{"id":2531,"date":"2017-11-18T20:22:10","date_gmt":"2017-11-18T20:22:10","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/opinberunarbokin-17-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T11:04:26","modified_gmt":"2021-06-06T11:04:26","slug":"opinberunarbok-johannesar-17-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/opinberunarbok-johannesar-17-kafli\/","title":{"rendered":"Opinberunarb\u00f3k J\u00f3hannesar 17. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Og einn af englunum sj\u00f6, sem halda \u00e1 sk\u00e1lunum sj\u00f6, kom til m\u00edn og sag\u00f0i: Kom hinga\u00f0, og \u00e9g mun s\u00fdna \u00fe\u00e9r d\u00f3minn yfir sk\u00e6kjunni miklu, sem er vi\u00f0 v\u00f6tnin m\u00f6rgu.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Konungar jar\u00f0arinnar hafa dr\u00fdgt saurlifna\u00f0 me\u00f0 henni, og \u00feeir, sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni b\u00faa, hafa or\u00f0i\u00f0 drukknir af saurlifna\u00f0ar v\u00edni hennar.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Og hann leiddi mig burt \u00ed anda \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rk. Og \u00e9g s\u00e1 konu sitja \u00e1 skarlatsrau\u00f0u d\u00fdri, alsettu gu\u00f0l\u00f6stunar n\u00f6fnum, og haf\u00f0i \u00fea\u00f0 sj\u00f6 h\u00f6fu\u00f0 og t\u00edu horn.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og konan var skr\u00fddd purpura og skarlati, og var b\u00fain gulli og gimsteinum og perlum. H\u00fan haf\u00f0i \u00ed hendi s\u00e9r gullbikar, fullan vi\u00f0urstygg\u00f0ar, og var \u00fea\u00f0 \u00f3hreinleikur saurlifna\u00f0ar hennar.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Og \u00e1 enni hennar var rita\u00f0 nafn, sem er leyndard\u00f3mur: Bab\u00fdlon hin mikla, m\u00f3\u00f0ir h\u00f3rkvenna og vi\u00f0urstygg\u00f0a jar\u00f0arinnar.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Og \u00e9g s\u00e1 a\u00f0 konan var drukkin af bl\u00f3\u00f0i hinna heil\u00f6gu og af bl\u00f3\u00f0i Jes\u00fa votta. Og \u00e9g undra\u00f0ist st\u00f3rlega, er \u00e9g leit hana.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Og engillinn sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Hv\u00ed ertu forvi\u00f0a? \u00c9g mun segja \u00fe\u00e9r leyndard\u00f3m konunnar og d\u00fdrsins, sem hana ber, \u00feess er hefur h\u00f6fu\u00f0in sj\u00f6 og hornin t\u00edu:<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>D\u00fdri\u00f0, sem \u00fe\u00fa s\u00e1st, var, en er ekki, og \u00fea\u00f0 mun st\u00edga upp fr\u00e1 undirdj\u00fapinu og fara til gl\u00f6tunar. Og \u00feeir, sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0u b\u00faa, \u00feeir, sem eiga ekki n\u00f6fn s\u00edn skrifu\u00f0 \u00ed l\u00edfsins b\u00f3k fr\u00e1 grundv\u00f6llun veraldar, munu undrast, er \u00feeir sj\u00e1 d\u00fdri\u00f0 sem var og er ekki og kemur aftur.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>H\u00e9r reynir \u00e1 skilning og speki. H\u00f6fu\u00f0in sj\u00f6 eru sj\u00f6 fj\u00f6ll, sem konan situr \u00e1. \u00dea\u00f0 eru l\u00edka sj\u00f6 konungar.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Fimm eru fallnir, einn er n\u00fa uppi, annar er \u00f3kominn og er hann kemur \u00e1 hann a\u00f0 vera stutt.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og d\u00fdri\u00f0, sem var, en er ekki, er einmitt hinn \u00e1ttundi, og er af \u00feeim sj\u00f6, og fer til gl\u00f6tunar.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Og hornin t\u00edu, sem \u00fe\u00fa s\u00e1st, eru t\u00edu konungar, sem enn hafa eigi teki\u00f0 konungd\u00f3m, heldur f\u00e1 vald sem konungar eina stund \u00e1samt d\u00fdrinu.