{"id":2167,"date":"2017-11-18T20:20:27","date_gmt":"2017-11-18T20:20:27","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-18-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:47","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:47","slug":"esekiel-18-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-18-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 18. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Og or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Hva\u00f0 kemur til, a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 \u00feetta or\u00f0tak um \u00cdsraelsland: Fe\u00f0urnir \u00e1tu s\u00far v\u00ednber, og tennur barnanna ur\u00f0u slj\u00f3ar?<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Svo sannarlega sem \u00e9g lifi, segir Drottinn Gu\u00f0, skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki framar hafa \u00feetta or\u00f0tak \u00ed \u00cdsrael.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Sj\u00e1, m\u00ednar eru s\u00e1lirnar allar, s\u00e1l f\u00f6\u00f0urins eins og s\u00e1l sonarins, m\u00ednar eru \u00fe\u00e6r. S\u00fa s\u00e1lin, sem syndgar, h\u00fan skal deyja.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Hver s\u00e1 ma\u00f0ur, sem er r\u00e1\u00f0vandur og i\u00f0kar r\u00e9tt og r\u00e9ttl\u00e6ti,<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>sem etur ekki f\u00f3rnarkj\u00f6t \u00e1 fj\u00f6llunum og hefur ekki augu s\u00edn til skur\u00f0go\u00f0a \u00cdsraelsmanna, flekkar ekki konu n\u00e1unga s\u00edns og kemur ekki n\u00e6rri konu me\u00f0an h\u00fan hefir kl\u00e6\u00f0af\u00f6ll,<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>sem engan undirokar og skilar aftur skuldave\u00f0i s\u00ednu, tekur ekki neitt fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum me\u00f0 ofbeldi, sem gefur brau\u00f0 sitt hungru\u00f0um og sk\u00fdlir nakinn mann kl\u00e6\u00f0um,<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>sem l\u00e1nar ekki f\u00e9 gegn leigu og tekur ekki vexti af l\u00e1nsf\u00e9, sem heldur hendi sinni fr\u00e1 \u00fev\u00ed, sem rangt er, og d\u00e6mir r\u00e9tt \u00ed deilum\u00e1lum manna,<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>sem breytir eftir bo\u00f0or\u00f0um m\u00ednum og var\u00f0veitir skipanir m\u00ednar, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt er, hann er r\u00e1\u00f0vandur og skal vissulega lifa, segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>En eignist hann ofbeldisfullan son, sem \u00fathellir bl\u00f3\u00f0i og fremur rangl\u00e6ti,<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>sem ekki fetar \u00ed f\u00f3tspor s\u00edns r\u00e1\u00f0vanda f\u00f6\u00f0ur, heldur etur f\u00f3rnarkj\u00f6t \u00e1 fj\u00f6llunum og flekkar konu n\u00e1unga s\u00edns,<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>undirokar vola\u00f0a og snau\u00f0a, tekur fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum me\u00f0 ofbeldi, skilar ekki aftur ve\u00f0i og hefur augu s\u00edn til skur\u00f0go\u00f0a, fremur sv\u00edvir\u00f0ingar,<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>l\u00e1nar f\u00e9 gegn leigu og tekur vexti af l\u00e1nsf\u00e9, \u00e6tti hann a\u00f0 halda l\u00edfi? Hann skal ekki l\u00edfi halda! Af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefir frami\u00f0 allar \u00feessar sv\u00edvir\u00f0ingar, skal hann vissulega deyja. Bl\u00f3\u00f0 hans komi yfir hann!<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>En eignist hann son, sem s\u00e9r allar \u00fe\u00e6r syndir, sem fa\u00f0ir hans dr\u00fdg\u00f0i, og \u00f3ttast og breytir ekki eftir \u00feeim,<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>etur ekki f\u00f3rnarkj\u00f6t \u00e1 fj\u00f6llunum og hefur ekki augu s\u00edn til skur\u00f0go\u00f0a \u00cdsraelsmanna, flekkar ekki konu n\u00e1unga s\u00edns<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>og undirokar engan, tekur ekkert ve\u00f0 og tekur ekkert fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum me\u00f0 ofbeldi, gefur brau\u00f0 sitt hungru\u00f0um og sk\u00fdlir nakinn mann kl\u00e6\u00f0um,<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>heldur hendi sinni fr\u00e1 \u00fev\u00ed, sem rangt er, tekur ekki vexti n\u00e9 fj\u00e1rleigu, heldur skipanir m\u00ednar og breytir eftir bo\u00f0or\u00f0um m\u00ednum, s\u00e1 skal ekki deyja sakir misgj\u00f6r\u00f0a f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, heldur skal hann vissulega l\u00edfi halda.