{"id":2162,"date":"2017-11-18T20:20:27","date_gmt":"2017-11-18T20:20:27","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-13-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:45","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:45","slug":"esekiel-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-13-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 13. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Og or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Mannsson, sp\u00e1 \u00fe\u00fa gegn sp\u00e1m\u00f6nnum \u00cdsraels, \u00feeim er sp\u00e1, og seg vi\u00f0 sp\u00e1mennina, sem sp\u00e1 fr\u00e1 eigin brj\u00f3sti: Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins!<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Vei hinum heimsku sp\u00e1m\u00f6nnum, sem fara eftir hugarbur\u00f0i sj\u00e1lfra s\u00edn og \u00fev\u00ed, er \u00feeir hafa ekki s\u00e9\u00f0.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Sp\u00e1menn \u00fe\u00ednir, \u00cdsrael, eru sem refir \u00ed r\u00fastabrotum.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00de\u00e9r hafi\u00f0 ekki gengi\u00f0 fram \u00ed v\u00edgsk\u00f6r\u00f0in og \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 engan virkisgar\u00f0 hla\u00f0i\u00f0 \u00ed kringum \u00cdsraels h\u00fas, til \u00feess a\u00f0 standast \u00ed str\u00ed\u00f0inu \u00e1 degi Drottins.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00deeir s\u00e1u h\u00e9g\u00f3mas\u00fdnir og f\u00f3ru me\u00f0 lygisp\u00e1d\u00f3ma, \u00feeir er s\u00f6g\u00f0u: Drottinn segir, \u00fe\u00f3tt Drottinn hef\u00f0i ekki sent \u00fe\u00e1, og v\u00e6ntu s\u00ed\u00f0an a\u00f0 or\u00f0in mundu r\u00e6tast.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Eru \u00fea\u00f0 ekki h\u00e9g\u00f3mas\u00fdnir, sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 s\u00e9\u00f0, og lygisp\u00e1d\u00f3mar, sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 fari\u00f0 me\u00f0 og segi\u00f0 \u00fe\u00f3: Drottinn segir, \u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi eigi tala\u00f0?<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed segir Drottinn Gu\u00f0 svo: Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r tali\u00f0 h\u00e9g\u00f3ma og sj\u00e1i\u00f0 lygar, \u00fe\u00e1 skal \u00e9g l\u00e1ta y\u00f0ur kenna \u00e1 \u00fev\u00ed segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og h\u00f6nd m\u00edn skal vera upp \u00ed m\u00f3ti \u00feeim sp\u00e1m\u00f6nnum, sem sj\u00e1 h\u00e9g\u00f3mas\u00fdnir og fara me\u00f0 lygisp\u00e1d\u00f3ma. \u00deeir skulu eigi vera \u00ed f\u00e9lagi \u00fej\u00f3\u00f0ar minnar og eigi vera rita\u00f0ir \u00e1 skr\u00e1 \u00cdsraels h\u00fass, og inn \u00ed \u00cdsraelsland skulu \u00feeir ekki koma, og \u00feannig skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r kannast vi\u00f0, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Fyrir \u00fe\u00e1 s\u00f6k og vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir hafa leitt l\u00fd\u00f0 minn \u00ed villu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja: Heill! \u00fear sem engin heill var, og \u00feegar \u00feeir hl\u00f3\u00f0u vegg, ri\u00f0u \u00feeir kalki \u00e1 hann,<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 seg \u00fe\u00fa k\u00f6lkurunum, \u00fev\u00ed hann skal hrynja: Sj\u00e1, \u00e9g mun l\u00e1ta koma steypiregn, sem skolar honum burt, haglsteinar skulu ni\u00f0ur falla og stormbylur \u00e1 skella.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00de\u00e1 hrynur veggurinn. Mun \u00fe\u00e1 ekki ver\u00f0a vi\u00f0 y\u00f0ur sagt: Hvar er n\u00fa kalki\u00f0, er \u00fe\u00e9r ri\u00f0u\u00f0 \u00e1 vegginn?<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed segir Drottinn Gu\u00f0 svo: \u00cd heift minni skal \u00e9g l\u00e1ta stormbyl \u00e1 skella, og dynjandi steypiregn skal \u00e1 koma vegna rei\u00f0i minnar, og haglsteinar vegna heiftar minnar til algj\u00f6r\u00f0rar tort\u00edmingar.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00c9g skal brj\u00f3ta ni\u00f0ur vegginn, sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 kalka\u00f0, og bylta honum til jar\u00f0ar, svo a\u00f0 undirsta\u00f0a hans komi \u00ed lj\u00f3s. Og hann mun hrynja, og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 ver\u00f0a \u00e1 milli og vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og \u00e9g vil \u00fathella allri rei\u00f0i minni yfir vegginn og yfir \u00fe\u00e1, sem ri\u00f0u kalki \u00e1 hann, og \u00e9g mun segja vi\u00f0 y\u00f0ur: Horfinn er veggurinn og horfnir eru \u00feeir, sem ri\u00f0u hann kalki,<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>sp\u00e1menn \u00cdsraels, sem sp\u00e1 fyrir Jer\u00fasalem og \u00feykjast sj\u00e1 heillas\u00fdnir henni til handa, \u00fear sem \u00fe\u00f3 engin heill er segir Drottinn Gu\u00f0.