{"id":1715,"date":"2017-12-30T21:00:05","date_gmt":"2017-12-30T21:00:05","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/_ri_ja-m%c2%97seb%c2%97k-8-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:30:23","modified_gmt":"2024-05-06T22:30:23","slug":"thridja-mosebok-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-8-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 8. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> V\u00edgsla Arons og sona hans<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201eS\u00e6ktu Aron og syni hans, kl\u00e6\u00f0in og smurningarol\u00eduna, naut \u00ed syndaf\u00f3rn, tvo hr\u00fata og k\u00f6rfu me\u00f0 \u00f3s\u00fdr\u00f0um brau\u00f0um. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Kalla\u00f0u \u00fev\u00ed n\u00e6st allan s\u00f6fnu\u00f0inn saman vi\u00f0 dyr samfundatjaldsins.\u201c<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> M\u00f3se ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Drottinn lag\u00f0i fyrir hann og s\u00f6fnu\u00f0urinn safna\u00f0ist saman vi\u00f0 dyr samfundatjaldsins. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i M\u00f3se vi\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0inn: \u201e\u00deetta er \u00fea\u00f0 sem Drottinn hefur bo\u00f0i\u00f0.\u201c<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st l\u00e9t M\u00f3se Aron og syni hans ganga fram og \u00fevo\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00ed vatni.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hann f\u00e6r\u00f0i hann \u00ed kyrtilinn, gyrti hann beltinu og kl\u00e6ddi hann \u00ed k\u00e1puna, lag\u00f0i yfir hann h\u00f6kulinn, gyrti hann belti og festi h\u00f6kulinn \u00feannig \u00e1 hann. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hann kom brj\u00f3stskildinum fyrir \u00e1 honum og lag\u00f0i \u00far\u00edm og t\u00famm\u00edm \u00ed hann. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00de\u00e1 setti hann vefjarh\u00f6ttinn \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 hans og framan \u00e1 vefjarh\u00f6ttinn setti hann gullbl\u00f3mi\u00f0, hi\u00f0 heilaga h\u00f6fu\u00f0dj\u00e1sn, eins og Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st s\u00f3tti M\u00f3se smurningarol\u00eduna og smur\u00f0i b\u00fasta\u00f0 Drottins og allt sem \u00ed honum var og v\u00edg\u00f0i hann \u00feannig. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Hann st\u00f6kkti nokkru af ol\u00edunni sj\u00f6 sinnum \u00e1 altari\u00f0 og v\u00edg\u00f0i \u00f6ll \u00e1h\u00f6ld \u00feess, s\u00f6mulei\u00f0is keri\u00f0 og f\u00f3t \u00feess, me\u00f0 smurningu.<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00de\u00e1 hellti hann nokkru af smurningarol\u00edunni yfir h\u00f6fu\u00f0 Arons og smur\u00f0i hann og helga\u00f0i.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st l\u00e9t M\u00f3se syni Arons ganga fram. Hann kl\u00e6ddi \u00fe\u00e1 \u00ed kyrtla, gyrti \u00fe\u00e1 beltum og batt \u00e1 \u00fe\u00e1 h\u00f6fu\u00f0d\u00faka eins og Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00de\u00e1 l\u00e9t hann lei\u00f0a nauti\u00f0 fram til syndaf\u00f3rnar og Aron og synir hans l\u00f6g\u00f0u hendur s\u00ednar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 \u00feess. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st sl\u00e1tra\u00f0i M\u00f3se \u00fev\u00ed, t\u00f3k nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0inu og rau\u00f0 \u00fev\u00ed me\u00f0 fingri s\u00ednum \u00e1 horn altarisins allt um kring til \u00feess a\u00f0 hreinsa \u00fea\u00f0 og hellti s\u00ed\u00f0an \u00fev\u00ed sem eftir var af bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 f\u00f3tstall altarisins.<br \/> \u00deannig helga\u00f0i hann altari\u00f0 til a\u00f0 fri\u00f0\u00fe\u00e6gja \u00e1 \u00fev\u00ed.