{"id":1659,"date":"2017-12-30T20:59:55","date_gmt":"2017-12-30T20:59:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-m%c2%97seb%c2%97k-42-kafli\/"},"modified":"2022-12-16T13:43:01","modified_gmt":"2022-12-16T13:43:01","slug":"fyrsta-mosebok-42-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-mosebok-42-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 42. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Br\u00e6\u00f0ur J\u00f3sefs koma til Egyptalands<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span> Jakob fr\u00e9tti a\u00f0 til v\u00e6ri korn \u00ed Egyptalandi og sag\u00f0i vi\u00f0 syni s\u00edna: \u201eEftir hverju b\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0?\u201c <a name=\"2\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span> Og hann h\u00e9lt \u00e1fram: \u201e\u00c9g hef heyrt a\u00f0 til s\u00e9 korn \u00ed Egyptalandi. Fari\u00f0 \u00feanga\u00f0 og kaupi\u00f0 korn handa okkur svo a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6ldum l\u00edfi og deyjum ekki.\u201c <a name=\"3\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span> \u00de\u00e1 l\u00f6g\u00f0u t\u00edu br\u00e6\u00f0ur J\u00f3sefs af sta\u00f0 til a\u00f0 kaupa korn \u00ed Egyptalandi. <a name=\"4\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span> En Jakob l\u00e9t ekki Benjam\u00edn, br\u00f3\u00f0ur J\u00f3sefs, fara me\u00f0 br\u00e6\u00f0rum s\u00ednum \u00fev\u00ed a\u00f0 hann \u00f3tta\u00f0ist a\u00f0 hann kynni a\u00f0 ver\u00f0a fyrir slysi.<br \/>\n<a name=\"5\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span> Synir \u00cdsraels voru me\u00f0al allra \u00feeirra sem komu til a\u00f0 kaupa korn \u00fev\u00ed a\u00f0 hungursney\u00f0 r\u00edkti \u00ed Kanaanslandi. <a name=\"6\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span> En J\u00f3sef var vi\u00f0 stj\u00f3rnv\u00f6linn \u00ed Egyptalandi og \u00fea\u00f0 var hann sem seldi \u00f6llum \u00edb\u00faum landsins korn. Br\u00e6\u00f0ur J\u00f3sefs komu, lutu honum og f\u00e9llu fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna. <a name=\"7\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span> \u00deegar J\u00f3sef s\u00e1 br\u00e6\u00f0ur s\u00edna \u00feekkti hann \u00fe\u00e1 en l\u00e9t ekki \u00e1 \u00fev\u00ed bera heldur spur\u00f0i hranalega: \u201eHva\u00f0an komi\u00f0 \u00fei\u00f0?\u201c \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: \u201eFr\u00e1 Kanaanslandi til a\u00f0 kaupa vistir.\u201c<br \/>\n<a name=\"8\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span> J\u00f3sef \u00feekkti br\u00e6\u00f0ur s\u00edna en \u00feeir \u00feekktu hann ekki. <a name=\"9\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span> Hann minntist draumanna sem hann haf\u00f0i dreymt um \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i: \u201e\u00dei\u00f0 eru\u00f0 nj\u00f3snarar, komnir til \u00feess a\u00f0 finna veilur \u00ed v\u00f6rn landsins.\u201c <a name=\"10\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span> \u201eNei, herra minn,\u201c sv\u00f6ru\u00f0u \u00feeir, \u201e\u00fej\u00f3nar \u00fe\u00ednir eru komnir til a\u00f0 kaupa vistir. <a name=\"11\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span> Vi\u00f0 erum allir synir sama manns, hei\u00f0arlegir menn og ekki nj\u00f3snarar.