Út er komin Bókin um Biblíuna hjá Forlaginu. Í henni er efni allra rita Gamla og Nýja testamentisins rakið. Einnig eru kynnt Apokrýf rit, Dauðahafshandritin og fleiri verk úr gyðingdómi og frumkristni. Bókin gefur handhægt yfirlit um einstaka hluta Biblíunnar, kort og myndverk frá ýmsum tímum. Sagt er frá lykilpersónum Biblíunnar, frá Adam og Evu til Jesú Krists og samtímamanna hans. Sögð er saga gyðinga á tímum Gamla testamentisins og við upphaf kristindóms.

Bókin um Biblíuna veitir ítarlega innsýn í texta Biblíunnar og sögu hennar. Hér er rakið efni allra rita Gamla og Nýja testamentisins og fjöldi tengdra verka frá ritunartíma þeirra kynntur.

Bókin er aðgengilegt uppflettirit fyrir þá sem vilja glöggva sig á efni einstakra hluta Biblíunnar og þeim persónum sem þar eru í lykilhlutverkum. Ekki síst varpar hún ljósi á tilurð þessa mikilvægasta rits vestrænnar menningar og hvernig það hefur fengið á sig þá mynd sem við þekkjum nú á dögum.

Höfundar eru Lisbet Kjær Müller prestur og Mogens Müller guðfræðiprófessor.

Ingunn Ásdísardóttir íslenskaði.

Bókin er innbundin og kostar 5.990 kr. en fæst á tilboðsverði hjá útgáfunni á kr. 4.495