{"id":1656,"date":"2017-12-30T20:59:50","date_gmt":"2017-12-30T20:59:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-m%c2%97seb%c2%97k-39-kafli\/"},"modified":"2022-12-16T13:43:00","modified_gmt":"2022-12-16T13:43:00","slug":"fyrsta-mosebok-39-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-mosebok-39-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 39. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">J\u00f3sef og eiginkona P\u00f3t\u00edfars<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span> J\u00f3sef var fluttur til Egyptalands \u00fear sem P\u00f3t\u00edfar, egypskur hir\u00f0ma\u00f0ur fara\u00f3s og l\u00edfvar\u00f0arforingi, keypti hann af \u00cdsmael\u00edtunum sem fluttu hann \u00feanga\u00f0. <a name=\"2\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span> En Drottinn var me\u00f0 J\u00f3sef svo a\u00f0 hann var\u00f0 l\u00e1nsamur. Hann dvaldist \u00ed h\u00fasi hins egypska h\u00fasb\u00f3nda s\u00edns. <a name=\"3\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span> \u00deegar h\u00fasb\u00f3nda hans var\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 Drottinn var me\u00f0 honum og a\u00f0 Drottinn l\u00e9t honum heppnast allt sem hann t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur, <a name=\"4\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span> \u00fe\u00e1 fann J\u00f3sef n\u00e1\u00f0 \u00ed augum hans og \u00fej\u00f3na\u00f0i honum. Hann setti J\u00f3sef yfir h\u00fas sitt og tr\u00fa\u00f0i honum fyrir \u00f6llu sem hann \u00e1tti. <a name=\"5\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span> Fr\u00e1 \u00feeirri stundu, er hann haf\u00f0i sett J\u00f3sef yfir h\u00fas sitt og yfir allt sem hann \u00e1tti, blessa\u00f0i Drottinn h\u00fas hins egypska manns vegna J\u00f3sefs. Hv\u00edldi blessun Drottins yfir \u00f6llu sem hann \u00e1tti, innan h\u00fass og utan. <a name=\"6\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span> P\u00f3t\u00edfar f\u00f3l J\u00f3sef til umr\u00e1\u00f0a allar eigur s\u00ednar og l\u00e9t sig ekki var\u00f0a um anna\u00f0 en matinn sem hann neytti.<br \/>\nJ\u00f3sef var vel vaxinn og fr\u00ed\u00f0ur s\u00fdnum. <a name=\"7\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span> \u00dear kom a\u00f0 kona h\u00fasb\u00f3nda hans renndi h\u00fdru auga til hans og sag\u00f0i: \u201eLeggstu me\u00f0 m\u00e9r!\u201c <a name=\"8\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span> J\u00f3sef f\u00e6r\u00f0ist undan og sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u201eH\u00fasb\u00f3ndi minn l\u00e6tur sig ekki var\u00f0a um neitt \u00ed h\u00fasinu undir minni stj\u00f3rn og hefur tr\u00faa\u00f0 m\u00e9r fyrir \u00f6llum eigum s\u00ednum. <a name=\"9\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span> Hann hefur ekki meira vald \u00ed \u00feessu h\u00fasi en \u00e9g og hann neitar m\u00e9r ekki um neitt nema \u00feig vegna \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa ert kona hans. Hvers vegna skyldi \u00e9g \u00fe\u00e1 a\u00f0hafast svo illt og syndga \u00e1 m\u00f3ti Gu\u00f0i?\u201c <a name=\"10\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span> \u00de\u00f3 a\u00f0 h\u00fan reyndi a\u00f0 tala J\u00f3sef til dag eftir dag \u00fe\u00e1 l\u00e9t hann ekki a\u00f0 vilja hennar a\u00f0 leggjast hj\u00e1 henni og vera me\u00f0 henni.<br \/>\n<a name=\"11\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span> Dag einn er hann gekk til vinnu sinnar inn \u00ed h\u00fasi\u00f0 og enginn heimilismanna var \u00fear inni <a name=\"12\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span> greip h\u00fan \u00ed skikkju hans og sag\u00f0i: \u201eLeggstu me\u00f0 m\u00e9r!