00f0a flj\u00f3tum. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En \u00f6ll sm\u00e1d\u00fdr, sem v\u00f6tnin eru kvik af, og allar \u00fe\u00e6r skepnur, sem lifa \u00ed vatni en hvorki hafa ugga n\u00e9 hreistur, <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> skulu vera ykkur vi\u00f0urstygg\u00f0. S\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00feau eru ykkur vi\u00f0urstygg\u00f0 skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki neyta \u00feeirra og ykkur skal bj\u00f3\u00f0a vi\u00f0 hr\u00e6jum \u00feeirra.<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Lagard\u00fdr, sem hvorki hafa ugga n\u00e9 hreistur, skulu vera ykkur vi\u00f0urstygg\u00f0.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deessir fuglar skulu vera ykkur vi\u00f0urstygg\u00f0 og \u00feeirra skal ekki neyta: \u00f6rn, skegggammur, haf\u00f6rn, <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> gle\u00f0a, f\u00e1lkar og haukar, <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> hrafnakyni\u00f0 allt, <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> str\u00fatur, svala, m\u00e1vur, allar smyrlategundir, <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> ugla, s\u00fala, n\u00e1ttugla, <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> hornugla, sn\u00e6ugla, hr\u00e6gammur, <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> storkur, allar tegundir hegra, herfugl og le\u00f0urblaka.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00d6ll ferf\u00e6tt, v\u00e6ngju\u00f0 skord\u00fdr skulu vera ykkur vi\u00f0urstygg\u00f0. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Samt megi\u00f0 \u00fei\u00f0 neyta ferf\u00e6ttra, v\u00e6ngja\u00f0ra skord\u00fdra sem hafa l\u00e6rv\u00f6\u00f0va ofan vi\u00f0 f\u00f3tleggina til \u00feess a\u00f0 st\u00f6kkva me\u00f0 um j\u00f6r\u00f0ina. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Af \u00feeim megi\u00f0 \u00fei\u00f0 neyta \u00feessara d\u00fdra: \u00fdmissa tegunda af fl\u00e6kingsengisprettum, klettaengisprettum, hlaupaengisprettum og st\u00f6kkengisprettum. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En \u00f6ll \u00f6nnur ferf\u00e6tt, v\u00e6ngju\u00f0 skord\u00fdr skulu vera ykkur vi\u00f0urstygg\u00f0.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 \u00f3hreinir af \u00feessum d\u00fdrum. Hver sem snertir hr\u00e6 \u00feeirra ver\u00f0ur \u00f3hreinn til kv\u00f6lds. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Hver sem tekur upp hr\u00e6 \u00feeirra skal \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og er \u00f3hreinn til kv\u00f6lds.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> St\u00f3rgripir me\u00f0 klofna h\u00f3fa en ekki klaufir, sem j\u00f3rtra ekki, skulu vera ykkur \u00f3hreinir. Hver sem snertir \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur \u00f3hreinn.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Allir ferf\u00e6tlingar, sem ganga \u00e1 \u00fe\u00f3fum, skulu vera ykkur \u00f3hreinir. Hver sem snertir hr\u00e6 \u00feeirra ver\u00f0ur \u00f3hreinn til kv\u00f6lds <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> og hver sem tekur upp hr\u00e6 \u00feeirra skal \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og ver\u00f0ur \u00f3hreinn til kv\u00f6lds. \u00deau skulu vera ykkur \u00f3hrein.<br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Af \u00feeim d\u00fdrum, sem skr\u00ed\u00f0a \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, skulu \u00feessi teljast \u00f3hrein: moldvarpa, m\u00fas, \u00fdmsar e\u00f0lutegundir, <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> skr\u00e6ke\u00f0la, k\u00f3ake\u00f0la, letae\u00f0la, salamandra og kamellj\u00f3n. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Af d\u00fdrunum, sem skr\u00ed\u00f0a \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, skulu \u00feessi vera ykkur \u00f3hrein. Hver sem snertir hr\u00e6 \u00feeirra ver\u00f0ur \u00f3hreinn til kv\u00f6lds.<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Allt sem \u00feau falla \u00e1 dau\u00f0 ver\u00f0ur \u00f3hreint, hvort sem \u00fea\u00f0 er einhver hlutur \u00far vi\u00f0i, kl\u00e6\u00f0i, le\u00f0ri e\u00f0a striga e\u00f0a hva\u00f0a nytsamur hlutur sem vera skal. \u00deeim hlut skal d\u00fdft \u00ed vatn og ver\u00f0ur hann \u00f3hreinn til kv\u00f6lds.<br \/> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Detti eitthvert \u00feessara d\u00fdra \u00ed leirker ver\u00f0ur allt \u00f3hreint sem \u00ed \u00fev\u00ed er og skal keri\u00f0 broti\u00f0. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Allur matur, sem annars m\u00e6tti neyta, ver\u00f0ur \u00f3hreinn ef vatn \u00far sl\u00edku keri rennur \u00e1 hann. S\u00e9rhver drykkur, sem annars m\u00e6tti drekka, ver\u00f0ur \u00f3hreinn \u00ed sl\u00edku keri.<br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Allt sem hr\u00e6 einhvers \u00feessara d\u00fdra fellur \u00e1 ver\u00f0ur \u00f3hreint. Ef \u00fea\u00f0 er ofn e\u00f0a eldst\u00e6\u00f0i skal \u00fea\u00f0 rifi\u00f0 ni\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 \u00f3hreint. \u00dea\u00f0 skal vera ykkur \u00f3hreint.