{"id":2189,"date":"2017-11-18T20:20:39","date_gmt":"2017-11-18T20:20:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-40-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:55","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:55","slug":"esekiel-40-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-40-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 40. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 tuttugasta og fimmta \u00e1ri eftir a\u00f0 v\u00e9r vorum herleiddir, \u00ed byrjun \u00e1rsins, t\u00edunda dag m\u00e1na\u00f0arins, fj\u00f3rt\u00e1n \u00e1rum eftir a\u00f0 borgin var tekin, einmitt \u00feann dag kom h\u00f6nd Drottins yfir mig og flutti mig \u00feanga\u00f0.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00cd gu\u00f0legri s\u00fdn flutti hann mig til \u00cdsraelslands og setti mig ni\u00f0ur \u00e1 mj\u00f6g h\u00e1tt fjall, og \u00e1 \u00fev\u00ed var gagnvart m\u00e9r sem endurreist borg.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Er hann haf\u00f0i flutt mig \u00feanga\u00f0, birtist ma\u00f0ur nokkur, og var hann \u00e1s\u00fdndum sem af eiri v\u00e6ri. Hann h\u00e9lt \u00e1 l\u00ednstreng og m\u00e6list\u00f6ng og st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0i\u00f0.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og ma\u00f0urinn sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Mannsson, l\u00edt \u00e1 me\u00f0 augum \u00fe\u00ednum, hl\u00fd\u00f0 \u00e1 me\u00f0 eyrum \u00fe\u00ednum og hugfest \u00fe\u00e9r allt, er \u00e9g s\u00fdni \u00fe\u00e9r, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert til \u00feess hinga\u00f0 fluttur, a\u00f0 \u00fe\u00e9r ver\u00f0i s\u00fdnt \u00feetta. Kunngj\u00f6r \u00fe\u00fa \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0 allt \u00fea\u00f0, sem \u00fe\u00fa s\u00e9r.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Sj\u00e1, m\u00farveggur l\u00e1 utan um musteri\u00f0 hringinn \u00ed kring, og ma\u00f0urinn h\u00e9lt \u00e1 m\u00e6list\u00f6ng \u00ed hendinni. H\u00fan var sex \u00e1lna l\u00f6ng, alinin talin \u00feverh\u00f6nd lengri en almenn alin. Og hann m\u00e6ldi \u00feykkt m\u00farsins, og var h\u00fan ein m\u00e6list\u00f6ng, og h\u00e6\u00f0in var ein m\u00e6list\u00f6ng.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st gekk hann inn \u00ed hli\u00f0i\u00f0, er vissi til austurs. Gekk hann upp tr\u00f6ppurnar, sem l\u00e1gu upp a\u00f0 \u00fev\u00ed, og m\u00e6ldi \u00fer\u00f6skuld hli\u00f0sins, og var hann ein m\u00e6list\u00f6ng \u00e1 breidd.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Hvert var\u00f0herbergi ein m\u00e6list\u00f6ng \u00e1 lengd og ein m\u00e6list\u00f6ng \u00e1 breidd og s\u00falan milli var\u00f0herbergjanna fimm \u00e1lnir, og \u00fer\u00f6skuldur hli\u00f0sins innan vi\u00f0 forsal hli\u00f0sins ein m\u00e6list\u00f6ng.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Og hann m\u00e6ldi forsal hli\u00f0sins,<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>og var hann \u00e1tta \u00e1lnir og s\u00falur tv\u00e6r \u00e1lnir, en forsalur hli\u00f0sins vissi a\u00f0 musterinu.