{"id":2185,"date":"2017-11-18T20:20:32","date_gmt":"2017-11-18T20:20:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-36-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:54","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:54","slug":"esekiel-36-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-36-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 36. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>En \u00fe\u00fa mannsson, sp\u00e1 \u00fe\u00fa um \u00cdsraels fj\u00f6ll og seg: \u00de\u00e9r \u00cdsraels fj\u00f6ll, heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins!<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3vinirnir hafa hr\u00f3pa\u00f0 yfir y\u00f0ur: H\u00e6! Eil\u00edf au\u00f0n! \u00dea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 vor eign!<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>fyrir \u00fev\u00ed sp\u00e1 \u00fe\u00fa og seg: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Fyrir \u00fe\u00e1 s\u00f6k, vegna \u00feess a\u00f0 menn eyddu y\u00f0ur og \u00e1girntust y\u00f0ur alla vega, a\u00f0 \u00fe\u00e9r yr\u00f0u\u00f0 eign hinna \u00fej\u00f3\u00f0anna, og af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r komust \u00ed or\u00f0r\u00e6\u00f0u manna og ur\u00f0u\u00f0 fyrir \u00e1m\u00e6li f\u00f3lks,<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>fyrir \u00fev\u00ed heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins Gu\u00f0s, \u00fe\u00e9r \u00cdsraels fj\u00f6ll! Svo segir Drottinn Gu\u00f0 vi\u00f0 fj\u00f6llin og h\u00e6\u00f0irnar, vi\u00f0 hvammana og dalina, vi\u00f0 ey\u00f0ir\u00fastirnar og vi\u00f0 yfirgefnu borgirnar, sem or\u00f0nar eru a\u00f0 herfangi og a\u00f0 spotti fyrir hinar \u00fej\u00f3\u00f0irnar, sem umhverfis y\u00f0ur eru,<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>fyrir \u00fev\u00ed segir Drottinn Gu\u00f0 svo: Sannlega tala \u00e9g \u00ed minni brennandi afbr\u00fd\u00f0i til hinna \u00fej\u00f3\u00f0anna og alls Ed\u00f3ms, sem hafa \u00e6tla\u00f0 s\u00e9r land mitt til eignar, me\u00f0 alls hugar f\u00f6gnu\u00f0i og innilegri fyrirlitning, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu reki\u00f0 \u00edb\u00faana burt og r\u00e6nt \u00fea\u00f0.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Sp\u00e1 \u00fe\u00fa \u00feess vegna um \u00cdsraelsland og seg vi\u00f0 fj\u00f6llin og h\u00e6\u00f0irnar, vi\u00f0 hvammana og dalina: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Sj\u00e1, \u00e9g hefi tala\u00f0 \u00ed \u00e1str\u00ed\u00f0ufullri heift, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00feola h\u00e1\u00f0ungar \u00fej\u00f3\u00f0anna.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed segir Drottinn Gu\u00f0 svo: \u00c9g hef upp h\u00f6nd m\u00edna og sver: \u00dej\u00f3\u00f0irnar, sem umhverfis y\u00f0ur eru, skulu vissulega ver\u00f0a a\u00f0 \u00feola h\u00e1\u00f0ung s\u00edna.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>En \u00fe\u00e9r, \u00cdsraels fj\u00f6ll, skj\u00f3ti\u00f0 greinum y\u00f0ar og beri\u00f0 \u00e1v\u00f6xt y\u00f0ar handa l\u00fd\u00f0 m\u00ednum \u00cdsrael, \u00fev\u00ed a\u00f0 br\u00e1\u00f0um munu \u00feeir koma heim.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1, \u00e9g mun koma til y\u00f0ar og sn\u00faa m\u00e9r a\u00f0 y\u00f0ur, og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 ver\u00f0a yrkt og s\u00e1in.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og \u00e9g mun fj\u00f6lga f\u00f3lkinu \u00e1 y\u00f0ur, gj\u00f6rv\u00f6llum \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0, og borgirnar ver\u00f0a bygg\u00f0ar og r\u00fastirnar reistar a\u00f0 n\u00fdju.