Sr. Sigurður Árni Þórðarson er mikill áhugamaður um mat. Hann hefur haldið fjölda námskeiða um Biblíumat, föstur og hvernig matur tengist Biblíunni.

Bíblían er matarmikil og máltíðir gegna mikilvægu hlutverki í hinni helgu bók. Þegar biblíufólk bauð til samsætis var vinátta einnig í boði. Altarisganga kristinnar kirkju er í anda þeirrar afstöðu. Guð býður til veislu og vináttu. Biblíumatur er hollur, trefjaríkur, dýrafita var lítið notuð en ávextir mikilvægur hluti fæðu á biblíutíma. Hvítur sykur var ekki til, heldur kom sæta úr hunandi og ávöxtum. Fæði var ekki einhæft heldur fjölbreytilegt. Heilsufæði nútímans er svipað og Biblíufæði!  Hænur hafa verið við hús manna í amk fjögur þúsund ár. Í gröf Tutankammons var teikning af hænsnfugli. Og hæsnarækt var algeng á tímum Jesú og alls staðar í rómverska heimsveldinu. Kannski hafa Jesús Kristur og Jósef tekið þátt í að elda þennan rétt en væntanlega hefur María verið aðalkokkurinn. Svona réttur hefur ekki verið á borðum hvunndags í Nasaret heldur verið veislumatur.

 Maríukjúklingur

f. fjóra

 4 kjúklingabringur

4-6 hvítlauksgeirar

1 tsk kúmmín

1,5 tsk túrmerik

1 tsk kanill malaður

salvía, helst fersk – annars þurrkuð

1 stór rauðlaukur

3 skalottulaukar (sbr. biblíulega bæjarnafnið Askelon. Laukurinn líka oft kallaður vorlaukur á íslensku)

Sítrónubörkur rifin með rifjárni (notið helst lífrænar sítrónur)

Safi úr einni sítrónu ca 70 ml. – má líka vera appelsínubland

150 gr. spínat

300 ml. grænmetiskraftur

10 döðlur – langskornar. Mega líka vera fíkjur/sveskjur í staðinn.