{"id":2181,"date":"2017-11-18T20:20:32","date_gmt":"2017-11-18T20:20:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-32-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:52","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:52","slug":"esekiel-32-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-32-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 32. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 t\u00f3lfta \u00e1rinu, fyrsta dag hins t\u00f3lfta m\u00e1na\u00f0ar, kom or\u00f0 Drottins til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Mannsson, hef upp harmlj\u00f3\u00f0 yfir Fara\u00f3, Egyptalandskonungi, og seg vi\u00f0 hann: \u00de\u00fa unglj\u00f3n me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna, \u00fea\u00f0 er \u00fati um \u00feig! Og \u00fe\u00f3 varst \u00fe\u00fa eins og kr\u00f3k\u00f3d\u00edll \u00ed sj\u00f3num, gusa\u00f0ir me\u00f0 n\u00f6sum \u00fe\u00ednum, grugga\u00f0ir upp vatni\u00f0 me\u00f0 f\u00f3tum \u00fe\u00ednum og r\u00f3ta\u00f0ir upp bylgjum \u00feess.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00c9g vil brei\u00f0a net mitt yfir \u00feig \u00ed s\u00f6fnu\u00f0i margra \u00fej\u00f3\u00f0a, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir dragi \u00feig upp \u00ed neti m\u00ednu.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og \u00e9g skal varpa \u00fe\u00e9r upp \u00e1 land, fleygja \u00fe\u00e9r \u00fat \u00e1 bersv\u00e6\u00f0i, og \u00e9g skal l\u00e1ta alla fugla himinsins sitja \u00e1 \u00fe\u00e9r og se\u00f0ja d\u00fdr allrar jar\u00f0arinnar \u00e1 \u00fe\u00e9r.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Og \u00e9g skal f\u00e6ra hold \u00feitt \u00fat \u00e1 fj\u00f6llin og fylla dalina hr\u00e6i \u00fe\u00ednu.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Og \u00e9g skal v\u00f6kva landi\u00f0 me\u00f0 \u00fatrennsli \u00fe\u00ednu, af bl\u00f3\u00f0i \u00fe\u00ednu \u00e1 fj\u00f6llunum, og \u00e1rfarvegirnir skulu ver\u00f0a fullir af \u00fe\u00e9r.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00deegar \u00fe\u00fa slokknar \u00fat, skal \u00e9g byrgja himininn og myrkva stj\u00f6rnur hans. S\u00f3lina skal \u00e9g hylja \u00ed sk\u00fdjum, og tungli\u00f0 skal ekki l\u00e1ta lj\u00f3s sitt sk\u00edna.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00d6ll lj\u00f3s \u00e1 himninum skal \u00e9g l\u00e1ta ver\u00f0a myrk \u00fe\u00edn vegna og f\u00e6ra dimmu yfir land \u00feitt, segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og \u00e9g mun hrella hj\u00f6rtu margra \u00fej\u00f3\u00f0a, er \u00e9g lei\u00f0i hertekna menn \u00fe\u00edna \u00fat \u00e1 me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna, til landa, sem \u00fe\u00fa \u00feekkir ekki.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og \u00e9g mun gj\u00f6ra margar \u00fej\u00f3\u00f0ir felmtsfullar \u00fat af \u00fe\u00e9r, og hryllingur mun fara um konunga \u00feeirra \u00fe\u00edn vegna, \u00feegar \u00e9g sveifla sver\u00f0i m\u00ednu frammi fyrir \u00feeim, og \u00feeir skulu skj\u00e1lfa \u00e1n afl\u00e1ts af hr\u00e6\u00f0slu um l\u00edf sitt, daginn sem \u00fe\u00fa fellur.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Sver\u00f0 Babelkonungs skal koma yfir \u00feig.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00c9g skal l\u00e1ta gl\u00e6sili\u00f0 \u00feitt falla fyrir kappa sver\u00f0um. \u00dea\u00f0 eru allt saman hinar grimmustu \u00fej\u00f3\u00f0ir. \u00deeir skulu ey\u00f0a skrauti Egyptalands, og allt vi\u00f0hafnarprj\u00e1l \u00feess skal a\u00f0 engu gj\u00f6rt.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Og \u00e9g skal gj\u00f6rey\u00f0a \u00f6llum skepnum \u00feess og hr\u00edfa \u00fe\u00e6r burt fr\u00e1 hinum miklu v\u00f6tnum. Enginn mannsf\u00f3tur skal framar grugga \u00feau, n\u00e9 heldur skulu klaufir nokkurrar skepnu grugga \u00feau.