\u201c Hann skildi skikkjuna eftir \u00ed hendi hennar og lag\u00f0i \u00e1 fl\u00f3tta \u00fat. <a name=\"13\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span> \u00deegar h\u00fan s\u00e1 a\u00f0 hann haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 eftir skikkjuna \u00ed hendi hennar og var fl\u00fainn \u00fat <a name=\"14\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span> \u00fe\u00e1 kalla\u00f0i h\u00fan \u00e1 heimaf\u00f3lk sitt og sag\u00f0i: \u201eSj\u00e1i\u00f0, hann hefur f\u00e6rt okkur hebreskan mann sem skemmtir s\u00e9r \u00e1 kostna\u00f0 okkar. Hann kom inn til m\u00edn og vildi leggjast me\u00f0 m\u00e9r en \u00e9g \u00e6pti h\u00e1st\u00f6fum. <a name=\"15\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span> \u00deegar hann heyr\u00f0i hr\u00f3p m\u00edn og k\u00f6ll l\u00e9t hann skikkju s\u00edna eftir hj\u00e1 m\u00e9r og lag\u00f0i \u00e1 fl\u00f3tta.\u201c <a name=\"16\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span> H\u00fan geymdi skikkju hans \u00feanga\u00f0 til h\u00fasb\u00f3ndi hans kom heim. <a name=\"17\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span> \u00de\u00e1 endurt\u00f3k h\u00fan s\u00f6gu s\u00edna og sag\u00f0i: \u201eHebreski \u00fer\u00e6llinn, sem \u00fe\u00fa f\u00e6r\u00f0ir okkur, kom til m\u00edn til \u00feess a\u00f0 gamna s\u00e9r. <a name=\"18\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span> En \u00feegar \u00e9g hr\u00f3pa\u00f0i og kalla\u00f0i skildi hann skikkju s\u00edna eftir hj\u00e1 m\u00e9r og lag\u00f0i \u00e1 fl\u00f3tta.\u201c<br \/>\n<a name=\"19\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span> Er h\u00fasb\u00f3ndi hans heyr\u00f0i konu s\u00edna sk\u00fdra fr\u00e1 hvernig \u00fer\u00e6ll hans haf\u00f0i komi\u00f0 fram vi\u00f0 hana reiddist hann mj\u00f6g. <a name=\"20\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span> L\u00e9t h\u00fasb\u00f3ndinn taka J\u00f3sef og setja hann \u00ed fangelsi\u00f0 \u00fear sem fangar konungs voru geymdir. \u00dear var hann haf\u00f0ur \u00ed haldi.<br \/>\n<a name=\"21\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span> En Drottinn var me\u00f0 J\u00f3sef, au\u00f0s\u00fdndi honum miskunn og l\u00e9t hann finna n\u00e1\u00f0 \u00ed augum fangelsisstj\u00f3rans <a name=\"22\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span> sem setti J\u00f3sef yfir alla hina fangana og ger\u00f0i hann \u00e1byrgan fyrir allri vinnu \u00ed fangelsinu. <a name=\"23\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span> Fangelsisstj\u00f3rinn \u00feurfti ekki a\u00f0 skipta s\u00e9r af neinu sem J\u00f3sef var tr\u00faa\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn var me\u00f0 honum. Allt sem hann t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur l\u00e9t Drottinn l\u00e1nast honum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J\u00f3sef og eiginkona P\u00f3t\u00edfars 1 J\u00f3sef var fluttur til Egyptalands \u00fear sem P\u00f3t\u00edfar, egypskur hir\u00f0ma\u00f0ur fara\u00f3s og l\u00edfvar\u00f0arforingi, keypti hann af \u00cdsmael\u00edtunum sem fluttu hann \u00feanga\u00f0. 2 En Drottinn var me\u00f0 J\u00f3sef svo a\u00f0 hann var\u00f0 l\u00e1nsamur. Hann dvaldist \u00ed h\u00fasi hins egypska h\u00fasb\u00f3nda s\u00edns. 3 \u00deegar h\u00fasb\u00f3nda hans var\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 Drottinn var me\u00f0 honum og a\u00f0 Drottinn l\u00e9t honum heppnast allt sem hann t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur, 4 \u00fe\u00e1 fann J\u00f3sef n\u00e1\u00f0 \u00ed augum hans og \u00fej\u00f3na\u00f0i honum. Hann setti J\u00f3sef yfir h\u00fas sitt og tr\u00fa\u00f0i honum fyrir \u00f6llu sem hann \u00e1tti. 5 Fr\u00e1 \u00feeirri stundu, er hann <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-mosebok-39-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1656","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1656","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1656"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1656\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1656"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}