{"id":2141,"date":"2017-11-18T20:20:20","date_gmt":"2017-11-18T20:20:20","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/jeremia-49-kafli\/"},"modified":"2017-11-18T20:20:20","modified_gmt":"2017-11-18T20:20:20","slug":"jeremia-49-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/jeremia-49-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 49. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Um Amm\u00f3n\u00edta. Svo segir Drottinn: \u00c1 \u00fe\u00e1 \u00cdsrael enga sonu, e\u00f0a \u00e1 hann engan erfingja? Hv\u00ed hefir Milk\u00f3m erft Ga\u00f0 og hv\u00ed hefir l\u00fd\u00f0ur hans setst a\u00f0 \u00ed borgum hans?<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Sj\u00e1, \u00feeir dagar munu koma segir Drottinn a\u00f0 \u00e9g l\u00e6t her\u00f3p heyrast til Rabba, borgar Amm\u00f3n\u00edta, og h\u00fan skal ver\u00f0a a\u00f0 grj\u00f3thr\u00fagu og d\u00e6turnar ey\u00f0ast \u00ed eldi, og \u00fe\u00e1 skal \u00cdsrael erfa aftur erfingja s\u00edna segir Drottinn.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Hlj\u00f3\u00f0a \u00fe\u00fa, Hesbon, yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 borgin er unnin! Kveini\u00f0 Rabbad\u00e6tur! Gyr\u00f0ist h\u00e6rusekk, harmi\u00f0 og reiki\u00f0 um innan fj\u00e1rgir\u00f0inganna, \u00fev\u00ed a\u00f0 Milk\u00f3m ver\u00f0ur a\u00f0 fara \u00ed \u00fatleg\u00f0, prestar hans og h\u00f6f\u00f0ingjar hverjir me\u00f0 \u00f6\u00f0rum.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Hv\u00ed st\u00e6rir \u00fe\u00fa \u00feig af d\u00f6lunum, af frj\u00f3semi dals \u00fe\u00edns, fr\u00e1hverfa d\u00f3ttir, sem rei\u00f0ir sig \u00e1 fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0u s\u00edna og segir: Hver skyldi r\u00e1\u00f0a \u00e1 mig?<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Sj\u00e1, \u00e9g l\u00e6t skelfingu koma yfir \u00feig segir herrann, Drottinn allsherjar \u00far \u00f6llum \u00e1ttum \u00ed kringum \u00feig, og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ver\u00f0a reknir brott, hver \u00fea\u00f0 sem horfir, og enginn safnar \u00feeim saman, er fl\u00fdja.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>En s\u00ed\u00f0ar meir mun \u00e9g lei\u00f0a heim aftur hina herleiddu af Amm\u00f3n\u00edtum segir Drottinn.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Um Ed\u00f3m. Svo segir Drottinn allsherjar: Er \u00fe\u00e1 engin viska framar \u00ed Teman? Eru g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0 horfin hinum hyggnu, er viska \u00feeirra \u00ferotin?<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Fl\u00fdi\u00f0, hverfi\u00f0 brott, feli\u00f0 y\u00f0ur dj\u00fapt ni\u00f0ri, \u00fe\u00e9r \u00edb\u00faar Dedans! \u00dev\u00ed a\u00f0 Esa\u00fas gl\u00f6tun l\u00e6t \u00e9g yfir hann koma, \u00fe\u00e1 er \u00e9g hegni honum.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Ef v\u00ednlestursmenn r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00feig, \u00fe\u00e1 skilja \u00feeir ekki neinn eftirt\u00edning eftir. Ef \u00fej\u00f3far koma a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00e1 n\u00e1ttar\u00feeli, \u00fe\u00e1 skemma \u00feeir, \u00fear til er \u00feeim n\u00e6gir.