Krossfestur

32 Á leiðinni hittu þeir mann frá Kýrene er Símon hét. Hann neyddu þeir til að bera kross Jesú. 33 Og er þeir komu til þess staðar er heitir Golgata, það þýðir hauskúpustaður, 34 gáfu þeir Jesú vín að drekka, galli blandað. Hann bragðaði það en vildi ekki drekka.
35 Þá krossfestu þeir hann. Og þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér, 36 sátu þar svo og gættu hans. 37 Yfir höfði hans festu þeir sakargift hans svo skráða: ÞESSI ER JESÚS, KONUNGUR GYÐINGA. 38 Þá voru krossfestir með honum tveir ræningjar, annar til hægri, hinn til vinstri.
39 Þeir sem fram hjá gengu hæddu Jesú, skóku höfuð sín 40 og sögðu: „Þú sem brýtur niður musterið og reisir það á þrem dögum. Bjarga nú sjálfum þér ef þú ert sonur Guðs og stíg niður af krossinum!“
41 Eins gerðu æðstu prestarnir gys að honum og fræðimennirnir og öldungarnir og sögðu: 42 „Öðrum bjargaði hann, sjálfum sér getur hann ekki bjargað. Hann er konungur Ísraels, stígi hann nú niður af krossinum, þá skulum við trúa á hann. 43 Hann treystir Guði. Nú ætti Guð að frelsa hann ef hann hefur mætur á honum. Eða sagði hann ekki: Ég er sonur Guðs?“
44 Einnig ræningjarnir, sem með honum voru krossfestir, smánuðu hann á sama hátt.