Ekki fyrir mönnum

1 Varist að iðka réttlæti yðar fyrir mönnum þeim til sýnis, annars eigið þér engin laun hjá föður yðar á himnum.
2 Þegar þú gefur ölmusu skaltu ekki láta þeyta lúður fyrir þér eins og hræsnarar gera í samkunduhúsum og á strætum til þess að hljóta lof af mönnum. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.
3 En þegar þú gefur ölmusu viti vinstri hönd þín ekki hvað sú hægri gerir 4 svo að ölmusa þín sé í leynum og faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.

Þegar þú biðst fyrir

5 Og þegar þér biðjist fyrir þá verið ekki eins og hræsnararnir. Þeir vilja helst standa og biðjast fyrir í samkundum og á gatnamótum til þess að menn sjái þá. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín. 6 En þegar þú biðst fyrir skaltu ganga inn í herbergi þitt, loka dyrunum og biðja föður þinn sem er í leynum. Faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.
7 Þegar þér biðjist fyrir skuluð þér ekki fara með fánýta mælgi eins og heiðingjarnir. Þeir hyggja að þeir verði bænheyrðir fyrir mælgi sína. 8 Líkist þeim ekki. Faðir yðar veit hvers þér þurfið áður en þér biðjið hann. 9 En þannig skuluð þér biðja:
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
10til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
11Gef oss í dag vort daglegt brauð. [
12Fyrirgef oss vorar skuldir
svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
13Og eigi leið þú oss í freistni heldur frelsa oss frá illu. [
[Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu, amen.] [

14 Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. 15 En ef þér fyrirgefið ekki öðrum mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar.