{"id":2172,"date":"2017-11-18T20:20:32","date_gmt":"2017-11-18T20:20:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-23-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:49","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:49","slug":"esekiel-23-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-23-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 23. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Og or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Mannsson, konur voru tv\u00e6r, d\u00e6tur s\u00f6mu m\u00f3\u00f0ur.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00de\u00e6r fr\u00f6mdu h\u00f3rd\u00f3m \u00e1 Egyptalandi, \u00fe\u00e6r h\u00f3ru\u00f0ust \u00ed \u00e6sku. \u00dear l\u00e9tu \u00fe\u00e6r \u00feukla um brj\u00f3st s\u00e9r og \u00fear f\u00f3ru menn h\u00f6ndum um meyjarbarm \u00feeirra.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Hin eldri h\u00e9t Ohola og systir hennar Ohol\u00edba. Og \u00e9g eigna\u00f0ist \u00fe\u00e6r b\u00e1\u00f0ar, og \u00fe\u00e6r \u00f3lu sonu og d\u00e6tur. Og Ohola h\u00e9t s\u00ed\u00f0ar Samar\u00eda og Ohol\u00edba Jer\u00fasalem.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>En Ohola t\u00f3k fram hj\u00e1 m\u00e9r og brann af girnd til fri\u00f0la sinna, til Ass\u00fdringa, hinna nafntogu\u00f0u,<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>sem kl\u00e6ddir voru bl\u00e1um purpura, jarlar og landstj\u00f3rar, allt saman fr\u00ed\u00f0ir \u00e6skumenn, riddarar r\u00ed\u00f0andi hestum.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Og h\u00fan helga\u00f0i \u00feeim h\u00f3ranir s\u00ednar, \u00f6llum \u00farvalsm\u00f6nnum Ass\u00fdringa, og h\u00fan saurga\u00f0i sig \u00e1 skur\u00f0go\u00f0um allra \u00feeirra, er h\u00fan brann af girnd til.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00de\u00f3 l\u00e9t h\u00fan ekki af h\u00f3runum s\u00ednum fr\u00e1 Egyptalandi, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u legi\u00f0 me\u00f0 henni \u00ed ungd\u00e6mi hennar og fari\u00f0 h\u00f6ndum um meyjarbarm hennar og hellt yfir hana h\u00f3ran sinni.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed seldi \u00e9g hana \u00ed hendur fri\u00f0la sinna, \u00ed hendur Ass\u00fdringa, er h\u00fan brann af girnd til.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>\u00deeir beru\u00f0u blyg\u00f0an hennar, t\u00f3ku burt sonu hennar og d\u00e6tur og v\u00f3gu hana sj\u00e1lfa me\u00f0 sver\u00f0i, svo a\u00f0 h\u00fan var\u00f0 \u00f6\u00f0rum konum til vi\u00f0v\u00f6runar, og framkv\u00e6mdu \u00feannig refsingard\u00f3minn \u00e1 henni.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>En \u00fe\u00f3tt systir hennar Ohol\u00edba s\u00e6i \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 var\u00f0 h\u00fan \u00fe\u00f3 enn frekari \u00ed lostanum og dr\u00fdg\u00f0i enn meiri saurlifna\u00f0 en systir hennar.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>H\u00fan brann af girnd til Ass\u00fdringa, nafntoga\u00f0ra jarla og landstj\u00f3ra, sem voru fr\u00e1b\u00e6rlega pr\u00fa\u00f0b\u00fanir, til riddara, sem ri\u00f0u hestum, allt saman fr\u00ed\u00f0ir \u00e6skumenn.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Og \u00e9g s\u00e1, hversu h\u00fan saurga\u00f0i sig. Eitt og hi\u00f0 sama var h\u00e1ttalag beggja \u00feeirra systra.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>En h\u00fan h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 dr\u00fdgja h\u00f3rd\u00f3m, og er h\u00fan s\u00e1 menn dregna \u00e1 vegg, myndir af Kaldeum, m\u00e1la\u00f0a me\u00f0 menju,<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>gyrta belti um lendarnar, me\u00f0 vefjarh\u00f6ttu um h\u00f6fu\u00f0in, alla saman hina hermannlegustu, mynd af Bab\u00fdlon\u00edum\u00f6nnum, en \u00e6ttland \u00feeirra er Kaldea,<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 brann h\u00fan af girnd til \u00feeirra, er h\u00fan leit \u00fe\u00e1 augum, og gj\u00f6r\u00f0i sendimenn til \u00feeirra til Kaldeu.