\u201c <a name=\"12\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span> En J\u00f3sef sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eNei, \u00fei\u00f0 eru\u00f0 komnir til a\u00f0 leita a\u00f0 veilum \u00ed v\u00f6rn landsins.\u201c<br \/>\n<a name=\"13\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span> \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: \u201eVi\u00f0 \u00fej\u00f3nar \u00fe\u00ednir erum t\u00f3lf br\u00e6\u00f0ur, synir sama manns \u00ed Kanaanslandi. Yngsti br\u00f3\u00f0irinn er n\u00fa hj\u00e1 f\u00f6\u00f0ur okkar og einn er ekki lengur \u00e1 l\u00edfi.\u201c <a name=\"14\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span> J\u00f3sef sag\u00f0i: \u201e\u00dei\u00f0 eru\u00f0 nj\u00f3snarar eins og \u00e9g sag\u00f0i. <a name=\"15\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span> En \u00feannig mun \u00e9g reyna ykkur: Svo sannarlega sem fara\u00f3 lifir skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki sleppa h\u00e9\u00f0an nema yngsti br\u00f3\u00f0ir ykkar komi hinga\u00f0. <a name=\"16\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span> Sendi\u00f0 einn ykkar eftir honum en \u00fei\u00f0 hinir skulu\u00f0 vera h\u00e9r \u00ed haldi \u00fear til \u00ed lj\u00f3s er komi\u00f0 hvort \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 sagt satt. Reynist \u00fea\u00f0 ekki vera eru\u00f0 \u00fei\u00f0 nj\u00f3snarar, svo sannarlega sem fara\u00f3 lifir.\u201c <a name=\"17\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span> S\u00ed\u00f0an haf\u00f0i hann \u00fe\u00e1 \u00ed var\u00f0haldi \u00ed \u00ferj\u00e1 daga.<br \/>\n<a name=\"18\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span> \u00c1 \u00feri\u00f0ja degi sag\u00f0i J\u00f3sef vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eEf \u00fei\u00f0 geri\u00f0 eins og \u00e9g segi munu\u00f0 \u00fei\u00f0 halda l\u00edfi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g \u00f3ttast Gu\u00f0. <a name=\"19\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span> Til a\u00f0 s\u00fdna a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 hei\u00f0arlegir skal einn ykkar br\u00e6\u00f0ranna ver\u00f0a eftir \u00ed b\u00f6ndum \u00ed d\u00fdflissunni \u00fear sem \u00fei\u00f0 voru\u00f0 en \u00fei\u00f0 hinir megi\u00f0 halda heim \u00e1 lei\u00f0 me\u00f0 korn til bjargar \u00feurfandi heimilum ykkar. <a name=\"20\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span> Komi\u00f0 svo til m\u00edn me\u00f0 yngsta br\u00f3\u00f0ur ykkar og s\u00fdni\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 sagt satt og \u00fe\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki t\u00fdna l\u00edfi.\u201c \u00deeir f\u00e9llust \u00e1 \u00fea\u00f0.<br \/>\n<a name=\"21\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span> Br\u00e6\u00f0urnir s\u00f6g\u00f0u hver vi\u00f0 annan: \u201e\u00deetta er refsingin fyrir \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 ger\u00f0um br\u00f3\u00f0ur okkar. Vi\u00f0 s\u00e1um \u00f6rv\u00e6ntingu hans \u00feegar hann ba\u00f0st v\u00e6g\u00f0ar en vi\u00f0 l\u00e9tum sem vi\u00f0 heyr\u00f0um \u00fea\u00f0 ekki. \u00deess vegna erum vi\u00f0 lentir \u00ed \u00feessum vanda.