{"id":2115,"date":"2017-11-18T20:20:14","date_gmt":"2017-11-18T20:20:14","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/jeremia-23-kafli\/"},"modified":"2017-11-18T20:20:14","modified_gmt":"2017-11-18T20:20:14","slug":"jeremia-23-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/jeremia-23-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 23. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Vei hir\u00f0unum, sem ey\u00f0a og tv\u00edstra g\u00e6sluhj\u00f6r\u00f0 minni! segir Drottinn.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed segir Drottinn, \u00cdsraels Gu\u00f0, svo um hir\u00f0ana, sem g\u00e6ta \u00fej\u00f3\u00f0ar minnar: \u00de\u00e9r hafi\u00f0 tv\u00edstra\u00f0 sau\u00f0um m\u00ednum og sundra\u00f0 \u00feeim og ekki liti\u00f0 eftir \u00feeim. Sj\u00e1, \u00e9g skal vitja vonskuverka y\u00f0ar \u00e1 y\u00f0ur segir Drottinn.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>En \u00e9g vil sj\u00e1lfur safna leifum hjar\u00f0ar minnar saman \u00far \u00f6llum l\u00f6ndum, \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g hefi reki\u00f0 \u00fe\u00e1, og lei\u00f0a \u00fe\u00e1 aftur \u00ed haglendi \u00feeirra, og \u00feeir skulu frj\u00f3vgast og \u00feeim fj\u00f6lga.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og \u00e9g vil setja hir\u00f0a yfir \u00fe\u00e1, og \u00feeir skulu g\u00e6ta \u00feeirra, og \u00feeir skulu eigi framar hr\u00e6\u00f0ast n\u00e9 skelfast og einskis \u00feeirra skal sakna\u00f0 ver\u00f0a segir Drottinn.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Sj\u00e1, \u00feeir dagar munu koma segir Drottinn a\u00f0 \u00e9g mun uppvekja fyrir Dav\u00ed\u00f0 r\u00e9ttan kvist, er r\u00edkja skal sem konungur og breyta viturlega og i\u00f0ka r\u00e9tt og r\u00e9ttl\u00e6ti \u00ed landinu.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00c1 hans d\u00f6gum mun J\u00fada h\u00f3lpinn ver\u00f0a og \u00cdsrael b\u00faa \u00f3hultur, og \u00feetta mun ver\u00f0a nafn hans, \u00fea\u00f0 er menn nefna hann me\u00f0: Drottinn er vort r\u00e9ttl\u00e6ti!<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Sj\u00e1, fyrir \u00fev\u00ed munu \u00feeir dagar koma segir Drottinn a\u00f0 menn munu eigi framar segja: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, s\u00e1 er leiddi \u00cdsraelsmenn \u00fat af Egyptalandi!<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>heldur: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, s\u00e1 er leiddi og flutti heim ni\u00f0ja \u00cdsraels h\u00fass \u00far landinu nor\u00f0ur fr\u00e1 og \u00far \u00f6llum \u00feeim l\u00f6ndum, \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g haf\u00f0i reki\u00f0 \u00fe\u00e1, svo a\u00f0 \u00feeir m\u00e6ttu b\u00faa \u00ed landi s\u00ednu!<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Um sp\u00e1mennina: Hjarta\u00f0 \u00ed brj\u00f3sti m\u00e9r er sundurmari\u00f0, \u00f6ll bein m\u00edn skj\u00e1lfa. \u00c9g er eins og drukkinn ma\u00f0ur, eins og ma\u00f0ur sem v\u00edni\u00f0 hefir buga\u00f0, vegna Drottins og vegna hans heil\u00f6gu or\u00f0a.