{"id":1660,"date":"2017-12-30T20:59:55","date_gmt":"2017-12-30T20:59:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-m%c2%97seb%c2%97k-43-kafli\/"},"modified":"2022-12-16T13:43:02","modified_gmt":"2022-12-16T13:43:02","slug":"fyrsta-mosebok-43-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-mosebok-43-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 43. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00d6nnur f\u00f6r br\u00e6\u00f0ranna til Egyptalands<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span> Mikil hungursney\u00f0 var \u00ed landinu <a name=\"2\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span> og \u00feegar \u00feeir h\u00f6f\u00f0u eti\u00f0 upp korni\u00f0 sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u s\u00f3tt til Egyptalands sag\u00f0i fa\u00f0ir \u00feeirra vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eFari\u00f0 \u00feanga\u00f0 aftur og kaupi\u00f0 okkur korn.\u201c <a name=\"3\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span> \u00de\u00e1 svara\u00f0i J\u00fada honum: \u201eMa\u00f0urinn lag\u00f0i \u00e1 \u00fea\u00f0 r\u00edka \u00e1herslu a\u00f0 vi\u00f0 fengjum ekki a\u00f0 koma fyrir auglit hans nema br\u00f3\u00f0ir okkar v\u00e6ri me\u00f0 okkur. <a name=\"4\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span> Ef \u00fe\u00fa sendir br\u00f3\u00f0ur okkar me\u00f0 okkur skulum vi\u00f0 fara og kaupa korni\u00f0. <a name=\"5\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span> Viljir \u00fe\u00fa ekki senda hann me\u00f0 f\u00f6rum vi\u00f0 hvergi \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0urinn sag\u00f0i: \u00dei\u00f0 komi\u00f0 ekki fyrir auglit mitt nema br\u00f3\u00f0ir ykkar s\u00e9 me\u00f0 \u00ed f\u00f6r.\u201c<br \/>\n<a name=\"6\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span> \u00cdsrael sag\u00f0i: \u201eHvers vegna \u00feurftu\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 gera m\u00e9r \u00fea\u00f0 a\u00f0 segja manninum a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00e6ttu\u00f0 einn br\u00f3\u00f0ur enn?\u201c <a name=\"7\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span> \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: \u201eMa\u00f0urinn \u00fer\u00e1spur\u00f0i um okkur og \u00e6tt okkar og sag\u00f0i: Er fa\u00f0ir ykkar enn \u00e1 l\u00edfi? Eigi\u00f0 \u00fei\u00f0 einn br\u00f3\u00f0ur enn? Vi\u00f0 sv\u00f6ru\u00f0um honum eins og satt var. Vi\u00f0 g\u00e1tum ekki vita\u00f0 a\u00f0 hann mundi segja: <a name=\"8\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span> Komi\u00f0 hinga\u00f0 me\u00f0 br\u00f3\u00f0ur ykkar.\u201c<br \/>\nJ\u00fada sag\u00f0i vi\u00f0 \u00cdsrael f\u00f6\u00f0ur sinn: \u201eLeyf\u00f0u drengnum a\u00f0 koma me\u00f0 m\u00e9r og leggjum strax af sta\u00f0 svo a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6ldum l\u00edfi \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 deyja, b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 og \u00fe\u00fa og b\u00f6rnin okkar. <a name=\"9\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span> \u00c9g skal \u00e1byrgjast hann, af m\u00e9r skaltu krefjast hans. Komi \u00e9g ekki me\u00f0 hann aftur og f\u00e6ri \u00e9g \u00fe\u00e9r hann ekki skal \u00e9g vera sekur vi\u00f0 \u00feig alla \u00e6vi. <a name=\"10\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span> Hef\u00f0um vi\u00f0 ekki be\u00f0i\u00f0 svo lengi v\u00e6rum vi\u00f0 n\u00fa komnir aftur \u00f6\u00f0ru sinni.\u201c<br \/>\n<a name=\"11\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span> \u00de\u00e1 sag\u00f0i \u00cdsrael fa\u00f0ir \u00feeirra: \u201eS\u00e9 \u00fea\u00f0 \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt geri\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feetta: Taki\u00f0 af \u00fev\u00ed besta sem landi\u00f0 hefur upp \u00e1 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a og setji\u00f0 \u00ed sekki ykkar og f\u00e6ri\u00f0 manninum a\u00f0 gj\u00f6f l\u00edti\u00f0 eitt af balsami og l\u00edti\u00f0 eitt af hunangi, reykelsi og myrru, pistas\u00eduhnetur og m\u00f6ndlur. <a name=\"12\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span> Taki\u00f0 me\u00f0 ykkur tv\u00f6falda