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>En af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g sj\u00e1lfur afhj\u00fapa Esa\u00fa, gj\u00f6ri ber fylgsni hans, svo a\u00f0 hann getur ekki fali\u00f0 sig, \u00fe\u00e1 ver\u00f0a ni\u00f0jar hans unnir og fr\u00e6nd\u00fej\u00f3\u00f0ir hans og n\u00e1b\u00faar, og \u00fati er um hann.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Yfirgef muna\u00f0arleysingja \u00fe\u00edna, \u00e9g mun halda l\u00edfinu \u00ed \u00feeim, og ekkjur \u00fe\u00ednar mega rei\u00f0a sig \u00e1 mig!<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Svo segir Drottinn: Sj\u00e1, \u00feeim sem eigi bar a\u00f0 drekka bikarinn, \u00feeir ur\u00f0u a\u00f0 drekka hann og \u00fe\u00fa \u00e6ttir a\u00f0 sleppa \u00f3hegndur? \u00de\u00fa munt ekki sleppa \u00f3hegndur, heldur skalt \u00fe\u00fa drekka.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g sver vi\u00f0 sj\u00e1lfan mig segir Drottinn, a\u00f0 Bosra skal ver\u00f0a a\u00f0 skelfing, h\u00e1\u00f0ung, undrun og form\u00e6ling, og allar borgir hennar skulu ver\u00f0a a\u00f0 eil\u00edfum r\u00fastum.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00c9g hefi fengi\u00f0 vitneskju fr\u00e1 Drottni, og bo\u00f0beri er sendur me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna! Safnist saman og fari\u00f0 gegn borginni og b\u00faist til bardaga!<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Sj\u00e1, \u00e9g vil gj\u00f6ra \u00feig litla me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna, fyrirlitna me\u00f0al mannanna.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Skelfingin, sem \u00fe\u00fa skaust \u00f6\u00f0rum \u00ed brj\u00f3st, og hroki hjarta \u00fe\u00edns hafa dregi\u00f0 \u00feig \u00e1 t\u00e1lar, \u00fe\u00fa sem \u00e1tt bygg\u00f0 \u00ed klettaskorum, situr \u00e1 h\u00e1a hn\u00faknum. \u00de\u00f3 a\u00f0 \u00fe\u00fa bygg\u00f0ir hrei\u00f0ur \u00feitt h\u00e1tt, eins og \u00f6rninn, \u00fe\u00e1 steypi \u00e9g \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0an ni\u00f0ur segir Drottinn.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Ed\u00f3m skal ver\u00f0a a\u00f0 skelfingu, hver sem fer \u00fear um mun skelfast og h\u00e6\u00f0ast a\u00f0 \u00f6llum \u00e1f\u00f6llunum, er hann hefir or\u00f0i\u00f0 fyrir.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Eins og S\u00f3d\u00f3mu og G\u00f3morru og n\u00e1grannaborgunum var umturna\u00f0, segir Drottinn, svo skal og enginn ma\u00f0ur b\u00faa \u00fear, n\u00e9 nokkurt mannsbarn hafast \u00fear vi\u00f0.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Sj\u00e1, eins og lj\u00f3n, sem kemur \u00fat \u00far kjarrinu \u00e1 J\u00f3rdanb\u00f6kkum og st\u00edgur upp \u00e1 s\u00edgr\u00e6nt engi\u00f0, svo mun \u00e9g skyndilega reka hann burt \u00fea\u00f0an, og hvern \u00feann, sem \u00fatvalinn er, mun \u00e9g setja yfir hana. \u00dev\u00ed a\u00f0 hver er minn l\u00edki? Hver vill stefna m\u00e9r? Hver er s\u00e1 hir\u00f0ir, er f\u00e1i sta\u00f0ist fyrir m\u00e9r?