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Landi\u00f0 er fullt af h\u00f3rk\u00f6rlum, j\u00e1, vegna b\u00f6lvunarinnar syrgir landi\u00f0, og beitil\u00f6ndin \u00ed \u00f6r\u00e6funum eru skr\u00e6lnu\u00f0. \u00deeir hlaupa \u00e1 eftir vonsku og styrkur \u00feeirra er \u00f3sanns\u00f6gli.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>B\u00e6\u00f0i sp\u00e1menn og prestar eru gu\u00f0lausir, jafnvel \u00ed h\u00fasi m\u00ednu hefi \u00e9g reki\u00f0 mig \u00e1 vonsku \u00feeirra segir Drottinn.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed mun vegur \u00feeirra ver\u00f0a \u00feeim eins og sleipir sta\u00f0ir \u00ed myrkri. \u00deeim skal ver\u00f0a hrundi\u00f0, svo a\u00f0 \u00feeir detti \u00e1 honum, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g lei\u00f0i \u00f3hamingju yfir \u00fe\u00e1 \u00e1ri\u00f0 sem \u00feeim ver\u00f0ur refsa\u00f0 segir Drottinn.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Hj\u00e1 sp\u00e1m\u00f6nnum Samar\u00edu s\u00e1 \u00e9g hneykslanlegt ath\u00e6fi: \u00deeir sp\u00e1\u00f0u \u00ed nafni Baals og leiddu l\u00fd\u00f0 minn \u00cdsrael afvega.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>En hj\u00e1 sp\u00e1m\u00f6nnum Jer\u00fasalem s\u00e1 \u00e9g hryllilegt ath\u00e6fi: \u00deeir dr\u00fdgja h\u00f3r og fara me\u00f0 lygar og veita illgj\u00f6r\u00f0arm\u00f6nnum li\u00f0veislu, svo a\u00f0 enginn \u00feeirra sn\u00fdr s\u00e9r fr\u00e1 illsku sinni. \u00deeir eru allir or\u00f0nir m\u00e9r eins og S\u00f3d\u00f3ma og \u00edb\u00faar hennar eins og G\u00f3morra.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed segir Drottinn allsherjar svo um sp\u00e1mennina: Sj\u00e1, \u00e9g vil gefa \u00feeim malurt a\u00f0 eta og eiturvatn a\u00f0 drekka, \u00fev\u00ed a\u00f0 fr\u00e1 sp\u00e1m\u00f6nnum Jer\u00fasalem hefir gu\u00f0leysi brei\u00f0st \u00fat um allt landi\u00f0.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>&#8222;Svo segir Drottinn allsherjar: Hl\u00fd\u00f0i\u00f0 ekki \u00e1 or\u00f0 sp\u00e1mannanna, sem sp\u00e1 y\u00f0ur; \u00feeir draga y\u00f0ur \u00e1 t\u00e1lar. \u00deeir bo\u00f0a vitranir, sem \u00feeir sj\u00e1lfir hafa spunni\u00f0 upp, en ekki fengi\u00f0 fr\u00e1 Drottni.&#8220;<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>S\u00edfelldlega segja \u00feeir vi\u00f0 \u00fe\u00e1, er hafa hafna\u00f0 or\u00f0i Drottins: Y\u00f0ur mun heill hlotnast! Og vi\u00f0 alla sem fara eftir \u00fever\u00fa\u00f0 hjarta s\u00edns, segja \u00feeir: Engin \u00f3g\u00e6fa mun yfir y\u00f0ur koma!<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>J\u00e1, hver stendur \u00ed r\u00e1\u00f0i Drottins? Hver s\u00e9r og heyrir or\u00f0 hans? Hver gefur gaum a\u00f0 or\u00f0um m\u00ednum og kunngj\u00f6rir \u00feau?<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Sj\u00e1, stormur Drottins br\u00fdst fram rei\u00f0i og hvirfilbylur hann steypist yfir h\u00f6fu\u00f0 hinna \u00f3gu\u00f0legu.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Rei\u00f0i Drottins l\u00e9ttir ekki fyrr en hann hefir framkv\u00e6mt og leitt til lykta fyrir\u00e6tlanir hjarta s\u00edns. S\u00ed\u00f0ar meir munu\u00f0 \u00fe\u00e9r skilja \u00fea\u00f0 greinilega.