Verið hjartanlega velkomin á afmælishátíð Hins íslenska biblíufélags í Hallgrímskirkju, laugardaginn 29. ágúst kl.14

Fjölmennum á hátíð okkar allra og fögnum saman!

Stjórnandi: Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður

Dagskrá hátíðarinnar er eftirfarandi:

Forspil: Guðný Einarsdóttir (orgel) og Eiríkur Örn Pálsson (trompet)
Setning: Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir
Tónlist: Elísabet Waage (harpa) og Gunnar Kvaran (selló)
Ávarp: Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson
Almennur söngur: Þitt orð er, Guð, vort erfðafé
Kjöri heiðursfélaga lýst
Árnaðaróskir af hálfu erlendra gesta: Ingeborg Mongstad-Kvammen, framkvæmdastjóri norska biblíufélagsins, NBS
Tónlist: Scola Cantorum
Lestur valinna texta úr ýmsum Biblíuþýðingum
Arfur kynslóðanna- litið yfir farinn veg. Dr. Sigurður Pálsson, fv.framkvæmdastjóri HÍB
Tónlist: Karlakór KFUM frumflytur sálm eftir Bjarna Gunnarsson við ljóð Guðlaugs Gunnarssonar samið í tilefni afmælisins
Horft fram á veginn- mótun framtíðar, Þóra Björg Sigurðardóttir, guðfræðinemi
Almennur söngur: Gefðu að móðurmálið mitt.
Booðið verður upp á léttar veitingar eftir stundina.

Verið innilega velkomin!