\u201c<br \/>\n<a name=\"22\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span> R\u00faben svara\u00f0i \u00feeim: \u201e\u00c9g ba\u00f0 ykkur a\u00f0 ska\u00f0a ekki drenginn en \u00fei\u00f0 l\u00e9tu\u00f0 sem \u00fei\u00f0 heyr\u00f0u\u00f0 \u00fea\u00f0 ekki og n\u00fa f\u00e1um vi\u00f0 a\u00f0 gjalda fyrir bl\u00f3\u00f0 hans.\u201c<br \/>\n<a name=\"23\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span> \u00deeir vissu ekki a\u00f0 J\u00f3sef skildi \u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i tala\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 me\u00f0 a\u00f0sto\u00f0 t\u00falks. <a name=\"24\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span> \u00de\u00e1 v\u00e9k J\u00f3sef fr\u00e1 \u00feeim og gr\u00e9t en sneri s\u00ed\u00f0an til \u00feeirra aftur og tala\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1. Hann t\u00f3k S\u00edmeon \u00far h\u00f3pnum og l\u00e9t binda hann fyrir augum \u00feeirra. <a name=\"25\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span> \u00dev\u00ed n\u00e6st gaf J\u00f3sef fyrirm\u00e6li um a\u00f0 fylla sekki \u00feeirra af korni og l\u00e1ta silfurpeninga hvers \u00feeirra aftur \u00ed sekk hans og f\u00e1 \u00feeim nesti til fer\u00f0arinnar og \u00fea\u00f0 var gert.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Synir Jakobs sn\u00faa aftur til Kanaanslands<\/h3>\n<p><a name=\"26\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span> Br\u00e6\u00f0urnir settu korni\u00f0 upp \u00e1 asna s\u00edna og h\u00e9ldu af sta\u00f0. <a name=\"27\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span> En er einn af \u00feeim opna\u00f0i sekk sinn til a\u00f0 f\u00f3\u00f0ra asna sinn \u00e1 gistista\u00f0num kom hann auga \u00e1 silfurpeninga s\u00edna \u00fear sem \u00feeir l\u00e1gu efst \u00ed sekknum. <a name=\"28\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span> \u201e\u00c9g hef fengi\u00f0 silfurpeningana m\u00edna aftur,\u201c sag\u00f0i hann. \u201e\u00deeir liggja h\u00e9rna \u00ed sekknum m\u00ednum.\u201c \u00de\u00e1 var\u00f0 \u00feeim brug\u00f0i\u00f0, \u00feeir horf\u00f0u skj\u00e1lfandi hver \u00e1 annan og s\u00f6g\u00f0u: \u201eHvers vegna hefur Gu\u00f0 gert okkur \u00feetta?\u201c<br \/>\n<a name=\"29\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span> \u00deegar \u00feeir komu til Jakobs, f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, \u00ed Kanaanslandi s\u00f6g\u00f0u \u00feeir honum fr\u00e1 \u00f6llu sem \u00e1 daga \u00feeirra haf\u00f0i drifi\u00f0: <a name=\"30\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span> \u201eMa\u00f0urinn, landsherrann, tala\u00f0i hranalega vi\u00f0 okkur og l\u00e9t eins og vi\u00f0 v\u00e6rum nj\u00f3snarar. <a name=\"31\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span> En vi\u00f0 s\u00f6g\u00f0um vi\u00f0 hann: Vi\u00f0 erum hei\u00f0vir\u00f0ir menn en ekki nj\u00f3snarar. <a name=\"32\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span> Vi\u00f0 erum t\u00f3lf br\u00e6\u00f0ur, synir sama f\u00f6\u00f0ur. Einn er ekki lengur \u00e1 l\u00edfi og s\u00e1 yngsti er hj\u00e1 f\u00f6\u00f0ur okkar \u00ed Kanaanslandi. <a name=\"33\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span> \u00de\u00e1 sag\u00f0i ma\u00f0urinn, landsherrann, vi\u00f0 okkur: Af \u00feessu skal \u00e9g marka hversu hei\u00f0arlegir \u00fei\u00f0 eru\u00f0: Einn ykkar skal ver\u00f0a eftir hj\u00e1 m\u00e9r en \u00fei\u00f0 hinir megi\u00f0 taka korn til bjargar \u00feurfandi heimilum ykkar og fara lei\u00f0ar ykkar. <a name=\"34\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span> En komi\u00f0 s\u00ed\u00f0an me\u00f0 yngsta br\u00f3\u00f0ur ykkar til m\u00edn svo a\u00f0 \u00e9g sj\u00e1i a\u00f0 \u00fei\u00f0 eru\u00f0 ekki nj\u00f3snarar heldur hei\u00f0arlegir menn. \u00de\u00e1 skal \u00e9g skila br\u00f3\u00f0ur ykkar aftur og \u00fei\u00f0 megi\u00f0 fara frj\u00e1lsir fer\u00f0a ykkar um landi\u00f0.