Í stormi

23 Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. 24 Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. 25 Þeir fara til, vekja hann og segja: „Drottinn, bjarga okkur, við förumst.“
26 Hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?“ Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn.
27 Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“

Í byggð Gadarena

28 Þegar Jesús kom yfir um, í byggð Gadarena, komu á móti honum frá gröfunum tveir menn haldnir illum öndum, svo skæðir að enginn mátti þann veg fara. 29 Þeir æpa: „Hvað vilt þú okkur, sonur Guðs? Komstu hingað að kvelja okkur fyrir tímann?“
30 En langt frá þeim var mikil svínahjörð á beit. 31 Illu andarnir báðu hann og sögðu: „Ef þú rekur okkur út sendu okkur þá í svínahjörðina.“
32 Hann sagði: „Farið!“ Út fóru þeir og í svínin og öll hjörðin ruddist fram af bröttum árbakkanum í vatnið og týndist þar.
33 En hirðarnir flýðu, komu til borgarinnar og sögðu öll tíðindin, líka frá mönnunum sem haldnir voru illum öndum. 34 Og allir borgarmenn fóru út til móts við Jesú og þegar þeir sáu hann báðu þeir hann að fara burt úr héruðum þeirra.