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og \u00e9g vil fj\u00f6lga m\u00f6nnum og skepnum \u00e1 y\u00f0ur, og \u00fea\u00f0 skal margfaldast og ver\u00f0a frj\u00f3samt. Og \u00e9g mun l\u00e1ta y\u00f0ur ver\u00f0a bygg\u00f0, eins og \u00fe\u00e9r voru\u00f0 \u00ed fyrri daga, og au\u00f0s\u00fdna y\u00f0ur enn meira gott en \u00e1\u00f0ur fyrr, til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r vi\u00f0urkenni\u00f0, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Og \u00e9g mun l\u00e1ta menn \u00e1 y\u00f0ur ganga, l\u00fd\u00f0 minn \u00cdsrael. \u00deeir skulu taka \u00feig til eignar, svo a\u00f0 \u00fe\u00fa ver\u00f0ir arfleif\u00f0 \u00feeirra, og \u00fe\u00fa munt ekki framar gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 barnlausa.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Af \u00fev\u00ed a\u00f0 menn s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 y\u00f0ur: \u00de\u00fa varst mann\u00e6ta og varst v\u00f6n a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fej\u00f3\u00f0 \u00fe\u00edna barnlausa,<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>fyrir \u00fev\u00ed skalt \u00fe\u00fa ekki framar m\u00f6nnum farga og ekki framar gj\u00f6ra \u00fej\u00f3\u00f0 \u00fe\u00edna barnlausa, segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og \u00e9g skal ekki framar l\u00e1ta \u00feig heyra h\u00e1\u00f0ungar hei\u00f0ingjanna og \u00fe\u00fa skalt ekki framar \u00feurfa a\u00f0 \u00feola sm\u00e1nanir \u00fej\u00f3\u00f0anna og \u00fe\u00fa skalt ekki framar gj\u00f6ra \u00fej\u00f3\u00f0 \u00fe\u00edna barnlausa, segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Mannsson, \u00feegar \u00cdsraelsmenn bjuggu \u00ed landi s\u00ednu, \u00fe\u00e1 saurgu\u00f0u \u00feeir \u00fea\u00f0 me\u00f0 breytni sinni og verkum s\u00ednum. Breytni \u00feeirra var fyrir m\u00e9r eins og \u00f3hreinleiki konu, sem hefir t\u00ed\u00f0ir.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og \u00e9g \u00fathellti rei\u00f0i minni yfir \u00fe\u00e1, s\u00f6kum \u00feess bl\u00f3\u00f0s, er \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00fathellt \u00ed landinu, og af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u saurga\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 skur\u00f0go\u00f0um s\u00ednum.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Og \u00e9g tv\u00edstra\u00f0i \u00feeim me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna, og \u00feeir dreif\u00f0ust \u00fat um l\u00f6ndin. Eftir breytni \u00feeirra og verkum \u00feeirra d\u00e6mdi \u00e9g \u00fe\u00e1.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og \u00feeir komu til hinna hei\u00f0nu \u00fej\u00f3\u00f0a. Hvar sem \u00feeir komu, \u00fear vanhelgu\u00f0u \u00feeir mitt heilaga nafn, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00f6nnum f\u00f3rust svo or\u00f0 um \u00fe\u00e1: \u00deetta er l\u00fd\u00f0ur Drottins, og \u00fe\u00f3 ur\u00f0u \u00feeir a\u00f0 fara burt \u00far landi s\u00ednu!<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Og mig t\u00f3k \u00fea\u00f0 s\u00e1rt, a\u00f0 \u00cdsraelsmenn skyldu svo vanhelga heilagt nafn mitt me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna, hvar sem \u00feeir komu.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Seg \u00fev\u00ed vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Eigi er \u00fea\u00f0 y\u00f0ar vegna, \u00cdsraelsmenn, a\u00f0 \u00e9g l\u00e6t til m\u00edn taka, heldur vegna m\u00edns heilaga nafns, sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 vanhelga\u00f0 me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna, hvar sem \u00fe\u00e9r komu\u00f0.