<span class=\"nedan_mal\" title=\" H\u00e9r er \u00fe\u00fdtt me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af gr\u00edsku sj\u00f6t\u00edumanna\u00fe\u00fd\u00f0ingunni.\">[<\/span> <br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00de\u00e1 t\u00f3k M\u00f3se allan innyflam\u00f6rinn, lifrarbla\u00f0i\u00f0 og b\u00e6\u00f0i n\u00fdrun \u00e1samt n\u00fdrnam\u00f6rnum og l\u00e9t \u00fea\u00f0 l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk fr\u00e1 altarinu. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Nauti\u00f0 sj\u00e1lft, h\u00fa\u00f0ina, kj\u00f6ti\u00f0 og gori\u00f0, brenndi hann \u00ed eldi fyrir utan herb\u00fa\u00f0irnar eins og Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00e6r\u00f0i hann fram hr\u00fat til brennif\u00f3rnar og Aron og synir hans l\u00f6g\u00f0u hendur s\u00ednar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 hans. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st sl\u00e1tra\u00f0i M\u00f3se honum og st\u00f6kkti bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 allar hli\u00f0ar altarisins.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st hluta\u00f0i hann hr\u00fatinn ni\u00f0ur og M\u00f3se l\u00e9t h\u00f6fu\u00f0i\u00f0, stykkin og m\u00f6rinn l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Hann \u00fevo\u00f0i innyflin og f\u00e6turna \u00ed vatni. \u00deannig l\u00e9t M\u00f3se allan hr\u00fatinn l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af altarinu.<br \/>\u00deetta var brennif\u00f3rn, \u00feekkur ilmur, eldf\u00f3rn handa Drottni eins og Drottinn haf\u00f0i lagt fyrir M\u00f3se.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00e6r\u00f0i hann hinn hr\u00fatinn fram, hr\u00fat til v\u00edgsluf\u00f3rnar, og Aron og synir hans l\u00f6g\u00f0u hendur s\u00ednar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 hans. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st sl\u00e1tra\u00f0i M\u00f3se honum og t\u00f3k nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i hans og rau\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1 h\u00e6gri eyrnasnepil Arons, \u00feumalfingur h\u00e6gri handar og st\u00f3rut\u00e1 h\u00e6gri f\u00f3tar hans.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00de\u00e1 l\u00e9t M\u00f3se syni Arons ganga fram og rau\u00f0 nokkru af bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 h\u00e6gri eyrnasnepil \u00feeirra, \u00feumalfingur h\u00e6gri handar og st\u00f3rut\u00e1 h\u00e6gri f\u00f3tar.<br \/>\u00dev\u00ed n\u00e6st st\u00f6kkti M\u00f3se \u00fev\u00ed sem eftir var af bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 allar hli\u00f0ar altarisins.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00de\u00e1 t\u00f3k hann m\u00f6rinn og r\u00f3funa, allan innyflam\u00f6rinn, lifrarbla\u00f0i\u00f0, b\u00e6\u00f0i n\u00fdrun \u00e1samt n\u00fdrnam\u00f6rnum og h\u00e6gra l\u00e6ri\u00f0. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Hann t\u00f3k einnig eina kringl\u00f3tta \u00f3s\u00fdr\u00f0a k\u00f6ku, eina kringl\u00f3tta ol\u00edublanda\u00f0a k\u00f6ku og eina flatk\u00f6ku \u00far k\u00f6rfunni me\u00f0 \u00f3s\u00fdr\u00f0um brau\u00f0um sem st\u00f3\u00f0 frammi fyrir augliti Drottins. Hann lag\u00f0i brau\u00f0in ofan \u00e1 m\u00f6rinn og h\u00e6gra l\u00e6ri\u00f0, <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> f\u00e9kk Aroni og sonum hans \u00fea\u00f0 allt \u00ed hendur og l\u00e9t \u00fe\u00e1 veifa \u00fev\u00ed frammi fyrir augliti Drottins.<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st t\u00f3k M\u00f3se \u00feetta aftur \u00far h\u00f6ndum \u00feeirra og l\u00e9t \u00fea\u00f0 l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af altarinu \u00e1samt brennif\u00f3rninni.