<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Heyri\u00f0 \u00fev\u00ed r\u00e1\u00f0s\u00e1lyktun Drottins, er hann hefir gj\u00f6rt vi\u00f0v\u00edkjandi Ed\u00f3m, og \u00fe\u00e6r fyrir\u00e6tlanir, er hann hefir \u00ed huga vi\u00f0v\u00edkjandi Teman-b\u00faum: Sannarlega munu \u00feeir draga hina l\u00edtilm\u00f3tlegustu \u00far hj\u00f6r\u00f0inni burt. Sannarlega skal haglendi \u00feeirra ver\u00f0a agndofa yfir \u00feeim.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Af dyn falls \u00feeirra n\u00f6trar j\u00f6r\u00f0in, ney\u00f0arkveini\u00f0 \u00f3murinn af \u00fev\u00ed heyrist vi\u00f0 Rau\u00f0ahafi\u00f0.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Sj\u00e1, sem \u00f6rn st\u00edgur hann upp og fl\u00fdgur hinga\u00f0 og brei\u00f0ir \u00fat v\u00e6ngi s\u00edna yfir Bosra, og hjarta Ed\u00f3ms kappa mun \u00e1 \u00feeim degi ver\u00f0a eins og hjarta konu, sem er \u00ed barnsnau\u00f0.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Um Damaskus. Hamat og Arpad eru agndofa, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r hafa spurt ill t\u00ed\u00f0indi, \u00fe\u00e6r eru hr\u00e6ddar, fullar af \u00f3r\u00f3, eins og hafi\u00f0, sem getur ekki veri\u00f0 kyrrt.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Damaskus er or\u00f0in huglaus, hefir sn\u00faist \u00e1 fl\u00f3tta, og \u00f3tti hefir gripi\u00f0 hana, angist og kvalir hafa alteki\u00f0 hana, eins og j\u00f3\u00f0sj\u00faka konu.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Hv\u00ed var h\u00fan ekki yfirgefin, hin vegsama\u00f0a borg, ununar-borgin m\u00edn?<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed ver\u00f0a n\u00fa \u00e6skumenn hennar a\u00f0 falla \u00e1 torgunum og allir hermenn hennar a\u00f0 farast \u00e1 \u00feeim degi segir Drottinn allsherjar.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Og \u00e9g kveiki eld vi\u00f0 m\u00fara Damaskus, til \u00feess a\u00f0 hann ey\u00f0i h\u00f6llum Benhadads.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Um Kedar og konungsr\u00edki Has\u00f3rs, er Neb\u00fakadresar Babelkonungur vann. Svo segir Drottinn: Standi\u00f0 upp, fari\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti Kedar og herji\u00f0 \u00e1 austurbyggja.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Tj\u00f6ld \u00feeirra og sau\u00f0i munu \u00feeir taka, og tjaldd\u00faka \u00feeirra og \u00f6ll \u00e1h\u00f6ld og \u00falfalda \u00feeirra munu \u00feeir flytja burt fr\u00e1 \u00feeim. \u00de\u00e1 munu menn hr\u00f3pa yfir \u00feeim: Skelfing allt um kring!<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Leggi\u00f0 \u00e1 fl\u00f3tta, fl\u00fdi\u00f0 sem hra\u00f0ast, feli\u00f0 y\u00f0ur dj\u00fapt ni\u00f0ri, \u00fe\u00e9r \u00edb\u00faar Has\u00f3rs segir Drottinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 Neb\u00fakadresar Babelkonungur hefir gj\u00f6rt r\u00e1\u00f0s\u00e1lyktun gegn y\u00f0ur og hefir \u00ed huga r\u00e1\u00f0agj\u00f6r\u00f0 gegn y\u00f0ur.