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og \u00e9g mun helga mitt hi\u00f0 mikla nafn, sem vanhelga\u00f0 var me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna, \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00e9r vanhelgu\u00f0u\u00f0 me\u00f0al \u00feeirra, til \u00feess a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0irnar vi\u00f0urkenni, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn, segir Drottinn Gu\u00f0 \u00fe\u00e1 er \u00e9g augl\u00fdsi heilagleik minn \u00e1 y\u00f0ur \u00ed augs\u00fdn \u00feeirra.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00c9g mun s\u00e6kja y\u00f0ur til \u00fej\u00f3\u00f0anna og saman safna y\u00f0ur \u00far \u00f6llum l\u00f6ndum og flytja y\u00f0ur inn \u00ed y\u00f0ar land.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>\u00c9g mun st\u00f6kkva hreinu vatni \u00e1 y\u00f0ur, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r ver\u00f0i\u00f0 hreinir, \u00e9g mun hreinsa y\u00f0ur af \u00f6llum \u00f3hreinindum y\u00f0ar og skur\u00f0go\u00f0um.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Og \u00e9g mun gefa y\u00f0ur n\u00fdtt hjarta og leggja y\u00f0ur n\u00fdjan anda \u00ed brj\u00f3st, og \u00e9g mun taka steinhjarta\u00f0 \u00far l\u00edkama y\u00f0ar og gefa y\u00f0ur hjarta af holdi.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Og \u00e9g mun leggja y\u00f0ur anda minn \u00ed brj\u00f3st og koma \u00fev\u00ed til vegar, a\u00f0 \u00fe\u00e9r hl\u00fd\u00f0i\u00f0 bo\u00f0or\u00f0um m\u00ednum og var\u00f0veiti\u00f0 setninga m\u00edna og breyti\u00f0 eftir \u00feeim.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 b\u00faa \u00ed landinu, sem \u00e9g gaf fe\u00f0rum y\u00f0ar, og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera m\u00edn \u00fej\u00f3\u00f0 og \u00e9g skal vera y\u00f0ar Gu\u00f0.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00c9g mun frelsa y\u00f0ur fr\u00e1 \u00f6llum \u00f3hreinindum y\u00f0ar, og \u00e9g mun kalla \u00e1 korni\u00f0 og margfalda \u00fea\u00f0, og ekkert hall\u00e6ri mun \u00e9g l\u00e1ta yfir y\u00f0ur koma.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Og \u00e9g mun margfalda \u00e1v\u00f6xtu trj\u00e1nna og gr\u00f3\u00f0a vallarins, til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00feurfi\u00f0 ekki a\u00f0 \u00feola brigsl me\u00f0al hei\u00f0nu \u00fej\u00f3\u00f0anna fyrir hall\u00e6ri.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fe\u00e9r minnast y\u00f0ar vondu breytni og verka y\u00f0ar, sem ekki voru g\u00f3\u00f0, og y\u00f0ur mun bj\u00f3\u00f0a vi\u00f0 sj\u00e1lfum y\u00f0ur s\u00f6kum misgj\u00f6r\u00f0a y\u00f0ar og vi\u00f0urstygg\u00f0a.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Eigi er \u00fea\u00f0 y\u00f0ar vegna, a\u00f0 \u00e9g l\u00e6t til m\u00edn taka, segir Drottinn Gu\u00f0, \u00fea\u00f0 skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r vita! Blyg\u00f0ist og skammist y\u00f0ar fyrir breytni y\u00f0ar, \u00fe\u00e9r \u00cdsraelsmenn!<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00c1 \u00feeim degi, er \u00e9g hreinsa y\u00f0ur af \u00f6llum misgj\u00f6r\u00f0um y\u00f0ar, \u00fe\u00e1 mun \u00e9g aftur l\u00e1ta borgirnar ver\u00f0a bygg\u00f0ar, og \u00fe\u00e1 skulu fallin h\u00fasin r\u00edsa \u00far r\u00fastum.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>Og hi\u00f0 eydda land mun yrkt ver\u00f0a, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1\u00f0ur var eins og au\u00f0n \u00ed augum allra umfarenda.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>\u00de\u00e1 mun sagt ver\u00f0a: \u00deetta land, sem komi\u00f0 var \u00ed au\u00f0n, er or\u00f0i\u00f0 eins og Edens gar\u00f0ur, og borgirnar, sem or\u00f0nar voru a\u00f0 r\u00fastum, sem eyddar voru og umturna\u00f0ar, eru n\u00fa v\u00edggirtar og bygg\u00f0ar.