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Var\u00f0herbergin \u00ed hli\u00f0inu voru hvert gegnt \u00f6\u00f0ru, s\u00edn \u00ferj\u00fa hvorumegin, \u00f6ll \u00ferj\u00fa voru \u00feau j\u00f6fn a\u00f0 m\u00e1li. S\u00falurnar beggja vegna voru og jafnar a\u00f0 m\u00e1li.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6ldi ma\u00f0urinn dyrav\u00eddd hli\u00f0sins, og var h\u00fan t\u00edu \u00e1lnir, en lengd hli\u00f0sins \u00ferett\u00e1n \u00e1lnir.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Fyrir framan var\u00f0herbergin voru grindur, ein alin hvorumegin, en hvert var\u00f0herbergi var sex \u00e1lnir \u00e1 hvorn veg.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Og hann m\u00e6ldi hli\u00f0i\u00f0 fr\u00e1 \u00feaki eins var\u00f0herbergis yfir \u00e1 \u00feak annars, og var breiddin tuttugu og fimm \u00e1lnir. Dyrnar st\u00f3\u00f0ust \u00e1 beggja vegna.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>&#8230;<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og fr\u00e1 framhli\u00f0 ytra hli\u00f0sins inn a\u00f0 framhli\u00f0inni \u00e1 forsal innra hli\u00f0sins voru fimmt\u00edu \u00e1lnir.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Hringinn \u00ed kring \u00e1 hli\u00f0h\u00fasinu voru gluggar, sem l\u00e1gu inn \u00ed var\u00f0herbergin \u00ed gegnum s\u00falurnar og sm\u00e1v\u00edkku\u00f0u inn \u00e1 vi\u00f0, og s\u00f6mulei\u00f0is voru gluggar \u00e1 forsalnum allt um kring inn \u00e1 vi\u00f0, og \u00e1 s\u00falunum voru h\u00f6ggnir p\u00e1lmar.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>N\u00fa leiddi hann mig inn \u00ed ytri forgar\u00f0inn. \u00dear voru herbergi, og steinlagt g\u00f3lf var \u00ed forgar\u00f0inum allt um kring. \u00derj\u00e1t\u00edu herbergi l\u00e1gu vi\u00f0 steing\u00f3lfi\u00f0.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Steing\u00f3lfi\u00f0 var fram me\u00f0 hli\u00f0arvegg hli\u00f0anna, jafnlangt lengd hli\u00f0anna. \u00dea\u00f0 var l\u00e6gra steing\u00f3lfi\u00f0.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Og hann m\u00e6ldi breidd forgar\u00f0sins fr\u00e1 innri framhli\u00f0 ne\u00f0ra hli\u00f0sins a\u00f0 \u00fathli\u00f0 innri forgar\u00f0sins, og voru \u00fea\u00f0 hundra\u00f0 \u00e1lnir.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Hli\u00f0i\u00f0 \u00e1 ytri forgar\u00f0inum, er vissi \u00ed nor\u00f0ur\u00e1tt, lengd og breidd \u00feess m\u00e6ldi hann einnig.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Og \u00ed \u00fev\u00ed voru \u00ferj\u00fa var\u00f0herbergi hvorumegin, og s\u00falur \u00feess og forsalur voru j\u00f6fn a\u00f0 m\u00e1li vi\u00f0 fyrsta hli\u00f0i\u00f0, lengd \u00feess var fimmt\u00edu \u00e1lnir og breiddin tuttugu og fimm \u00e1lnir.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Og gluggar \u00feess, forsalur og p\u00e1lmar voru jafnir a\u00f0 m\u00e1li vi\u00f0 \u00fea\u00f0, sem var \u00ed hli\u00f0inu, er vissi \u00ed austur\u00e1tt. Var gengi\u00f0 upp a\u00f0 \u00fev\u00ed um sj\u00f6 \u00ferep, og forsalur \u00feess l\u00e1 innan til.