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>Af sta\u00f0! Fari\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti meinlausri \u00fej\u00f3\u00f0, sem b\u00fdr \u00f6rugg segir Drottinn, og hvorki hefir hur\u00f0ir n\u00e9 slagbranda. \u00deeir b\u00faa einir s\u00e9r.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>\u00dalfaldar \u00feeirra skulu ver\u00f0a a\u00f0 r\u00e1nsfeng og merg\u00f0 nautahjar\u00f0a \u00feeirra a\u00f0 herfangi, og \u00e9g mun dreifa \u00feeim fyrir \u00f6llum vindum, \u00feeim sem skera h\u00e1r sitt vi\u00f0 vangann, og l\u00e1ta \u00f3g\u00e6fu hva\u00f0an\u00e6va yfir \u00fe\u00e1 koma segir Drottinn.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>Has\u00f3r skal ver\u00f0a a\u00f0 sjakalab\u00e6li, a\u00f0 au\u00f0n um eil\u00edf\u00f0. Enginn ma\u00f0ur mun framar b\u00faa \u00fear og ekkert mannsbarn hafast \u00fear vi\u00f0.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>\u00deetta birtist Jerem\u00eda sp\u00e1manni sem or\u00f0 Drottins um Elam \u00ed upphafi r\u00edkisstj\u00f3rnar Sedek\u00eda J\u00fadakonungs:<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>Svo segir Drottinn allsherjar: Sj\u00e1, \u00e9g br\u00fdt sundur boga Elam\u00edta, meginstyrk \u00feeirra.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>Og \u00e9g hleypi \u00e1 Elam\u00edta fj\u00f3rum vindum \u00far fj\u00f3rum \u00e1ttum himins og tv\u00edstra \u00feeim fyrir \u00f6llum \u00feessum vindum, og engin skal s\u00fa \u00fej\u00f3\u00f0 til vera, a\u00f0 \u00feanga\u00f0 komi ekki fl\u00f3ttamenn fr\u00e1 Elam.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>\u00c9g l\u00e6t Elam\u00edta skelfast fyrir \u00f3vinum \u00feeirra og fyrir \u00feeim, er s\u00e6kjast eftir l\u00edfi \u00feeirra, og lei\u00f0i yfir \u00fe\u00e1 \u00f3hamingju, m\u00edna brennandi rei\u00f0i segir Drottinn og sendi sver\u00f0i\u00f0 \u00e1 eftir \u00feeim, uns \u00e9g hefi gj\u00f6reytt \u00feeim.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>\u00c9g reisi h\u00e1s\u00e6ti mitt \u00ed Elam og ey\u00f0i \u00fea\u00f0an konungi og h\u00f6f\u00f0ingjum segir Drottinn.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>En \u00fe\u00e1 er fram l\u00ed\u00f0a stundir mun \u00e9g sn\u00faa vi\u00f0 h\u00f6gum Elams segir Drottinn.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>49.2<\/b> Rabba 5M\u00f3s 3.11; 2Sam 11.1; Esk 21.25; 25.5 \u2013 her\u00f3p Jer 4.19; 50.15; sbr Jes 42.13 \u2013 eyddar \u00ed eldi Am 1.14<br \/>\n<b>49.3<\/b> Hesbon sbr Jer 48.2+ &#8211; h\u00e6rusekkur Jer 4.8+ &#8211; Milk\u00f3m \u00ed \u00fatleg\u00f0 Jer 48.7<br \/>\n<b>49.4<\/b> St\u00e6rt \u00feig Jer 48.7+<br \/>\n<b>49.5<\/b> Skelfing Jer 48.44<br \/>\n<b>49.6<\/b> Sn\u00faa vi\u00f0 h\u00f6gum Jer 12.15+<br \/>\n<b>49.7-16<\/b> sbr \u00d3b 1-6<br \/>\n<b>49.7<\/b> Um Ed\u00f3m Jer 25.21; Am 1.11+ ; Slm 137.7+ ; sbr 1M\u00f3s 25.30; 2Sam 8.14; 2Kon 8.20-22; 16.6; Hlj 4.21 \u2013 speki \u00ed Teman Bar 3.22<br \/>\n<b>49.8<\/b> Dedan Jer 25.23; Jes 