{"id":2169,"date":"2017-11-18T20:20:32","date_gmt":"2017-11-18T20:20:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-20-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:48","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:48","slug":"esekiel-20-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-20-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 20. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 sj\u00f6unda \u00e1rinu, t\u00edunda dag hins fimmta m\u00e1na\u00f0ar, komu nokkrir af \u00f6ldungum \u00cdsraels til \u00feess a\u00f0 ganga til fr\u00e9tta vi\u00f0 Drottin, og settust ni\u00f0ur frammi fyrir m\u00e9r.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00de\u00e1 kom or\u00f0 Drottins til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi: Mannsson, tala \u00fe\u00fa til \u00f6ldunga \u00cdsraels og seg vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo segir Drottinn Gu\u00f0:<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00de\u00e9r eru\u00f0 komnir til \u00feess a\u00f0 ganga til fr\u00e9tta vi\u00f0 mig? Svo sannarlega sem \u00e9g lifi vil \u00e9g eigi l\u00e1ta y\u00f0ur ganga til fr\u00e9tta vi\u00f0 mig, segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>En viljir \u00fe\u00fa d\u00e6ma \u00fe\u00e1, viljir \u00fe\u00fa d\u00e6ma, mannsson, \u00fe\u00e1 lei\u00f0 \u00feeim fyrir sj\u00f3nir sv\u00edvir\u00f0ingar fe\u00f0ra \u00feeirra og seg vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo segir Drottinn Gu\u00f0:<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00deegar \u00e9g \u00fatvaldi \u00cdsrael, vann \u00e9g ni\u00f0jum Jakobs h\u00fass ei\u00f0 og gj\u00f6r\u00f0i mig \u00feeim kunnan \u00e1 Egyptalandi. \u00de\u00e1 vann \u00e9g \u00feeim ei\u00f0 og sag\u00f0i: \u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 y\u00f0ar!<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00deann dag vann \u00e9g \u00feeim ei\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lei\u00f0a \u00fe\u00e1 burt af Egyptalandi til \u00feess lands, er \u00e9g haf\u00f0i kanna\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1, er flyti \u00ed mj\u00f3lk og hunangi, \u00fea\u00f0 er pr\u00fd\u00f0i me\u00f0al landanna.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Og \u00e9g sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: S\u00e9rhver y\u00f0ar varpi burt \u00feeim vi\u00f0urstygg\u00f0um, er \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 fyrir augum, og saurgi\u00f0 y\u00f0ur ekki \u00e1 skur\u00f0go\u00f0um Egyptalands. \u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 y\u00f0ar.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>En \u00feeir voru m\u00e9r m\u00f3tsn\u00fanir og vildu eigi hl\u00fd\u00f0a m\u00e9r. \u00deeir v\u00f6rpu\u00f0u eigi burt vi\u00f0urstygg\u00f0um \u00feeim, er \u00feeir h\u00f6f\u00f0u fyrir augum, og \u00feeir yfirg\u00e1fu eigi skur\u00f0go\u00f0 Egyptalands. \u00de\u00e1 hug\u00f0i \u00e9g a\u00f0 \u00fathella rei\u00f0i minni yfir \u00fe\u00e1, a\u00f0 svala heift minni \u00e1 \u00feeim \u00ed Egyptalandi.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>En \u00e9g gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 samt ekki, fyrir nafns m\u00edns sakir, svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 skyldi eigi vanhelga\u00f0 ver\u00f0a \u00ed augum hei\u00f0ingja \u00feeirra, er \u00feeir bjuggu me\u00f0al, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed augs\u00fdn \u00feeirra haf\u00f0i \u00e9g gj\u00f6rt mig \u00feeim kunnan, til \u00feess a\u00f0 flytja \u00fe\u00e1 burt af Egyptalandi.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og \u00e9g flutti \u00fe\u00e1 burt af Egyptalandi og leiddi \u00fe\u00e1 inn \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og \u00e9g gaf \u00feeim setningar m\u00ednar og kunngj\u00f6r\u00f0i \u00feeim l\u00f6g m\u00edn, \u00feau er ma\u00f0urinn skal halda, til \u00feess a\u00f0 hann megi lifa.