{"id":2150,"date":"2017-11-18T20:20:27","date_gmt":"2017-11-18T20:20:27","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-1-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:44","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:44","slug":"esekiel-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-1-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 \u00fer\u00edtugasta \u00e1rinu, \u00ed fj\u00f3r\u00f0a m\u00e1nu\u00f0inum, hinn fimmta dag m\u00e1na\u00f0arins, \u00fe\u00e1 er \u00e9g var \u00e1 me\u00f0al hinna herleiddu vi\u00f0 Kebarflj\u00f3ti\u00f0, opna\u00f0ist himinninn og \u00e9g s\u00e1 gu\u00f0legar s\u00fdnir.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Fimmta dag m\u00e1na\u00f0arins, \u00fea\u00f0 var fimmta \u00e1ri\u00f0 eftir a\u00f0 J\u00f3jak\u00edn konungur var burt fluttur,<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 kom or\u00f0 Drottins til Esek\u00edels B\u00fas\u00edsonar prests \u00ed Kaldealandi vi\u00f0 Kebarflj\u00f3ti\u00f0, og h\u00f6nd Drottins kom \u00fear yfir hann.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>\u00c9g s\u00e1, og sj\u00e1: Stormvindur kom \u00far nor\u00f0ri og sk\u00fd miki\u00f0 og eldur, sem hnykla\u00f0ist saman, og st\u00f3\u00f0 af \u00fev\u00ed bjarmi umhverfis, og \u00fat \u00far honum s\u00e1st eitthva\u00f0, sem gl\u00f3\u00f0i eins og l\u00fdsigull.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00dat \u00far honum s\u00e1ust myndir af fj\u00f3rum verum. Og \u00feetta var \u00fatlit \u00feeirra: Mannsmynd var \u00e1 \u00feeim.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Hver \u00feeirra haf\u00f0i fj\u00f3rar \u00e1sj\u00f3nur og hver \u00feeirra haf\u00f0i fj\u00f3ra v\u00e6ngi.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>F\u00e6tur \u00feeirra voru keipr\u00e9ttir og iljarnar sterklegar eins og k\u00e1lfsiljar, og \u00feeir bliku\u00f0u eins og skygg\u00f0ur eir.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Og undir v\u00e6ngjum \u00feeirra \u00e1 hli\u00f0unum fj\u00f3rum voru mannshendur.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>V\u00e6ngir \u00feeirra l\u00e1gu hver upp a\u00f0 \u00f6\u00f0rum, og \u00e1sj\u00f3nur \u00feeirra fj\u00f6gurra sneru s\u00e9r ekki vi\u00f0, er \u00fe\u00e6r gengu, heldur gekk hver beint af augum fram.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>\u00c1sj\u00f3nur \u00feeirra litu svo \u00fat: Mannsandlit a\u00f0 framan, lj\u00f3nsandlit h\u00e6gra megin \u00e1 \u00feeim fj\u00f3rum, nautsandlit vinstra megin \u00e1 \u00feeim fj\u00f3rum og arnarandlit \u00e1 \u00feeim fj\u00f3rum aftanvert.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og v\u00e6ngir \u00feeirra voru \u00feandir upp \u00e1 vi\u00f0. Hver \u00feeirra haf\u00f0i tvo v\u00e6ngi, sem voru tengdir saman, og tvo v\u00e6ngi, sem huldu l\u00edkami \u00feeirra.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Og \u00fe\u00e6r gengu hver fyrir sig beint af augum fram, \u00fe\u00e6r gengu \u00feanga\u00f0, sem andinn vildi fara, \u00fe\u00e6r snerust eigi vi\u00f0 \u00ed g\u00f6ngunni.