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Og Bab\u00fdlon\u00edumenn gengu inn til hennar, til \u00e1stasamlags vi\u00f0 hana, og flekku\u00f0u hana me\u00f0 saurlifna\u00f0i s\u00ednum, og h\u00fan saurga\u00f0i sig \u00e1 \u00feeim. \u00de\u00e1 sneri s\u00e1l hennar s\u00e9r fr\u00e1 \u00feeim.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og er h\u00fan framdi saurlifna\u00f0 sinn berlega og bera\u00f0i blyg\u00f0an s\u00edna, \u00fe\u00e1 sneri s\u00e1l m\u00edn s\u00e9r fr\u00e1 henni, eins og s\u00e1l m\u00edn haf\u00f0i sn\u00fai\u00f0 s\u00e9r fr\u00e1 systur hennar.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>En h\u00fan var\u00f0 enn frekari \u00ed h\u00f3rd\u00f3mi s\u00ednum, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan minntist \u00e6skudaga sinna, \u00fe\u00e1 er h\u00fan framdi saurlifna\u00f0 \u00e1 Egyptalandi.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og h\u00fan brann af girnd til fri\u00f0la \u00feeirra, sem voru eins hre\u00f0urmiklir og asnar og gusan \u00far \u00feeim sem \u00far st\u00f3\u00f0hestum.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa sakna\u00f0ir saurlifna\u00f0ar \u00e6sku \u00feinnar, \u00fe\u00e1 er Egyptar f\u00f3ru h\u00f6ndum um barm \u00feinn og \u00feuklu\u00f0u um meyjarbrj\u00f3st \u00fe\u00edn.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed, Ohol\u00edba, svo segir Drottinn Gu\u00f0: Sj\u00e1, \u00e9g mun egna fri\u00f0la \u00fe\u00edna upp \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00e1 er s\u00e1l \u00fe\u00edn hefir sn\u00fai\u00f0 s\u00e9r fr\u00e1, og l\u00e1ta \u00fe\u00e1 veitast a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00far \u00f6llum \u00e1ttum:<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Bab\u00fdlon\u00edumenn og alla Kaldea, Pek\u00f3d, Sj\u00f3a og K\u00f3a og alla Ass\u00fdringa me\u00f0 \u00feeim, allt saman fr\u00ed\u00f0a \u00e6skumenn, jarla og landstj\u00f3ra, t\u00f3ma li\u00f0sforingja og nafntoga\u00f0a menn, r\u00ed\u00f0andi hestum.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Og \u00feeir munu koma \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r \u00far nor\u00f0ri me\u00f0 v\u00f6gnum og hj\u00f3lum og li\u00f0safna\u00f0i margra \u00fej\u00f3\u00f0a. T\u00f6rgu, skj\u00f6ld og hj\u00e1lm munu \u00feeir setja upp \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r hringinn \u00ed kring, og \u00e9g mun leggja fyrir \u00fe\u00e1 m\u00e1li\u00f0, og \u00feeir skulu d\u00e6ma \u00feig eftir s\u00ednum l\u00f6gum.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Og \u00e9g mun sn\u00faa vandl\u00e6ting minni gegn \u00fe\u00e9r, og \u00feeir munu fara grimmdarlega me\u00f0 \u00feig. \u00deeir munu skera af \u00fe\u00e9r nef og eyru, og \u00fea\u00f0, sem eftir ver\u00f0ur af \u00fe\u00e9r, skal fyrir sver\u00f0i falla. Sonu \u00fe\u00edna og d\u00e6tur munu \u00feeir hafa \u00e1 burt, og \u00fea\u00f0, sem eftir ver\u00f0ur af \u00fe\u00e9r, mun ey\u00f0ast af eldi.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Og \u00feeir munu f\u00e6ra \u00feig af kl\u00e6\u00f0um og taka af \u00fe\u00e9r skartgripi \u00fe\u00edna.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Og \u00e9g vil gj\u00f6ra enda \u00e1 saurlifna\u00f0i \u00fe\u00ednum og h\u00f3rd\u00f3mi \u00fe\u00ednum fr\u00e1 Egyptalandi, svo a\u00f0 \u00fe\u00fa hefjir eigi framar augu \u00fe\u00edn til \u00feeirra og hugsir eigi framar um Egyptaland.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Sj\u00e1, \u00e9g mun selja \u00feig \u00e1 vald \u00feeirra, er \u00fe\u00fa hatar, \u00e1 vald \u00feeirra, er s\u00e1l \u00fe\u00edn hefir sn\u00fai\u00f0 s\u00e9r fr\u00e1.