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00c9g gaf \u00feeim og hv\u00edldardaga m\u00edna, a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru sambandst\u00e1kn milli m\u00edn og \u00feeirra, til \u00feess a\u00f0 menn skyldu vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g, Drottinn, er s\u00e1, sem helgar \u00fe\u00e1.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>En \u00cdsraelsmenn voru m\u00e9r m\u00f3tsn\u00fanir \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. \u00deeir breyttu eigi eftir setningum m\u00ednum og h\u00f6fnu\u00f0u l\u00f6gum m\u00ednum, \u00feeim er ma\u00f0urinn skal halda, til \u00feess a\u00f0 hann megi lifa, og hv\u00edldardaga m\u00edna vanhelgu\u00f0u \u00feeir st\u00f3rum. \u00de\u00e1 hug\u00f0i \u00e9g a\u00f0 \u00fathella rei\u00f0i yfir \u00fe\u00e1 \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni til \u00feess a\u00f0 gj\u00f6rey\u00f0a \u00feeim.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>En \u00e9g gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 samt ekki, fyrir nafns m\u00edns sakir, svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 skyldi eigi vanhelga\u00f0 ver\u00f0a \u00ed augum hei\u00f0ingja \u00feeirra, er horft h\u00f6f\u00f0u \u00e1 a\u00f0 \u00e9g flutti \u00fe\u00e1 burt.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>\u00de\u00f3 s\u00f3r \u00e9g \u00feeim \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni, a\u00f0 \u00e9g skyldi ekki lei\u00f0a \u00fe\u00e1 inn \u00ed landi\u00f0, sem \u00e9g haf\u00f0i gefi\u00f0 \u00feeim og fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi, \u00fea\u00f0 er pr\u00fd\u00f0i me\u00f0al landanna,<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6fnu\u00f0u l\u00f6gum m\u00ednum og breyttu ekki eftir bo\u00f0or\u00f0um m\u00ednum og vanhelgu\u00f0u hv\u00edldardaga m\u00edna, \u00fev\u00ed a\u00f0 hjarta \u00feeirra elti skur\u00f0go\u00f0 \u00feeirra.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>En \u00e9g kenndi \u00ed brj\u00f3sti um \u00fe\u00e1 meir en svo a\u00f0 \u00e9g vildi tort\u00edma \u00feeim, og gj\u00f6r\u00f0i \u00fev\u00ed ekki \u00fat af vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og \u00e9g sag\u00f0i vi\u00f0 sonu \u00feeirra \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni: Breyti\u00f0 ekki eftir si\u00f0venjum fe\u00f0ra y\u00f0ar og haldi\u00f0 eigi l\u00f6g \u00feeirra og saurgi\u00f0 y\u00f0ur ekki \u00e1 skur\u00f0go\u00f0um \u00feeirra.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 y\u00f0ar, lifi\u00f0 eftir bo\u00f0or\u00f0um m\u00ednum og haldi\u00f0 l\u00f6g m\u00edn og breyti\u00f0 eftir \u00feeim.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og haldi\u00f0 helga hv\u00edldardaga m\u00edna, og s\u00e9u \u00feeir sambandst\u00e1kn milli m\u00edn og y\u00f0ar, til \u00feess a\u00f0 menn vi\u00f0urkenni, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn, Gu\u00f0 y\u00f0ar.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>&#8222;En synirnir voru m\u00e9r m\u00f3tsn\u00fanir: \u00deeir lif\u00f0u ekki eftir bo\u00f0or\u00f0um m\u00ednum og h\u00e9ldu ekki l\u00f6g m\u00edn, svo a\u00f0 \u00feeir breyttu eftir \u00feeim, sem ma\u00f0urinn \u00fe\u00f3 \u00e1 a\u00f0 halda, til \u00feess a\u00f0 hann megi lifa; hv\u00edldardaga m\u00edna vanhelgu\u00f0u \u00feeir. \u00de\u00e1 hug\u00f0i \u00e9g a\u00f0 \u00fathella rei\u00f0i minni yfir \u00fe\u00e1, a\u00f0 svala heift minni \u00e1 \u00feeim \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni.&#8220;<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>En \u00e9g dr\u00f3 h\u00f6ndina aftur a\u00f0 m\u00e9r og gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki, fyrir nafns m\u00edns sakir, svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 skyldi eigi vanhelga\u00f0 ver\u00f0a \u00ed augum hei\u00f0ingja \u00feeirra, er horft h\u00f6f\u00f0u \u00e1, a\u00f0 \u00e9g flutti \u00fe\u00e1 burt.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>\u00de\u00f3 s\u00f3r \u00e9g \u00feeim \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni, a\u00f0 \u00e9g skyldi tv\u00edstra \u00feeim me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna og dreifa \u00feeim \u00fat um l\u00f6ndin,<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00e9ldu ekki l\u00f6g m\u00edn og h\u00f6fnu\u00f0u bo\u00f0or\u00f0um m\u00ednum og vanhelgu\u00f0u hv\u00edldardaga m\u00edna og h\u00f6f\u00f0u ekki augun af skur\u00f0go\u00f0um fe\u00f0ra sinna.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>\u00c9g gaf \u00feeim \u00fe\u00e1 og bo\u00f0or\u00f0, sem ekki voru holl, og l\u00f6g, er \u00feeim eigi voru til l\u00edfs lagin.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00c9g l\u00e9t \u00fe\u00e1 saurga sig \u00e1 f\u00f3rnargj\u00f6fum s\u00ednum, \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 brenna \u00ed eldi alla frumbur\u00f0i, til \u00feess a\u00f0 \u00feeim skyldi ofbj\u00f3\u00f0a, svo a\u00f0 \u00feeir yr\u00f0u a\u00f0 kannast vi\u00f0, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Tala \u00fe\u00fa \u00feess vegna til \u00cdsraelsmanna, mannsson, og seg vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Enn fremur hafa fe\u00f0ur y\u00f0ar sm\u00e1na\u00f0 mig me\u00f0 \u00feessu, a\u00f0 \u00feeir rufu tr\u00fana\u00f0 vi\u00f0 mig.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>\u00deegar \u00e9g haf\u00f0i flutt \u00fe\u00e1 inn \u00ed landi\u00f0, sem \u00e9g haf\u00f0i heiti\u00f0 \u00feeim me\u00f0 ei\u00f0i a\u00f0 gefa \u00feeim, og \u00feeir komu einhvers sta\u00f0ar auga \u00e1 h\u00e1a h\u00e6\u00f0 og \u00fe\u00e9ttlaufga\u00f0 tr\u00e9, \u00fe\u00e1 sl\u00e1tru\u00f0u \u00feeir \u00fear f\u00f3rnum s\u00ednum og b\u00e1ru \u00fear fram hinar andstyggilegu gjafir s\u00ednar og l\u00e9tu \u00fear \u00fe\u00e6gilegan ilm sinn upp st\u00edga og dreyptu \u00fear dreypif\u00f3rnum s\u00ednum.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i \u00e9g vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Hva\u00f0a bl\u00f3th\u00e6\u00f0 er \u00feetta, sem \u00fe\u00e9r fari\u00f0 upp \u00e1? Fyrir \u00fev\u00ed er h\u00fan k\u00f6llu\u00f0 h\u00e6\u00f0 allt til \u00feessa dags.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Seg \u00fev\u00ed vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Vilji\u00f0 \u00fe\u00e9r saurga y\u00f0ur \u00e1 sama h\u00e1tt og fe\u00f0ur y\u00f0ar og dr\u00fdgja h\u00f3r me\u00f0 vi\u00f0urstygg\u00f0um \u00feeirra?<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>J\u00e1, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bera fram f\u00f3rnargjafir y\u00f0ar, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta sonu y\u00f0ar ganga gegnum eld, saurgi\u00f0 \u00fe\u00e9r y\u00f0ur \u00e1 \u00f6llum skur\u00f0go\u00f0um y\u00f0ar allt til \u00feessa dags, og \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 l\u00e1ta y\u00f0ur ganga til fr\u00e9tta vi\u00f0 mig, \u00fe\u00e9r \u00cdsraelsmenn? Svo sannarlega sem \u00e9g lifi, segir Drottinn Gu\u00f0, vil \u00e9g ekki l\u00e1ta y\u00f0ur ganga til fr\u00e9tta vi\u00f0 mig.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Ekki skal \u00fea\u00f0 heldur ver\u00f0a, sem y\u00f0ur hefir til hugar komi\u00f0. \u00de\u00e9r hugsi\u00f0: V\u00e9r viljum vera sem a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir, sem kynsl\u00f3\u00f0ir hei\u00f0nu landanna, og tilbi\u00f0ja stokka og steina.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>Svo sannarlega sem \u00e9g lifi, segir Drottinn Gu\u00f0 skal \u00e9g r\u00edkja yfir y\u00f0ur me\u00f0 sterkri hendi, \u00fatr\u00e9ttum armlegg og fossandi heift.