fj\u00e1rupph\u00e6\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 a\u00f0 taka me\u00f0 ykkur silfurpeningana sem h\u00f6fnu\u00f0u \u00ed sekkjum ykkar. \u00dea\u00f0 kann a\u00f0 hafa gerst fyrir slysni. <a name=\"13\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span> Taki\u00f0 br\u00f3\u00f0ur ykkar og leggi\u00f0 strax af sta\u00f0 til mannsins. <a name=\"14\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span> Alm\u00e1ttugur Gu\u00f0 gefi a\u00f0 ma\u00f0urinn s\u00fdni ykkur n\u00fa miskunn og leyfi ykkur a\u00f0 fara heim me\u00f0 hinn br\u00f3\u00f0ur ykkar og Benjam\u00edn. Eigi sonamissir a\u00f0 ver\u00f0a hlutskipti mitt \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur svo a\u00f0 vera.\u201c <a name=\"15\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span> Br\u00e6\u00f0urnir t\u00f3ku gjafirnar me\u00f0 s\u00e9r og tv\u00f6falda peningaupph\u00e6\u00f0 og l\u00f6g\u00f0u af sta\u00f0 til Egyptalands me\u00f0 Benjam\u00edn og gengu \u00fear \u00e1 fund J\u00f3sefs.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">J\u00f3sef heldur br\u00e6\u00f0rum s\u00ednum veislu<\/h3>\n<p><a name=\"16\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span> \u00deegar J\u00f3sef s\u00e1 a\u00f0 Benjam\u00edn var me\u00f0 \u00feeim sag\u00f0i hann vi\u00f0 r\u00e1\u00f0smann sinn: \u201eFar\u00f0u me\u00f0 mennina heim til m\u00edn, sl\u00e1tra\u00f0u og elda\u00f0u mat \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessir menn eta me\u00f0 m\u00e9r mi\u00f0degisver\u00f0 \u00ed dag.\u201c <a name=\"17\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span> Ma\u00f0urinn ger\u00f0i eins og J\u00f3sef bau\u00f0 og f\u00f3r me\u00f0 mennina inn \u00ed h\u00fas hans. <a name=\"18\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span> \u00deeir ur\u00f0u hr\u00e6ddir \u00feegar \u00feeir voru leiddir inn \u00ed h\u00fas J\u00f3sefs og s\u00f6g\u00f0u: \u201e\u00dea\u00f0 er vegna silfurpeninganna sem h\u00f6fnu\u00f0u aftur \u00ed sekkjum okkar \u00ed fyrra skipti\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum veri\u00f0 leiddir hinga\u00f0. N\u00fa \u00e6tlar hann a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 okkur, yfirbuga okkur og gera a\u00f0 \u00fer\u00e6lum og taka asna okkar.\u201c <a name=\"19\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span> \u00deeir sneru s\u00e9r a\u00f0 r\u00e1\u00f0smanni J\u00f3sefs vi\u00f0 dyrnar a\u00f0 h\u00fasinu <a name=\"20\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span> og s\u00f6g\u00f0u: \u201e\u00c6, herra minn, vi\u00f0 komum hinga\u00f0 \u00ed fyrra skipti\u00f0 til a\u00f0 kaupa korn. <a name=\"21\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span> En svo ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 komum til gistista\u00f0ar og opnu\u00f0um sekki okkar a\u00f0 silfurpeningar hvers og eins reyndust vera efst \u00ed sekk hans, \u00f6ll upph\u00e6\u00f0in, og vi\u00f0 erum n\u00fa komnir me\u00f0 peningana aftur. <a name=\"22\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span> Auk \u00feess t\u00f3kum vi\u00f0 me\u00f0 okkur f\u00e9 til a\u00f0 kaupa korn. Vi\u00f0 vitum ekki hver l\u00e9t peningana \u00ed sekki okkar.\u201c <a name=\"23\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span> \u201e\u00dei\u00f0 geti\u00f0 veri\u00f0 \u00e1hyggjulausir,\u201c sag\u00f0i r\u00e1\u00f0sma\u00f0urinn. \u201e\u00d3ttist ekki. \u00dea\u00f0 er Gu\u00f0 ykkar og Gu\u00f0 f\u00f6\u00f0ur ykkar sem hefur sett peningana \u00ed sekkina. Silfur ykkar er komi\u00f0 til m\u00edn.\u201c A\u00f0 svo m\u00e6ltu leiddi hann S\u00edmeon \u00fat til \u00feeirra.<br \/>\n<a name=\"24\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span> S\u00ed\u00f0an f\u00f3r ma\u00f0urinn me\u00f0 \u00fe\u00e1 inn \u00ed h\u00fas J\u00f3sefs og gaf \u00feeim vatn svo a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu \u00fevegi\u00f0 f\u00e6tur s\u00edna og hann l\u00e9t gefa \u00f6snum \u00feeirra f\u00f3\u00f0ur. <a name=\"25\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span> \u00deeir t\u00f3ku fram gjafirnar svo a\u00f0 \u00fe\u00e6r v\u00e6ru til taks er J\u00f3sef k\u00e6mi um mi\u00f0degi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u heyrt a\u00f0 \u00feeir \u00e6ttu a\u00f0 matast \u00fear.