{"id":1661,"date":"2017-12-30T20:59:55","date_gmt":"2017-12-30T20:59:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-m%c2%97seb%c2%97k-44-kafli\/"},"modified":"2022-12-16T13:43:02","modified_gmt":"2022-12-16T13:43:02","slug":"fyrsta-mosebok-44-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-mosebok-44-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 44. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Bikar J\u00f3sefs \u00ed sekk Benjam\u00edns<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span> J\u00f3sef gaf r\u00e1\u00f0smanni s\u00ednum \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u201eFylltu sekki mannanna af korni, eins miki\u00f0 og \u00feeir geta bori\u00f0, og l\u00e1ttu silfurpeninga hvers og eins efst \u00ed sekk hans. <a name=\"2\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span> Bikar m\u00ednum, silfurbikarnum, skaltu koma fyrir efst \u00ed sekk hins yngsta \u00e1samt silfurpeningunum sem hann greiddi fyrir korni\u00f0.\u201c Hann ger\u00f0i eins og J\u00f3sef bau\u00f0 honum.<br \/>\n<a name=\"3\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span> \u00c1rla morguninn eftir fengu mennirnir a\u00f0 leggja af sta\u00f0, \u00feeir og asnar \u00feeirra. <a name=\"4\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span> \u00deeir voru ekki komnir langt fr\u00e1 borginni \u00feegar J\u00f3sef sag\u00f0i vi\u00f0 r\u00e1\u00f0smann sinn: \u201eFar\u00f0u og veittu m\u00f6nnunum eftirf\u00f6r og \u00feegar \u00fe\u00fa n\u00e6r\u00f0 \u00feeim skaltu segja vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Hv\u00ed hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 launa\u00f0 gott me\u00f0 illu? <a name=\"5\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span> \u00deetta er bikarinn sem h\u00fasb\u00f3ndi minn drekkur af og hann notar til a\u00f0 sp\u00e1 \u00ed. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 broti\u00f0 illa af ykkur.\u201c<br \/>\n<a name=\"6\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span> \u00deegar hann n\u00e1\u00f0i \u00feeim sag\u00f0i hann \u00feetta vi\u00f0 \u00fe\u00e1. <a name=\"7\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span> Br\u00e6\u00f0urnir sv\u00f6ru\u00f0u: \u201eHvers vegna segir \u00fe\u00fa \u00feetta, herra? Okkur, \u00fej\u00f3num \u00fe\u00ednum, k\u00e6mi aldrei til hugar a\u00f0 gera sl\u00edkt. <a name=\"8\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span> Vi\u00f0 komum aftur fr\u00e1 Kanaanslandi me\u00f0 silfri\u00f0 sem vi\u00f0 fundum efst \u00ed sekkjum okkar. Hvers vegna \u00e6ttum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 stela silfri e\u00f0a gulli \u00far h\u00fasi h\u00fasb\u00f3nda \u00fe\u00edns? <a name=\"9\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span> Finnist bikarinn hj\u00e1 einhverjum okkar skal hann deyja og vi\u00f0 hinir skulum vera \u00fer\u00e6lar herra m\u00edns.\u201c<br \/>\n<a name=\"10\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span> Hann svara\u00f0i: \u201eGerum eins og \u00fei\u00f0 leggi\u00f0 til. S\u00e1 sem bikarinn finnst hj\u00e1 ver\u00f0i \u00fer\u00e6ll minn en \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 vera lausir.\u201c <a name=\"11\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span> Br\u00e6\u00f0urnir fl\u00fdttu s\u00e9r a\u00f0 taka ofan hver sinn sekk og \u00feeir opnu\u00f0u \u00fe\u00e1. <a name=\"12\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span> R\u00e1\u00f0sma\u00f0urinn h\u00f3f a\u00f0 leita, byrja\u00f0i \u00e1 hinum elsta og enda\u00f0i \u00e1 hinum yngsta og fannst \u00fe\u00e1 bikarinn \u00ed sekk Benjam\u00edns. <a name=\"13\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span> \u00de\u00e1 rifu \u00feeir kl\u00e6\u00f0i s\u00edn, l\u00e9tu hver upp \u00e1 sinn asna og sneru aftur til borgarinnar.