{"id":2165,"date":"2017-11-18T20:20:27","date_gmt":"2017-11-18T20:20:27","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-16-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:46","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:46","slug":"esekiel-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-16-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 16. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Og or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Mannsson, lei\u00f0 Jer\u00fasalem fyrir sj\u00f3nir sv\u00edvir\u00f0ingar hennar<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>og seg: Svo segir Drottinn Gu\u00f0 vi\u00f0 Jer\u00fasalem: A\u00f0 uppruna og \u00e6tterni ert \u00fe\u00fa fr\u00e1 Kanaanlandi. Fa\u00f0ir \u00feinn var Amor\u00edti og m\u00f3\u00f0ir \u00fe\u00edn Het\u00edti.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og \u00fea\u00f0 er a\u00f0 segja af f\u00e6\u00f0ing \u00feinni, a\u00f0 \u00feann dag, sem \u00fe\u00fa f\u00e6ddist, var hvorki skori\u00f0 \u00e1 naflastreng \u00feinn n\u00e9 \u00fe\u00fa laugu\u00f0 \u00ed vatni, ekki n\u00fain salti og ekki reifum vafin.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Enginn renndi til \u00fe\u00edn me\u00f0aumkunarauga til \u00feess a\u00f0 veita \u00fe\u00e9r nokkurt eitt af \u00feessu og aumkast yfir \u00feig, heldur var \u00fe\u00e9r kasta\u00f0 \u00fat \u00e1 v\u00ed\u00f0avang svo l\u00edtils var l\u00edf \u00feitt meti\u00f0 daginn sem \u00fe\u00fa f\u00e6ddist.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gekk \u00e9g fram \u00e1 \u00feig og s\u00e1 \u00feig vera a\u00f0 br\u00f6lta \u00ed bl\u00f3\u00f0i \u00fe\u00ednu og sag\u00f0i vi\u00f0 \u00feig: \u00de\u00fa, sem liggur \u00fearna \u00ed bl\u00f3\u00f0i \u00fe\u00ednu, halt \u00fe\u00fa l\u00edfi! Og \u00e9g lauga\u00f0i \u00feig \u00ed vatni, \u00fevo\u00f0i af \u00fe\u00e9r bl\u00f3\u00f0i\u00f0 og smur\u00f0i \u00feig me\u00f0 ol\u00edfuol\u00edu.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa \u00f3xt eins og gr\u00f6s vallarins, og \u00fe\u00fa st\u00e6kka\u00f0ir og var\u00f0st mikil vexti og hin fr\u00ed\u00f0asta s\u00fdnum. Brj\u00f3stin voru or\u00f0in stinn og h\u00e1r \u00feitt \u00f3x mj\u00f6g, en \u00fe\u00f3 varstu ber og nakin.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00de\u00e1 var\u00f0 m\u00e9r gengi\u00f0 fram \u00e1 \u00feig og \u00e9g s\u00e1 \u00feig, og var \u00fe\u00e1 \u00feinn t\u00edmi \u00e1starinnar t\u00edmi. \u00c9g breiddi yfir \u00feig \u00e1brei\u00f0u m\u00edna og huldi nekt \u00fe\u00edna, \u00e9g tr\u00falofa\u00f0ist \u00fe\u00e9r og gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 \u00feig s\u00e1ttm\u00e1la \u2013 segir Drottinn Gu\u00f0 \u2013 og \u00fe\u00fa var\u00f0st m\u00edn. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og \u00e9g f\u00e6r\u00f0i \u00feig \u00ed glitkl\u00e6\u00f0i og f\u00e9kk \u00fe\u00e9r sk\u00f3 af h\u00f6frungaskinni, falda\u00f0i \u00fe\u00e9r me\u00f0 hv\u00edtu l\u00edni og huldi \u00feig silkibl\u00e6ju.