\u201c<br \/>\n<a name=\"35\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span> \u00deegar \u00feeir helltu \u00far sekkjum s\u00ednum kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 peningapyngja hvers og eins var \u00ed sekk hans. Ur\u00f0u b\u00e6\u00f0i \u00feeir og fa\u00f0ir \u00feeirra \u00f3ttaslegnir \u00feegar \u00feeir s\u00e1u peningana.<br \/>\n<a name=\"36\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span> Jakob, fa\u00f0ir \u00feeirra, sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201e\u00dei\u00f0 geri\u00f0 mig barnlausan. J\u00f3sef er horfinn, S\u00edmeon er horfinn og n\u00fa \u00e6tli\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 taka Benjam\u00edn. \u00dea\u00f0 er \u00e9g sem m\u00e1 \u00feola allt \u00feetta.\u201c <a name=\"37\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span> \u00de\u00e1 sag\u00f0i R\u00faben vi\u00f0 f\u00f6\u00f0ur sinn: \u201eF\u00e6ri \u00e9g \u00fe\u00e9r hann ekki aftur m\u00e1ttu dey\u00f0a b\u00e1\u00f0a syni m\u00edna. Tr\u00fa\u00f0u m\u00e9r fyrir honum og \u00e9g skal koma me\u00f0 hann til \u00fe\u00edn aftur.\u201c <a name=\"38\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span> Jakob svara\u00f0i: \u201eSonur minn fer ekki me\u00f0 ykkur \u00fev\u00ed a\u00f0 br\u00f3\u00f0ir hans er d\u00e1inn og hann er einn eftir. Yr\u00f0i hann fyrir slysi \u00e1 lei\u00f0inni \u00fe\u00e1 leiddu\u00f0 \u00fei\u00f0 h\u00e6rur m\u00ednar me\u00f0 harmi ni\u00f0ur til heljar.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Br\u00e6\u00f0ur J\u00f3sefs koma til Egyptalands 1 Jakob fr\u00e9tti a\u00f0 til v\u00e6ri korn \u00ed Egyptalandi og sag\u00f0i vi\u00f0 syni s\u00edna: \u201eEftir hverju b\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0?\u201c 2 Og hann h\u00e9lt \u00e1fram: \u201e\u00c9g hef heyrt a\u00f0 til s\u00e9 korn \u00ed Egyptalandi. Fari\u00f0 \u00feanga\u00f0 og kaupi\u00f0 korn handa okkur svo a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6ldum l\u00edfi og deyjum ekki.\u201c 3 \u00de\u00e1 l\u00f6g\u00f0u t\u00edu br\u00e6\u00f0ur J\u00f3sefs af sta\u00f0 til a\u00f0 kaupa korn \u00ed Egyptalandi. 4 En Jakob l\u00e9t ekki Benjam\u00edn, br\u00f3\u00f0ur J\u00f3sefs, fara me\u00f0 br\u00e6\u00f0rum s\u00ednum \u00fev\u00ed a\u00f0 hann \u00f3tta\u00f0ist a\u00f0 hann kynni a\u00f0 ver\u00f0a fyrir slysi. 5 Synir \u00cdsraels voru me\u00f0al allra \u00feeirra sem komu til a\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-mosebok-42-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1659","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1659","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1659"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1659\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1659"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}