{"id":2125,"date":"2017-11-18T20:20:14","date_gmt":"2017-11-18T20:20:14","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/jeremia-33-kafli\/"},"modified":"2017-11-18T20:20:14","modified_gmt":"2017-11-18T20:20:14","slug":"jeremia-33-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/jeremia-33-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 33. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Og or\u00f0 Drottins kom til Jerem\u00eda anna\u00f0 sinn, \u00fe\u00e1 er hann enn var inniloka\u00f0ur \u00ed var\u00f0gar\u00f0inum:<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Svo segir Drottinn, s\u00e1 er framkv\u00e6mir \u00fea\u00f0, Drottinn, s\u00e1 er upphugsar \u00fea\u00f0, til \u00feess a\u00f0 koma \u00fev\u00ed til vegar Drottinn er nafn hans:<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Kalla \u00fe\u00fa \u00e1 mig og mun \u00e9g svara \u00fe\u00e9r og kunngj\u00f6ra \u00fe\u00e9r mikla hluti og \u00f3skiljanlega, er \u00fe\u00fa hefir eigi \u00feekkt.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>J\u00e1, svo segir Drottinn, \u00cdsraels Gu\u00f0, um h\u00fas \u00feessarar borgar og um hallir J\u00fadakonunga, sem rifin voru ni\u00f0ur vegna hervirkjanna og sver\u00f0sins:<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00dea\u00f0 koma einhverjir til \u00feess a\u00f0 berjast gegn Kaldeum og til \u00feess a\u00f0 fylla h\u00fasin l\u00edkum \u00feeirra manna, er \u00e9g hefi losti\u00f0 \u00ed rei\u00f0i minni og heift, \u00fev\u00ed \u00e9g hefi byrgt auglit mitt fyrir \u00feessari borg sakir allrar illsku \u00feeirra.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Sj\u00e1, \u00e9g legg vi\u00f0 hana umb\u00fa\u00f0ir og gr\u00e6\u00f0slulyf og l\u00e6kna \u00fe\u00e1 og opna \u00feeim gn\u00e6g\u00f0 st\u00f6\u00f0ugrar hamingju,<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>og \u00e9g lei\u00f0i heim aftur hina herleiddu fr\u00e1 J\u00fada og hina herleiddu fr\u00e1 \u00cdsrael og byggi \u00fe\u00e1 upp aftur eins og \u00e1\u00f0ur.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Og \u00e9g hreinsa \u00fe\u00e1 af allri misgj\u00f6r\u00f0 \u00feeirra, er \u00feeir hafa dr\u00fdgt \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r, og fyrirgef \u00feeim allar misgj\u00f6r\u00f0ir \u00feeirra, er \u00feeir hafa dr\u00fdgt \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r, og uppreisn \u00feeirra gegn m\u00e9r,<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>til \u00feess a\u00f0 borgin ver\u00f0i m\u00e9r til fr\u00e6g\u00f0ar, til ununar, til lofs og d\u00fdr\u00f0ar hj\u00e1 \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um jar\u00f0arinnar, sem spyrja munu \u00f6ll \u00feau g\u00e6\u00f0i, er \u00e9g veiti \u00feeim, og skelfast munu og titra vegna allra \u00feeirra g\u00e6\u00f0a og allrar \u00feeirrar hamingju, sem \u00e9g veiti henni.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Svo segir Drottinn: \u00c1 \u00feessum sta\u00f0, er \u00fe\u00e9r segi\u00f0 um: Hann er eyddur, mannlaus og skepnulaus! \u00ed borgum J\u00fada og \u00e1 Jer\u00fasalemstr\u00e6tum, sem n\u00fa eru gj\u00f6reydd, mannlaus, \u00edb\u00faalaus og skepnulaus,<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>skulu aftur heyrast \u00e1n\u00e6gjuhlj\u00f3\u00f0 og gle\u00f0ihlj\u00f3\u00f0, fagna\u00f0arl\u00e6ti br\u00fa\u00f0guma og br\u00fa\u00f0ar, fagna\u00f0arl\u00e6ti \u00feeirra, er f\u00e6ra \u00feakkarf\u00f3rn \u00ed musteri Drottins og segja: \u00deakki\u00f0 Drottni allsherjar, \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn er g\u00f3\u00f0ur, \u00fev\u00ed a\u00f0 miskunn hans varir a\u00f0 eil\u00edfu! \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g mun lei\u00f0a hi\u00f0 herleidda f\u00f3lk landsins heim aftur, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u eins og \u00e1\u00f0ur, segir Drottinn.