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00c9g skreytti \u00feig skarti, spennti armbaugum um handleggi \u00fe\u00edna og festi um h\u00e1ls \u00feinn.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00c9g l\u00e9t \u00e1 \u00feig nefhring og eyrnagull og veglega k\u00f3r\u00f3nu \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 \u00fe\u00e9r.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00de\u00fa varst pr\u00fddd gulli og silfri, og kl\u00e6\u00f0na\u00f0ur \u00feinn var \u00far hv\u00edtu l\u00edni, silki og glitvefna\u00f0i. \u00de\u00fa neyttir hveitimj\u00f6ls, hunangs og ol\u00edfuol\u00edu, og \u00fe\u00fa var\u00f0st fr\u00e1b\u00e6rlega fr\u00ed\u00f0 og komst jafnvel \u00ed konunglega tign.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Og n\u00fa f\u00f3r or\u00f0 af \u00fe\u00e9r til hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a s\u00f6kum fegur\u00f0ar \u00feinnar, \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan var fullkomin fyrir skart \u00fea\u00f0, er \u00e9g haf\u00f0i \u00e1 \u00feig l\u00e1ti\u00f0 segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>En \u00fe\u00fa reiddir \u00feig \u00e1 fegur\u00f0 \u00fe\u00edna og h\u00f3ra\u00f0ist upp \u00e1 fr\u00e6g\u00f0 \u00fe\u00edna, og \u00fe\u00fa j\u00f3st h\u00f3rd\u00f3mi \u00fe\u00ednum \u00fat yfir hvern, sem fram hj\u00e1 gekk.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa t\u00f3kst nokku\u00f0 af f\u00f6tum \u00fe\u00ednum og gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00e9r mislitar f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0ir, og \u00fe\u00fa dr\u00fdg\u00f0ir h\u00f3rd\u00f3m \u00e1 \u00feeim.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa t\u00f3kst skartgripina af gulli \u00fev\u00ed og silfri, er \u00e9g haf\u00f0i gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r, og gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00e9r karlmannsl\u00edkneski af og dr\u00fdg\u00f0ir h\u00f3rd\u00f3m me\u00f0 \u00feeim.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa t\u00f3kst glitkl\u00e6\u00f0i \u00fe\u00edn og lag\u00f0ir yfir \u00feau, og ol\u00edu m\u00edna og reykelsi settir \u00fe\u00fa fyrir \u00feau.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Og brau\u00f0 mitt, \u00fea\u00f0 er \u00e9g haf\u00f0i gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r, hveitimj\u00f6li\u00f0, ol\u00eduna og hunangi\u00f0, er \u00e9g haf\u00f0i gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 eta, \u00fea\u00f0 settir \u00fe\u00fa fyrir \u00feau til \u00fe\u00e6gilegs f\u00f3rnarilms segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa t\u00f3kst sonu \u00fe\u00edna og d\u00e6tur, sem \u00fe\u00fa haf\u00f0ir ali\u00f0 m\u00e9r, og bl\u00f3ta\u00f0ir \u00feeim til f\u00e6\u00f0slu fyrir skur\u00f0go\u00f0in. Var ekki h\u00f3rd\u00f3mur \u00feinn n\u00f3gur,<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fe\u00fa sl\u00e1tra\u00f0ir ekki b\u00f6rnum m\u00ednum og g\u00e6fir \u00feau skur\u00f0go\u00f0um, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 brenna \u00feau \u00feeim til hei\u00f0urs.