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Milli veranna var a\u00f0 sj\u00e1 sem eldsgl\u00e6\u00f0ur brynnu. \u00dea\u00f0 var eins og blys f\u00e6ru aftur og fram milli veranna, og bjarma lag\u00f0i af eldinum og \u00fat fr\u00e1 eldinum gengu leiftur.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Og verurnar hlupu fram og aftur eins og glampi af leiftri.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Enn fremur s\u00e1 \u00e9g, og sj\u00e1: Eitt hj\u00f3l st\u00f3\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni hj\u00e1 hverri af verunum fj\u00f3rum.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Og hj\u00f3lin voru \u00e1 a\u00f0 l\u00edta eins og \u00feegar blikar \u00e1 kr\u00fdsol\u00edt, og \u00f6ll fj\u00f6gur voru \u00feau saml\u00edk og \u00feannig gj\u00f6r\u00f0, sem eitt hj\u00f3li\u00f0 v\u00e6ri innan \u00ed \u00f6\u00f0ru hj\u00f3li.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00deau gengu til allra fj\u00f6gurra hli\u00f0a, \u00feau snerust eigi, er \u00feau gengu.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og hj\u00f3lbaugar \u00feeirra \u00feeir voru h\u00e1ir og \u00f3gurlegir hj\u00f3lbaugar \u00feeirra voru alsettir augum allt umhverfis \u00e1 \u00feeim fj\u00f3rum.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Og \u00feegar verurnar gengu, \u00fe\u00e1 gengu og hj\u00f3lin vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 \u00feeim, og \u00feegar verurnar h\u00f3fu sig fr\u00e1 j\u00f6r\u00f0u, \u00fe\u00e1 h\u00f3fu og hj\u00f3lin sig.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>\u00deanga\u00f0 sem andinn vildi fara, \u00feanga\u00f0 gengu \u00fe\u00e6r, og hj\u00f3lin h\u00f3fust upp samt\u00edmis \u00feeim, \u00fev\u00ed a\u00f0 andi veranna var \u00ed hj\u00f3lunum.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00deegar \u00fe\u00e6r gengu, gengu \u00feau einnig, \u00feegar \u00fe\u00e6r st\u00f3\u00f0u kyrrar, st\u00f3\u00f0u \u00feau og kyrr, og \u00feegar \u00fe\u00e6r h\u00f3fust fr\u00e1 j\u00f6r\u00f0u, h\u00f3fust og hj\u00f3lin samt\u00edmis \u00feeim, \u00fev\u00ed a\u00f0 andi verunnar var \u00ed hj\u00f3lunum.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Uppi yfir h\u00f6f\u00f0um veranna var \u00fev\u00ed l\u00edkast sem hvelfing v\u00e6ri, blikandi sem kristall. \u00deandist h\u00fan \u00fat uppi yfir h\u00f6f\u00f0um \u00feeirra.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og undir hvelfingunni voru v\u00e6ngir \u00feeirra \u00fat \u00feandir hver \u00e1 m\u00f3ti \u00f6\u00f0rum, og hver \u00feeirra haf\u00f0i tvo v\u00e6ngi, sem huldu l\u00edkami \u00feeirra.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00c9g heyr\u00f0i v\u00e6ngja\u00feyt \u00feeirra, eins og ni\u00f0 mikilla vatna, sem \u00ferumu hins Alm\u00e1ttka, er \u00fe\u00e6r gengu, gn\u00fdrinn og h\u00e1va\u00f0inn var sem gn\u00fdr \u00ed herb\u00fa\u00f0um. \u00deegar \u00fe\u00e6r st\u00f3\u00f0u kyrrar, l\u00e9tu \u00fe\u00e6r v\u00e6ngina s\u00edga.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>En \u00feytur var uppi yfir hvelfingunni, sem var yfir h\u00f6f\u00f0um \u00feeirra, \u00feegar \u00fe\u00e6r st\u00f3\u00f0u kyrrar, l\u00e9tu \u00fe\u00e6r v\u00e6ngina s\u00edga.