<br \/>\n<a name=\"26\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span> Er J\u00f3sef kom heim f\u00e6r\u00f0u \u00feeir honum gjafirnar sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u me\u00f0fer\u00f0is og lutu til jar\u00f0ar fyrir honum. <a name=\"27\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span> Hann spur\u00f0i hvernig \u00feeim li\u00f0i og b\u00e6tti vi\u00f0: \u201eHvernig l\u00ed\u00f0ur hinum aldra\u00f0a f\u00f6\u00f0ur ykkar sem \u00fei\u00f0 nefndu\u00f0? Er hann enn \u00e1 l\u00edfi?\u201c <a name=\"28\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span> \u00deeir j\u00e1tu\u00f0u \u00fev\u00ed: \u201e\u00dej\u00f3ni \u00fe\u00ednum, f\u00f6\u00f0ur okkar, l\u00ed\u00f0ur vel. Hann er enn \u00e1 l\u00edfi.\u201c Og \u00feeir hneig\u00f0u sig og lutu honum.<br \/>\n<a name=\"29\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span> \u00deegar J\u00f3sef kom auga \u00e1 Benjam\u00edn, br\u00f3\u00f0ur sinn, son m\u00f3\u00f0ur sinnar, sag\u00f0i hann: \u201eEr \u00feetta yngsti br\u00f3\u00f0ir ykkar sem \u00fei\u00f0 nefndu\u00f0 vi\u00f0 mig?\u201c Og hann b\u00e6tti vi\u00f0: \u201eGu\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00e9r n\u00e1\u00f0ugur, sonur minn.\u201c <a name=\"30\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span> Skyndilega gekk J\u00f3sef \u00fat \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1stin til br\u00f3\u00f0ur hans bar hann ofurli\u00f0i og hann var\u00f0 a\u00f0 fara afs\u00ed\u00f0is vegna \u00feess a\u00f0 hann var a\u00f0 bresta \u00ed gr\u00e1t. Hann f\u00f3r inn \u00ed innra herbergi\u00f0 og gr\u00e9t \u00fear.<br \/>\n<a name=\"31\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span> S\u00ed\u00f0an \u00fevo\u00f0i hann andlit sitt og kom \u00fat aftur og l\u00e9t ekki \u00e1 neinu bera og m\u00e6lti: \u201eBeri\u00f0 \u00e1 bor\u00f0.\u201c <a name=\"32\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span> Og menn b\u00e1ru \u00e1 bor\u00f0 fyrir hann s\u00e9r \u00ed lagi og fyrir \u00fe\u00e1 s\u00e9r \u00ed lagi og s\u00e9r \u00ed lagi fyrir \u00fe\u00e1 Egypta sem me\u00f0 honum m\u00f6tu\u00f0ust \u00fev\u00ed a\u00f0 Egyptar geta ekki seti\u00f0 til bor\u00f0s me\u00f0 Hebreum, \u00e1 \u00fev\u00ed hafa \u00feeir andstygg\u00f0. <a name=\"33\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span> Br\u00e6\u00f0runum var skipa\u00f0 til s\u00e6tis gegnt honum, \u00ed aldursr\u00f6\u00f0, fr\u00e1 hinum elsta til hins yngsta, og \u00feeir litu me\u00f0 undrun hver \u00e1 annan. <a name=\"34\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span> J\u00f3sef l\u00e9t \u00fej\u00f3na \u00feeim fr\u00e1 bor\u00f0i s\u00ednu og f\u00e9kk Benjam\u00edn fimm sinnum meira en nokkur hinna. Og \u00feeir drukku me\u00f0 honum og ur\u00f0u hreifir.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6nnur f\u00f6r br\u00e6\u00f0ranna til Egyptalands 1 Mikil hungursney\u00f0 var \u00ed landinu 2 og \u00feegar \u00feeir h\u00f6f\u00f0u eti\u00f0 upp korni\u00f0 sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u s\u00f3tt til Egyptalands sag\u00f0i fa\u00f0ir \u00feeirra vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eFari\u00f0 \u00feanga\u00f0 aftur og kaupi\u00f0 okkur korn.\u201c 3 \u00de\u00e1 svara\u00f0i J\u00fada honum: \u201eMa\u00f0urinn lag\u00f0i \u00e1 \u00fea\u00f0 r\u00edka \u00e1herslu a\u00f0 vi\u00f0 fengjum ekki a\u00f0 koma fyrir auglit hans nema br\u00f3\u00f0ir okkar v\u00e6ri me\u00f0 okkur. 4 Ef \u00fe\u00fa sendir br\u00f3\u00f0ur okkar me\u00f0 okkur skulum vi\u00f0 fara og kaupa korni\u00f0. 5 Viljir \u00fe\u00fa ekki senda hann me\u00f0 f\u00f6rum vi\u00f0 hvergi \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0urinn sag\u00f0i: \u00dei\u00f0 komi\u00f0 ekki fyrir auglit mitt nema br\u00f3\u00f0ir ykkar <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-mosebok-43-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1660","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1660","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1660"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1660\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1660"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}