{"id":2191,"date":"2017-11-18T20:20:39","date_gmt":"2017-11-18T20:20:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-42-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:56","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:56","slug":"esekiel-42-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-42-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 42. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st f\u00f3r hann me\u00f0 mig \u00fat \u00ed ytri forgar\u00f0inn, \u00ed nor\u00f0ur\u00e1tt. Og hann leiddi mig a\u00f0 herberginu, sem er gegnt afgirta sv\u00e6\u00f0inu og gegnt h\u00fasinu, sem liggur til nor\u00f0urs.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00dea\u00f0 var hundra\u00f0 \u00e1lnir \u00e1 lengd og fimmt\u00edu \u00e1lnir \u00e1 breidd.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Og gegnt dyrunum, sem l\u00e1gu inn \u00ed innri forgar\u00f0inn, og gegnt steing\u00f3lfi ytri forgar\u00f0sins, voru tvenn s\u00falnag\u00f6ng, hvor fyrir framan \u00f6nnur, svo a\u00f0 salirnir voru \u00fer\u00edr.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og fyrir framan herbergin var t\u00edu \u00e1lna brei\u00f0ur gangur inn a\u00f0 innri forgar\u00f0inum, hundra\u00f0 \u00e1lna langur, og sneru dyr hans \u00ed nor\u00f0ur.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>En efstu herbergin voru styttri, \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00falnag\u00f6ngin n\u00e1mu meira af \u00feeim en af ne\u00f0stu herbergjunum og mi\u00f0herbergjunum.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feau voru \u00fer\u00edlyft og h\u00f6f\u00f0u engar sl\u00edkar s\u00falur sem \u00fe\u00e6r, er voru \u00ed forg\u00f6r\u00f0unum. Fyrir \u00fev\u00ed voru efstu herbergin a\u00f0 s\u00e9r dregin \u00ed hlutfalli vi\u00f0 ne\u00f0stu herbergin og mi\u00f0herbergin.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Og m\u00farinn, sem l\u00e1 me\u00f0 endil\u00f6ngum herbergjunum \u00fat a\u00f0 ytri forgar\u00f0inum, fyrir framan herbergin, var fimmt\u00edu \u00e1lna langur.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 herbergin, sem l\u00e1gu \u00fat a\u00f0 ytri forgar\u00f0inum, voru fimmt\u00edu \u00e1lna l\u00f6ng. Og sj\u00e1, me\u00f0fram musterish\u00fasinu voru hundra\u00f0 \u00e1lnir.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>En ne\u00f0an undir herbergjum \u00feessum var inngangur a\u00f0 austanver\u00f0u, \u00feegar gengi\u00f0 var inn \u00ed \u00feau fr\u00e1 ytri forgar\u00f0inum.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Austanver\u00f0u vi\u00f0 afgirta sv\u00e6\u00f0i\u00f0 og bakh\u00fasi\u00f0 voru og herbergi.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og fyrir framan \u00feau var vegur, og \u00feau voru eins \u00e1 a\u00f0 l\u00edta og herbergin, sem l\u00e1gu nor\u00f0an til, \u00feau voru jafnl\u00f6ng og jafnbrei\u00f0, og allir \u00fatgangar \u00feeirra voru me\u00f0 s\u00f6mu ger\u00f0 og \u00e1 hinum og eins og hur\u00f0ir \u00feeirra.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Og l\u00edkt og dyrnar \u00e1 herbergjunum, sem l\u00e1gu sunnan til, svo voru \u00e1 \u00feeim einar dyr, \u00fear sem vegurinn h\u00f3fst, s\u00e1 er liggur til austurs inn \u00ed ytri forgar\u00f0inn, en um \u00fe\u00e6r voru menn vanir a\u00f0 ganga inn.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Og hann sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Nor\u00f0urherbergin og su\u00f0urherbergin, sem liggja fyrir framan afgirta sv\u00e6\u00f0i\u00f0, \u00fea\u00f0 eru heil\u00f6gu herbergin, \u00fear sem prestarnir, er n\u00e1lgast mega Drottin, eiga a\u00f0 eta hi\u00f0 h\u00e1heilaga. \u00dear skulu \u00feeir l\u00e1ta hi\u00f0 h\u00e1heilaga og matf\u00f3rnina, syndaf\u00f3rnina og sektarf\u00f3rnina, \u00fev\u00ed a\u00f0 sta\u00f0urinn er heilagur.