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>En uppi yfir hvelfingunni, sem var yfir h\u00f6f\u00f0um \u00feeirra, var a\u00f0 sj\u00e1 sem saf\u00edrsteinn v\u00e6ri, \u00ed l\u00f6gun sem h\u00e1s\u00e6ti, og \u00fear uppi \u00e1 h\u00e1s\u00e6tinu, sem svo s\u00fdndist, var mynd nokkur \u00ed mannsl\u00edki.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>S\u00fa mynd \u00fe\u00f3tti m\u00e9r \u00fev\u00ed l\u00edkust sem gl\u00f3andi l\u00fdsigull v\u00e6ri \u00fear ne\u00f0an fr\u00e1, sem m\u00e9r \u00fe\u00f3tti mitti\u00f0 vera og upp eftir, en ofan fr\u00e1 \u00fev\u00ed, sem m\u00e9r \u00fe\u00f3tti mitti\u00f0 vera, og ni\u00f0ur eftir \u00fe\u00f3tti m\u00e9r h\u00fan \u00e1lits sem eldur, og umhverfis hana var bjarmi.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Bjarminn umhverfis var tils\u00fdndar l\u00edkur boga \u00feeim, sem \u00ed sk\u00fdjum stendur, \u00feegar rignir. \u00deannig var \u00edmynd d\u00fdr\u00f0ar Drottins \u00e1 a\u00f0 l\u00edta. Og er \u00e9g s\u00e1 hana, f\u00e9ll \u00e9g fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu m\u00edna, og \u00e9g heyr\u00f0i r\u00f6dd einhvers, sem tala\u00f0i.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>1.2<\/b> \u00datleg\u00f0 J\u00f3jak\u00edns 2Kon 24.10-15<br \/>\n<b>1.4<\/b> Gu\u00f0 opinberar sig \u00ed vindinum Slm 18.11; 50.3 \u2013 \u00ed sk\u00fdi 2M\u00f3s 13.21 \u2013 \u00ed eldi Slm 97.3<br \/>\n<b>1.5<\/b> Fj\u00f3rar verur Opb 4.6-8<br \/>\n<b>1.13<\/b> Leiftur 2M\u00f3s 19.16; Slm 97.4<br \/>\n<b>1.24<\/b> Hinn Alm\u00e1ttki 2M\u00f3s 6.3; Job 5.17<br \/>\n<b>1.26<\/b> \u00cd mannsmynd Dan 7.13<br \/>\n<b>1.28<\/b> D\u00fdr\u00f0 Drottins Esk 43.1-5; 2M\u00f3s 16.10; Jes 6.3<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00c1 \u00fer\u00edtugasta \u00e1rinu, \u00ed fj\u00f3r\u00f0a m\u00e1nu\u00f0inum, hinn fimmta dag m\u00e1na\u00f0arins, \u00fe\u00e1 er \u00e9g var \u00e1 me\u00f0al hinna herleiddu vi\u00f0 Kebarflj\u00f3ti\u00f0, opna\u00f0ist himinninn og \u00e9g s\u00e1 gu\u00f0legar s\u00fdnir.2Fimmta dag m\u00e1na\u00f0arins, \u00fea\u00f0 var fimmta \u00e1ri\u00f0 eftir a\u00f0 J\u00f3jak\u00edn konungur var burt fluttur,3\u00fe\u00e1 kom or\u00f0 Drottins til Esek\u00edels B\u00fas\u00edsonar prests \u00ed Kaldealandi vi\u00f0 Kebarflj\u00f3ti\u00f0, og h\u00f6nd Drottins kom \u00fear yfir hann.4\u00c9g s\u00e1, og sj\u00e1: Stormvindur kom \u00far nor\u00f0ri og sk\u00fd miki\u00f0 og eldur, sem hnykla\u00f0ist saman, og st\u00f3\u00f0 af \u00fev\u00ed bjarmi umhverfis, og \u00fat \u00far honum s\u00e1st eitthva\u00f0, sem gl\u00f3\u00f0i eins og l\u00fdsigull.5\u00dat \u00far honum s\u00e1ust myndir af fj\u00f3rum verum. Og \u00feetta var <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/esekiel-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2150","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2150","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2150"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2150\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2150"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}