<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Hins vegar ver\u00f0a lindir og brunnar, sem vatni er safna\u00f0 \u00ed, hrein en s\u00e1 einn sem snertir hr\u00e6i\u00f0 ver\u00f0ur \u00f3hreinn.<br \/> <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00deegar hr\u00e6 af einhverju \u00feessara d\u00fdra fellur \u00e1 \u00fats\u00e6\u00f0i sem \u00e1 a\u00f0 s\u00e1 er \u00fea\u00f0 hreint. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> \u00deegar \u00fats\u00e6\u00f0i\u00f0 hefur veri\u00f0 v\u00e6tt \u00ed vatni og hr\u00e6 af einhverju \u00feessara d\u00fdra fellur \u00e1 \u00fea\u00f0, skal \u00fea\u00f0 vera ykkur \u00f3hreint.<br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00deegar f\u00e9na\u00f0ur, sem \u00fei\u00f0 megi\u00f0 neyta, deyr ver\u00f0ur s\u00e1 sem snertir hr\u00e6i\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00f3hreinn til kv\u00f6lds. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> S\u00e1 sem neytir einhvers af hr\u00e6inu skal \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og hann ver\u00f0ur \u00f3hreinn til kv\u00f6lds. S\u00e1 sem tekur hr\u00e6i\u00f0 upp skal \u00fevo kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og hann ver\u00f0ur \u00f3hreinn til kv\u00f6lds.<br \/> <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> S\u00e9rhvert d\u00fdr, sem skr\u00ed\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, er vi\u00f0urstygg\u00f0, \u00fea\u00f0 m\u00e1 ekki eta. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 megi\u00f0 ekki eta nokkurt d\u00fdr sem skr\u00ed\u00f0ur \u00e1 kvi\u00f0num e\u00f0a gengur \u00e1 fj\u00f3rum f\u00f3tum e\u00f0a fj\u00f6lm\u00f6rgum f\u00f3tum, yfirleitt einskis d\u00fdrs sem skr\u00ed\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau eru vi\u00f0urstygg\u00f0. <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> Geri\u00f0 ykkur sj\u00e1lfa ekki vi\u00f0urstyggilega me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 snerta skri\u00f0d\u00fdr sem skr\u00ed\u00f0ur, \u00fei\u00f0 megi\u00f0 ekki saurgast af \u00feeim me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta \u00feau \u00f3hreinka ykkur. <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> Vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g er Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 helga ykkur og vera heilagir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er heilagur. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki saurga ykkur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 snerta skri\u00f0d\u00fdr sem skr\u00ed\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> Vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g er Drottinn, sem leiddi ykkur \u00fat af Egyptalandi til a\u00f0 gerast Gu\u00f0 ykkar, skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 vera heilagir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er heilagur.\u201c<br \/> <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> \u00deetta eru l\u00f6g um st\u00f3rgripi og fugla, um lagard\u00fdr og um d\u00fdr sem skr\u00ed\u00f0a \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni. <a name=\"47\"><span class=\"versanumer_2007\">47<\/span><\/a> Me\u00f0 \u00feeim m\u00e1 greina \u00e1 milli \u00feess sem er \u00f3hreint og hreint og milli d\u00fdra sem neyta m\u00e1 og hinna sem ekki m\u00e1 neyta.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Lagab\u00e1lkur um hreint og \u00f3hreint Hrein d\u00fdr og \u00f3hrein 1 Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og Aron og sag\u00f0i: 2 \u201e\u00c1varpi\u00f0 \u00cdsraelsmenn og segi\u00f0: Af \u00f6llum st\u00f3rgripum jar\u00f0arinnar megi\u00f0 \u00fei\u00f0 eta \u00feessa: 3 \u00dei\u00f0 megi\u00f0 eta st\u00f3rgripi sem hafa klofna h\u00f3fa, hafa klaufir og j\u00f3rtra. 4 En \u00feessi d\u00fdr, sem a\u00f0eins j\u00f3rtra e\u00f0a a\u00f0eins hafa klofna h\u00f3fa, megi\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki eta:\u00dei\u00f0 megi\u00f0 ekki eta \u00falfalda; \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 telja hann \u00f3hreinan \u00fev\u00ed a\u00f0 hann j\u00f3rtrar en hefur ekki klofna h\u00f3fa; 5 \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 telja klettagreifingja \u00f3hreinan \u00fev\u00ed a\u00f0 hann j\u00f3rtrar en hefur ekki klofna h\u00f3fa; 6 \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 telja h\u00e9ra \u00f3hreinan \u00fev\u00ed <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-11-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1718","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1718","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1718"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1718\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1718"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}