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og hli\u00f0 inn a\u00f0 innri forgar\u00f0inum var gegnt nor\u00f0urhli\u00f0inu, eins og vi\u00f0 austurhli\u00f0i\u00f0, og hann m\u00e6ldi hundra\u00f0 \u00e1lnir fr\u00e1 einu hli\u00f0inu til annars.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st l\u00e9t hann mig ganga \u00ed su\u00f0ur\u00e1tt. \u00dear var hli\u00f0, sem vissi \u00ed su\u00f0ur\u00e1tt. Og hann m\u00e6ldi s\u00falur \u00feess og forsal, og voru \u00feau j\u00f6fn hinum a\u00f0 m\u00e1li.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>\u00c1 \u00fev\u00ed voru gluggar, svo og \u00e1 forsal \u00feess, hringinn \u00ed kring, eins og hinir gluggarnir voru. Lengd \u00feess var fimmt\u00edu \u00e1lnir og breiddin tuttugu og fimm \u00e1lnir.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Var gengi\u00f0 upp a\u00f0 \u00fev\u00ed um sj\u00f6 \u00ferep, og forsalur \u00feess l\u00e1 innan til, og voru p\u00e1lmar \u00e1 honum, hvor s\u00ednum megin, \u00e1 s\u00falum hans.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Og hli\u00f0 var \u00e1 innri forgar\u00f0inum, er vissi \u00ed su\u00f0ur, og hann m\u00e6ldi hundra\u00f0 \u00e1lnir fr\u00e1 einu hli\u00f0inu til annars \u00ed su\u00f0ur\u00e1tt.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>\u00deessu n\u00e6st leiddi hann mig um su\u00f0urhli\u00f0i\u00f0 inn \u00ed innri forgar\u00f0inn og m\u00e6ldi su\u00f0urhli\u00f0i\u00f0, var \u00fea\u00f0 jafnt hinum fyrri a\u00f0 m\u00e1li,<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\/<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>s\u00f6mulei\u00f0is var\u00f0herbergi \u00feess, s\u00falur og forsal, og voru \u00feau j\u00f6fn hinum fyrri a\u00f0 m\u00e1li. \u00c1 \u00fev\u00ed voru gluggar, svo og \u00e1 forsal \u00feess, hringinn \u00ed kring. Lengd \u00feess var fimmt\u00edu \u00e1lnir og breiddin tuttugu og fimm \u00e1lnir.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>Og forsalur \u00feess l\u00e1 \u00fat a\u00f0 ytri forgar\u00f0inum, og p\u00e1lmar voru \u00e1 s\u00falum \u00feess, og voru \u00fear \u00e1tta \u00ferep upp a\u00f0 ganga.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Hann leiddi mig inn \u00ed innri forgar\u00f0inn a\u00f0 hli\u00f0inu, sem vissi \u00ed austur\u00e1tt, og m\u00e6ldi hli\u00f0i\u00f0. Var \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00e1li jafnt hinum.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>Og var\u00f0herbergi \u00feess, s\u00falur og forsalur voru j\u00f6fn a\u00f0 m\u00e1li hinum fyrri, og \u00e1 \u00fev\u00ed voru gluggar, svo og \u00e1 forsal \u00feess, hringinn \u00ed kring. \u00dea\u00f0 var fimmt\u00edu \u00e1lnir \u00e1 lengd og tuttugu og fimm \u00e1lnir \u00e1 breidd.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>Og forsalur \u00feess l\u00e1 \u00fat a\u00f0 ytri forgar\u00f0inum, og p\u00e1lmar voru \u00e1 s\u00falum \u00feess beggja vegna. Voru \u00fear \u00e1tta \u00ferep upp a\u00f0 ganga.