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>Og \u00e9g mun flytja y\u00f0ur fr\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0unum og safna y\u00f0ur \u00far l\u00f6ndunum, \u00feanga\u00f0 sem y\u00f0ur var tv\u00edstra\u00f0, me\u00f0 sterkri hendi, \u00fatr\u00e9ttum armlegg og fossandi heift,<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>og lei\u00f0a y\u00f0ur inn \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina milli \u00fej\u00f3\u00f0anna og ganga \u00fear \u00ed d\u00f3m vi\u00f0 y\u00f0ur augliti til auglitis.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>Eins og \u00e9g gekk \u00ed d\u00f3m vi\u00f0 fe\u00f0ur y\u00f0ar \u00ed Egyptalands ey\u00f0im\u00f6rk, svo mun \u00e9g og ganga \u00ed d\u00f3m vi\u00f0 y\u00f0ur, segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>\u00c9g mun l\u00e1ta y\u00f0ur renna fram hj\u00e1 m\u00e9r undir stafnum og l\u00e1ta y\u00f0ur gangast undir skyldukv\u00f6\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1lans.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>Og \u00e9g skil \u00fe\u00e1 fr\u00e1 y\u00f0ur, er gj\u00f6r\u00f0ust m\u00e9r m\u00f3tsn\u00fanir og rufu tr\u00fana\u00f0 vi\u00f0 mig. \u00c9g vil flytja \u00fe\u00e1 burt \u00far \u00fev\u00ed landi, \u00fear sem \u00feeir dv\u00f6ldust sem \u00fatlendingar, en inn \u00ed \u00cdsraelsland skulu \u00feeir ekki koma, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r vi\u00f0urkenni\u00f0, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>En \u00fe\u00e9r, \u00cdsraelsmenn, svo segir Drottinn Gu\u00f0: Fari hver y\u00f0ar og \u00fej\u00f3ni skur\u00f0go\u00f0um s\u00ednum. En eftir \u00feetta skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r vissulega hl\u00fd\u00f0a \u00e1 mig og eigi framar vanhelga mitt heilaga nafn me\u00f0 f\u00f3rnargj\u00f6fum y\u00f0ar og skur\u00f0go\u00f0um.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e1 m\u00ednu heilaga fjalli, \u00e1 fjallhnj\u00faki \u00cdsraels, segir Drottinn Gu\u00f0, munu allir \u00cdsraelsmenn, eins og \u00feeir eru margir til, \u00fej\u00f3na m\u00e9r. \u00dear mun \u00e9g taka \u00feeim n\u00e1\u00f0arsamlega, og \u00fear mun \u00e9g girnast f\u00f3rnargjafir y\u00f0ar og frumgr\u00f3\u00f0af\u00f3rnir \u00e1samt \u00f6llu, sem \u00fe\u00e9r helgi\u00f0.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>\u00c9g mun taka y\u00f0ur n\u00e1\u00f0arsamlega sem \u00fe\u00e6gilegum ilm, \u00feegar \u00e9g flyt y\u00f0ur fr\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0unum og safna y\u00f0ur \u00far l\u00f6ndunum, \u00feanga\u00f0 sem y\u00f0ur var tv\u00edstra\u00f0, og \u00fe\u00e1 skal \u00e9g s\u00fdna mig heilagan \u00e1 y\u00f0ur \u00ed augs\u00fdn \u00fej\u00f3\u00f0anna.<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>Og \u00fe\u00e1 skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn, er \u00e9g lei\u00f0i y\u00f0ur inn \u00ed \u00cdsraelsland, inn \u00ed landi\u00f0, sem \u00e9g s\u00f3r a\u00f0 gefa fe\u00f0rum y\u00f0ar.<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>\u00dear munu\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 minnast breytni y\u00f0ar og allra verka y\u00f0ar, er \u00fe\u00e9r saurgu\u00f0u\u00f0 y\u00f0ur \u00e1, og y\u00f0ur mun bj\u00f3\u00f0a vi\u00f0 sj\u00e1lfum y\u00f0ur s\u00f6kum allra \u00feeirra illverka, er \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 frami\u00f0.