{"id":2195,"date":"2017-11-18T20:20:39","date_gmt":"2017-11-18T20:20:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-46-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:57","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:57","slug":"esekiel-46-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-46-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 46. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Hli\u00f0 innri forgar\u00f0sins, \u00fea\u00f0 er sn\u00fdr \u00ed austur, skal loka\u00f0 vera sex virku dagana, en hv\u00edldardaginn skal opna \u00fea\u00f0 og tunglkomudaginn skal opna \u00fea\u00f0.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Og landsh\u00f6f\u00f0inginn skal koma a\u00f0 utan og ganga inn um forsal hli\u00f0sins og nema sta\u00f0ar vi\u00f0 dyrastafi hli\u00f0sins. \u00de\u00e1 skulu prestarnir bera fram brennif\u00f3rn hans og heillaf\u00f3rn, en hann skal falla fram \u00e1 \u00fer\u00f6skuldi hli\u00f0sins og ganga s\u00ed\u00f0an \u00fat aftur, og hli\u00f0inu skal ekki loka til kvelds.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Og landsl\u00fd\u00f0urinn skal falla fram fyrir auglit Drottins vi\u00f0 dyr \u00feessa hli\u00f0s \u00e1 hv\u00edldard\u00f6gum og tunglkomud\u00f6gum.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Brennif\u00f3rnin, sem landsh\u00f6f\u00f0inginn \u00e1 a\u00f0 f\u00e6ra Drottni, skal vera: \u00c1 hv\u00edldardegi sex sau\u00f0kindur gallalausar og einn hr\u00fatur gallalaus,<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>og auk \u00feess \u00ed matf\u00f3rn ein efa me\u00f0 hverjum hr\u00fat, og me\u00f0 sau\u00f0kindunum sl\u00edk matf\u00f3rn, er hann vill sj\u00e1lfur gefa, og ein h\u00edn af ol\u00edu me\u00f0 hverri efu.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00c1 tunglkomud\u00f6gum skal h\u00fan vera ungneyti gallalaust og sex sau\u00f0kindur og einn hr\u00fatur, allt gallalaust.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Og hann skal l\u00e1ta fram bera efu me\u00f0 uxanum og efu me\u00f0 hr\u00fatnum \u00ed matf\u00f3rn og me\u00f0 sau\u00f0kindunum svo sem hann m\u00e1 af hendi l\u00e1ta, og h\u00edn af ol\u00edu me\u00f0 hverri efu.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00deegar landsh\u00f6f\u00f0inginn gengur inn, skal hann ganga inn um forsal hli\u00f0sins og fara s\u00f6mu lei\u00f0 \u00fat aftur.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og \u00feegar landsl\u00fd\u00f0urinn gengur fram fyrir Drottin \u00e1 l\u00f6gh\u00e1t\u00ed\u00f0unum, \u00fe\u00e1 skal s\u00e1, er inn hefir gengi\u00f0 um nor\u00f0urhli\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 falla fram, aftur \u00fat fara um su\u00f0urhli\u00f0i\u00f0, og s\u00e1, er inn hefir gengi\u00f0 um su\u00f0urhli\u00f0i\u00f0, skal aftur \u00fat fara um nor\u00f0urhli\u00f0i\u00f0. Enginn skal aftur \u00fat fara um \u00fea\u00f0 hli\u00f0, sem hann hefir inn gengi\u00f0, heldur skal hann \u00fat fara um \u00fea\u00f0 hli\u00f0, sem gegnt honum er.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og landsh\u00f6f\u00f0inginn skal ganga inn mitt \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra, \u00feegar \u00feeir ganga inn, og fara \u00fat, \u00feegar \u00feeir fara \u00fat.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00c1 h\u00e1t\u00ed\u00f0um og l\u00f6ghelgum skal matf\u00f3rnin vera efa me\u00f0 uxanum og efa me\u00f0 hr\u00fatnum, og me\u00f0 sau\u00f0kindunum sl\u00edkt, er hann vill sj\u00e1lfur gefa, og h\u00edn af ol\u00edu me\u00f0 hverri efu.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Og \u00feegar landsh\u00f6f\u00f0inginn ber fram sj\u00e1lfviljaf\u00f3rn, brennif\u00f3rn e\u00f0a heillaf\u00f3rn sem sj\u00e1lfviljaf\u00f3rn Drottni til handa, \u00fe\u00e1 skal upp lj\u00faka fyrir honum \u00fev\u00ed hli\u00f0inu, sem \u00ed austur sn\u00fdr. S\u00ed\u00f0an skal hann bera fram brennif\u00f3rn s\u00edna og heillaf\u00f3rn, eins og hann er vanur a\u00f0 gj\u00f6ra \u00e1 hv\u00edldard\u00f6gum, og ganga s\u00ed\u00f0an \u00fat, og \u00feegar hann er farinn \u00fat, skal loka hli\u00f0inu \u00e1 eftir honum.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00c1 degi hverjum skal hann l\u00e1ta fram bera \u00e1rsgamla sau\u00f0kind gallalausa \u00ed brennif\u00f3rn Drottni til handa, \u00e1 hverjum morgni skal hann fram bera hana.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Og sem matf\u00f3rn skal hann fram bera me\u00f0 henni \u00e1 hverjum morgni 1\/6 efu og 1\/3 h\u00ednar af ol\u00edu til \u00feess a\u00f0 v\u00e6ta me\u00f0 mj\u00f6li\u00f0, sem matf\u00f3rn Drottni til handa. Skal \u00fea\u00f0 vera st\u00f6\u00f0ug skyldugrei\u00f0sla.