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>\/<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>Hann leiddi mig n\u00fa a\u00f0 nor\u00f0urhli\u00f0inu og m\u00e6ldi var\u00f0herbergi \u00feess, s\u00falur og forsal. Var \u00fea\u00f0 jafnt a\u00f0 m\u00e1li hinum fyrri. \u00c1 \u00fev\u00ed voru gluggar hringinn \u00ed kring. \u00dea\u00f0 var fimmt\u00edu \u00e1lnir \u00e1 lengd og tuttugu og fimm \u00e1lnir \u00e1 breidd.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>Og forsalur \u00feess l\u00e1 \u00fat a\u00f0 ytri forgar\u00f0inum, og p\u00e1lmar voru \u00e1 s\u00falum \u00feess beggja vegna. Voru \u00fear \u00e1tta \u00ferep upp a\u00f0 ganga.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>\u00dear var herbergi, og var gengi\u00f0 \u00ed \u00fea\u00f0 \u00far forsal hli\u00f0sins. \u00dear var brennif\u00f3rnin \u00fevegin.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>Og \u00ed forsal hli\u00f0sins st\u00f3\u00f0u tv\u00f6 bor\u00f0 annars vegar og \u00f6nnur tv\u00f6 bor\u00f0 hins vegar til \u00feess a\u00f0 sl\u00e1tra \u00e1 \u00feeim brennif\u00f3rninni, syndaf\u00f3rninni og sektarf\u00f3rninni.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>&#8222;Og a\u00f0 utanver\u00f0u, vi\u00f0 hli\u00f0arvegginn \u00e1 forsal nor\u00f0urhli\u00f0sins, voru tv\u00f6 bor\u00f0, og vi\u00f0 hinn hli\u00f0arvegginn \u00e1 forsal hli\u00f0sins voru \u00f6nnur tv\u00f6 bor\u00f0;&#8220;<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>fj\u00f6gur bor\u00f0 \u00f6\u00f0rum megin og fj\u00f6gur bor\u00f0 hinumegin vi\u00f0 hli\u00f0arvegg hli\u00f0sins, alls \u00e1tta bor\u00f0, sem menn sl\u00e1tru\u00f0u \u00e1.<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>Voru fj\u00f6gur bor\u00f0 til brennif\u00f3rnar af h\u00f6ggnum steinum. \u00deau voru h\u00e1lfrar annarrar \u00e1lnar l\u00f6ng, h\u00e1lfrar annarrar \u00e1lnar brei\u00f0 og \u00e1lnar h\u00e1. \u00c1 \u00feau skyldi leggja \u00e1h\u00f6ldin, sem h\u00f6f\u00f0 voru, \u00fe\u00e1 er brennif\u00f3rnum og sl\u00e1turf\u00f3rnum var sl\u00e1tra\u00f0.<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>Umhverfis bor\u00f0in var \u00feverhandarh\u00e1 r\u00f6nd, og skyldi f\u00f3rnarkj\u00f6ti\u00f0 lagt \u00e1 bor\u00f0in, og yfir bor\u00f0unum voru \u00fe\u00f6k til \u00feess a\u00f0 sk\u00fdla \u00feeim fyrir regni og hita.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>&#8222;Hann leiddi mig inn \u00ed innri forgar\u00f0inn, og sj\u00e1, \u00fear voru tv\u00f6 herbergi \u00ed innri forgar\u00f0inum, anna\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0arvegg nor\u00f0urhli\u00f0sins, og vissi framhli\u00f0 \u00feess \u00ed su\u00f0ur\u00e1tt; hitt vi\u00f0 hli\u00f0arvegg su\u00f0urhli\u00f0sins, og vissi framhli\u00f0 \u00feess \u00ed nor\u00f0ur\u00e1tt.&#8220;<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>Og hann sag\u00f0i vi\u00f0 mig: \u00deetta herbergi, sem sn\u00fdr framhli\u00f0 sinni \u00ed su\u00f0ur, er \u00e6tla\u00f0 prestunum, sem gegna \u00fej\u00f3nustu \u00ed musterinu.