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00de\u00e1 skal \u00e9g l\u00e1ta v\u00f6tn \u00feeirra setjast og lei\u00f0a \u00e1r \u00feeirra burt eins og ol\u00edu, segir Drottinn Gu\u00f0<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>\u00feegar \u00e9g gj\u00f6ri Egyptaland a\u00f0 au\u00f0n og \u00fea\u00f0 er eytt or\u00f0i\u00f0 og svipt gn\u00e6gtum s\u00ednum, er \u00e9g l\u00fdst alla \u00fe\u00e1, sem \u00ed \u00fev\u00ed b\u00faa, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir vi\u00f0urkenni, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00deetta eru harmlj\u00f3\u00f0 og skulu menn syngja \u00feau. D\u00e6tur \u00fej\u00f3\u00f0anna skulu syngja \u00feau, \u00fe\u00e6r skulu syngja \u00feau yfir Egyptalandi og yfir \u00f6llu gl\u00e6sili\u00f0i \u00feess, segir Drottinn Gu\u00f0!<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00c1 t\u00f3lfta \u00e1rinu, hinn fimmt\u00e1nda dag m\u00e1na\u00f0arins, kom or\u00f0 Drottins til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Mannsson, kveina \u00fe\u00fa og d\u00e6tur \u00fej\u00f3\u00f0anna yfir gl\u00e6sili\u00f0i Egyptalands. Tignarmenn munu s\u00f6kkva ni\u00f0ur \u00ed undirheima til \u00feeirra, sem ni\u00f0ur eru stignir \u00ed gr\u00f6fina.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Af hverjum ber \u00fe\u00fa a\u00f0 yndisleik? St\u00edg ofan og leggst til hv\u00edldar me\u00f0al hinna \u00f3umskornu.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>\u00deeir munu falla me\u00f0al vopnbitinna manna. Egyptaland er sver\u00f0inu ofurselt, menn hr\u00edfa \u00fea\u00f0 burt og allt \u00feess skraut.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00de\u00e1 munu hinar hraustu hetjur hr\u00f3pa til Fara\u00f3s \u00ed Helju, til hans og li\u00f0veislumanna hans: Ni\u00f0ur stignir eru hinir vopnbitnu.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00dearna er Ass\u00fdr\u00eda og allur li\u00f0safna\u00f0ur hennar, og eru grafir \u00feeirra umhverfis, allt saman vegnir menn, er falli\u00f0 hafa fyrir sver\u00f0i,<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>grafir \u00feeirra eru innst inni \u00ed grafhellinum. Og sveit hennar er umhverfis gr\u00f6f hennar, allt saman vegnir menn, er falli\u00f0 hafa fyrir sver\u00f0i og eitt sinn l\u00e9tu standa \u00f3gn af s\u00e9r \u00e1 landi lifandi manna.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00dearna er Elam, og allt gl\u00e6sili\u00f0 hans liggur umhverfis gr\u00f6f hans. \u00deeir eru allir saman vegnir menn, er falli\u00f0 hafa fyrir sver\u00f0i, er fari\u00f0 hafa \u00f3umskornir ofan \u00ed undirheima og eitt sinn l\u00e9tu standa \u00f3gn af s\u00e9r \u00e1 landi lifandi manna. Og n\u00fa bera \u00feeir vanvir\u00f0u s\u00edna me\u00f0 \u00feeim, sem ni\u00f0ur stignir eru \u00ed gr\u00f6fina.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Mitt \u00e1 me\u00f0al veginna manna bjuggu \u00feeir honum hv\u00edlur\u00fam, \u00e1samt \u00f6llu gl\u00e6sili\u00f0i hans, og eru grafir \u00feeirra umhverfis hann, allt saman \u00f3umskornir menn, er lag\u00f0ir hafa veri\u00f0 sver\u00f0i, \u00fev\u00ed a\u00f0 eitt sinn st\u00f3\u00f0 \u00f3gn af \u00feeim \u00e1 landi lifandi manna. Og n\u00fa bera \u00feeir vanvir\u00f0u s\u00edna me\u00f0 \u00feeim, sem ni\u00f0ur stignir eru \u00ed gr\u00f6fina. Me\u00f0al veginna manna voru \u00feeir lag\u00f0ir.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00dearna er Mesek, T\u00fabal og allur mannfj\u00f6ldi \u00feeirra, og eru grafir \u00feeirra umhverfis hann, allt saman \u00f3umskornir menn, sver\u00f0i lag\u00f0ir, er eitt sinn l\u00e9tu \u00f3gn af s\u00e9r standa \u00e1 landi lifandi manna.