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00deessir hafa allir eitt r\u00e1\u00f0, og m\u00e1ttinn og vald sitt gefa \u00feeir d\u00fdrinu.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00deessir munu heyja str\u00ed\u00f0 vi\u00f0 lambi\u00f0. Og lambi\u00f0 og \u00feeir, sem me\u00f0 \u00fev\u00ed eru, hinir k\u00f6llu\u00f0u og \u00fatv\u00f6ldu og tr\u00fau, munu sigra \u00fe\u00e1, \u00fev\u00ed a\u00f0 lambi\u00f0 er Drottinn drottna og konungur konunga.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og hann segir vi\u00f0 mig: V\u00f6tnin, sem \u00fe\u00fa s\u00e1st, \u00fear sem sk\u00e6kjan situr, eru l\u00fd\u00f0ir og f\u00f3lk, \u00fej\u00f3\u00f0ir og tungur.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Og hornin t\u00edu, sem \u00fe\u00fa s\u00e1st, og d\u00fdri\u00f0, munu hata sk\u00e6kjuna og gj\u00f6ra hana einmana og nakta, eta hold hennar og brenna hana \u00ed eldi,<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 hefur lagt \u00feeim \u00ed brj\u00f3st a\u00f0 gj\u00f6ra vilja sinn og vera samr\u00e1\u00f0a og gefa r\u00edki \u00feeirra d\u00fdrinu, allt til \u00feess er or\u00f0 Gu\u00f0s koma fram.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og konan, sem \u00fe\u00fa s\u00e1st, er borgin mikla, sem heldur r\u00edki yfir konungum jar\u00f0arinnar.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>17.1<\/b> Sj\u00f6 englar Opb 15.1+ &#8211; sk\u00e6kjan Jes 1.21; 23.16-18; Esk 16.15-63; H\u00f3s 2; 5.3; Nah 3.4 \u2013 vi\u00f0 v\u00f6tnin Jer 51.13; Opb 17.15<br \/>\n<b>17.2<\/b> Lostaveigar Opb 14.8+<br \/>\n<b>17.3<\/b> D\u00fdr Opb 13.2+<br \/>\n<b>17.4<\/b> Skart sk\u00e6kjunnar Esk 28.13; Opb 18.16<br \/>\n<b>17.6<\/b> Bl\u00f3\u00f0 sp\u00e1manna og hinna heil\u00f6gu Opb 16.6+<br \/>\n<b>17.8<\/b> D\u00fdri\u00f0 st\u00edgur upp fr\u00e1 undirdj\u00fapinu Opb 11.7+ &#8211; l\u00edfsins b\u00f3k Opb 3.5+<br \/>\n<b>17.9<\/b> Reynir \u00e1 speki Opb 13.18<br \/>\n<b>17.12<\/b> T\u00edu konungar Dan 7.24<br \/>\n<b>17.14<\/b> Drottinn drottna 5M\u00f3s 10.17; Dan 2.47; 1T\u00edm 6.15; Opb 19.16<br \/>\n<b>17.16<\/b> Svipta hana \u00f6llu Jes 47.8-9; Esk 16.39-41 \u2013 brenna \u00ed eldi 3M\u00f3s 21.9; Opb 18.8<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Og einn af englunum sj\u00f6, sem halda \u00e1 sk\u00e1lunum sj\u00f6, kom til m\u00edn og sag\u00f0i: Kom hinga\u00f0, og \u00e9g mun s\u00fdna \u00fe\u00e9r d\u00f3minn yfir sk\u00e6kjunni miklu, sem er vi\u00f0 v\u00f6tnin m\u00f6rgu.2Konungar jar\u00f0arinnar hafa dr\u00fdgt saurlifna\u00f0 me\u00f0 henni, og \u00feeir, sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni b\u00faa, hafa or\u00f0i\u00f0 drukknir af saurlifna\u00f0ar v\u00edni hennar.3Og hann leiddi mig burt \u00ed anda \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rk. Og \u00e9g s\u00e1 konu sitja \u00e1 skarlatsrau\u00f0u d\u00fdri, alsettu gu\u00f0l\u00f6stunar n\u00f6fnum, og haf\u00f0i \u00fea\u00f0 sj\u00f6 h\u00f6fu\u00f0 og t\u00edu horn.4Og konan var skr\u00fddd purpura og skarlati, og var b\u00fain gulli og gimsteinum og perlum. H\u00fan haf\u00f0i \u00ed hendi s\u00e9r gullbikar, fullan vi\u00f0urstygg\u00f0ar, og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/opinberunarbok-johannesar-17-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2531","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2531","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2531"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2531\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2531"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}