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Og \u00ed \u00f6llum sv\u00edvir\u00f0ingum \u00fe\u00ednum og h\u00f3rd\u00f3mi minntist \u00fe\u00fa ekki bernskudaga \u00feinna, \u00fe\u00e1 er \u00fe\u00fa varst ber og nakin og br\u00f6ltir \u00ed bl\u00f3\u00f0i \u00fe\u00ednu.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og ofan \u00e1 alla illsku \u00fe\u00edna, vei, vei \u00fe\u00e9r! segir Drottinn Gu\u00f0,<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 reistir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e9r h\u00f6rga og hl\u00f3\u00f0st \u00fe\u00e9r upp bl\u00f3tstalla \u00e1 \u00f6llum torgum.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>\u00c1 \u00f6llum gatnam\u00f3tum reistir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e9r bl\u00f3tstalla og \u00f3s\u00e6mdir fr\u00ed\u00f0leik \u00feinn og glenntir sundur f\u00e6tur \u00fe\u00edna framan \u00ed hvern, sem fram hj\u00e1 gekk. Og \u00fe\u00fa dr\u00fdg\u00f0ir enn meiri h\u00f3rd\u00f3m:<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00de\u00fa dr\u00fdg\u00f0ir h\u00f3rd\u00f3m me\u00f0 Egyptum, hinum hre\u00f0urmiklu n\u00e1b\u00faum \u00fe\u00ednum, og \u00fe\u00fa dr\u00fdg\u00f0ir enn meiri h\u00f3rd\u00f3m, til \u00feess a\u00f0 reita mig til rei\u00f0i.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>\u00de\u00e1 r\u00e9tti \u00e9g \u00fat h\u00f6nd m\u00edna \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r og minnka\u00f0i skammt \u00feinn og ofurseldi \u00feig gr\u00e6\u00f0gi fjandkvenna \u00feinna, d\u00e6tra Filista, sem fyrirur\u00f0u sig fyrir saurl\u00edfisath\u00e6fi \u00feitt.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa dr\u00fdg\u00f0ir h\u00f3rd\u00f3m me\u00f0 Ass\u00fdr\u00edum\u00f6nnum, \u00e1n \u00feess a\u00f0 f\u00e1 n\u00e6gju \u00fe\u00edna, \u00fe\u00fa h\u00f3ra\u00f0ist me\u00f0 \u00feeim og f\u00e9kkst \u00fe\u00f3 ekki n\u00e6gju \u00fe\u00edna.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa \u00fatbreiddir h\u00f3ranir \u00fe\u00ednar til Kaldealands, og enn n\u00e6g\u00f0i \u00fe\u00e9r ekki.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Hversu brann hjarta \u00feitt af girnd segir Drottinn Gu\u00f0 er \u00fe\u00fa framdir allt \u00feetta, sem erkih\u00f3ra mundi fremja,<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 er \u00fe\u00fa reistir \u00fe\u00e9r h\u00f6rga \u00e1 \u00f6llum gatnam\u00f3tum og gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00e9r bl\u00f3tstalla \u00e1 \u00f6llum torgum. Og \u00fe\u00f3 varst \u00fe\u00fa ekki eins og sk\u00e6kja, a\u00f0 \u00fe\u00fa hr\u00faga\u00f0ir saman hv\u00edlutollum.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>H\u00f3rkona tekur a\u00f0ra menn undir b\u00f3nda sinn.