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>En af \u00fev\u00ed a\u00f0 fa\u00f0ir hans hefir beitt k\u00fagun og teki\u00f0 fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum me\u00f0 ofbeldi og gj\u00f6rt \u00fea\u00f0, sem ekki var gott, me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0ar sinnar, \u00fe\u00e1 hl\u00fdtur hann a\u00f0 deyja fyrir misgj\u00f6r\u00f0 s\u00edna.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Og \u00fe\u00e1 segi\u00f0 \u00fe\u00e9r: Hv\u00ed geldur sonurinn ekki misgj\u00f6r\u00f0ar f\u00f6\u00f0ur s\u00edns? \u00dear sem \u00fe\u00f3 sonurinn i\u00f0ka\u00f0i r\u00e9tt og r\u00e9ttl\u00e6ti, var\u00f0veitti \u00f6ll bo\u00f0or\u00f0 m\u00edn og breytti eftir \u00feeim, skal hann vissulega l\u00edfi halda.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>S\u00e1 ma\u00f0ur, sem syndgar, hann skal deyja. Sonur skal eigi gjalda misgj\u00f6r\u00f0ar f\u00f6\u00f0ur s\u00edns og fa\u00f0ir skal eigi gjalda misgj\u00f6r\u00f0ar sonar s\u00edns. R\u00e1\u00f0vendni hins r\u00e1\u00f0vanda skal koma ni\u00f0ur \u00e1 honum og \u00f3gu\u00f0leiki hins \u00f3gu\u00f0lega skal koma ni\u00f0ur \u00e1 honum.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Ef hinn \u00f3gu\u00f0legi hverfur fr\u00e1 \u00f6llum syndum s\u00ednum, sem hann hefir dr\u00fdgt, og heldur \u00f6ll m\u00edn bo\u00f0or\u00f0 og i\u00f0kar r\u00e9tt og r\u00e9ttl\u00e6ti, \u00fe\u00e1 skal hann vissulega l\u00edfi halda og ekki deyja.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00d6ll hans afbrot, sem hann hefir dr\u00fdgt, skulu honum \u00fe\u00e1 eigi tilreiknu\u00f0 ver\u00f0a. Vegna r\u00e1\u00f0vendninnar, sem hann hefir i\u00f0ka\u00f0, skal hann l\u00edfi halda.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>\u00c6tli \u00e9g hafi \u00fe\u00f3knun \u00e1 dau\u00f0a hins \u00f3gu\u00f0lega segir Drottinn Gu\u00f0 og ekki miklu fremur \u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 hann hverfi fr\u00e1 sinni illu breytni og haldi l\u00edfi?<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>En hverfi hinn r\u00e1\u00f0vandi fr\u00e1 r\u00e1\u00f0vendni sinni og fremji \u00fea\u00f0, sem rangt er, \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 allar \u00fe\u00e6r sv\u00edvir\u00f0ingar, er hinn \u00f3gu\u00f0legi hefir frami\u00f0, \u00fe\u00e1 skal \u00f6ll s\u00fa r\u00e1\u00f0vendni, er hann hefir i\u00f0ka\u00f0, ekki til \u00e1lita koma. Fyrir \u00fea\u00f0 trygg\u00f0rof, sem hann hefir s\u00fdnt, og \u00fe\u00e1 synd, sem hann hefir dr\u00fdgt, fyrir \u00fe\u00e6r skal hann deyja.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>En er \u00fe\u00e9r segi\u00f0: Atferli Drottins er ekki r\u00e9tt! \u00fe\u00e1 heyri\u00f0, \u00fe\u00e9r \u00cdsraelsmenn: \u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9 mitt atferli, sem ekki er r\u00e9tt? \u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki fremur y\u00f0ar atferli, sem ekki er r\u00e9tt?<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Ef r\u00e1\u00f0vandur ma\u00f0ur hverfur fr\u00e1 r\u00e1\u00f0vendni sinni og gj\u00f6rir \u00fea\u00f0, sem rangt er, \u00fe\u00e1 hl\u00fdtur hann a\u00f0 deyja vegna \u00feess. Vegna gl\u00e6ps \u00feess, er hann hefir frami\u00f0, hl\u00fdtur hann a\u00f0 deyja.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>En \u00feegar \u00f3gu\u00f0legur ma\u00f0ur hverfur fr\u00e1 \u00f3gu\u00f0leik s\u00ednum, sem hann hefir \u00ed frammi haft, og i\u00f0kar r\u00e9tt og r\u00e9ttl\u00e6ti, \u00fe\u00e1 mun hann bjarga l\u00edfi s\u00ednu.