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00c9g hefi ekki sent sp\u00e1mennina, og \u00fe\u00f3 hlupu \u00feeir. \u00c9g hefi eigi tala\u00f0 til \u00feeirra, og \u00fe\u00f3 sp\u00e1\u00f0u \u00feeir.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Hef\u00f0u \u00feeir sta\u00f0i\u00f0 \u00ed m\u00ednu r\u00e1\u00f0i, \u00fe\u00e1 mundu \u00feeir kunngj\u00f6ra \u00fej\u00f3\u00f0 minni m\u00edn or\u00f0 og sn\u00faa \u00feeim fr\u00e1 \u00feeirra vonda vegi og fr\u00e1 \u00feeirra vondu verkum.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Er \u00e9g \u00fe\u00e1 a\u00f0eins Gu\u00f0 \u00ed n\u00e1nd segir Drottinn og ekki Gu\u00f0 \u00ed fjarl\u00e6g\u00f0?<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Getur nokkur fali\u00f0 sig \u00ed fylgsnum, svo a\u00f0 \u00e9g sj\u00e1i hann ekki? segir Drottinn. Uppfylli \u00e9g ekki himin og j\u00f6r\u00f0? segir Drottinn.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>\u00c9g heyri hva\u00f0 sp\u00e1mennirnir segja, \u00feeir sem bo\u00f0a lygar \u00ed m\u00ednu nafni. \u00deeir segja: Mig dreymdi, mig dreymdi!<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Hversu lengi \u00e1 \u00feetta svo a\u00f0 ganga? \u00c6tla sp\u00e1mennirnir, \u00feeir er bo\u00f0a lygar og flytja t\u00e1l, er \u00feeir sj\u00e1lfir hafa upp spunni\u00f0<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>hvort hyggjast \u00feeir a\u00f0 koma \u00fej\u00f3\u00f0 minni til a\u00f0 gleyma nafni m\u00ednu, me\u00f0 draumum s\u00ednum, er \u00feeir segja hver \u00f6\u00f0rum, eins og fe\u00f0ur \u00feeirra gleymdu nafni m\u00ednu vegna Baals?<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>S\u00e1 sp\u00e1ma\u00f0ur, sem dreymir draum, segi drauminn, og s\u00e1, sem hefir mitt or\u00f0, flytji hann mitt or\u00f0 \u00ed sannleika. Hva\u00f0 er sameiginlegt h\u00e1lmstr\u00e1i og korni? segir Drottinn.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Er ekki or\u00f0 mitt eins og eldur segir Drottinn og eins og hamar, sem sundurmolar klettana?<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Sj\u00e1, \u00feess vegna skal \u00e9g finna sp\u00e1mennina segir Drottinn sem stela or\u00f0um m\u00ednum hver fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00c9g skal finna sp\u00e1mennina segir Drottinn sem taka til sinnar eigin tungu til \u00feess a\u00f0 umla gu\u00f0m\u00e6li.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>\u00c9g skal finna sp\u00e1mennina, sem kunngj\u00f6ra lygadrauma segir Drottinn og segja fr\u00e1 \u00feeim og lei\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0 m\u00edna afvega me\u00f0 lygum s\u00ednum og gorti, og \u00fe\u00f3 hefi \u00e9g ekki sent \u00fe\u00e1 og ekkert umbo\u00f0 gefi\u00f0 \u00feeim, og \u00feeir gj\u00f6ra \u00feessari \u00fej\u00f3\u00f0 alls ekkert gagn segir Drottinn.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>\u00deegar \u00feessi l\u00fd\u00f0ur spyr \u00feig, e\u00f0a einhver sp\u00e1ma\u00f0urinn e\u00f0a einhver presturinn, og segir: Hver er byr\u00f0i Drottins? \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa segja vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u00de\u00e9r eru\u00f0 byr\u00f0in, og \u00e9g mun varpa y\u00f0ur af m\u00e9r segir Drottinn.