Hver var Salómon? Hvernig voru fjölskylda og uppeldisaðstæður þessa fræga konungs í Ísrael? Hvaða áhrif hafði hann á samfélag og helgihald þjóðar sinnar? Hver er áhrifasaga hans? Hvers eðlis var ljóðlist og spekihefð hebrea?
Föstudaginn 14. ágúst kl. 12:15 – 13:45 verða fluttir þrír fyrirlestrar í Norðursal Hallgrímskirkju í tilefni af 200 ára afmæli Biblíufélagsins.

Dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor: Heilagur bústaður Hins Hæsta. Musteri Salómons í Saltara.
Guðbjörg Arnardóttir, sóknarprestur á Selfossi: Batseba, móðir Salómons í sögu og samtíð.
Sr. Hjörtur Pálsson, bókmenntafræðingur. „Eins og hindin þráir vantslindir…“ Við lindir ljóðs og trúar í boði Salómons.

Stjórnendur eru prestar Hallgrímskirkju: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og dr. Sigurður Árni Þórðarson.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.