21.13; Esk 25.13; 27.20 \u2013 gera upp sakir Jer 8.12+<br \/>\n<b>49.10<\/b> Afhj\u00fapa\u00f0 Esa\u00fa \u00d3b 6<br \/>\n<b>49.12<\/b> Ver\u00f0a a\u00f0 drekka Jer 25.15+ ; Jes 63.6 \u2013 ekki hl\u00edft Jer 25.29<br \/>\n<b>49.13<\/b> Drottinn sver Jer 22.5+ &#8211; Bosra 1M\u00f3s 36.33; Jes 34.6 \u2013 b\u00f6lvun Jer 24.9+<br \/>\n<b>49.17<\/b> Bl\u00edstra h\u00e1\u00f0slega Jer 22.8; 50.13 \u2013 skelfingu lostinn Jer 18.16; 19.8<br \/>\n<b>49.18<\/b> Eins og &#8230; Jer 50.40 \u2013 S\u00f3d\u00f3ma og G\u00f3morra 1M\u00f3s 19.24-25; Jes 1.9+<br \/>\n<b>49.19-21<\/b> sbr Jer 50.44-46<br \/>\n<b>49.19<\/b> Gu\u00f0s l\u00edki Jes 40.18+ &#8211; krefur&#8230; SSal 12.12; sbr Job 9.19<br \/>\n<b>49.20<\/b> \u00c1kv\u00f6r\u00f0un Drottins Jer 18.11; 50.45; 51.12; M\u00edk 4.12<br \/>\n<b>49.22<\/b> Eins og \u00f6rn Jer 48.40<br \/>\n<b>49.23<\/b> Um Damaskus 2Sam 8.5; 2Kon 14.28; Jes 7.8; 17.1-3 \u2013 Hamat Jer 39.5; 2Kon 14.28; 18.34; Jes 10.9 \u2013 Arpad 2Kon 19.13<br \/>\n<b>49.24<\/b> Eins og j\u00f3\u00f0sj\u00fak kona Jer 50.43; Jes 13.8<br \/>\n<b>49.28<\/b> Arab\u00eda (Kedar) Jer 2.10+ ; 25.24; Jes 21.13-17 \u2013 Has\u00f3r J\u00f3s 11.10; D\u00f3m 4.2; 1Kon 9.15; 2Kon 15.29<br \/>\n<b>49.29<\/b> Skelfing \u00far \u00f6llum \u00e1ttum Jer 6.25+<br \/>\n<b>49.30<\/b> Neb\u00fakadresar Jer 21.2+<br \/>\n<b>49.32<\/b> Klippa Jer 9.25; 25.23<br \/>\n<b>49.34<\/b> Elam Jer 25.25; Jes 11.11; 21.2; Esk 32.24-25<br \/>\n<b>49.35<\/b> Bogi Elam\u00edta Jes 22.6<br \/>\n<b>49.37<\/b> Logandi rei\u00f0i Jer 12.13 \u2013 sendi sver\u00f0i\u00f0 Jer 9.16<br \/>\n<b>49.39<\/b> Sn\u00faa vi\u00f0 h\u00f6gum Jer 12.15+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Um Amm\u00f3n\u00edta. Svo segir Drottinn: \u00c1 \u00fe\u00e1 \u00cdsrael enga sonu, e\u00f0a \u00e1 hann engan erfingja? Hv\u00ed hefir Milk\u00f3m erft Ga\u00f0 og hv\u00ed hefir l\u00fd\u00f0ur hans setst a\u00f0 \u00ed borgum hans?2Sj\u00e1, \u00feeir dagar munu koma segir Drottinn a\u00f0 \u00e9g l\u00e6t her\u00f3p heyrast til Rabba, borgar Amm\u00f3n\u00edta, og h\u00fan skal ver\u00f0a a\u00f0 grj\u00f3thr\u00fagu og d\u00e6turnar ey\u00f0ast \u00ed eldi, og \u00fe\u00e1 skal \u00cdsrael erfa aftur erfingja s\u00edna segir Drottinn.3Hlj\u00f3\u00f0a \u00fe\u00fa, Hesbon, yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 borgin er unnin! Kveini\u00f0 Rabbad\u00e6tur! Gyr\u00f0ist h\u00e6rusekk, harmi\u00f0 og reiki\u00f0 um innan fj\u00e1rgir\u00f0inganna, \u00fev\u00ed a\u00f0 Milk\u00f3m ver\u00f0ur a\u00f0 fara \u00ed \u00fatleg\u00f0, prestar hans og h\u00f6f\u00f0ingjar hverjir me\u00f0 \u00f6\u00f0rum.4Hv\u00ed st\u00e6rir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/jeremia-49-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2141","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2141","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2141"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2141\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2141"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}