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Svo segir Drottinn allsherjar: Enn skal \u00e1 \u00feessum sta\u00f0, sem n\u00fa er eyddur, b\u00e6\u00f0i mannlaus og skepnulaus, og \u00ed \u00f6llum borgum hans vera haglendi fyrir hjar\u00f0menn, sem b\u00e6la \u00fear hjar\u00f0ir s\u00ednar.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00cd fjallborgunum, \u00ed borgunum \u00e1 sl\u00e9ttlendinu og \u00ed borgunum \u00ed Su\u00f0urlandinu og \u00ed Benjam\u00ednslandi og \u00ed umhverfi Jer\u00fasalem og \u00ed J\u00fadaborgum munu enn sau\u00f0ir renna fram hj\u00e1 \u00feeim, sem telur \u00fe\u00e1, segir Drottinn.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Sj\u00e1, \u00feeir dagar munu koma segir Drottinn a\u00f0 \u00e9g mun l\u00e1ta r\u00e6tast fyrirheit \u00fea\u00f0, er \u00e9g hefi gefi\u00f0 um \u00cdsraels h\u00fas og J\u00fada h\u00fas.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>\u00c1 \u00feeim d\u00f6gum og \u00e1 \u00feeim t\u00edma mun \u00e9g Dav\u00ed\u00f0 l\u00e1ta upp vaxa r\u00e9ttan kvist, og hann skal i\u00f0ka r\u00e9tt og r\u00e9ttl\u00e6ti \u00ed landinu.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00c1 \u00feeim d\u00f6gum mun J\u00fada h\u00f3lpinn ver\u00f0a og Jer\u00fasalem b\u00faa \u00f3hult, og \u00feetta mun ver\u00f0a nafni\u00f0, er menn nefna hana: Drottinn er vort r\u00e9ttl\u00e6ti.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Svo segir Drottinn: Dav\u00ed\u00f0 skal aldrei vanta eftirmann, sem sitji \u00ed h\u00e1s\u00e6ti \u00cdsraels h\u00fass.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og lev\u00edtaprestana skal aldrei vanta eftirmann frammi fyrir m\u00e9r, er framberi brennif\u00f3rnir, brenni matf\u00f3rnum og f\u00f3rni sl\u00e1turf\u00f3rnum alla daga.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Og or\u00f0 Drottins kom til Jerem\u00eda:<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Svo segir Drottinn: Svo sannarlega sem \u00fe\u00e9r geti\u00f0 ekki rofi\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1la minn vi\u00f0 daginn og s\u00e1ttm\u00e1la minn vi\u00f0 n\u00f3ttina, svo a\u00f0 dagur og n\u00f3tt komi ekki \u00e1 s\u00ednum t\u00edma,<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>svo sannarlega mun s\u00e1ttm\u00e1li minn vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 \u00fej\u00f3n minn eigi rofinn ver\u00f0a, svo a\u00f0 hann hafi ekki ni\u00f0ja, er r\u00edki \u00ed h\u00e1s\u00e6ti hans, og vi\u00f0 prestalev\u00edtana, \u00fej\u00f3na m\u00edna.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Eins og himinsins her ver\u00f0ur ekki talinn og sj\u00e1varsandurinn ekki m\u00e6ldur, svo vil \u00e9g margfalda ni\u00f0ja Dav\u00ed\u00f0s \u00fej\u00f3ns m\u00edns og lev\u00edtana, er m\u00e9r \u00fej\u00f3na.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og or\u00f0 Drottins kom til Jerem\u00eda:<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Hefir \u00fe\u00fa ekki teki\u00f0 eftir, hva\u00f0 \u00feessi l\u00fd\u00f0ur talar, er hann segir: B\u00e1\u00f0um \u00e6ttkv\u00edslunum, sem Drottinn \u00fatvaldi, hefir hann hafna\u00f0! og a\u00f0 \u00feeir segja fyrirlitlega um l\u00fd\u00f0 minn, a\u00f0 hann s\u00e9 ekki \u00fej\u00f3\u00f0 framar \u00ed \u00feeirra augum?