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Og \u00feeir munu fara haturslega me\u00f0 \u00feig og hafa \u00e1 burt allan afla \u00feinn og l\u00e1ta \u00feig eftir nakta og bera, og \u00fe\u00e1 mun ver\u00f0a flett ofan af hinni h\u00f3rgj\u00f6rnu blyg\u00f0an \u00feinni, lausl\u00e6ti \u00fe\u00ednu og saurlifna\u00f0i \u00fe\u00ednum.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Svo mun me\u00f0 \u00feig fari\u00f0, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa eltir \u00fej\u00f3\u00f0irnar, fyrir \u00fe\u00e1 s\u00f6k a\u00f0 \u00fe\u00fa saurga\u00f0ir \u00feig \u00e1 skur\u00f0go\u00f0um \u00feeirra.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00de\u00fa hefir gengi\u00f0 g\u00f6tu systur \u00feinnar, \u00feess vegna r\u00e9tti \u00e9g a\u00f0 \u00fe\u00e9r bikar hennar.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00de\u00fa skalt drekka bikar systur \u00feinnar, hinn dj\u00fapa og v\u00ed\u00f0a, sem tekur svo miki\u00f0,<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>v\u00edmu og h\u00f6rmung skalt \u00fe\u00fa fyllast, bikar hryllings og skelfingar, bikar Samar\u00edu systur \u00feinnar.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa skalt drekka hann og t\u00e6ma og s\u00f6tra dreggjarnar og sundurr\u00edfa brj\u00f3st \u00fe\u00edn, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hefi tala\u00f0 \u00fea\u00f0, segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed segir Drottinn Gu\u00f0 svo: S\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa hefir gleymt m\u00e9r og varpa\u00f0 m\u00e9r aftur fyrir bak \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa n\u00fa og gj\u00f6ld taka fyrir lausl\u00e6ti \u00feitt og saurlifna\u00f0.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>Og Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Mannsson, vilt \u00fe\u00fa d\u00e6ma Oholu og Ohol\u00edbu? Lei\u00f0 \u00feeim \u00fe\u00e1 fyrir sj\u00f3nir sv\u00edvir\u00f0ingar \u00feeirra,<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>hversu \u00fe\u00e6r hafa h\u00f3rd\u00f3m dr\u00fdgt og flekka\u00f0 hendur s\u00ednar me\u00f0 bl\u00f3\u00f0i, og hversu \u00fe\u00e6r hafa dr\u00fdgt h\u00f3rd\u00f3m me\u00f0 skur\u00f0go\u00f0um s\u00ednum og jafnvel l\u00e1ti\u00f0 sonu s\u00edna, er \u00fe\u00e6r f\u00e6ddu m\u00e9r, ganga gegnum eld \u00feeim til f\u00e6\u00f0slu.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>Enn fremur gj\u00f6r\u00f0u \u00fe\u00e6r m\u00e9r \u00feetta: \u00de\u00e6r saurgu\u00f0u sama daginn helgid\u00f3m minn og vanhelgu\u00f0u hv\u00edldardaga m\u00edna.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>Og \u00feegar \u00fe\u00e6r sl\u00e1tru\u00f0u sonum s\u00ednum skur\u00f0go\u00f0unum til f\u00f3rnar, gengu \u00fe\u00e6r sama daginn inn \u00ed helgid\u00f3m minn til \u00feess a\u00f0 vanhelga hann. J\u00e1, sl\u00edkt h\u00f6f\u00f0ust \u00fe\u00e6r a\u00f0 \u00ed m\u00ednu eigin musteri.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>\u00de\u00e6r sendu jafnvel eftir m\u00f6nnum, er komu af fjarl\u00e6gum l\u00f6ndum, og er sendima\u00f0ur haf\u00f0i veri\u00f0 gj\u00f6r\u00f0ur til \u00feeirra, komu \u00feeir. \u00deeirra vegna lauga\u00f0ir \u00fe\u00fa \u00feig, barst lit \u00ed augu \u00fe\u00e9r og bj\u00f3st \u00feig \u00ed skart.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an settist \u00fe\u00fa \u00e1 veglegan hv\u00edlubekk, fyrir framan hann st\u00f3\u00f0 uppb\u00fai\u00f0 bor\u00f0, og \u00e1 \u00fea\u00f0 lag\u00f0ir \u00fe\u00fa reykelsi mitt og ol\u00edfuol\u00edu m\u00edna.<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>Og me\u00f0 h\u00e1v\u00e6rum s\u00f6ng hv\u00edldu \u00feeir \u00e1 bekknum, og auk mannanna \u00far mannfj\u00f6ldanum var komi\u00f0 me\u00f0 Sabea \u00far ey\u00f0im\u00f6rkinni. \u00deeir spenntu armbaugum um handleggi kvennanna og settu d\u00fdrlega k\u00f3r\u00f3nu \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 \u00feeirra.<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i \u00e9g: Mun hin \u00fatslitna enn dr\u00fdgja h\u00f3rd\u00f3m? Munu menn enn h\u00f3rast me\u00f0 henni?