Menning okkar hefur mótast í ríkum mæli af tungutaki, táknmyndum og boðskap Biblíunnar. Á sama tíma er biblíuþekkingu almennings mjög ábótavant, sérstaklega yngri kynslóða. Málþingið „Biblía 21 aldar“ fjallar um þessa þversögn og leiðir til úrbóta á nýrri öld. Málþingið er haldið í tilefni af 200 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags.
Málþingið verður haldið þriðjudaginn 28. apríl kl. 13 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafn Íslands.
Dagskrá:

Jón G. Friðjónsson: Biblían og rætur íslenskrar tungu.

Guðrún Kvaran: Um biblíuþýðingar og gildi þeirra.

Arnfríður Guðmundsdóttir: Biblían í bíó. Fagnaðarerindið um Jesú Krist fest á filmu.

Sigurður Pálsson: Biblíufræðsla, biblíuskilningur og menningarlæsi.

Dögg Harðardóttir: Gildi biblíulesturs.

Árni Svanur Daníelsson: #Biblían. Með ritninguna í vasanum, við
fingurna og á vörunum.

Pallborðsumræður um gildi fræðslu og þekkingar á biblíunni á nýrri öld.

Verið öll innilega velkomin!