5 En nú fer ég til hans sem sendi mig og enginn yðar spyr mig: Hvert fer þú? 6 En hryggð hefur fyllt hjarta yðar af því að ég sagði yður þetta. 7 En ég segi yður sannleikann: Það er yður til góðs að ég fari burt því ef ég fer ekki kemur hjálparinn ekki til yðar. En ef ég fer sendi ég hann til yðar. 8 Þegar hann kemur mun hann sanna heiminum hvað er synd og réttlæti og dómur. 9 Syndin er að þeir trúðu ekki á mig, 10 réttlætið að ég fer til föðurins og þér sjáið mig ekki lengur 11 og dómurinn að höfðingi þessa heims er dæmdur.
12 Enn hef ég margt að segja yður en þér getið ekki skilið það nú. 13 En þegar andi sannleikans kemur mun hann leiða yður í allan sannleikann. Það sem hann segir yður hefur hann ekki frá sjálfum sér heldur mun hann segja yður það sem hann heyrir og kunngjöra yður það sem koma á. 14 Hann mun gera mig dýrlegan því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður. 15 Allt sem faðirinn á er mitt. Því sagði ég að hann tæki af mínu og kunngjörði yður.