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>\u00d6llum sk\u00e6kjum er vant a\u00f0 grei\u00f0a gjald, en \u00fe\u00fa \u00fear \u00e1 m\u00f3ti galtst \u00f6llum \u00e1stm\u00f6nnum \u00fe\u00ednum kaup og ginntir \u00fe\u00e1 me\u00f0 gj\u00f6fum til a\u00f0 koma til \u00fe\u00edn \u00far \u00f6llum \u00e1ttum og fremja h\u00f3rd\u00f3m me\u00f0 \u00fe\u00e9r.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>Saurlifna\u00f0ur \u00feinn var me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti en annarra kvenna. Menn hlupu ekki eftir \u00fe\u00e9r til fylgilags, heldur greiddir \u00fe\u00fa fri\u00f0ilslaun, en \u00fe\u00e9r voru engin laun goldin. Svo gagnst\u00e6tt var \u00feitt h\u00e1ttalag annarra kvenna.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>Heyr \u00fev\u00ed or\u00f0 Drottins, sk\u00e6kja!<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Af \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00fall\u00edfi \u00feitt var\u00f0 svo \u00f3stj\u00f3rnlegt og blyg\u00f0an \u00fe\u00edn var ber gj\u00f6r\u00f0 vi\u00f0 saurlifna\u00f0 \u00feinn frammi fyrir fri\u00f0lum \u00fe\u00ednum og frammi fyrir \u00f6llum hinum andstyggilegu skur\u00f0go\u00f0um \u00fe\u00ednum og vegna bl\u00f3\u00f0s barna \u00feinna, er \u00fe\u00fa bl\u00f3ta\u00f0ir \u00feeim,<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>fyrir \u00fev\u00ed skal \u00e9g saman safna \u00f6llum fri\u00f0lum \u00fe\u00ednum, \u00feeim er \u00fe\u00fa varst ge\u00f0\u00feekk, og \u00fea\u00f0 \u00f6llum \u00feeim, er \u00fe\u00fa elska\u00f0ir, \u00e1samt \u00f6llum \u00feeim, er \u00fe\u00e9r ge\u00f0jast ekki a\u00f0. \u00deeim skal \u00e9g safna saman a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00far \u00f6llum \u00e1ttum og bera gj\u00f6ra blyg\u00f0an \u00fe\u00edna frammi fyrir \u00feeim, svo a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i blyg\u00f0an \u00fe\u00edna eins og h\u00fan er.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>Og \u00e9g mun l\u00e1ta sama d\u00f3m yfir \u00feig ganga sem yfir h\u00f3rkonur og \u00fe\u00e6r, sem \u00fathella bl\u00f3\u00f0i, og \u00e9g mun s\u00fdna \u00fe\u00e9r heift og afbr\u00fd\u00f0i.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>Og \u00e9g mun selja \u00feig \u00feeim \u00ed hendur og \u00feeir munu r\u00edfa ni\u00f0ur h\u00f6rga \u00fe\u00edna og brj\u00f3ta ni\u00f0ur bl\u00f3tstalla \u00fe\u00edna og f\u00e6ra \u00feig af kl\u00e6\u00f0um \u00fe\u00ednum og taka af \u00fe\u00e9r skartgripi \u00fe\u00edna og skilja \u00feig eftir nakta og bera.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>Og \u00feeir munu gj\u00f6ra a\u00f0 \u00fe\u00e9r manns\u00f6fnu\u00f0, lemja \u00feig grj\u00f3ti og h\u00f6ggva \u00feig sundur me\u00f0 sver\u00f0um s\u00ednum.