11 Heber Keníti hafði skilist við Kenítana, niðja Hóbabs, tengdaföður Móse, og sló hann tjöldum sínum allt að Elon Besaanaím sem er hjá Kedes.
12 Sísera var sagt frá því að Barak Abínóamsson væri farinn upp á Taborfjall. 13 Dró Sísera þá saman alla vagna sína, níu hundruð járnvagna, og allt það lið sem með honum var, frá Haróset Hagojím til Kísonlækjar. 14 Þá sagði Debóra við Barak: „Rístu upp því að nú er sá dagur kominn að Drottinn mun selja Sísera þér í hendur. Vissulega fer Drottinn fyrir þér.“ Fór Barak þá ofan af Taborfjalli og tíu þúsund menn fylgdu honum. 15 Og Drottinn hrelldi Sísera og alla vagna hans og allan her hans með sverðseggjum frammi fyrir Barak svo að Sísera stökk af vagni sínum og flýði á hlaupum. 16 En Barak elti vagnana og herinn allt til Haróset Hagojím og allur her Sísera féll fyrir sverði. Enginn komst undan.
17 Sísera flýði á hlaupum til tjalds Jaelar, konu Hebers Keníta, því að friður var milli Jabíns, konungs í Hasór, og ættar Hebers Keníta. 18 Jael gekk út til móts við Sísera og sagði við hann: „Gakktu inn, herra minn, gakktu inn til mín og vertu óhræddur.“ Og hann gekk inn til hennar í tjaldið og hún lagði ábreiðu yfir hann. 19 Þá sagði hann við hana: „Gefðu mér vatnssopa að drekka því að ég er þyrstur.“ Hún opnaði þá mjólkurbelg og gaf honum að drekka og breiddi síðan ofan á hann aftur. 20 Þá sagði hann við hana: „Stattu í tjalddyrunum. Ef einhver kemur og spyr þig: Er nokkur hér? þá skaltu neita því.“ 21 Jael, kona Hebers, þreif tjaldhæl og tók hamar í hönd sér og gekk hljóðlega inn til Sísera sem fallinn var í fastasvefn því að hann var þreyttur. Hún rak hælinn gegnum gagnauga hans svo að hann gekk í jörð niður. Varð þetta hans bani. 22 Í sama bili kom Barak og var að elta Sísera. Jael gekk þá út á móti honum og sagði við hann: „Komdu hingað, ég skal sýna þér þann sem þú leitar að.“ Og hann gekk inn til hennar og lá þá Sísera þar dauður með hælinn gegnum gagnaugað.
23 Þannig sigraði Guð á þeim degi Jabín, konung í Kanaan, fyrir Ísraelsmenn.
24 Og hönd Ísraelsmanna hvíldi æ þyngra á Jabín Kanverjakonungi uns þeir að lokum gerðu út af við hann.