Sverð konungsins í Babýlon gegn Jerúsalem

23 Orð Drottins kom til mín:
24 Mannssonur, leggðu tvo vegi sem sverð konungsins í Babýlon skal koma eftir. Báðir vegirnir skulu liggja frá sama landi. Þar sem þeir byrja skaltu koma fyrir vegvísi sem vísar veginn til borgar. 25 Vísaðu veginn sem sverðið á að fara til Rabba, borgar Ammónítanna, og til Júda og hinnar víggirtu borgar Jerúsalem. 26 Því að konungurinn í Babýlon stendur við vegamótin. 27 Hann leitaði goðsvars, hristi örvarnar, spurði skurðgoðin, skoðaði lifrina. Í hægri hönd hans kom hlutur Jerúsalem. Þar mun hann setja upp múrbrjóta, ljúka upp munni og hrópa, láta heróp gjalla, beina múrbrjótum gegn borgarhliðunum, gera umsátursvirki og reisa árásarturna. 28 En borgarbúar álitu goðsvarið uppspuna því að þeir höfðu tryggt þig með eiðum. En konungur mun minna þá á sekt þeirra og taka þá til fanga.
29 Þess vegna segir Drottinn Guð: Þar sem þið minntuð sjálfir á sekt ykkar með augljósum afbrotum ykkar með því að sýna syndir ykkar í öllu sem þið gerðuð, þar sem þið minntuð á þetta, verðið þið teknir til fanga og beittir harðræði. 30 Og þú, vanhelgi og guðlausi þjóðhöfðingi Ísraels, nú er dagur þinn kominn, tími lokauppgjörs. 31 Svo segir Drottinn Guð: Burt með vefjarhöttinn, niður með kórónuna. Ekkert verður eins og það var. Upp með hið lága, niður með hið háa. 32 Að rústum, rústum, rústum mun ég gera þessa borg. Þetta verður ekki fyrr en sá kemur sem hefur það dómsvald sem ég veiti honum.

Sverð Drottins gegn Ammónítum

33 Þú, mannssonur, komdu fram sem spámaður og segðu: Svo segir Drottinn Guð, gegn Ammónítum og háðsyrðum þeirra. Segðu: Sverð, sverð, brugðið til að bana, fægt til að eyða, að glampa sem elding. 34 Þrátt fyrir upplognar sýnir um þig, uppspunnin goðsvör um þig, um sverð reitt að hálsi guðlausra, er dagur þeirra kominn, tími lokauppgjörs. 35 Slíðraðu það aftur. Á staðnum þar sem þú varst skapaður, í upprunalandi þínu, mun ég dæma þig. 36 Ég mun úthella heift minni yfir þig, blása á þig logandi reiði minni og læt þig ganga í greipar hrottum sem hyggja á eyðingu. 37 Eldsmatur skaltu verða, blóð þitt skal fljóta í landi þínu, þín verður aldrei minnst framar því að ég, Drottinn, hef talað.