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 hann sneri s\u00e9r fr\u00e1 \u00f6llum syndum s\u00ednum, er hann haf\u00f0i frami\u00f0, fyrir \u00fev\u00ed mun hann vissulega l\u00edfi halda og ekki deyja.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Og \u00feegar \u00cdsraelsmenn segja: Atferli Drottins er ekki r\u00e9tt! \u00e6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9 atferli mitt, sem ekki er r\u00e9tt, \u00fe\u00e9r \u00cdsraelsmenn? \u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki fremur atferli y\u00f0ar, sem ekki er r\u00e9tt?<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed mun \u00e9g d\u00e6ma s\u00e9rhvern y\u00f0ar eftir breytni hans, \u00fe\u00e9r \u00cdsraelsmenn, segir Drottinn Gu\u00f0. Sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur og l\u00e1ti\u00f0 af \u00f6llum syndum y\u00f0ar, til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r ver\u00f0i y\u00f0ur ekki f\u00f3takefli til hr\u00f6sunar.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>Varpi\u00f0 fr\u00e1 y\u00f0ur \u00f6llum syndum y\u00f0ar, er \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 dr\u00fdgt \u00ed gegn m\u00e9r, og f\u00e1i\u00f0 y\u00f0ur n\u00fdtt hjarta og n\u00fdjan anda. \u00dev\u00ed a\u00f0 hvers vegna vilji\u00f0 \u00fe\u00e9r deyja, \u00cdsraelsmenn?<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hefi eigi vel\u00fe\u00f3knun \u00e1 dau\u00f0a nokkurs manns, segir Drottinn Gu\u00f0. L\u00e1ti\u00f0 \u00fev\u00ed af, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 lifa.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>18.6<\/b> Skur\u00f0go\u00f0 2M\u00f3s 20.3; 3M\u00f3s 19.4; 5M\u00f3s 5.7; 6.14-15; 13 \u2013 kona n\u00e1ungans 2M\u00f3s 20.14; 3M\u00f3s 18.29; 20.10; 5M\u00f3s 5.18 \u2013 \u00f3hrein kona 3M\u00f3s 18.19<br \/>\n<b>18.7<\/b> Beitir engan ofr\u00edki 3M\u00f3s 19.13; 5M\u00f3s 24.14-15 \u2013 skuldave\u00f0 2M\u00f3s 22.25-26; 5M\u00f3s 24.6,10-13 \u2013 r\u00e1n 3M\u00f3s 19.11; 5M\u00f3s 23.24-25; Jes 5.8 \u2013 gefa mat, kl\u00e6\u00f0i 3M\u00f3s 19.9-10; 5M\u00f3s 24.19-20; 26.12<br \/>\n<b>18.8<\/b> L\u00e1na f\u00e9 gegn leigu, vextir 2M\u00f3s 22.25; 3M\u00f3s 25.35-37; 5M\u00f3s 23.19 \u2013 fella \u00farskur\u00f0 2M\u00f3s 23.6-8; 3M\u00f3s 19.15-18,35; 2M\u00f3s 25.13-16<br \/>\n<b>18.20<\/b> \u00c1byrg\u00f0 einstaklingsins Esk 14.12-20; 5M\u00f3s 7.10; 24.16; 2Kon 14.6; Jer 31.29-30 \u2013 sameiginleg \u00e1byrg\u00f0 1M\u00f3s 18.22-32; 2M\u00f3s 20.5-6; 34.7; 3M\u00f3s 26.39; 4M\u00f3s 14.33<br \/>\n<b>18.31<\/b> N\u00fdtt hjarta, n\u00fdr andi Esk 11.19+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Og or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:2Hva\u00f0 kemur til, a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 \u00feetta or\u00f0tak um \u00cdsraelsland: Fe\u00f0urnir \u00e1tu s\u00far v\u00ednber, og tennur barnanna ur\u00f0u slj\u00f3ar?3Svo sannarlega sem \u00e9g lifi, segir Drottinn Gu\u00f0, skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki framar hafa \u00feetta or\u00f0tak \u00ed \u00cdsrael.4Sj\u00e1, m\u00ednar eru s\u00e1lirnar allar, s\u00e1l f\u00f6\u00f0urins eins og s\u00e1l sonarins, m\u00ednar eru \u00fe\u00e6r. S\u00fa s\u00e1lin, sem syndgar, h\u00fan skal deyja.5Hver s\u00e1 ma\u00f0ur, sem er r\u00e1\u00f0vandur og i\u00f0kar r\u00e9tt og r\u00e9ttl\u00e6ti,6sem etur ekki f\u00f3rnarkj\u00f6t \u00e1 fj\u00f6llunum og hefur ekki augu s\u00edn til skur\u00f0go\u00f0a \u00cdsraelsmanna, flekkar ekki konu n\u00e1unga s\u00edns og kemur ekki n\u00e6rri konu me\u00f0an h\u00fan hefir kl\u00e6\u00f0af\u00f6ll,7sem engan undirokar <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-18-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2167","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2167","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2167"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2167\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2167"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}