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>En \u00fe\u00fa, mannsson, sn\u00fa n\u00fa augliti \u00fe\u00ednu gegn d\u00e6trum \u00fej\u00f3\u00f0ar \u00feinnar, \u00feeim er sp\u00e1 eftir eigin hugbo\u00f0i, og sp\u00e1 \u00fe\u00fa m\u00f3ti \u00feeim<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>og seg: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Vei \u00feeim, sem sauma bindi fyrir alla \u00falnli\u00f0i og b\u00faa til sk\u00fdlur fyrir h\u00f6fu\u00f0 manna, hvers vaxtar sem er, til \u00feess a\u00f0 vei\u00f0a s\u00e1lir. Hvort \u00e6tli\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 vei\u00f0a s\u00e1lir hj\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0 minni og halda l\u00edfinu \u00ed s\u00e1lum y\u00f0ur til handa?<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00de\u00e9r vanhelgi\u00f0 mig hj\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0 minni fyrir nokkra hnefa af byggi og nokkra brau\u00f0bita til \u00feess a\u00f0 dey\u00f0a s\u00e1lir, sem ekki eiga a\u00f0 deyja, og halda l\u00edfinu \u00ed s\u00e1lum, sem ekki eiga a\u00f0 lifa, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lj\u00faga a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 minni, sem hlustar \u00e1 lygar.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed segir Drottinn Gu\u00f0 svo: Sj\u00e1, \u00e9g skal hafa hendur \u00e1 bindum y\u00f0ar, \u00feeim er \u00fe\u00e9r vei\u00f0i\u00f0 me\u00f0 s\u00e1lir, og \u00e9g skal sl\u00edta \u00feau af armleggjum y\u00f0ar og l\u00e1ta lausar s\u00e1lir \u00fe\u00e6r, er \u00fe\u00e9r vei\u00f0i\u00f0, sem v\u00e6ru \u00fe\u00e6r fuglar.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Og \u00e9g skal sl\u00edta sundur sk\u00fdlur y\u00f0ar og frelsa l\u00fd\u00f0 minn \u00far y\u00f0ar h\u00f6ndum, svo a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u ekki lengur vei\u00f0ifang \u00ed y\u00f0ar h\u00f6ndum, og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Vegna \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r hrelli\u00f0 hjarta hins r\u00e1\u00f0vanda me\u00f0 lygum, \u00fear sem \u00e9g vildi \u00fe\u00f3 eigi hafa hrellt hann, og af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r styrki\u00f0 hendur hins \u00f3gu\u00f0lega, til \u00feess a\u00f0 hann sn\u00fai s\u00e9r ekki fr\u00e1 sinni vondu breytni og for\u00f0i l\u00edfi s\u00ednu,<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>\u00feess vegna skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki framar sj\u00e1 h\u00e9g\u00f3mas\u00fdnir og ekki framar fara me\u00f0 lygisp\u00e1d\u00f3ma. \u00c9g vil frelsa l\u00fd\u00f0 minn af y\u00f0ar h\u00f6ndum, og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>13.2<\/b> Gegn sp\u00e1m\u00f6nnum 1Kon 22.13-28; Jer 6.13-14; 23.9-32; 27.9-10,14-15; 28; 29.8-9,15-23; M\u00edk 3.5; sbr 5M\u00f3s 13.1-5; 18.20-22<br \/>\n<b>13.5<\/b> Sp\u00e1ma\u00f0ur, v\u00f6r\u00f0ur Esk 22.30; 33.1-9; Jer 1.18; 15.20<br \/>\n<b>13.7<\/b> Lygasp\u00e1menn Esk 14.9; 22.28; 1Kon 22.23; Jer 14.14; 23.26; 27.9-10; sbr 5M\u00f3s 18.21-22<br \/>\n<b>13.10<\/b> Heill Esk 13.16; Jer 6.14; sbr Esk 22.28<br \/>\n<b>13.11<\/b> Steypiregn Matt 7.24-27<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Og or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn, svohlj\u00f3\u00f0andi:2Mannsson, sp\u00e1 \u00fe\u00fa gegn sp\u00e1m\u00f6nnum \u00cdsraels, \u00feeim er sp\u00e1, og seg vi\u00f0 sp\u00e1mennina, sem sp\u00e1 fr\u00e1 eigin brj\u00f3sti: Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins!3Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Vei hinum heimsku sp\u00e1m\u00f6nnum, sem fara eftir hugarbur\u00f0i sj\u00e1lfra s\u00edn og \u00fev\u00ed, er \u00feeir hafa ekki s\u00e9\u00f0.4Sp\u00e1menn \u00fe\u00ednir, \u00cdsrael, eru sem refir \u00ed r\u00fastabrotum.5\u00de\u00e9r hafi\u00f0 ekki gengi\u00f0 fram \u00ed v\u00edgsk\u00f6r\u00f0in og \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 engan virkisgar\u00f0 hla\u00f0i\u00f0 \u00ed kringum \u00cdsraels h\u00fas, til \u00feess a\u00f0 standast \u00ed str\u00ed\u00f0inu \u00e1 degi Drottins.6\u00deeir s\u00e1u h\u00e9g\u00f3mas\u00fdnir og f\u00f3ru me\u00f0 lygisp\u00e1d\u00f3ma, \u00feeir er s\u00f6g\u00f0u: Drottinn segir, \u00fe\u00f3tt Drottinn hef\u00f0i ekki sent \u00fe\u00e1, og v\u00e6ntu s\u00ed\u00f0an a\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2162","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2162","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2162"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2162\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2162"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}