Hve oft?

21 Þá gekk Pétur til hans og spurði: „Drottinn, hve oft á ég að fyrirgefa bróður mínum ef hann misgerir við mig? Svo sem sjö sinnum?“
22 Jesús svaraði: „Ekki segi ég þér sjö sinnum heldur sjötíu sinnum sjö.[
23 Því að líkt er um himnaríki og konung sem vildi láta þjóna sína gera skil. 24 Hann hóf reikningsskilin og var færður til hans maður er skuldaði tíu þúsund talentur.[ 25 Sá gat ekkert borgað og bauð konungur þá að hann skyldi seldur ásamt konu og börnum og öllu sem hann átti til lúkningar skuldinni. 26 Þá féll þjónninn til fóta honum og sagði: Haf biðlund við mig og ég mun borga þér allt. 27 Og herra þjónsins kenndi í brjósti um hann, lét hann lausan og gaf honum upp skuldina.
28 Þegar þjónn þessi kom út hitti hann einn samþjón sinn sem skuldaði honum hundrað denara. Hann greip hann, tók fyrir kverkar honum og sagði: Borga það sem þú skuldar! 29 Samþjónn hans féll þá til fóta honum og bað hann: Haf biðlund við mig og ég mun borga þér. 30 En hann vildi það ekki, heldur fór og lét varpa honum í fangelsi uns hann hefði borgað skuldina. 31 Þegar samþjónar hans sáu hvað orðið var urðu þeir mjög hryggir og sögðu herra sínum allt sem gerst hafði. 32 Konungurinn kallar þá þjóninn fyrir sig og segir við hann: Illi þjónn, alla þessa skuld gaf ég þér upp af því að þú baðst mig. 33 Bar þér þá ekki einnig að miskunna samþjóni þínum eins og ég miskunnaði þér? 34 Og konungur varð reiður og afhenti hann böðlunum uns hann hefði goldið allt sem hann skuldaði honum.
35 Þannig mun og faðir minn himneskur gera við yður nema þér fyrirgefið af hjarta hvert öðru.“