Sverð Drottins

1 Orð Drottins kom til mín:
2 Mannssonur, horfðu í suður og láttu boðskap þinn streyma gegn suðrinu, komdu fram sem spámaður og láttu boðskap þinn streyma gegn skóginum í Suðurlandinu. 3 Segðu við skóg Suðurlandsins: Hlýddu á orð Drottins. Svo segir Drottinn Guð: Ég mun kveikja eld í þér sem mun gleypa sérhvert grænt og skrælnað tré. Hinn logandi eldur er óslökkvandi og sérhvert andlit, frá suðri til norðurs, mun sviðna í honum. 4 Þá munu allir dauðlegir skilja að ég, Drottinn, kveikti þennan eld. Hann slokknar ekki.
5 Þá sagði ég: Drottinn Guð. Þeir segja um mig: „Talar hann ekki sífellt í líkingum?“
6 Þá kom orð Drottins til mín: 7 Mannssonur, snúðu þér að Jerúsalem og láttu boðskap þinn streyma gegn helgidómnum, komdu fram sem spámaður gegn helgidómnum og talaðu gegn landi Ísraels. 8 Segðu við land Ísraels: Svo segir Drottinn: Ég ræðst gegn þér. Ég dreg sverð mitt úr slíðrum og tortími bæði réttlátum og ranglátum. 9 Þar sem ég ætla að tortíma úr landinu bæði réttlátum og ranglátum verður sverð mitt dregið úr slíðrum og því beitt gegn öllum dauðlegum frá suðri til norðurs. 10 Þá munu allir dauðlegir skilja að ég, Drottinn, hef dregið sverð mitt úr slíðrum sínum. Það verður ekki slíðrað aftur.
11 Þú, mannssonur, styn þungan. Þú skalt stynja fyrir augum þeirra, skjálfandi á beinum og af sárri kvöl. 12 Ef þeir spyrja: „Hvers vegna stynur þú?“ skaltu svara: „Vegna fregnar sem mun berast og þegar hún berst mun hvert hjarta bresta, hver hönd missa máttinn, hver maður missa móðinn og sérhvert hné kikna. Fregnin berst og það sem í henni felst mun verða, segir Drottinn Guð.“
13Orð Drottins kom til mín:
14Mannssonur, komdu fram sem spámaður og segðu: Svo segir Drottinn Guð:
Sverð, sverð,
hvesst og fægt,
15til dráps, til dráps var það hvesst,
fægt til að blika sem elding. [
16Það var fengið þeim sem fægði það,
síðan gripið með hendinni.
Sverðið var hvesst og fægt,
búið í hendur vegandanum.
17Mannssonur, æptu og kveinaðu, maður.
Því er beint gegn þjóð minni,
gegn öllum höfðingjum Ísraels.
Þeir eru seldir undir sverðið
ásamt þjóð minni.
Berðu þér á brjóst. [
18Því að þetta var reynt. [
19En þú, mannssonur, talaðu sem spámaður,
sláðu saman höndum.
Sverðið höggvi tvisvar, þrisvar.
Þetta er drápssverð, sverð til víga,
hið mikla sverð sem sækir að úr öllum áttum.
20 Svo að hugrekkið bresti [
og föllnum fjölgi
í öllum borgarhliðum þeirra
hef ég stefnt sverðinu til dráps.
Það er gert til að leiftra,
fægt til víga.
21Sýndu hvassa egg,
höggðu til hægri og vinstri,
höggðu hvert sem eggin beinist.
22 Ég mun einnig slá saman höndum
og svala heift minni.
Ég, Drottinn, hef talað.