Dæmið ekki

1 Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmd. 2 Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmd verða og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða. 3 Hví sér þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? 4 Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: Lát mig draga flísina úr auga þér? Og þó er bjálki í auga þínu. 5 Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.
6 Gefið ekki hundum það sem heilagt er og kastið eigi perlum yðar fyrir svín. Þau mundu troða þær undir fótum og þeir snúa sér við og rífa yður í sig.

Biðjið, leitið

7 Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. 8 Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða. 9 Eða hver er sá maður meðal yðar sem gefur barni sínu[ stein er það biður um brauð? 10 Eða höggorm þegar það biður um fisk? 11 Fyrst þér sem eruð vond hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir sem biðja hann?
12 Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Því að þetta er lögmálið og spámennirnir.

Þröngt hlið

13 Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður sem liggur til glötunar og margir þeir sem þar fara inn. 14 Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur er liggur til lífsins og fáir þeir sem finna hann.