<a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>En herbergi\u00f0, sem sn\u00fdr framhli\u00f0 sinni \u00ed nor\u00f0ur, er \u00e6tla\u00f0 prestunum, sem gegna \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 altari\u00f0. \u00deeir eru ni\u00f0jar Sad\u00f3ks, \u00feeir einir af Lev\u00edsonum mega n\u00e1lgast Drottin til \u00feess a\u00f0 \u00fej\u00f3na honum.<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>Hann m\u00e6ldi forgar\u00f0inn. Hann var hundra\u00f0 \u00e1lnir \u00e1 lengd og hundra\u00f0 \u00e1lnir \u00e1 breidd, r\u00e9ttur ferhyrningur, og altari\u00f0 st\u00f3\u00f0 fyrir framan sj\u00e1lft musteri\u00f0.<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st leiddi hann mig a\u00f0 forsal musterisins og m\u00e6ldi s\u00falur forsalarins, fimm \u00e1lnir hvorumegin, og breidd dyranna var fj\u00f3rt\u00e1n \u00e1lnir og dyraumb\u00fana\u00f0urinn \u00ferj\u00e1r \u00e1lnir hvorumegin.<a name=\"49\"><span class=\"versanumer\">49<\/span><\/a>Forsalurinn var tuttugu \u00e1lnir \u00e1 lengd og t\u00f3lf \u00e1lnir \u00e1 breidd, og var um t\u00edu \u00ferep upp a\u00f0 ganga a\u00f0 honum. En vi\u00f0 dyrastafina voru s\u00falur, ein hvorumegin.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>40.1<\/b> H\u00f6nd Drottins Esk 1.3; 8.3; 37.1<br \/>\n<b>40.2<\/b> H\u00e1tt fjall Esk 17.23; 20.40; 34.13-14; 36.1<br \/>\n<b>40.3<\/b> M\u00e6likvar\u00f0i Sak 2.5; Opb 11.; 21.15<br \/>\n<b>40.16<\/b> Gluggar 1Kon 6.4<br \/>\n<b>40.17<\/b> Herbergi \u00ed forgar\u00f0inum 1Kro 28.12<br \/>\n<b>40.28<\/b> Innri forgar\u00f0urinn 1Kon 6.36<br \/>\n<b>40.38<\/b> \u00devo brennif\u00f3rn 3M\u00f3s 1.9,13; 2Kro 4.6<br \/>\n<b>40.46<\/b> Ni\u00f0jar Sad\u00f3ks Esk 43.19; 44.15; 48.11; 2Sam 8.17; 15.24<br \/>\n<b>40.47<\/b> Altari\u00f0 1Kon 8.64; 9.25<br \/>\n<b>40.48<\/b> Forsalur musterisins 1Kon 6.3; 2Kro 3.4<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00c1 tuttugasta og fimmta \u00e1ri eftir a\u00f0 v\u00e9r vorum herleiddir, \u00ed byrjun \u00e1rsins, t\u00edunda dag m\u00e1na\u00f0arins, fj\u00f3rt\u00e1n \u00e1rum eftir a\u00f0 borgin var tekin, einmitt \u00feann dag kom h\u00f6nd Drottins yfir mig og flutti mig \u00feanga\u00f0.2\u00cd gu\u00f0legri s\u00fdn flutti hann mig til \u00cdsraelslands og setti mig ni\u00f0ur \u00e1 mj\u00f6g h\u00e1tt fjall, og \u00e1 \u00fev\u00ed var gagnvart m\u00e9r sem endurreist borg.3Er hann haf\u00f0i flutt mig \u00feanga\u00f0, birtist ma\u00f0ur nokkur, og var hann \u00e1s\u00fdndum sem af eiri v\u00e6ri. Hann h\u00e9lt \u00e1 l\u00ednstreng og m\u00e6list\u00f6ng og st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0i\u00f0.4Og ma\u00f0urinn sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Mannsson, l\u00edt \u00e1 me\u00f0 augum \u00fe\u00ednum, hl\u00fd\u00f0 \u00e1 me\u00f0 eyrum \u00fe\u00ednum <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-40-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2189","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2189","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2189"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2189\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2189"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}