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>En s\u00e1 sp\u00e1ma\u00f0ur og s\u00e1 prestur og s\u00e1 l\u00fd\u00f0ur, sem talar um byr\u00f0i Drottins sl\u00edks manns vil \u00e9g vitja og h\u00fass hans.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>Svo skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r segja hver vi\u00f0 annan og einn vi\u00f0 annan: Hverju hefir Drottinn svara\u00f0? e\u00f0a Hva\u00f0 hefir Drottinn sagt?<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>En byr\u00f0i Drottins skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki framar nefna, \u00fev\u00ed a\u00f0 hverjum manni munu \u00feau or\u00f0 hans ver\u00f0a byr\u00f0i, \u00fear sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 rangf\u00e6rt or\u00f0 hins lifanda Gu\u00f0s, Drottins allsherjar, vors Gu\u00f0s.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>Svo skulu menn segja vi\u00f0 sp\u00e1manninn: Hverju hefir Drottinn svara\u00f0 \u00fe\u00e9r? e\u00f0a Hva\u00f0 hefir Drottinn sagt?<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>En ef \u00fe\u00e9r tali\u00f0 um byr\u00f0i Drottins \u00fe\u00e1 segir Drottinn svo: Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r vi\u00f0hafi\u00f0 \u00feetta or\u00f0 byr\u00f0i Drottins, \u00fe\u00f3tt \u00e9g gj\u00f6r\u00f0i y\u00f0ur \u00fe\u00e1 or\u00f0sending: \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki tala um byr\u00f0i Drottins<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>sj\u00e1, fyrir \u00fev\u00ed vil \u00e9g hefja y\u00f0ur upp og varpa y\u00f0ur og borginni, sem \u00e9g gaf y\u00f0ur og fe\u00f0rum y\u00f0ar, burt fr\u00e1 m\u00ednu augliti.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>Og \u00e9g legg \u00e1 y\u00f0ur eil\u00edfa sm\u00e1n og eil\u00edfa sk\u00f6mm, sem aldrei mun gleymast.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>23.1<\/b> Tv\u00edstra hj\u00f6r\u00f0inni Jer 10.21; 50.6; Jes 53.6; Esk 34.5; sbr Mrk 6.34 og hlst; 1P\u00e9t 2.25<br \/>\n<b>23.2<\/b> Sl\u00e6mir hir\u00f0ar Esk 34.1-10 \u2013 fyrir illvirki y\u00f0ar Jer 27.22+<br \/>\n<b>23.3<\/b> Sj\u00e1lfur safna saman Esk 34.11-16; sbr Jer 29.10-14 \u2013 \u00feeim sem eftir eru  Jes 4.3+ &#8211; tv\u00edstru\u00f0um safna\u00f0 saman Jer 29.14; 31.8,10; 32.37; 5M\u00f3s 30.3-4; Jes 11-12+ ; 27.13; 56.8; Esk 11.17; 20.41; 37.21-22 \u2013 lei\u00f0a aftur &#8230; Jer 24.6; 27.22; 30.3; 32.37; 50.19<br \/>\n<b>23.4<\/b> Hyggnir hir\u00f0ar Jer 3.15 \u2013 skelfast ekki Jer 30.10<br \/>\n<b>23.5<\/b> R\u00e9ttl\u00e1tur kvistur Jes 4.2; Sak 3.8; 6.12 \u2013 Dav\u00ed\u00f0s Jer 33.15; 2Sam 7.12 \u2013 breyta viturlega Esk 34.23-24; M\u00edk 5.3 \u2013 r\u00e9ttur og r\u00e9ttl\u00e6ti Jer 33.15; Jes 9.6; sbr Jer 22.13+<br \/>\n<b>23.6<\/b> J\u00fada og \u00cdsrael Jer 31.27-28; 33.7; 50.4 \u2013 \u00f3hultur Jer 32.37 \u2013 Drottinn er r\u00e9ttl\u00e6ti okkar Jer 33.16; sbr R\u00f3m 1.17; 1Kor 1.30; 2Kor 5.21; Fil 3.9; sbr Mal 3.20<br \/>\n<b>23.7-8<\/b> \u00deeir dagar koma Jer 16.14-15<br \/>\n<b>23.8<\/b> \u00cd nor\u00f0ri Jer 3.18; Jes 43.6; sbr Jer 1.14+<br \/>\n<b>23.9<\/b> Sp\u00e1menn Jer 2.8+<br \/>\n<b>23.10<\/b> H\u00f3rkarlar Jer 23.14; sbr 