Fyrirheit um ævarandi konungdóm

1 Þegar konungur var sestur að í húsi sínu og Drottinn hafði veitt honum frið við alla óvini umhverfis 2sagði hann við Natan spámann: „Þú sérð að ég bý í húsi úr sedrusviði en örk Guðs býr í tjaldi.“ 3 Natan svaraði konungi: „Gerðu það sem þú hefur í huga án þess að hika því að Drottinn er með þér.“
4 Þá um nóttina kom orð Drottins til Natans:
5 „Farðu og segðu við þjón minn, Davíð: Svo segir Drottinn: Ætlar þú að reisa mér hús að búa í? 6 Frá þeim degi er ég leiddi Ísraelsmenn út úr Egyptalandi og til þessa dags hef ég ekki búið í húsi heldur ferðast um og búið í tjaldi. 7 Hef ég nokkurn tíma spurt einhvern af leiðtogum Ísraels sem ég setti sem hirða þjóðar minnar þann tíma sem ég hef verið á ferð með Ísraelsmönnum: Hvers vegna hafið þið ekki byggt mér hús úr sedrusviði? 8 Þess vegna skaltu nú segja við þjón minn, Davíð: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég sótti þig í haglendið þar sem þú gættir fjár og gerði þig að höfðingja yfir þjóð minni, Ísrael. 9 Ég hef verið með þér á öllum ferðum þínum og tortímt öllum óvinum þínum. Ég mun gera nafn þitt jafnfrægt nöfnum frægustu manna á jörðinni. 10 Ég mun fá þjóð minni, Ísrael, samastað og ég mun gróðursetja hana svo að hún geti búið þar örugg og óttalaus um alla framtíð. Ofbeldismenn skulu ekki kúga hana framar eins og fyrrum, 11 jafnvel eftir að ég setti dómara yfir þjóð mína, Ísrael. Ég veiti þér frið fyrir öllum óvinum þínum. Hér með kunngjörir Drottinn þér að hann muni reisa þér hús. 12 Þegar dagar þínir eru allir og þú hefur verið lagður til hvíldar hjá forfeðrum þínum mun ég gera son þinn, sem er getinn af þér, að eftirmanni þínum og ég mun styðja konungdóm hans. 13 Hann á að byggja nafni mínu hús og ég mun ævinlega styðja konunglegt hásæti hans. 14 Ég verð honum faðir og hann verður mér sonur. Þegar hann brýtur af sér mun ég hirta hann með höggum og slögum eins og tíðkast meðal manna. 15 Trúfesti mína skal ég ekki frá honum taka eins og frá Sál sem ég fjarlægði frá augliti mínu. 16 Ætt þín og konungdæmi skulu ævinlega standa fyrir augliti mínu. Hásæti þitt skal að eilífu stöðugt standa.“
17 Natan flutti Davíð öll þessi orð og alla þessa opinberun.