<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Svo segir Drottinn: \u00c9g, sem hefi gj\u00f6rt s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 dag og n\u00f3tt og sett himni og j\u00f6r\u00f0u f\u00f6st l\u00f6g,<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>skyldi \u00e9g hafna ni\u00f0jum Jakobs og Dav\u00ed\u00f0s, \u00fej\u00f3ns m\u00edns? Skyldi \u00e9g lei\u00f0a hj\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 velja af ni\u00f0jum hans drottnara yfir \u00e6tt Abrahams, \u00cdsaks og Jakobs? Nei, \u00e9g mun sn\u00faa vi\u00f0 h\u00f6gum \u00feeirra og miskunna \u00feeim.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>33.1<\/b> \u00cd gar\u00f0i var\u00f0li\u00f0sins Jer 32.2+<br \/>\n<b>33.2<\/b> Nafn hans er Drottinn Jer 31.35+<br \/>\n<b>33.3<\/b> Hr\u00f3pa\u00f0u, \u00e9g mun b\u00e6nheyra Jer 29.12; Slm 50.15 \u2013 ekki \u00e1\u00f0ur \u00feekkt Jes 48.6<br \/>\n<b>33.5<\/b> Heift Gu\u00f0s Jer 7.20+ ; 5M\u00f3s 31.17<br \/>\n<b>33.6<\/b> L\u00e6kning Jer 3.22; 8.22; 30.17<br \/>\n<b>33.7<\/b> Endurreisa Jer 29.14+<br \/>\n<b>33.8<\/b> Hreinsa Esk 36.25 \u2013 fyrirgefa Jer 31.34<br \/>\n<b>33.9<\/b> Til gle\u00f0i Jer 13.11; Sef 3.20<br \/>\n<b>33.10<\/b> Segi\u00f0 um 32.43<br \/>\n<b>33.11<\/b> Fagna\u00f0ar\u00f3p Jer 7.34 \u2013 \u00feakkarf\u00f3rn 2Kro 29.31 \u2013 \u00feakki\u00f0 Drottni Slm 105.1+ &#8211; \u00fev\u00ed a\u00f0 hann  er g\u00f3\u00f0ur Slm 106.1+ &#8211; endurreisn Jer 29.14+<br \/>\n<b>33.14<\/b> Fyrirheitin r\u00e6tast Jer 29.10<br \/>\n<b>33.15-16<\/b> \u00c1 \u00feeim d\u00f6gum, r\u00e9ttl\u00e6ti okkar Jer 23.5-6<br \/>\n<b>33.16<\/b> N\u00fdtt nafn H\u00f3s 2.1; Jes 1.26 \u2013 Jer\u00fasalem Sak 8.3; Bar 5.4<br \/>\n<b>33.17-18<\/b> Konungsd\u00e6mi Dav\u00ed\u00f0s st\u00f6\u00f0ugt 2Sam 7.16; 1Kon 2.4; 8.25; 9.5<br \/>\n<b>33.20<\/b> Dagur og n\u00f3tt Jer 31.36<br \/>\n<b>33.21<\/b> S\u00e1ttm\u00e1li vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 Slm 89.29,35; S\u00edr 45.25<br \/>\n<b>33.22<\/b> \u00d3teljand\ti 1M\u00f3s 15.5; 22.17 \u2013 sem sj\u00e1varsandur Jes 10.22+<br \/>\n<b>33.24<\/b> \u00datvaldir \u00e6ttb\u00e1lkar Jer 50.4<br \/>\n<b>33.26<\/b> Sn\u00faa vi\u00f0 h\u00f6gum Jer 29.14+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Og or\u00f0 Drottins kom til Jerem\u00eda anna\u00f0 sinn, \u00fe\u00e1 er hann enn var inniloka\u00f0ur \u00ed var\u00f0gar\u00f0inum:2Svo segir Drottinn, s\u00e1 er framkv\u00e6mir \u00fea\u00f0, Drottinn, s\u00e1 er upphugsar \u00fea\u00f0, til \u00feess a\u00f0 koma \u00fev\u00ed til vegar Drottinn er nafn hans:3Kalla \u00fe\u00fa \u00e1 mig og mun \u00e9g svara \u00fe\u00e9r og kunngj\u00f6ra \u00fe\u00e9r mikla hluti og \u00f3skiljanlega, er \u00fe\u00fa hefir eigi \u00feekkt.4J\u00e1, svo segir Drottinn, \u00cdsraels Gu\u00f0, um h\u00fas \u00feessarar borgar og um hallir J\u00fadakonunga, sem rifin voru ni\u00f0ur vegna hervirkjanna og sver\u00f0sins:5\u00dea\u00f0 koma einhverjir til \u00feess a\u00f0 berjast gegn Kaldeum og til \u00feess a\u00f0 fylla h\u00fasin l\u00edkum \u00feeirra manna, er \u00e9g hefi losti\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/jeremia-33-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2125","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2125","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2125"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2125\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2125"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}