<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>Og menn gengu inn til hennar, eins og gengi\u00f0 er inn til h\u00f3rkonu, \u00feannig gengu \u00feeir inn til Oholu og Ohol\u00edbu, saurl\u00edfiskvennanna.<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>En r\u00e9ttl\u00e1tir menn munu d\u00e6ma \u00fe\u00e6r sama d\u00f3mi og h\u00f3rkonur eru d\u00e6mdar og \u00fe\u00e6r konur, er \u00fathella bl\u00f3\u00f0i, \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f3rkonur eru \u00fe\u00e6r, og hendur \u00feeirra eru bl\u00f3\u00f0i flekka\u00f0ar.<a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Mannsafna\u00f0ur s\u00e9 gj\u00f6r\u00f0ur a\u00f0 \u00feeim og \u00fe\u00e6r framseldar til mis\u00feyrmingar og r\u00e1na.<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>Og mannsafna\u00f0urinn skal lemja \u00fe\u00e6r grj\u00f3ti og h\u00f6ggva \u00fe\u00e6r sundur me\u00f0 sver\u00f0um s\u00ednum. Sonu \u00feeirra og d\u00e6tur skulu menn drepa og brenna h\u00fas \u00feeirra \u00ed eldi.<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>\u00deannig vil \u00e9g \u00fatr\u00fdma saurlifna\u00f0inum \u00far landinu, til \u00feess a\u00f0 allar konur l\u00e1ti s\u00e9r a\u00f0 kenningu ver\u00f0a og breyti eigi eftir saurlifna\u00f0ar-d\u00e6mi y\u00f0ar.<a name=\"49\"><span class=\"versanumer\">49<\/span><\/a>Og menn munu l\u00e1ta saurlifna\u00f0 y\u00f0ar koma ni\u00f0ur \u00e1 y\u00f0ur, og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 gjalda \u00feeirra synda, er \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 frami\u00f0 me\u00f0 skur\u00f0go\u00f0um y\u00f0ar, til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r vi\u00f0urkenni\u00f0, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn Gu\u00f0.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>23.3<\/b> \u00d3lifna\u00f0ur Esk 16.17; 20.30; 2M\u00f3s 34.15-16; Jes 1.21; Jer 31.6-9 \u2013 \u00ed Egyptalandi Esk 20.7-8; 23.19<br \/>\n<b>23.11<\/b> \u00d3lifna\u00f0ur \u00ed Jer\u00fasalem Esk 16.47 \u2013 S\u00f3d\u00f3ma Esk 16.49+ ; sbr 5.7+<br \/>\n<b>23.32<\/b> Rei\u00f0ibikar Jes 51.17,22; Jer 25.15,17,28; 49.12; sbr Slm 11.6 \u2013 r\u00e9ttl\u00e6tisbikar Drottins Hab 2.16; Slm 75.9 \u2013 hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0isbikar og huggunarbikar Jer 16.7; Slm 16.5; 116.3<br \/>\n<b>23.37<\/b> Dr\u00fdgja h\u00f3r Esk 22.11+ &#8211; b\u00f6rnum f\u00f3rna\u00f0 Esk 16.20+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Og or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:2Mannsson, konur voru tv\u00e6r, d\u00e6tur s\u00f6mu m\u00f3\u00f0ur.3\u00de\u00e6r fr\u00f6mdu h\u00f3rd\u00f3m \u00e1 Egyptalandi, \u00fe\u00e6r h\u00f3ru\u00f0ust \u00ed \u00e6sku. \u00dear l\u00e9tu \u00fe\u00e6r \u00feukla um brj\u00f3st s\u00e9r og \u00fear f\u00f3ru menn h\u00f6ndum um meyjarbarm \u00feeirra.4Hin eldri h\u00e9t Ohola og systir hennar Ohol\u00edba. Og \u00e9g eigna\u00f0ist \u00fe\u00e6r b\u00e1\u00f0ar, og \u00fe\u00e6r \u00f3lu sonu og d\u00e6tur. Og Ohola h\u00e9t s\u00ed\u00f0ar Samar\u00eda og Ohol\u00edba Jer\u00fasalem.5En Ohola t\u00f3k fram hj\u00e1 m\u00e9r og brann af girnd til fri\u00f0la sinna, til Ass\u00fdringa, hinna nafntogu\u00f0u,6sem kl\u00e6ddir voru bl\u00e1um purpura, jarlar og landstj\u00f3rar, allt saman fr\u00ed\u00f0ir \u00e6skumenn, riddarar r\u00ed\u00f0andi hestum.7Og h\u00fan helga\u00f0i \u00feeim h\u00f3ranir s\u00ednar, \u00f6llum \u00farvalsm\u00f6nnum Ass\u00fdringa, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-23-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2172","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2172","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2172"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2172\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2172"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}