Þriðja plágan: Mývargur

12 Drottinn sagði við Móse: „Segðu við Aron: Réttu út staf þinn og sláðu á rykið á jörðinni, það verður að mývargi um allt Egyptaland.“ 13 Þetta gerðu þeir. Aron rétti út hönd sína með stafnum og sló á rykið á jörðinni. Það varð að mývargi sem settist á menn og skepnur. Allt ryk á jörðinni varð að mývargi um allt Egyptaland. 14Spáprestarnir reyndu að gera eins með fjölkynngi sinni og senda út mý en gátu það ekki. Mývargurinn lagðist bæði á menn og skepnur. 15 Þá sögðu spáprestarnir við faraó: „Þetta er fingur Guðs.“ En hjarta faraós var hart og hann hlustaði ekki á þá eins og Drottinn hafði sagt fyrir um.

Fjórða plágan: Flugur

16 Drottinn sagði við Móse: „Vertu snemma á fótum á morgun og gakktu fyrir faraó þegar hann gengur niður að fljótinu og segðu við hann: Svo segir Drottinn: Leyfðu þjóð minni að fara svo að hún geti þjónað mér. 17 Ef þú vilt ekki leyfa þjóð minni að fara sendi ég flugur yfir þig, þjóna þína, þjóð þína og hús þín. Þær munu fylla húsin í Egyptalandi og þekja jörðina sem þau standa á. 18 En þann sama dag mun ég undanskilja Gósenland þar sem þjóð mín dvelur svo að þar verða engar flugur og þú komist að raun um að ég, Drottinn, er mitt í landinu. 19 Ég læt þetta greina þjóð mína frá þinni þjóð. Þetta tákn verður á morgun.“ 20 Drottinn gerði þetta: Aragrúi flugna kom í hús faraós og hús þjóna hans og um allt Egyptaland spilltist jörðin af flugum. 21 Þá kallaði faraó Móse og Aron fyrir sig og sagði: „Farið og færið Guði ykkar sláturfórnir hér í landinu.“ 22 Móse svaraði: „Það getum við ekki því að við verðum að færa Drottni, Guði okkar, sláturfórnir sem eru Egyptum viðurstyggð. Mundu Egyptar ekki grýta okkur ef við færðum fyrir augum þeirra sláturfórnir sem þeir hafa andstyggð á? 23 Við ætlum að fara þrjár dagleiðir inn í eyðimörkina og færa Drottni, Guði okkar, sláturfórnir eins og hann hefur boðið okkur.“ 24 Þá sagði faraó: „Ég ætla að leyfa ykkur að fara svo að þið getið fært Drottni, Guði ykkar, sláturfórnir úti í eyðimörkinni. En þið megið ekki fara of langt. Biðjið fyrir mér.“ 25 Móse svaraði: „Nú geng ég út frá þér og bið til Drottins. Þá munu flugurnar hverfa frá faraó, þjónum hans og þjóð á morgun. En faraó má ekki ganga á bak orða sinna um að leyfa þjóðinni að fara til að færa Drottni sláturfórn.“
26 Móse gekk út frá faraó og bað til Drottins. 27 Drottinn gerði það sem Móse bað um og flugurnar hurfu frá faraó, þjónum hans og þjóð og engin varð eftir. 28 Og faraó herti hjarta sitt einnig í þetta skipti og hann leyfði fólkinu ekki að fara.