<br \/>\u00deetta var v\u00edgsluf\u00f3rn, \u00feekkur ilmur, eldf\u00f3rn handa Drottni.<br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> M\u00f3se t\u00f3k bringuna og veifa\u00f0i henni frammi fyrir augliti Drottins. H\u00fan var s\u00e1 hluti v\u00edgsluhr\u00fatsins sem M\u00f3se f\u00e9kk eins og Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se.<br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00de\u00e1 t\u00f3k M\u00f3se nokku\u00f0 af smurningarol\u00edunni og bl\u00f3\u00f0inu sem var \u00e1 altarinu og st\u00f6kkti \u00fev\u00ed \u00e1 Aron og kl\u00e6\u00f0i hans, syni hans og kl\u00e6\u00f0i \u00feeirra. \u00deannig v\u00edg\u00f0i hann Aron og kl\u00e6\u00f0i hans og syni hans og kl\u00e6\u00f0i \u00feeirra.<br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an sag\u00f0i M\u00f3se vi\u00f0 Aron og syni hans: \u201eSj\u00f3\u00f0i\u00f0 kj\u00f6ti\u00f0 \u00fati fyrir dyrum samfundatjaldsins og \u00fear skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 neyta \u00feess \u00e1samt brau\u00f0inu, sem er \u00ed v\u00edgsluk\u00f6rfunni, eins og lagt hefur veri\u00f0 fyrir mig me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um: Aron og synir hans skulu neyta \u00feess. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> En \u00fea\u00f0 sem eftir ver\u00f0ur af kj\u00f6tinu og brau\u00f0inu skal brennt \u00ed eldi.<br \/> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00cd sj\u00f6 daga skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki v\u00edkja fr\u00e1 dyrum samfundatjaldsins, ekki fyrr en v\u00edgslut\u00edma ykkar l\u00fdkur \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00edgsla ykkar stendur \u00ed sj\u00f6 daga. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 sem gert hefur veri\u00f0 \u00ed dag hefur Drottinn bo\u00f0i\u00f0 til fri\u00f0\u00fe\u00e6gingar fyrir ykkur. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 vera vi\u00f0 inngang samfundatjaldsins dag og n\u00f3tt \u00ed sj\u00f6 daga. Fylgi\u00f0 \u00feessum fyrirm\u00e6lum Drottins svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 deyi\u00f0 ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta hefur m\u00e9r veri\u00f0 bo\u00f0i\u00f0.\u201c<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Aron og synir hans ger\u00f0u allt sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 fyrir munn M\u00f3se.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>V\u00edgsla Arons og sona hans 1 Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i: 2 \u201eS\u00e6ktu Aron og syni hans, kl\u00e6\u00f0in og smurningarol\u00eduna, naut \u00ed syndaf\u00f3rn, tvo hr\u00fata og k\u00f6rfu me\u00f0 \u00f3s\u00fdr\u00f0um brau\u00f0um. 3 Kalla\u00f0u \u00fev\u00ed n\u00e6st allan s\u00f6fnu\u00f0inn saman vi\u00f0 dyr samfundatjaldsins.\u201c 4 M\u00f3se ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Drottinn lag\u00f0i fyrir hann og s\u00f6fnu\u00f0urinn safna\u00f0ist saman vi\u00f0 dyr samfundatjaldsins. 5 \u00de\u00e1 sag\u00f0i M\u00f3se vi\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0inn: \u201e\u00deetta er \u00fea\u00f0 sem Drottinn hefur bo\u00f0i\u00f0.\u201c 6 \u00dev\u00ed n\u00e6st l\u00e9t M\u00f3se Aron og syni hans ganga fram og \u00fevo\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00ed vatni. 7 Hann f\u00e6r\u00f0i hann \u00ed kyrtilinn, gyrti hann beltinu og kl\u00e6ddi hann \u00ed k\u00e1puna, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1715","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1715","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1715"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1715\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1715"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}