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>\u00deeir liggja ekki hj\u00e1 hetjunum, \u00feeim er f\u00e9llu \u00ed fyrndinni, \u00feeim er f\u00f3ru til Heljar \u00ed hervopnum s\u00ednum, hverra sver\u00f0 voru l\u00f6g\u00f0 undir h\u00f6fu\u00f0 \u00feeirra og skildir \u00feeirra l\u00e1gu ofan \u00e1 beinum \u00feeirra, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3tti st\u00f3\u00f0 af hetjunum \u00e1 landi lifandi manna.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>\u00de\u00fa skalt og sundur mola\u00f0ur ver\u00f0a me\u00f0al \u00f3umskorinna og liggja hj\u00e1 sver\u00f0bitnum m\u00f6nnum.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00dear er Ed\u00f3m, konungar hans og allir h\u00f6f\u00f0ingjar, sem \u00fer\u00e1tt fyrir hreysti s\u00edna voru lag\u00f0ir hj\u00e1 vopnbitnum m\u00f6nnum. \u00deeir liggja hj\u00e1 \u00f3umskornum m\u00f6nnum og hj\u00e1 \u00feeim, sem ni\u00f0ur eru stignir \u00ed gr\u00f6fina.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>\u00dear eru st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjar nor\u00f0ursins allir saman og allir S\u00eddoningar, er ni\u00f0ur stigu hels\u00e6r\u00f0ir. \u00der\u00e1tt fyrir \u00f3ttann, sem st\u00f3\u00f0 af hreysti \u00feeirra, eru \u00feeir or\u00f0nir til skammar. \u00d3umskornir liggja \u00feeir hj\u00e1 vopnbitnum m\u00f6nnum og bera vanvir\u00f0u s\u00edna me\u00f0 \u00feeim, er ni\u00f0ur stignir eru \u00ed gr\u00f6fina.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>Fara\u00f3 mun sj\u00e1 \u00fe\u00e1 og huggast yfir \u00f6llu gl\u00e6sili\u00f0i s\u00ednu. Vopnbitinn er Fara\u00f3 og allur hans her, segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Hann l\u00e9t eitt sinn standa \u00f3gn af s\u00e9r \u00e1 landi lifandi manna, \u00feess vegna skal hann lag\u00f0ur ver\u00f0a me\u00f0al \u00f3umskorinna, hj\u00e1 vopnbitnum m\u00f6nnum, Fara\u00f3 og allt hans gl\u00e6sili\u00f0, segir Drottinn Gu\u00f0.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>32.2<\/b> Kr\u00f3k\u00f3d\u00edll Esk 29.3-5; Job 40.25-41.25<br \/>\n<b>32.3<\/b> Net Esk 12.13+<br \/>\n<b>32.7<\/b> Myrkva &#8230; Jl 2.10; Am 8.9; Matt 24.29<br \/>\n<b>32.11<\/b> Sver\u00f0 konungsins \u00ed Bab\u00fdlon Esk 21.8+ ; 30.24+<br \/>\n<b>32.18<\/b> Til \u00feeirra sem grafnir eru Esk 31.16-18; Jes 14.9-15<br \/>\n<b>32.20<\/b> Sver\u00f0i\u00f0 Esk 21.8+<br \/>\n<b>32.26<\/b> Mesek, T\u00fabal Esk 27.13+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00c1 t\u00f3lfta \u00e1rinu, fyrsta dag hins t\u00f3lfta m\u00e1na\u00f0ar, kom or\u00f0 Drottins til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:2Mannsson, hef upp harmlj\u00f3\u00f0 yfir Fara\u00f3, Egyptalandskonungi, og seg vi\u00f0 hann: \u00de\u00fa unglj\u00f3n me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna, \u00fea\u00f0 er \u00fati um \u00feig! Og \u00fe\u00f3 varst \u00fe\u00fa eins og kr\u00f3k\u00f3d\u00edll \u00ed sj\u00f3num, gusa\u00f0ir me\u00f0 n\u00f6sum \u00fe\u00ednum, grugga\u00f0ir upp vatni\u00f0 me\u00f0 f\u00f3tum \u00fe\u00ednum og r\u00f3ta\u00f0ir upp bylgjum \u00feess.3Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00c9g vil brei\u00f0a net mitt yfir \u00feig \u00ed s\u00f6fnu\u00f0i margra \u00fej\u00f3\u00f0a, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir dragi \u00feig upp \u00ed neti m\u00ednu.4Og \u00e9g skal varpa \u00fe\u00e9r upp \u00e1 land, fleygja \u00fe\u00e9r \u00fat \u00e1 bersv\u00e6\u00f0i, og \u00e9g skal l\u00e1ta alla fugla himinsins <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-32-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2181","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2181","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2181"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2181\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2181"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}