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">J\u00fada talar m\u00e1li br\u00f3\u00f0ur s\u00edns<\/h3>\n<p><a name=\"14\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span> J\u00f3sef var enn heima er J\u00fada og br\u00e6\u00f0ur hans komu \u00feanga\u00f0. \u00deeir f\u00e9llu til jar\u00f0ar frammi fyrir honum <a name=\"15\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span> en hann sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eHva\u00f0 hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 gert? Vissu\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki a\u00f0 ma\u00f0ur eins og \u00e9g getur r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00ed leynda hluti?\u201c <a name=\"16\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span> J\u00fada svara\u00f0i: \u201eHva\u00f0 getum vi\u00f0 sagt, herra? Hvernig getum vi\u00f0 me\u00f0 or\u00f0um s\u00fdnt fram \u00e1 sakleysi okkar \u00feegar Gu\u00f0 hefur fundi\u00f0 okkur seka? Vi\u00f0 erum \u00fer\u00e6lar \u00fe\u00ednir, herra, b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 og s\u00e1 sem bikarinn fannst hj\u00e1.\u201c <a name=\"17\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span> J\u00f3sef svara\u00f0i: \u201eNei, \u00fea\u00f0 skal ekki ver\u00f0a. A\u00f0eins s\u00e1 sem bikarinn fannst hj\u00e1 ver\u00f0ur \u00fer\u00e6ll minn. \u00dei\u00f0 hinir geti\u00f0 \u00e1hyggjulausir haldi\u00f0 heim til f\u00f6\u00f0ur ykkar.\u201c<br \/>\n<a name=\"18\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span> \u00de\u00e1 sneri J\u00fada s\u00e9r a\u00f0 honum og m\u00e6lti: \u201eVertu svo g\u00f3\u00f0ur, herra minn, a\u00f0 leyfa \u00fej\u00f3ni \u00fe\u00ednum a\u00f0 tala nokkur or\u00f0 til \u00fe\u00edn \u00e1n \u00feess a\u00f0 rei\u00f0i \u00fe\u00edn blossi upp gegn m\u00e9r, \u00fe\u00fa sem ert sem fara\u00f3. <a name=\"19\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span> \u00de\u00fa, herra, spur\u00f0ir okkur, \u00fej\u00f3na \u00fe\u00edna, hvort vi\u00f0 \u00e6ttum f\u00f6\u00f0ur e\u00f0a br\u00f3\u00f0ur. <a name=\"20\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span> Vi\u00f0 sv\u00f6ru\u00f0um \u00fe\u00e9r \u00feannig, herra minn: Vi\u00f0 eigum aldra\u00f0an f\u00f6\u00f0ur og ungan br\u00f3\u00f0ur sem hann gat \u00ed elli sinni. Br\u00f3\u00f0ir drengsins er l\u00e1tinn, hann er einn \u00e1 l\u00edfi af b\u00f6rnum m\u00f3\u00f0ur sinnar og fa\u00f0ir hans elskar hann. <a name=\"21\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span> \u00de\u00fa sag\u00f0ir vi\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00fe\u00edna: Komi\u00f0 me\u00f0 hann til m\u00edn svo a\u00f0 \u00e9g f\u00e1i liti\u00f0 hann me\u00f0 eigin augum. <a name=\"22\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span> Vi\u00f0 s\u00f6g\u00f0um \u00fe\u00e9r, herra, a\u00f0 drengurinn m\u00e6tti ekki yfirgefa f\u00f6\u00f0ur sinn \u00fev\u00ed a\u00f0 yfirg\u00e6fi hann f\u00f6\u00f0ur sinn mundi \u00fea\u00f0 draga hann til dau\u00f0a. <a name=\"23\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span> \u00de\u00e1 sag\u00f0ir \u00fe\u00fa vi\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00fe\u00edna: Ef yngsti br\u00f3\u00f0ir ykkar kemur ekki hinga\u00f0 me\u00f0 ykkur \u00fe\u00e1 skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki framar f\u00e1 a\u00f0 sj\u00e1 auglit mitt. <a name=\"24\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span> S\u00ed\u00f0an f\u00f3rum vi\u00f0 heim til \u00fej\u00f3ns \u00fe\u00edns, f\u00f6\u00f0ur okkar, og s\u00f6g\u00f0um honum hva\u00f0 \u00fe\u00fa hef\u00f0ir sagt. <a name=\"25\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span> Fa\u00f0ir okkar sag\u00f0i: Sn\u00fai\u00f0 aftur og kaupi\u00f0 okkur d\u00e1l\u00edti\u00f0 af korni. <a name=\"26\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span> Vi\u00f0 sv\u00f6ru\u00f0um: Vi\u00f0 getum