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00deegar prestarnir ganga \u00feanga\u00f0 inn, en \u00feeir skulu ekki ganga raklei\u00f0is \u00far helgid\u00f3minum inn \u00ed ytri forgar\u00f0inn, skulu \u00feeir leggja \u00fear af s\u00e9r kl\u00e6\u00f0i s\u00edn, \u00feau er \u00feeir gegna \u00fej\u00f3nustu \u00ed, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau eru heil\u00f6g. \u00deeir skulu fara \u00ed \u00f6nnur f\u00f6t og \u00fev\u00ed n\u00e6st ganga \u00feanga\u00f0, sem l\u00fd\u00f0urinn m\u00e1 vera.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>En er hann haf\u00f0i m\u00e6lt allt musteri\u00f0 a\u00f0 innanver\u00f0u, f\u00f3r hann \u00fat me\u00f0 mig, \u00ed \u00e1ttina til hli\u00f0sins, er veit til austurs, og m\u00e6ldi \u00fea\u00f0 a\u00f0 utan hringinn \u00ed kring.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Hann m\u00e6ldi austurhli\u00f0ina: fimm hundru\u00f0 \u00e1lnir me\u00f0 m\u00e6list\u00f6nginni. Og hann sneri vi\u00f0<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>og m\u00e6ldi nor\u00f0urhli\u00f0ina: fimm hundru\u00f0 \u00e1lnir me\u00f0 m\u00e6list\u00f6nginni. Og hann sneri vi\u00f0<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>a\u00f0 su\u00f0urhli\u00f0inni og m\u00e6ldi fimm hundru\u00f0 \u00e1lnir me\u00f0 m\u00e6list\u00f6nginni.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Og hann sneri s\u00e9r a\u00f0 vesturhli\u00f0inni og m\u00e6ldi fimm hundru\u00f0 \u00e1lnir me\u00f0 m\u00e6list\u00f6nginni.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Hann m\u00e6ldi \u00fea\u00f0 fr\u00e1 \u00feeim fj\u00f3rum hli\u00f0um: lengdin fimm hundru\u00f0 \u00e1lnir og breiddin fimm hundru\u00f0 \u00e1lnir. Allt umhverfis \u00fea\u00f0 var m\u00farveggur til \u00feess a\u00f0 skilja hi\u00f0 heilaga fr\u00e1 hinu \u00f3heilaga.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>42.13<\/b> Hi\u00f0 h\u00e1heilaga 3M\u00f3s 2.3,10; 6.17-18; 7.6<br \/>\n<b>42.14<\/b> Kl\u00e6\u00f0i prestanna Esk 44.19<br \/>\n<b>42.16<\/b> M\u00e6listika Esk 40.3+<br \/>\n<b>42.20<\/b> M\u00farveggur Esk 40.5<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00dev\u00ed n\u00e6st f\u00f3r hann me\u00f0 mig \u00fat \u00ed ytri forgar\u00f0inn, \u00ed nor\u00f0ur\u00e1tt. Og hann leiddi mig a\u00f0 herberginu, sem er gegnt afgirta sv\u00e6\u00f0inu og gegnt h\u00fasinu, sem liggur til nor\u00f0urs.2\u00dea\u00f0 var hundra\u00f0 \u00e1lnir \u00e1 lengd og fimmt\u00edu \u00e1lnir \u00e1 breidd.3Og gegnt dyrunum, sem l\u00e1gu inn \u00ed innri forgar\u00f0inn, og gegnt steing\u00f3lfi ytri forgar\u00f0sins, voru tvenn s\u00falnag\u00f6ng, hvor fyrir framan \u00f6nnur, svo a\u00f0 salirnir voru \u00fer\u00edr.4Og fyrir framan herbergin var t\u00edu \u00e1lna brei\u00f0ur gangur inn a\u00f0 innri forgar\u00f0inum, hundra\u00f0 \u00e1lna langur, og sneru dyr hans \u00ed nor\u00f0ur.5En efstu herbergin voru styttri, \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00falnag\u00f6ngin n\u00e1mu meira af \u00feeim en af ne\u00f0stu <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-42-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2191","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2191","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2191"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2191\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2191"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}