{"id":2207,"date":"2017-11-18T20:20:39","date_gmt":"2017-11-18T20:20:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/daniel-10-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:30","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:30","slug":"daniel-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/daniel-10-kafli\/","title":{"rendered":"Dan\u00edel 10. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ri K\u00fdrusar Persakonungs f\u00e9kk Dan\u00edel, sem kalla\u00f0ur var Beltsasar, opinberun, og opinberunin er s\u00f6nn og bo\u00f0ar miklar \u00ferengingar.Og hann gaf g\u00e6tur a\u00f0 opinberuninni og hug\u00f0i a\u00f0 s\u00fdninni.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00c1 \u00feeim d\u00f6gum var \u00e9g, Dan\u00edel, harmandi \u00feriggja vikna t\u00edma.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00c9g neytti engrar d\u00fdrindisf\u00e6\u00f0u, kj\u00f6t og v\u00edn kom ekki inn fyrir varir m\u00ednar, og \u00e9g smur\u00f0i mig ekki fyrr en \u00ferj\u00e1r vikur voru li\u00f0nar.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>En tuttugasta og fj\u00f3r\u00f0a dag hins fyrsta m\u00e1na\u00f0ar var \u00e9g staddur \u00e1 bakka hins mikla T\u00edgrisflj\u00f3ts.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00de\u00e1 h\u00f3f \u00e9g upp augu m\u00edn og s\u00e1 mann nokkurn, kl\u00e6ddan l\u00ednkl\u00e6\u00f0um og gyrtan sk\u00edragulli um lendar.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>L\u00edkami hans var sem kr\u00fdsol\u00edt, \u00e1sj\u00f3na hans sem leiftur, augu hans sem eldblys, armleggir hans og f\u00e6tur sem skygg\u00f0ur eir og hlj\u00f3murinn af or\u00f0um hans eins og mikill gn\u00fdr.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00c9g, Dan\u00edel, s\u00e1 einn s\u00fdnina, og mennirnir, sem me\u00f0 m\u00e9r voru, s\u00e1u ekki s\u00fdnina, en yfir \u00fe\u00e1 kom mikil hr\u00e6\u00f0sla, og fl\u00fd\u00f0u \u00feeir \u00ed felur.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00c9g var\u00f0 \u00fe\u00e1 einn eftir og s\u00e1 \u00feessa miklu s\u00fdn.En hj\u00e1 m\u00e9r var enginn m\u00e1ttur eftir or\u00f0inn, og yfirlitur minn var til l\u00fdta umbreyttur, og \u00e9g h\u00e9lt engum styrk eftir.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og \u00e9g heyr\u00f0i hlj\u00f3minn af or\u00f0um hans, og er \u00e9g heyr\u00f0i hlj\u00f3minn af or\u00f0um hans, hn\u00e9 \u00e9g \u00ed \u00f3megin \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu m\u00edna, me\u00f0 andliti\u00f0 a\u00f0 j\u00f6r\u00f0inni.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og sj\u00e1, h\u00f6nd snart mig og hj\u00e1lpa\u00f0i m\u00e9r \u00f3styrkum upp \u00e1 kn\u00e9n og hendurnar.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og hann sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Dan\u00edel, \u00fe\u00fa \u00e1stm\u00f6gur Gu\u00f0s, tak eftir \u00feeim or\u00f0um, er \u00e9g tala vi\u00f0 \u00feig, og statt \u00e1 f\u00e6tur, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er n\u00fa einmitt til \u00fe\u00edn sendur. Og er hann m\u00e6lti til m\u00edn \u00feessum or\u00f0um, st\u00f3\u00f0 \u00e9g upp skj\u00e1lfandi.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st sag\u00f0i hann vi\u00f0 mig: \u00d3ttast \u00fe\u00fa ekki, Dan\u00edel, \u00fev\u00ed a\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed er \u00fe\u00fa fyrst hneig\u00f0ir hug \u00feinn til a\u00f0 \u00f6\u00f0last skilning og \u00fe\u00fa l\u00edtill\u00e6ttir \u00feig fyrir Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, eru or\u00f0 \u00fe\u00edn heyr\u00f0, og \u00e9g er vegna or\u00f0a \u00feinna hinga\u00f0 kominn.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>En verndarengill Persar\u00edkis st\u00f3\u00f0 \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r tuttugu og einn dag, en sj\u00e1, M\u00edkael, einn af fremstu verndarenglunum, kom m\u00e9r til hj\u00e1lpar, og hann skildi \u00e9g eftir \u00fear hj\u00e1 Persakonungum.