{"id":1711,"date":"2017-12-30T21:00:05","date_gmt":"2017-12-30T21:00:05","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/_ri_ja-m%c2%97seb%c2%97k-4-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:30:23","modified_gmt":"2024-05-06T22:30:23","slug":"thridja-mosebok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-4-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> F\u00f3rn fyrir synd \u00e6\u00f0sta prestsins<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201e\u00c1varpa\u00f0u \u00cdsraelsmenn og seg\u00f0u: N\u00fa syndgar einhver af vang\u00e1 gegn einhverju \u00fev\u00ed sem Drottinn hefur banna\u00f0: <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Ef presturinn sem smur\u00f0ur hefur veri\u00f0 syndgar og bakar \u00fej\u00f3\u00f0inni sekt skal hann f\u00e6ra Drottni naut, l\u00fdtalaust ungneyti, \u00ed syndaf\u00f3rn fyrir \u00fe\u00e1 synd sem hann hefur dr\u00fdgt. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Hann skal lei\u00f0a nauti\u00f0 a\u00f0 dyrum samfundatjaldsins, fram fyrir auglit Drottins, leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 nautsins og sl\u00e1tra \u00fev\u00ed frammi fyrir augliti Drottins. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal smur\u00f0i presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i nautsins og bera \u00fea\u00f0 inn \u00ed samfundatjaldi\u00f0. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Presturinn skal d\u00fdfa fingri s\u00ednum \u00ed bl\u00f3\u00f0i\u00f0 og st\u00f6kkva nokkru af \u00fev\u00ed sj\u00f6 sinnum frammi fyrir augliti Drottins framan vi\u00f0 fortjald helgid\u00f3msins. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal presturinn rj\u00f3\u00f0a nokkru af bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 horn reykelsisaltarisins sem er fyrir framan auglit Drottins \u00ed samfundatjaldinu. \u00dev\u00ed sem eftir er af bl\u00f3\u00f0i nautsins skal hann hella \u00e1 f\u00f3tstall brennif\u00f3rnaraltarisins vi\u00f0 innganginn a\u00f0 samfundatjaldinu.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skal hann taka allan m\u00f6rinn \u00far syndaf\u00f3rnarnautinu, netjuna sem hylur i\u00f0rin og allan innyflam\u00f6rinn, <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> b\u00e6\u00f0i n\u00fdrun \u00e1samt n\u00fdrnam\u00f6rnum, sem er innan \u00e1 m\u00f6lunum, og lifrarbla\u00f0i\u00f0 sem hann skal skilja fr\u00e1 vi\u00f0 n\u00fdrun, <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00e1 sama h\u00e1tt og m\u00f6rinn var tekinn \u00far heillaf\u00f3rnarnautinu. Presturinn skal l\u00e1ta \u00feetta l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af brennif\u00f3rnaraltarinu.<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> H\u00fa\u00f0 nautsins, allt kj\u00f6ti\u00f0 \u00e1samt h\u00f6f\u00f0i, f\u00f3tum, innyflum og gori, <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> allt sem eftir er af nautinu, skal presturinn fara me\u00f0 \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar \u00e1 hreinan sta\u00f0. Hann skal fara me\u00f0 \u00feetta \u00feanga\u00f0 sem f\u00f3rnar\u00f6skunni er hent, leggja \u00fea\u00f0 \u00e1 eldivi\u00f0 og brenna \u00e1 b\u00e1li. \u00dea\u00f0 skal brennt \u00fear sem f\u00f3rnar\u00f6skunni er hent.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">F\u00f3rn fyrir synd safna\u00f0arins<\/h3>\n<p><a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Syndgi allur s\u00f6fnu\u00f0ur \u00cdsraels af vang\u00e1 \u00e1n \u00feess a\u00f0 honum s\u00e9 \u00fea\u00f0 lj\u00f3st og fremji hann eitthva\u00f0 sem Drottinn hefur banna\u00f0 \u00ed einhverju af bo\u00f0um s\u00ednum, ver\u00f0ur hann sekur. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deegar syndin, sem s\u00f6fnu\u00f0urinn hefur dr\u00fdgt, ver\u00f0ur uppv\u00eds skal hann f\u00e6ra naut, st\u00f3rgrip, \u00ed syndaf\u00f3rn og lei\u00f0a \u00fea\u00f0 fram fyrir samfundatjaldi\u00f0. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skulu \u00f6ldungar safna\u00f0arins leggja hendur \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 nautsins frammi fyrir augliti Drottins og sl\u00e1tra \u00fev\u00ed frammi fyrir augliti Drottins. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal smur\u00f0i presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i nautsins og f\u00e6ra \u00fea\u00f0 inn \u00ed samfundatjaldi\u00f0. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Presturinn skal d\u00fdfa fingri s\u00ednum \u00ed bl\u00f3\u00f0i\u00f0 og st\u00f6kkva \u00fev\u00ed sj\u00f6 sinnum frammi fyrir augliti Drottins framan vi\u00f0 fortjaldi\u00f0. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal hann rj\u00f3\u00f0a nokkru af bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 horn reykelsisaltarisins sem er frammi fyrir augliti Drottins \u00ed samfundatjaldinu. \u00d6llu sem eftir er af bl\u00f3\u00f0inu skal hann hella \u00e1 f\u00f3tstall brennif\u00f3rnaraltarisins sem er vi\u00f0 inngang samfundatjaldsins.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann taka allan m\u00f6rinn \u00far nautinu og l\u00e1ta hann l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af brennif\u00f3rnaraltarinu.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Hann skal fara me\u00f0 nauti\u00f0 eins og hann f\u00f3r me\u00f0 syndaf\u00f3rnarnauti\u00f0, \u00feannig skal hann fara me\u00f0 \u00fea\u00f0.<br \/>\u00deannig fri\u00f0\u00fe\u00e6gir presturinn fyrir \u00fe\u00e1 og \u00feeim ver\u00f0ur fyrirgefi\u00f0.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Hann skal fara me\u00f0 nauti\u00f0 \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar og brenna \u00fea\u00f0 eins og hann brenndi fyrra nauti\u00f0.<br \/>\u00deetta er syndaf\u00f3rn safna\u00f0arins.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Reglur fyrir lei\u00f0toga<\/h3>\n<p><a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Syndgi lei\u00f0togi og fremji eitthva\u00f0 af vang\u00e1, sem Drottinn, Gu\u00f0 hans, hefur banna\u00f0 \u00ed einhverju af bo\u00f0um s\u00ednum, ver\u00f0ur hann sekur. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00deegar honum hefur veri\u00f0 gert lj\u00f3st hva\u00f0a synd hann hefur dr\u00fdgt skal hann f\u00e6ra l\u00fdtalaust d\u00fdr a\u00f0 gj\u00f6f. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Hann skal leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 hafursins og sl\u00e1tra honum \u00e1 sama sta\u00f0 og hann sl\u00e1tra\u00f0i brennif\u00f3rnard\u00fdrinu, frammi fyrir augliti Drottins. \u00deetta er syndaf\u00f3rn. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i syndaf\u00f3rnard\u00fdrsins me\u00f0 fingri s\u00ednum og rj\u00f3\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e1 horn brennif\u00f3rnaraltarisins. \u00d6llu sem eftir er af bl\u00f3\u00f0i f\u00f3rnard\u00fdrsins skal hann hella \u00e1 f\u00f3tstall brennif\u00f3rnaraltarisins.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Allan m\u00f6rinn \u00far hafrinum skal hann l\u00e1ta l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af altarinu eins og m\u00f6r heillaf\u00f3rnard\u00fdrsins.<br \/>\u00deannig fri\u00f0\u00fe\u00e6gir presturinn fyrir syndir lei\u00f0togans og honum ver\u00f0ur fyrirgefi\u00f0.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">F\u00f3rn fyrir synd einstaklings<\/h3>\n<p><a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Syndgi al\u00fe\u00fd\u00f0uma\u00f0ur af vang\u00e1 og fremji eitthva\u00f0, sem Drottinn hefur banna\u00f0 \u00ed einhverju af fyrirm\u00e6lum s\u00ednum, ver\u00f0ur hann sekur. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00deegar honum hefur veri\u00f0 gert lj\u00f3st a\u00f0 hann hefur dr\u00fdgt synd skal hann f\u00e6ra l\u00fdtalaust kvend\u00fdr a\u00f0 gj\u00f6f fyrir syndina sem hann hefur dr\u00fdgt. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Hann skal leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 syndaf\u00f3rnard\u00fdrsins og sl\u00e1tra \u00fev\u00ed \u00e1 sama sta\u00f0 og brennif\u00f3rnard\u00fdrinu. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i \u00feess me\u00f0 fingri s\u00ednum og rj\u00f3\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e1 horn brennif\u00f3rnaraltarisins. \u00d6llu sem eftir er af bl\u00f3\u00f0i \u00feess skal hann hella \u00e1 f\u00f3tstall altarisins.<br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann taka allan m\u00f6rinn eins og m\u00f6rinn var tekinn \u00far heillaf\u00f3rnard\u00fdrinu og presturinn skal l\u00e1ta hann l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af altarinu sem er Drottni \u00feekkur ilmur.<br \/>\u00deannig fri\u00f0\u00fe\u00e6gir presturinn fyrir hann og honum ver\u00f0ur fyrirgefi\u00f0.<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> F\u00e6ri hann lamb a\u00f0 gj\u00f6f til syndaf\u00f3rnar skal hann f\u00e6ra fram l\u00fdtalausa gimbur. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Hann skal leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 syndaf\u00f3rnard\u00fdrsins og sl\u00e1tra \u00fev\u00ed \u00e1 sama sta\u00f0 og hann sl\u00e1tra\u00f0i brennif\u00f3rnard\u00fdrinu. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i syndaf\u00f3rnard\u00fdrsins me\u00f0 fingri s\u00ednum og rj\u00f3\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e1 horn brennif\u00f3rnaraltarisins. \u00d6llu sem eftir ver\u00f0ur af bl\u00f3\u00f0i f\u00f3rnard\u00fdrsins skal hann hella \u00e1 f\u00f3tstall altarisins.<br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann taka allan m\u00f6rinn eins og m\u00f6rinn var tekinn \u00far heillaf\u00f3rnarlambinu. Presturinn skal l\u00e1ta hann l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af altarinu ofan \u00e1 eldf\u00f3rnum Drottins.<br \/>\u00deannig fri\u00f0\u00fe\u00e6gir presturinn fyrir syndina sem hann dr\u00fdg\u00f0i og honum ver\u00f0ur fyrirgefi\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>F\u00f3rn fyrir synd \u00e6\u00f0sta prestsins 1 Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i: 2 \u201e\u00c1varpa\u00f0u \u00cdsraelsmenn og seg\u00f0u: N\u00fa syndgar einhver af vang\u00e1 gegn einhverju \u00fev\u00ed sem Drottinn hefur banna\u00f0: 3 Ef presturinn sem smur\u00f0ur hefur veri\u00f0 syndgar og bakar \u00fej\u00f3\u00f0inni sekt skal hann f\u00e6ra Drottni naut, l\u00fdtalaust ungneyti, \u00ed syndaf\u00f3rn fyrir \u00fe\u00e1 synd sem hann hefur dr\u00fdgt. 4 Hann skal lei\u00f0a nauti\u00f0 a\u00f0 dyrum samfundatjaldsins, fram fyrir auglit Drottins, leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 nautsins og sl\u00e1tra \u00fev\u00ed frammi fyrir augliti Drottins. 5 \u00dev\u00ed n\u00e6st skal smur\u00f0i presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i nautsins og bera \u00fea\u00f0 inn \u00ed samfundatjaldi\u00f0. 6 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1711","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1711","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1711"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1711\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1711"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}