ekki fari\u00f0 \u00feanga\u00f0 nema yngsti br\u00f3\u00f0ir okkar komi me\u00f0 okkur, \u00fe\u00e1 getum vi\u00f0 fari\u00f0. Vi\u00f0 f\u00e1um ekki a\u00f0 sj\u00e1 auglit mannsins ef yngsti br\u00f3\u00f0ir okkar er ekki me\u00f0 \u00ed f\u00f6r. <a name=\"27\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span> \u00dej\u00f3nn \u00feinn, fa\u00f0ir okkar, svara\u00f0i okkur: \u00dei\u00f0 viti\u00f0 a\u00f0 kona m\u00edn \u00f3l m\u00e9r tvo syni. <a name=\"28\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span> Annar \u00feeirra hvarf a\u00f0 heiman fr\u00e1 m\u00e9r og \u00e9g taldi v\u00edst a\u00f0 d\u00fdr hef\u00f0u rifi\u00f0 hann \u00ed sig. \u00c9g hef ekki s\u00e9\u00f0 hann s\u00ed\u00f0an. <a name=\"29\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span> Ef \u00fei\u00f0 taki\u00f0 n\u00fa l\u00edka \u00feennan fr\u00e1 m\u00e9r og ver\u00f0i hann fyrir slysi, \u00fe\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 valda m\u00e9r sl\u00edkri sorg a\u00f0 \u00fea\u00f0 mun lei\u00f0a h\u00e6rur m\u00ednar til heljar. <a name=\"30\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span> Sn\u00fai \u00e9g heim til f\u00f6\u00f0ur m\u00edns \u00e1n \u00feess a\u00f0 drengurinn, sem hann elskar svo mj\u00f6g, s\u00e9 me\u00f0 okkur <a name=\"31\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span> \u00fe\u00e1 mun \u00fea\u00f0 lei\u00f0a hann til dau\u00f0a \u00feegar hann s\u00e9r a\u00f0 drengurinn er ekki me\u00f0 okkur. Vi\u00f0 hef\u00f0um \u00fe\u00e1 valdi\u00f0 honum sl\u00edkri sorg a\u00f0 \u00fea\u00f0 leiddi h\u00e6rur hans til heljar. <a name=\"32\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span> \u00c9g t\u00f3k \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 drengnum gagnvart f\u00f6\u00f0ur m\u00ednum og sag\u00f0i: Komi \u00e9g ekki me\u00f0 hann aftur skal \u00e9g vera sekur vi\u00f0 f\u00f6\u00f0ur minn alla \u00e6vi. <a name=\"33\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span> \u00deess vegna bi\u00f0 \u00e9g \u00feig um a\u00f0 leyfa m\u00e9r a\u00f0 ver\u00f0a h\u00e9r eftir sem \u00fer\u00e6ll herra m\u00edns \u00ed sta\u00f0 drengsins og a\u00f0 hann f\u00e1i a\u00f0 sn\u00faa heim me\u00f0 br\u00e6\u00f0rum s\u00ednum. <a name=\"34\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span> Hvernig g\u00e6ti \u00e9g fari\u00f0 heim til f\u00f6\u00f0ur m\u00edns \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa drenginn me\u00f0 m\u00e9r? \u00c9g \u00feoli ekki a\u00f0 sj\u00e1 \u00fe\u00e1 \u00f3hamingju koma yfir f\u00f6\u00f0ur minn.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Bikar J\u00f3sefs \u00ed sekk Benjam\u00edns 1 J\u00f3sef gaf r\u00e1\u00f0smanni s\u00ednum \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u201eFylltu sekki mannanna af korni, eins miki\u00f0 og \u00feeir geta bori\u00f0, og l\u00e1ttu silfurpeninga hvers og eins efst \u00ed sekk hans. 2 Bikar m\u00ednum, silfurbikarnum, skaltu koma fyrir efst \u00ed sekk hins yngsta \u00e1samt silfurpeningunum sem hann greiddi fyrir korni\u00f0.\u201c Hann ger\u00f0i eins og J\u00f3sef bau\u00f0 honum. 3 \u00c1rla morguninn eftir fengu mennirnir a\u00f0 leggja af sta\u00f0, \u00feeir og asnar \u00feeirra. 4 \u00deeir voru ekki komnir langt fr\u00e1 borginni \u00feegar J\u00f3sef sag\u00f0i vi\u00f0 r\u00e1\u00f0smann sinn: \u201eFar\u00f0u og veittu m\u00f6nnunum eftirf\u00f6r og \u00feegar \u00fe\u00fa n\u00e6r\u00f0 \u00feeim skaltu segja vi\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-mosebok-44-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1661","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1661","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1661"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1661\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1661"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}