9.1+ &#8211; landi\u00f0 syrgir Jer 4.28<br \/>\n<b>23.11<\/b> Sp\u00e1menn og prestar Jer 2.8+ &#8211; gu\u00f0lausir Hlj 4.13<br \/>\n<b>23.12<\/b> H\u00e1ll vegur Slm 35.6; 73.18<br \/>\n<b>23.14<\/b> \u00cd Jer\u00fasalem Jer 3.11 \u2013 hryllilegt ath\u00e6fi Jer 5.30-31; 18.13 \u2013 lj\u00faga Jer 3.10,23; 5.1,31; 6.13; 7.4,8,9; 8.8,10; 9.23; 10.14; 14.14; 16.19; 20.6; 23.25-26,32; 27.10,14-15; 28.15; 29.9,21,23,31; sbr 37.14; 40.16 \u2013 hverfa fr\u00e1 Jer 23.22 \u2013 S\u00f3d\u00f3ma og G\u00f3morra Jes 1.9+<br \/>\n<b>23.15<\/b> Malurt Jer 9.14 \u2013 eitra\u00f0 vatn Jer 8.14+ ; sbr 25.15+ &#8211; landi\u00f0 saurga\u00f0 Jer 2.7; 3.2<br \/>\n<b>23.16<\/b> Uppspunar s\u00fdnir Jer 14.14; Hlj 2.14<br \/>\n<b>23.17<\/b> Sp\u00e1 heill Jer 6.14 \u2013 \u00fever\u00fa\u00f0 Jer 3.17+ &#8211; engin \u00f3g\u00e6fa Jer 5.12; Jes 28.15; M\u00edk 3.11<br \/>\n<b>23.18<\/b> R\u00e1\u00f0 Drottins 1Kon 22.19-22; Jes 6.1-3; Am 3.7; Job 1.6; 2.1; 15.8; sbr Jer 15.1; 18.20; Am 7.1-6<br \/>\n<b>23.19<\/b> Hvirfilbylur Jer 4.11; 22.22; Jes 29.6; Nah 1.3; Slm 50.3+<br \/>\n<b>23.20<\/b> S\u00ed\u00f0ar meir J\u00f3s 3.5; J\u00f3h 13.7,36<br \/>\n<b>23.21<\/b> Sendi ekki Jer 23.32; 14.14-15+<br \/>\n<b>23.22<\/b> Bo\u00f0a m\u00edn or\u00f0 Jer 23.28; 15.19 \u2013 sn\u00faa fr\u00e1 vondri breytni Jer 18.11<br \/>\n<b>23.24<\/b> \u00c9g get ekki s\u00e9\u00f0? Slm 139.11-12 \u2013 fylli himin og j\u00f6r\u00f0 SSal 1.7; sbr Post 7.49<br \/>\n<b>23.26<\/b> Bo\u00f0a lygi \u00ed nafni Drottins Jer 14.14<br \/>\n<b>23.29<\/b> Or\u00f0 Drottins Heb 4.12 \u2013 eins og eldur Jer 5.14+<br \/>\n<b>23.32<\/b> Ekki fr\u00e1 Gu\u00f0i Jer 23.21+ &#8211; einskis gagns Jer 7.8<br \/>\n<b>23.36<\/b> Rangf\u00e6ra or\u00f0i\u00f0 Matt 15.6 \u2013 lifandi Gu\u00f0 Jer 10.10; 5M\u00f3s 5.26<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Vei hir\u00f0unum, sem ey\u00f0a og tv\u00edstra g\u00e6sluhj\u00f6r\u00f0 minni! segir Drottinn.2Fyrir \u00fev\u00ed segir Drottinn, \u00cdsraels Gu\u00f0, svo um hir\u00f0ana, sem g\u00e6ta \u00fej\u00f3\u00f0ar minnar: \u00de\u00e9r hafi\u00f0 tv\u00edstra\u00f0 sau\u00f0um m\u00ednum og sundra\u00f0 \u00feeim og ekki liti\u00f0 eftir \u00feeim. Sj\u00e1, \u00e9g skal vitja vonskuverka y\u00f0ar \u00e1 y\u00f0ur segir Drottinn.3En \u00e9g vil sj\u00e1lfur safna leifum hjar\u00f0ar minnar saman \u00far \u00f6llum l\u00f6ndum, \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g hefi reki\u00f0 \u00fe\u00e1, og lei\u00f0a \u00fe\u00e1 aftur \u00ed haglendi \u00feeirra, og \u00feeir skulu frj\u00f3vgast og \u00feeim fj\u00f6lga.4Og \u00e9g vil setja hir\u00f0a yfir \u00fe\u00e1, og \u00feeir skulu g\u00e6ta \u00feeirra, og \u00feeir skulu eigi framar hr\u00e6\u00f0ast n\u00e9 skelfast og einskis \u00feeirra skal sakna\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/jeremia-23-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2115","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2115","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2115"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2115\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2115"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}