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>\u00de\u00e1 munu \u00fe\u00e6r \u00fej\u00f3\u00f0ir, sem eftir eru or\u00f0nar kringum y\u00f0ur, vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g, Drottinn, hefi reist af n\u00fdju \u00fea\u00f0, sem umturna\u00f0 var, og gr\u00f3\u00f0ursett \u00fea\u00f0, sem var \u00ed ey\u00f0i lagt. \u00c9g, Drottinn, hefi tala\u00f0 \u00fea\u00f0 og mun framkv\u00e6ma \u00fea\u00f0.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00de\u00e1 b\u00f3n skal \u00e9g enn veita \u00cdsraelsm\u00f6nnum: \u00c9g skal gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 svo mannmarga sem hj\u00f6r\u00f0 er a\u00f0 sau\u00f0um.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>Eins og helgid\u00f3murinn fyllist af sau\u00f0um, eins og Jer\u00fasalem fyllist af sau\u00f0um \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0unum, svo munu ey\u00f0iborgirnar fyllast af mannahj\u00f6r\u00f0um, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir vi\u00f0urkenni, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>36.2<\/b> M\u00e1lagj\u00f6ld \u00f3vinanna Esk 35.10; sbr Esk 25.3<br \/>\n<b>36.5<\/b> \u00c1kafi Drottins Esk 5.13+<br \/>\n<b>36.7<\/b> Ei\u00f0ur Drottins Esk 20.6+<br \/>\n<b>36.10<\/b> Borgir endurreistar Jes 58.12; 61.4; Jer 30.18<br \/>\n<b>36.11<\/b> \u00c9g er Drottinn Esk 20.42+<br \/>\n<b>36.13<\/b> Mann\u00e6ta 4M\u00f3s 13.32<br \/>\n<b>36.17<\/b> Saurgu\u00f0u landi\u00f0 Esk 22.3-12+ &#8211; \u00f3hreinleiki konu 3M\u00f3s 15.19-22<br \/>\n<b>36.20<\/b> Vanhelga nafn Gu\u00f0s Esk 20.9,14,39; 39.7; 43.8<br \/>\n<b>36.22<\/b> Ekki vegna \u00cdsraelsmanna 5M\u00f3s 9.5 \u2013 vegna m\u00edns heilaga nafns Esk 20.9+<br \/>\n<b>36.25<\/b> Hreint vatn Esk 47.1; 4M\u00f3s 19.9; 31.23<br \/>\n<b>36.26<\/b> N\u00fdtt hjarta, n\u00fdjan anda Esk 11.19+<br \/>\n<b>36.28<\/b> M\u00edn \u00fej\u00f3\u00f0, ykkar Gu\u00f0 Esk 11.20; 37.23,27; 2M\u00f3s 6.7; 3M\u00f3s 26.12; Jer 11.4; 24.7; 31.33<br \/>\n<b>36.35<\/b> Eden Esk 28.13; 1M\u00f3s 2.8-17; Jes 51.3<br \/>\n<b>36.38<\/b> \u00c9g er Drottinn Esk 20.42+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1En \u00fe\u00fa mannsson, sp\u00e1 \u00fe\u00fa um \u00cdsraels fj\u00f6ll og seg: \u00de\u00e9r \u00cdsraels fj\u00f6ll, heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins!2Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3vinirnir hafa hr\u00f3pa\u00f0 yfir y\u00f0ur: H\u00e6! Eil\u00edf au\u00f0n! \u00dea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 vor eign!3fyrir \u00fev\u00ed sp\u00e1 \u00fe\u00fa og seg: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Fyrir \u00fe\u00e1 s\u00f6k, vegna \u00feess a\u00f0 menn eyddu y\u00f0ur og \u00e1girntust y\u00f0ur alla vega, a\u00f0 \u00fe\u00e9r yr\u00f0u\u00f0 eign hinna \u00fej\u00f3\u00f0anna, og af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r komust \u00ed or\u00f0r\u00e6\u00f0u manna og ur\u00f0u\u00f0 fyrir \u00e1m\u00e6li f\u00f3lks,4fyrir \u00fev\u00ed heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins Gu\u00f0s, \u00fe\u00e9r \u00cdsraels fj\u00f6ll! Svo segir Drottinn Gu\u00f0 vi\u00f0 fj\u00f6llin og h\u00e6\u00f0irnar, vi\u00f0 hvammana og dalina, vi\u00f0 ey\u00f0ir\u00fastirnar <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-36-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2185","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2185","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2185"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2185\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2185"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}