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>Og \u00feeir munu brenna h\u00fas \u00fe\u00edn \u00ed eldi og framkv\u00e6ma refsingard\u00f3m \u00e1 \u00fe\u00e9r \u00ed augs\u00fdn margra kvenna, og \u00feannig mun \u00e9g gj\u00f6ra enda \u00e1 h\u00f3rd\u00f3mi \u00fe\u00ednum, og \u00fe\u00fa munt eigi framar grei\u00f0a nein fri\u00f0ilslaun.<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>En \u00e9g mun stilla heift m\u00edna, og afbr\u00fd\u00f0i m\u00edn vi\u00f0 \u00feig skal hverfa, og \u00e9g mun halda kyrru fyrir og ekki framar gremja ge\u00f0 mitt.<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa minntist ekki bernskudaga \u00feinna og reittir mig til rei\u00f0i me\u00f0 \u00f6llu \u00feessu, l\u00e9t \u00e9g ath\u00e6fi \u00feitt \u00fe\u00e9r \u00ed koll koma segir Drottinn Gu\u00f0. Hefir \u00fe\u00fa ekki og frami\u00f0 \u00feennan gl\u00e6p ofan \u00e1 allar sv\u00edvir\u00f0ingar \u00fe\u00ednar?<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>Sj\u00e1, hver s\u00e1, er m\u00e1lsh\u00e1ttu t\u00ed\u00f0kar, mun um \u00feig hafa m\u00e1lsh\u00e1ttinn: M\u00e6r er jafnan m\u00f3\u00f0ur l\u00edk!<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>\u00de\u00fa ert d\u00f3ttir m\u00f3\u00f0ur \u00feinnar, sem rak burt b\u00f3nda sinn og b\u00f6rn s\u00edn, og \u00fe\u00fa ert systir systra \u00feinna, sem r\u00e1ku burt b\u00e6ndur s\u00edna og b\u00f6rn s\u00edn. M\u00f3\u00f0ir y\u00f0ar var Het\u00edti og fa\u00f0ir y\u00f0ar Amor\u00edti.<a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>Og eldri systir \u00fe\u00edn er Samar\u00eda og d\u00e6tur hennar, h\u00fan b\u00fdr \u00fe\u00e9r til vinstri handar, og yngri systir \u00fe\u00edn, s\u00fa er b\u00fdr \u00fe\u00e9r til h\u00e6gri handar, er S\u00f3d\u00f3ma og d\u00e6tur hennar.<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>A\u00f0 v\u00edsu gekkst \u00fe\u00fa ekki \u00ed fyrstu \u00e1 \u00feeirra vegum og framdir ekki a\u00f0rar eins sv\u00edvir\u00f0ingar og \u00fe\u00e6r, en br\u00e1tt gj\u00f6r\u00f0ist \u00fe\u00fa enn spilltari en \u00fe\u00e6r \u00ed allri breytni \u00feinni.<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>Svo sannarlega sem \u00e9g lifi, segir Drottinn Gu\u00f0: S\u00f3d\u00f3ma systir \u00fe\u00edn og d\u00e6tur hennar hafa ekki a\u00f0hafst sl\u00edkt sem \u00fe\u00fa og d\u00e6tur \u00fe\u00ednar hafa a\u00f0hafst.<a name=\"49\"><span class=\"versanumer\">49<\/span><\/a>Sj\u00e1, synd S\u00f3d\u00f3mu systur \u00feinnar var ofdramb. H\u00fan og d\u00e6tur hennar h\u00f6f\u00f0u gn\u00f3tt matar og lif\u00f0u g\u00f3\u00f0u l\u00edfi \u00ed makindum, en r\u00e9ttu \u00fe\u00f3 ekki hinum volu\u00f0u og f\u00e1t\u00e6ku hj\u00e1lparh\u00f6nd.<a name=\"50\"><span class=\"versanumer\">50<\/span><\/a>\u00de\u00e6r ur\u00f0u drambsfullar og fr\u00f6mdu sv\u00edvir\u00f0ingar fyrir augum m\u00e9r. \u00de\u00e1 svipti \u00e9g \u00feeim \u00ed burt, er \u00e9g s\u00e1 \u00fea\u00f0.