Hjáguðadýrkun

1 Nokkrir af öldungum Ísraels komu einhverju sinni til mín og settust frammi fyrir mér. 2 Þá kom orð Drottins til mín:
3 Mannssonur, þessir menn hafa sett skurðgoð sín ofar öðru í hjarta sér og sett þau fyrir framan sig og það hefur orðið þeim til hrösunar. Á ég þá að leyfa þeim að leita svara hjá mér? 4 Ávarpaðu þá og segðu: Svo segir Drottinn Guð: Ef Ísraelsmaður, sem sett hefur skurðgoð sín ofar öðru í hjarta sér og sett þau fyrir framan sig til hrösunar, kemur til spámanns, þá mun ég sjálfur, Drottinn, láta tilleiðast að svara þrátt fyrir hin mörgu skurðgoð hans. 5 Þannig mun ég grípa hjarta Ísraelsmanna sem hafa fjarlægst mig vegna allra sinna skurðgoða. 6 Segðu því við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn Guð: Snúið við, snúið ykkur frá skurðgoðum ykkar og snúið baki við allri viðurstyggð ykkar. 7 Því að hverjum þeim Ísraelsmanni og hverjum þeim aðkomumanni, sem nýtur verndar í Ísrael, sem hefur fjarlægst mig og hefur sett skurðgoð sín ofar öðru í hjarta sér, sett þau fyrir framan sig sér til hrösunar og kemur síðan til spámanns til að hann leiti svara hjá mér, honum mun ég sjálfur, Drottinn, svara. 8 Ég mun beina augliti mínu gegn þessum manni og gera hann að tákni og víti til varnaðar og loks mun ég uppræta hann úr þjóð minni. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn. 9 En láti spámaðurinn blekkjast til að flytja boðskap hef ég sjálfur, Drottinn, blekkt þann spámann. Ég mun rétta út hönd mína gegn honum og útrýma honum úr þjóð minni, Ísrael, 10 og báðir skulu bera sekt sína: Spámaðurinn er jafnsekur þeim sem leitaði svara hjá honum, 11svo að Ísraelsmenn villist ekki framar frá mér og saurgi sig ekki oftar á öllum sínum syndum. Þeir skulu vera þjóð mín og ég skal vera Guð þeirra, segir Drottinn Guð.