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Og n\u00fa er \u00e9g kominn til a\u00f0 fr\u00e6\u00f0a \u00feig \u00e1 \u00fev\u00ed, sem fram vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 \u00fe\u00edna mun koma \u00e1 hinum s\u00ed\u00f0ustu t\u00edmum, \u00fev\u00ed a\u00f0 enn \u00e1 s\u00fdnin vi\u00f0 \u00fe\u00e1 daga.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og er hann tala\u00f0i \u00feessum or\u00f0um til m\u00edn, leit \u00e9g til jar\u00f0ar og \u00feag\u00f0i.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Og sj\u00e1, einhver \u00ed mannsl\u00edki snart varir m\u00ednar, og \u00e9g lauk upp munni m\u00ednum, tala\u00f0i og sag\u00f0i vi\u00f0 \u00feann, sem st\u00f3\u00f0 frammi fyrir m\u00e9r: Herra minn, s\u00f6kum s\u00fdnarinnar eru kvalir \u00feessar yfir mig komnar, og kraftur minn er \u00ferotinn.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Og hvernig \u00e6tti \u00e9g, \u00fej\u00f3nn \u00feinn, herra, a\u00f0 geta tala\u00f0 vi\u00f0 sl\u00edkan mann sem \u00fe\u00fa ert, herra? Og n\u00fa er allur kraftur minn a\u00f0 \u00ferotum kominn, og enginn l\u00edfsandi er \u00ed m\u00e9r eftir or\u00f0inn.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>S\u00e1 sem \u00ed mannsl\u00edki var, snart mig \u00fe\u00e1 aftur, styrkti mig<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>og sag\u00f0i: \u00d3ttast \u00fe\u00fa ekki, \u00e1stm\u00f6gur, fri\u00f0ur s\u00e9 me\u00f0 \u00fe\u00e9r!Vertu hughraustur, vertu hughraustur! Og er hann tala\u00f0i vi\u00f0 mig, fann \u00e9g a\u00f0 \u00e9g styrktist og sag\u00f0i: Tala \u00fe\u00fa, herra minn, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefir gj\u00f6rt mig styrkan.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i hann: Veistu, hvers vegna \u00e9g er til \u00fe\u00edn kominn?En n\u00fa ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 sn\u00faa aftur til \u00feess a\u00f0 berjast vi\u00f0 verndarengil Pers\u00edu, og \u00feegar \u00e9g fer af sta\u00f0, sj\u00e1, \u00fe\u00e1 kemur verndarengill Grikklands.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00de\u00f3 vil \u00e9g gj\u00f6ra \u00fe\u00e9r kunnugt, hva\u00f0 skrifa\u00f0 er \u00ed b\u00f3k sannleikans, \u00fe\u00f3tt enginn veiti m\u00e9r li\u00f0 m\u00f3ti \u00feeim, nema M\u00edkael, verndarengill y\u00f0ar.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>10.9<\/b> Dj\u00fapur svefn Dan 8.18+<br \/>\n<b>10.10<\/b> H\u00f6nd Esk 2.1-2<br \/>\n<b>10.16<\/b> Snerta varir Jes 6.7; Jer 1.9<br \/>\n<b>10.19<\/b> Vertu hughraustur 5M\u00f3s 31.7,23; 2Makk 11.38; Post 15.29<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00c1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ri K\u00fdrusar Persakonungs f\u00e9kk Dan\u00edel, sem kalla\u00f0ur var Beltsasar, opinberun, og opinberunin er s\u00f6nn og bo\u00f0ar miklar \u00ferengingar.Og hann gaf g\u00e6tur a\u00f0 opinberuninni og hug\u00f0i a\u00f0 s\u00fdninni.2\u00c1 \u00feeim d\u00f6gum var \u00e9g, Dan\u00edel, harmandi \u00feriggja vikna t\u00edma.3\u00c9g neytti engrar d\u00fdrindisf\u00e6\u00f0u, kj\u00f6t og v\u00edn kom ekki inn fyrir varir m\u00ednar, og \u00e9g smur\u00f0i mig ekki fyrr en \u00ferj\u00e1r vikur voru li\u00f0nar.4En tuttugasta og fj\u00f3r\u00f0a dag hins fyrsta m\u00e1na\u00f0ar var \u00e9g staddur \u00e1 bakka hins mikla T\u00edgrisflj\u00f3ts.5\u00de\u00e1 h\u00f3f \u00e9g upp augu m\u00edn og s\u00e1 mann nokkurn, kl\u00e6ddan l\u00ednkl\u00e6\u00f0um og gyrtan sk\u00edragulli um lendar.6L\u00edkami hans var sem kr\u00fdsol\u00edt, \u00e1sj\u00f3na hans sem leiftur, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/daniel-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2207","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2207","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2207"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2207\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2207"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}