<a name=\"51\"><span class=\"versanumer\">51<\/span><\/a>Samar\u00eda hefir ekki dr\u00fdgt helminginn af \u00fe\u00ednum syndum. \u00de\u00fa hefir frami\u00f0 miklu meiri sv\u00edvir\u00f0ingar en \u00fe\u00e6r, og \u00feann veg s\u00fdnt me\u00f0 \u00f6llum \u00feeim sv\u00edvir\u00f0ingum, er \u00fe\u00fa hefir frami\u00f0, a\u00f0 systur \u00fe\u00ednar eru betri en \u00fe\u00fa.<a name=\"52\"><span class=\"versanumer\">52<\/span><\/a>Ber \u00fe\u00fa n\u00fa og sj\u00e1lf sm\u00e1n \u00fe\u00edna. \u00de\u00fa sem hefir flutt m\u00e1lsv\u00f6rn fyrir systur \u00fe\u00ednar me\u00f0 syndum \u00fe\u00ednum, er voru andstyggilegri en \u00feeirra, svo a\u00f0 \u00fe\u00e6r eru h\u00e1t\u00ed\u00f0 hj\u00e1 \u00fe\u00e9r. Skammastu \u00fe\u00edn \u00fev\u00ed og ber\u00f0u sm\u00e1n \u00fe\u00edna fyrir \u00fea\u00f0, a\u00f0 \u00fe\u00fa hefir s\u00fdnt a\u00f0 systur \u00fe\u00ednar eru betri en \u00fe\u00fa.<a name=\"53\"><span class=\"versanumer\">53<\/span><\/a>\u00c9g mun sn\u00faa vi\u00f0 h\u00f6gum \u00feeirra, h\u00f6gum S\u00f3d\u00f3mu og d\u00e6tra hennar og h\u00f6gum Samar\u00edu og d\u00e6tra hennar, og \u00e9g mun og sn\u00faa vi\u00f0 h\u00f6gum \u00fe\u00ednum me\u00f0al \u00feeirra,<a name=\"54\"><span class=\"versanumer\">54<\/span><\/a>til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa berir sm\u00e1n \u00fe\u00edna og skammist \u00fe\u00edn fyrir allt \u00fea\u00f0, sem \u00fe\u00fa hefir gj\u00f6rt og me\u00f0 \u00fev\u00ed or\u00f0i\u00f0 \u00feeim til hugfr\u00f3unar.<a name=\"55\"><span class=\"versanumer\">55<\/span><\/a>Og systur \u00fe\u00ednar, S\u00f3d\u00f3ma og d\u00e6tur hennar, skulu aftur komast \u00ed sitt fyrra gengi, og Samar\u00eda og d\u00e6tur hennar skulu og aftur komast \u00ed sitt fyrra gengi, og \u00fe\u00fa og d\u00e6tur \u00fe\u00ednar skulu\u00f0 aftur komast \u00ed y\u00f0ar fyrra gengi.<a name=\"56\"><span class=\"versanumer\">56<\/span><\/a>Og \u00fe\u00f3 t\u00f3kst \u00fe\u00fa ekki nafn S\u00f3d\u00f3mu systur \u00feinnar \u00fe\u00e9r \u00ed munn \u00e1 \u00fe\u00ednum ofdrambsd\u00f6gum,<a name=\"57\"><span class=\"versanumer\">57<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 er vonska \u00fe\u00edn var enn ekki ber or\u00f0in, eins og \u00ed \u00feann t\u00ed\u00f0, er d\u00e6tur Ed\u00f3ms sm\u00e1nu\u00f0u \u00feig og allar d\u00e6tur Filista, sem \u00f3virtu \u00feig \u00far \u00f6llum \u00e1ttum.<a name=\"58\"><span class=\"versanumer\">58<\/span><\/a>Fyrir saurlifna\u00f0 \u00feinn og sv\u00edvir\u00f0ingar, fyrir \u00fe\u00e6r hefir \u00fe\u00fa gj\u00f6ld teki\u00f0 segir Drottinn.<a name=\"59\"><span class=\"versanumer\">59<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00c9g gj\u00f6ri vi\u00f0 \u00feig, eins og \u00fe\u00fa hefir gj\u00f6rt, \u00fear sem \u00fe\u00fa haf\u00f0ir ei\u00f0inn a\u00f0 engu og raufst s\u00e1ttm\u00e1lann.<a name=\"60\"><span class=\"versanumer\">60<\/span><\/a>En \u00fe\u00f3 vil \u00e9g minnast s\u00e1ttm\u00e1la m\u00edns, \u00feess er \u00e9g vi\u00f0 \u00feig gj\u00f6r\u00f0i \u00e1 d\u00f6gum \u00e6sku \u00feinnar, og binda vi\u00f0 \u00feig eil\u00edfan s\u00e1ttm\u00e1la.