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og \u00feannig skulu \u00feeir fram bera sau\u00f0kindina og matf\u00f3rnina og ol\u00eduna \u00e1 hverjum morgni sem st\u00f6\u00f0uga brennif\u00f3rn.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Ef landsh\u00f6f\u00f0inginn gefur einhverjum sona sinna nokku\u00f0 af \u00f3\u00f0ali s\u00ednu a\u00f0 gj\u00f6f, \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 tilheyra sonum hans. \u00dea\u00f0 er erf\u00f0aeign \u00feeirra.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>En gefi hann einhverjum \u00fej\u00f3nustumanna sinna nokku\u00f0 af \u00f3\u00f0ali s\u00ednu a\u00f0 gj\u00f6f, \u00fe\u00e1 skal hann halda \u00fev\u00ed til lausnar\u00e1rsins. \u00de\u00e1 skal \u00fea\u00f0 hverfa aftur til landsh\u00f6f\u00f0ingjans. En \u00f3\u00f0al sona hans skal haldast \u00ed eign \u00feeirra.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og ekki m\u00e1 landsh\u00f6f\u00f0inginn taka neitt af \u00f3\u00f0ali l\u00fd\u00f0sins og veita honum me\u00f0 \u00fev\u00ed yfirgang. Af sinni eigin eign ver\u00f0ur hann a\u00f0 veita sonum s\u00ednum arfleif\u00f0, til \u00feess a\u00f0 enginn af l\u00fd\u00f0 m\u00ednum ver\u00f0i fl\u00e6mdur burt fr\u00e1 eign sinni.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st leiddi hann mig gegnum ganginn, sem liggur fast vi\u00f0 hli\u00f0i\u00f0, til hinna heil\u00f6gu herbergja, sem \u00e6tlu\u00f0 eru prestunum og vita \u00ed nor\u00f0ur. En \u00fear var r\u00fam \u00ed ysta horni m\u00f3t vestri.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og hann sag\u00f0i vi\u00f0 mig: \u00deetta er sta\u00f0urinn, \u00fear sem prestarnir skulu sj\u00f3\u00f0a sektarf\u00f3rnina og syndaf\u00f3rnina, og \u00fear sem \u00feeir skulu baka matf\u00f3rnina, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir \u00feurfi ekki a\u00f0 bera \u00fea\u00f0 \u00fat \u00ed ytri forgar\u00f0inn og \u00feann veg helga l\u00fd\u00f0inn.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Og hann leiddi mig \u00fat \u00ed ytri forgar\u00f0inn og l\u00e9t mig ganga \u00ed gegn, \u00fat \u00ed fj\u00f6gur horn forgar\u00f0sins, og sj\u00e1, l\u00edtill forgar\u00f0ur var \u00ed hverju horni forgar\u00f0sins.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00cd fj\u00f3rum hornum forgar\u00f0sins voru aftur minni forgar\u00f0ar, fj\u00f6rut\u00edu \u00e1lnir \u00e1 lengd og \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1lnir \u00e1 breidd. Voru \u00feeir allir fj\u00f3rir jafnir a\u00f0 m\u00e1li.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og \u00ed \u00feeim var m\u00farveggur allt \u00ed kring, allt \u00ed kring \u00ed \u00feeim fj\u00f3rum, og eldst\u00f3r voru gj\u00f6r\u00f0ar ne\u00f0an til vi\u00f0 m\u00farveggina allt \u00ed kring.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Og hann sag\u00f0i vi\u00f0 mig: \u00deetta eru eldh\u00fasin, \u00fear sem \u00fej\u00f3nustumenn musterisins skulu sj\u00f3\u00f0a sl\u00e1turf\u00f3rnir l\u00fd\u00f0sins.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>46.1<\/b> Austurhli\u00f0i\u00f0 Esk 44.1-3; 46.12; sbr 43.1-2<br \/>\n<b>46.9<\/b> Fyrir auglit Drottins 2M\u00f3s 23.14-17; 5M\u00f3s 16.16<br \/>\n<b>46.12<\/b> Austurhli\u00f0i\u00f0 Esk 46.1<br \/>\n<b>46.18<\/b> Ekki s\u00fdna yfirgang sbr 1Kon 21<br \/>\n<b>46.19<\/b> Heilagar \u00e1lmur Esk 42.1-2<br \/>\n<b>46.20<\/b> F\u00f3rnin so\u00f0in sbr 1Sam 2.12-16<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Hli\u00f0 innri forgar\u00f0sins, \u00fea\u00f0 er sn\u00fdr \u00ed austur, skal loka\u00f0 vera sex virku dagana, en hv\u00edldardaginn skal opna \u00fea\u00f0 og tunglkomudaginn skal opna \u00fea\u00f0.2Og landsh\u00f6f\u00f0inginn skal koma a\u00f0 utan og ganga inn um forsal hli\u00f0sins og nema sta\u00f0ar vi\u00f0 dyrastafi hli\u00f0sins. \u00de\u00e1 skulu prestarnir bera fram brennif\u00f3rn hans og heillaf\u00f3rn, en hann skal falla fram \u00e1 \u00fer\u00f6skuldi hli\u00f0sins og ganga s\u00ed\u00f0an \u00fat aftur, og hli\u00f0inu skal ekki loka til kvelds.3Og landsl\u00fd\u00f0urinn skal falla fram fyrir auglit Drottins vi\u00f0 dyr \u00feessa hli\u00f0s \u00e1 hv\u00edldard\u00f6gum og tunglkomud\u00f6gum.4Brennif\u00f3rnin, sem landsh\u00f6f\u00f0inginn \u00e1 a\u00f0 f\u00e6ra Drottni, skal vera: \u00c1 hv\u00edldardegi sex <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-46-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2195","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2195","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2195"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2195\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2195"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}