Absalon sigraður og deyddur

1 Davíð kannaði nú lið sitt og setti foringja yfir þúsund manna sveitir og hundrað manna flokka. 2 Síðan skipti hann hernum í þrjár fylkingar. Var ein þeirra undir stjórn Jóabs, önnur undir stjórn Abísaí Serújusonar, bróður Jóabs, og sú þriðja undir stjórn Ittaí frá Gat. Því næst mælti konungurinn við herinn: „Ég ætla sjálfur að fara með ykkur.“ 3 En herinn svaraði: „Þú skalt hvergi fara. Ef við flýjum veldur það engum áhyggjum. Þó að helmingur okkar falli hefur enginn áhyggjur af því. En þú ert dýrmætari en tíu þúsund okkar. Því er betra að þú komir út úr borginni okkur til hjálpar.“ 4 Þá sagði konungurinn við þá: „Ég skal gera eins og þið viljið.“ Því næst tók konungurinn sér stöðu við borgarhliðið á meðan allur herinn gekk út fylktu liði í hundrað manna flokkum og þúsund manna sveitum. 5 Loks gaf konungurinn Jóab, Abísaí og Ittaí þessi fyrirmæli: „Farið gætilega með unga manninn Absalon.“ Allur herinn heyrði að konungurinn gaf hershöfðingjum sínum þessi fyrirmæli um Absalon.
6 Herinn fór nú út á vellina gegn Ísrael og kom til bardaga í Efraímsskógi. 7 Þar biðu Ísraelsmenn ósigur fyrir mönnum Davíðs. Varð mannfall mikið þennan dag og misstu Ísraelsmenn tuttugu þúsund menn. 8 Bardaginn barst um allt landsvæðið og þennan dag gleypti skógurinn fleiri menn en sverðið.
9 Absalon blasti nú allt í einu við sjónum manna Davíðs. Hann hafði riðið múldýri sem fór inn undir greinaþykkni á miklu eikartré. Þá festist höfuð hans í eikinni en múldýrið, sem hann reið, hélt áfram. Hann hékk því í lausu lofti. 10Maður nokkur sá þetta og sagði við Jóab: „Rétt í þessu sá ég Absalon hanga í eikartré.“ 11 Jóab svaraði manninum sem sagði honum þetta: „Hvers vegna hjóstu hann ekki banahögg þarna úr því að þú sást hann? Ég hefði gefið þér tíu sikla silfurs og belti fyrir vikið.“ 12 En maðurinn svaraði Jóab: „Þó að þúsund siklar silfurs væru taldir í lófa mér legði ég ekki hönd á son konungsins. Við heyrðum með okkar eigin eyrum að konungurinn gaf þér, Abísaí og Ittaí þessi fyrirmæli: Gætið unga mannsins Absalons. 13 Hefði ég brugðist og gert honum eitthvað – engu verður leynt fyrir konungi – þá hefðir þú staðið fjarri.“ 14 Jóab svaraði: „Ég get ekki eytt tíma mínum til einskis með þér.“ Síðan þreif hann þrjú spjót og rak þau í hjarta Absalons sem enn var á lífi og hékk í eikinni. 15 Því næst umkringdu tíu skjaldsveinar Jóabs Absalon og hjuggu hann banahögg. 16 Jóab lét þá þeyta hafurshornið og herinn hætti að veita Ísraelsmönnum eftirför. Þegar Jóab hafði stöðvað herinn 17 tóku þeir Absalon, hentu honum í stóra gjótu í skóginum og gerðu mikla steindys yfir. Þá voru allir Ísraelsmenn flúnir hver í sitt tjald.