<a name=\"61\"><span class=\"versanumer\">61<\/span><\/a>\u00de\u00e1 munt \u00fe\u00fa minnast breytni \u00feinnar og blyg\u00f0ast \u00fe\u00edn, er \u00e9g tek eldri systur \u00fe\u00ednar og yngri og gef \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e6r svo sem d\u00e6tur, en ekki vegna s\u00e1ttm\u00e1la \u00fe\u00edns.<a name=\"62\"><span class=\"versanumer\">62<\/span><\/a>Og \u00e9g vil binda vi\u00f0 \u00feig s\u00e1ttm\u00e1la, og \u00fe\u00fa skalt vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn,<a name=\"63\"><span class=\"versanumer\">63<\/span><\/a>til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa minnist \u00feess og skammist \u00fe\u00edn og lj\u00fakir eigi framar upp munni \u00fe\u00ednum sakir blyg\u00f0unar, er \u00e9g fyrirgef \u00fe\u00e9r allt \u00fea\u00f0, sem \u00fe\u00fa hefir gj\u00f6rt segir Drottinn Gu\u00f0.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>16.17<\/b> Gull og silfur 2M\u00f3s 32.2-3; H\u00f3s 2.10<br \/>\n<b>16.20<\/b> B\u00f6rnum f\u00f3rna\u00f0 2Kon 16.3; 21.6; 23.10; Jes 30.33; Jer 7.31; 19.5; 32.35; sbr 3M\u00f3s 18.21; 20.2-5; 5M\u00f3s 12.31; 18.10<br \/>\n<b>16.27<\/b> Sneyddi af H\u00f3s 2.11<br \/>\n<b>16.33<\/b> Gjald H\u00f3s 8.9<br \/>\n<b>16.45<\/b> Het\u00edti, Am\u00f3r\u00edti Esk 16.3<br \/>\n<b>16.49<\/b> Sekt S\u00f3d\u00f3mu 1M\u00f3s 18.20-21; 19.1-29; Jes 3.9; 2P\u00e9t 2.6 \u2013 refsa\u00f0 har\u00f0lega Jes 1.9; 13.19; Jer 49.18; 50.40; Sef 2.9 \u2013 synd Jer\u00fasalem Hlj 4.6; sbr Matt 10.15; 11.25<br \/>\n<b>16.60<\/b> \u00c6varandi s\u00e1ttm\u00e1li Jer 31.34<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Og or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:2Mannsson, lei\u00f0 Jer\u00fasalem fyrir sj\u00f3nir sv\u00edvir\u00f0ingar hennar3og seg: Svo segir Drottinn Gu\u00f0 vi\u00f0 Jer\u00fasalem: A\u00f0 uppruna og \u00e6tterni ert \u00fe\u00fa fr\u00e1 Kanaanlandi. Fa\u00f0ir \u00feinn var Amor\u00edti og m\u00f3\u00f0ir \u00fe\u00edn Het\u00edti.4Og \u00fea\u00f0 er a\u00f0 segja af f\u00e6\u00f0ing \u00feinni, a\u00f0 \u00feann dag, sem \u00fe\u00fa f\u00e6ddist, var hvorki skori\u00f0 \u00e1 naflastreng \u00feinn n\u00e9 \u00fe\u00fa laugu\u00f0 \u00ed vatni, ekki n\u00fain salti og ekki reifum vafin.5Enginn renndi til \u00fe\u00edn me\u00f0aumkunarauga til \u00feess a\u00f0 veita \u00fe\u00e9r nokkurt eitt af \u00feessu og aumkast yfir \u00feig, heldur var \u00fe\u00e9r kasta\u00f0 \u00fat \u00e1 v\u00ed\u00f0avang svo l\u00edtils var l\u00edf \u00feitt meti\u00f0 daginn sem \u00fe\u00fa <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2165","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2165","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2165"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2165\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2165"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}