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn, er \u00e9g fer svo me\u00f0 y\u00f0ur vegna nafns m\u00edns, en fer ekki me\u00f0 y\u00f0ur eftir y\u00f0ar vondu breytni og y\u00f0ar gl\u00e6psamlegu verkum, \u00cdsraelsmenn, segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>Og or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:<a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>Mannsson, horf \u00fe\u00fa \u00ed su\u00f0ur\u00e1tt og l\u00e1t or\u00f0 \u00fe\u00edn streyma m\u00f3t h\u00e1degissta\u00f0 og sp\u00e1 m\u00f3ti sk\u00f3ginum \u00ed Su\u00f0urlandinu,<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>og seg vi\u00f0 sk\u00f3ginn \u00ed Su\u00f0urlandinu: Heyr or\u00f0 Drottins! Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Sj\u00e1, \u00e9g kveiki eld \u00ed \u00fe\u00e9r, sem ey\u00f0a skal hverju gr\u00e6nu tr\u00e9 og hverjum \u00feurrum vi\u00f0i, sem \u00ed \u00fe\u00e9r er. Eldsloginn skal ekki slokkna, og \u00f6ll andlit skulu svi\u00f0na af honum fr\u00e1 su\u00f0ri til nor\u00f0urs.<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>Og allir menn skulu sj\u00e1, a\u00f0 \u00e9g, Drottinn, hefi kveikt hann, hann skal ekki slokkna.<a name=\"49\"><span class=\"versanumer\">49<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i \u00e9g: \u00c6, Drottinn Gu\u00f0! \u00deeir segja um mig: Talar hann ekki \u00e1vallt \u00ed r\u00e1\u00f0g\u00e1tum?<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>20.4<\/b> D\u00e6ma Esk 22.2; 23.36<br \/>\n<b>20.5<\/b> \u00datvalning 5M\u00f3s 4.34; 7.6; 10.15; 14.2<br \/>\n<b>20.6<\/b> Ei\u00f0ur, gj\u00f6f landsins Esk 20.28; 2M\u00f3s 6.6-8; 5M\u00f3s 6.23; 7.8; 10.11; 28.11 \u2013 mj\u00f3lk og hunang 2M\u00f3s 3.17; 33.3; 4M\u00f3s 13.27; 5M\u00f3s 6.3; 11.9; 26.9,15; 27.3<br \/>\n<b>20.7<\/b> Skur\u00f0go\u00f0 Egyptalands Jer 46.14,15; sbr Esk 23.3; 3M\u00f3s 18.3<br \/>\n<b>20.9<\/b> Nafn Drottins Esk 20.13,14,21,22; 3M\u00f3s 18.5; 5M\u00f3s 30.15-16; 32.46-47; Jes 48.11; S\u00edr 15.15-17; sbr R\u00f3m 6.22-23<br \/>\n<b>20.13<\/b> \u00d3hl\u00fd\u00f0ni \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni 2M\u00f3s 14.11-12; 15.24; 16.2-3,20,27-28; 4M\u00f3s 11.1,4-6; 14.1-4; 16.1-15; 20.1-5; 27.14<br \/>\n<b>20.15<\/b> \u00c9g s\u00f3r 4M\u00f3s 14.22-23,30; 20.12; 5M\u00f3s 1.34-37<br \/>\n<b>20.32<\/b> Stokkar og steinar 5M\u00f3s 4.28; 28.36,64; 29.17; 2Kon 19.218; Jer 3.9; sbr Jer 2.27; Hab 2.19<br \/>\n<b>20.34<\/b> Me\u00f0 sterkri hendi 2M\u00f3s 3.20; 6.1,6; 5M\u00f3s 4.34; 5.15; 7.19; 11.2; 26.8<br \/>\n<b>20.40<\/b> \u00c1 hinu h\u00e1a fjalli Esk 40.2 \u2013 hi\u00f0 heilaga fjall Jes 2.1-3; 11.9; 24.23; 56.7; Slm 2.6; 15.1; 48.3<br \/>\n<b>20.42<\/b> \u00c9g er Drottinn Esk 20.44; 34.30; 2M\u00f3s 6.7; 16.12; 29.46; sbr Esk 5.13+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00c1 sj\u00f6unda \u00e1rinu, t\u00edunda dag hins fimmta m\u00e1na\u00f0ar, komu nokkrir af \u00f6ldungum \u00cdsraels til \u00feess a\u00f0 ganga til fr\u00e9tta vi\u00f0 Drottin, og settust ni\u00f0ur frammi fyrir m\u00e9r.2\u00de\u00e1 kom or\u00f0 Drottins til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi: Mannsson, tala \u00fe\u00fa til \u00f6ldunga \u00cdsraels og seg vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo segir Drottinn Gu\u00f0:3\u00de\u00e9r eru\u00f0 komnir til \u00feess a\u00f0 ganga til fr\u00e9tta vi\u00f0 mig? Svo sannarlega sem \u00e9g lifi vil \u00e9g eigi l\u00e1ta y\u00f0ur ganga til fr\u00e9tta vi\u00f0 mig, segir Drottinn Gu\u00f0.4En viljir \u00fe\u00fa d\u00e6ma \u00fe\u00e1, viljir \u00fe\u00fa d\u00e6ma, mannsson, \u00fe\u00e1 lei\u00f0 \u00feeim fyrir sj\u00f3nir sv\u00edvir\u00f0ingar fe\u00f0ra \u00feeirra og seg vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo segir Drottinn Gu\u00f0:5\u00deegar \u00e9g <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-20-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2169","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2169","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2169"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2169\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2169"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}