{"id":1713,"date":"2017-12-30T21:00:05","date_gmt":"2017-12-30T21:00:05","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/_ri_ja-m%c2%97seb%c2%97k-6-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:30:23","modified_gmt":"2024-05-06T22:30:23","slug":"thridja-mosebok-6-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-6-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 6. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Brennif\u00f3rn<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201eGef\u00f0u Aroni og sonum hans \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u00deetta eru l\u00f6gin um brennif\u00f3rnina: Brennif\u00f3rnin skal liggja \u00e1 eldst\u00e6\u00f0inu ofan \u00e1 altarinu alla n\u00f3ttina til morguns. Me\u00f0 henni skal eldinum \u00e1 altarinu haldi\u00f0 lifandi.<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Presturinn skal fara \u00ed l\u00ednkl\u00e6\u00f0i s\u00edn, hylja hold sitt me\u00f0 l\u00ednbuxum. \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann fjarl\u00e6gja f\u00f3rnar\u00f6skuna eftir a\u00f0 eldurinn hefur eytt brennif\u00f3rninni \u00e1 altarinu og henda henni vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 altarinu. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal hann fara \u00far kl\u00e6\u00f0um s\u00ednum og fara \u00ed \u00f6nnur kl\u00e6\u00f0i og bera f\u00f3rnar\u00f6skuna \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar \u00e1 hreinan sta\u00f0.<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Eldinum \u00e1 altarinu skal haldi\u00f0 logandi, hann m\u00e1 ekki slokkna. Presturinn skal leggja vi\u00f0 \u00e1 hann hvern morgun, koma brennif\u00f3rninni fyrir \u00e1 honum og l\u00e1ta m\u00f6r heillaf\u00f3rnarinnar l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Eldinum skal \u00e6t\u00ed\u00f0 haldi\u00f0 lifandi \u00e1 altarinu, hann m\u00e1 ekki slokkna.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Kornf\u00f3rn<\/h3>\n<p><a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deetta eru l\u00f6gin um kornf\u00f3rnina: Synir Arons skulu bera hana fram fyrir auglit Drottins a\u00f0 framhli\u00f0 altarisins. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Presturinn skal taka handfylli af mj\u00f6li kornf\u00f3rnarinnar og ol\u00edu \u00e1samt \u00f6llu reykelsinu, sem er ofan \u00e1 kornf\u00f3rninni, og l\u00e1ta \u00fea\u00f0 l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af altarinu. \u00deetta er \u00feekkur ilmur, minningarhluti handa Drottni.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Aron og synir hans skulu neyta \u00feess sem eftir er af kornf\u00f3rninni. \u00dea\u00f0 skal eti\u00f0 sem \u00f3s\u00fdr\u00f0ar k\u00f6kur \u00e1 helgum sta\u00f0, \u00ed forgar\u00f0i samfundatjaldsins.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Ekki m\u00e1 baka \u00fea\u00f0 sem s\u00fdrt brau\u00f0. \u00dea\u00f0 er hluti eldf\u00f3rnar minnar sem \u00e9g gef \u00feeim. \u00dea\u00f0 er h\u00e1heilagt eins og syndaf\u00f3rn og sektarf\u00f3rn.<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Allir karlmenn me\u00f0al ni\u00f0ja Arons mega neyta \u00feessa hluta eldf\u00f3rna Drottins. \u00deetta er \u00e6varandi regla sem gildir fyrir ykkur fr\u00e1 einni kynsl\u00f3\u00f0 til annarrar. Hver sem snertir f\u00f3rnina ver\u00f0ur heilagur.\u201c<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i: <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u201eT\u00edundi hluti \u00far efu af f\u00ednu mj\u00f6li er gj\u00f6fin sem Aron og synir hans skulu f\u00e6ra Drottni daginn sem \u00feeir ver\u00f0a smur\u00f0ir. \u00dea\u00f0 skal f\u00e6rt \u00ed daglega kornf\u00f3rn, helmingur a\u00f0 morgni og helmingur a\u00f0 kv\u00f6ldi. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deessi kornf\u00f3rn skal tilreidd \u00e1 p\u00f6nnu og mj\u00f6li\u00f0 hr\u00e6rt saman vi\u00f0 ol\u00edu. \u00de\u00fa skalt brj\u00f3ta f\u00f3rnina \u00ed mola og bera hana fram sem kornf\u00f3rn, sem Drottni \u00feekkan ilm.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> S\u00e1 sona Arons sem ver\u00f0ur smur\u00f0ur prestur \u00ed hans sta\u00f0 skal tilrei\u00f0a \u00feessa f\u00f3rn. \u00dea\u00f0 er \u00e6varandi regla a\u00f0 h\u00fan skal \u00f6ll l\u00e1tin l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk sem alf\u00f3rn handa Drottni. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> S\u00e9rhver kornf\u00f3rn sem prestur f\u00e6rir er alf\u00f3rn. Hennar m\u00e1 ekki neyta.\u201c<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/>\u201e\u00c1varpa\u00f0u Aron og syni hans og seg\u00f0u: <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deetta eru l\u00f6gin um syndaf\u00f3rnina. Syndaf\u00f3rnard\u00fdrinu skal sl\u00e1tra\u00f0 frammi fyrir augliti Drottins \u00e1 sama sta\u00f0 og brennif\u00f3rnard\u00fdrinu. \u00dea\u00f0 er h\u00e1heilagt.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Presturinn, sem f\u00e6rir syndaf\u00f3rnina, skal neyta hennar. Hennar skal neytt \u00e1 helgum sta\u00f0, \u00ed forgar\u00f0i samfundatjaldsins. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Hver sem snertir kj\u00f6t f\u00f3rnard\u00fdrsins ver\u00f0ur heilagur. Ef eitthva\u00f0 af bl\u00f3\u00f0inu slettist \u00e1 kl\u00e6\u00f0na\u00f0 skal bletturinn \u00feveginn \u00far \u00e1 helgum sta\u00f0. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Hafi kj\u00f6ti\u00f0 veri\u00f0 so\u00f0i\u00f0 \u00ed leirpotti skal hann brotinn en hafi \u00fea\u00f0 veri\u00f0 so\u00f0i\u00f0 \u00ed eirpotti skal hann bursta\u00f0ur og \u00feveginn \u00ed vatni.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> S\u00e9rhver karlma\u00f0ur \u00ed fj\u00f6lskyldum prestanna m\u00e1 neyta \u00feessa kj\u00f6ts. \u00dea\u00f0 er h\u00e1heilagt. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En af syndaf\u00f3rnum skal einskis neytt hafi hluti af bl\u00f3\u00f0i \u00feeirra veri\u00f0 borinn inn \u00ed samfundatjaldi\u00f0 til fri\u00f0\u00fe\u00e6gingar \u00ed helgid\u00f3minum. \u00de\u00e6r skal brenna \u00ed eldi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Brennif\u00f3rn 1 Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i: 2 \u201eGef\u00f0u Aroni og sonum hans \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u00deetta eru l\u00f6gin um brennif\u00f3rnina: Brennif\u00f3rnin skal liggja \u00e1 eldst\u00e6\u00f0inu ofan \u00e1 altarinu alla n\u00f3ttina til morguns. Me\u00f0 henni skal eldinum \u00e1 altarinu haldi\u00f0 lifandi. 3 Presturinn skal fara \u00ed l\u00ednkl\u00e6\u00f0i s\u00edn, hylja hold sitt me\u00f0 l\u00ednbuxum. \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann fjarl\u00e6gja f\u00f3rnar\u00f6skuna eftir a\u00f0 eldurinn hefur eytt brennif\u00f3rninni \u00e1 altarinu og henda henni vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 altarinu. 4 \u00de\u00e1 skal hann fara \u00far kl\u00e6\u00f0um s\u00ednum og fara \u00ed \u00f6nnur kl\u00e6\u00f0i og bera f\u00f3rnar\u00f6skuna \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar \u00e1 hreinan sta\u00f0. 5 Eldinum \u00e1 altarinu <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-6-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1713","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1713","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1713"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1713\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1713"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}