{"id":2085,"date":"2017-11-18T20:20:02","date_gmt":"2017-11-18T20:20:02","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/jesaja-59-kafli\/"},"modified":"2017-11-18T20:20:02","modified_gmt":"2017-11-18T20:20:02","slug":"jesaja-59-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/jesaja-59-kafli\/","title":{"rendered":"Jesaja 59. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Sj\u00e1, h\u00f6nd Drottins er eigi svo stutt, a\u00f0 hann geti ekki hj\u00e1lpa\u00f0, og eyra hans er ekki svo \u00feykkt, a\u00f0 hann heyri ekki.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00dea\u00f0 eru misgj\u00f6r\u00f0ir y\u00f0ar, sem skilna\u00f0 hafa gj\u00f6rt milli y\u00f0ar og Gu\u00f0s y\u00f0ar, og syndir y\u00f0ar, sem byrgt hafa auglit hans fyrir y\u00f0ur, svo a\u00f0 hann heyrir ekki.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Hendur y\u00f0ar eru bl\u00f3\u00f0i ata\u00f0ar og fingur y\u00f0ar misgj\u00f6r\u00f0um, varir y\u00f0ar tala lygi og tunga y\u00f0ar fer me\u00f0 illsku.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Enginn stefnir fyrir d\u00f3m af \u00fev\u00ed, a\u00f0 honum gangi r\u00e9ttl\u00e6ti til, og enginn \u00e1 \u00ed m\u00e1laferlum sannleikans vegna. Menn rei\u00f0a sig \u00e1 h\u00e9g\u00f3ma og tala lygi, \u00feeir ganga me\u00f0 rangl\u00e6ti og ala illgj\u00f6r\u00f0ir.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00deeir klekja \u00fat hornormseggjum og vefa k\u00f6ngul\u00f3arvefi. Hverjum sem etur af eggjum \u00feeirra er dau\u00f0inn v\u00eds, og ver\u00f0i eitthvert \u00feeirra tro\u00f0i\u00f0 sundur, skr\u00ed\u00f0ur \u00far \u00fev\u00ed eiturormur.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Vefna\u00f0ur \u00feeirra er \u00f3n\u00fdtur til kl\u00e6\u00f0a, og \u00fea\u00f0 sem \u00feeir vinna ver\u00f0ur eigi haft til skj\u00f3ls: Athafnir \u00feeirra eru illvirki, og ofbeldisverk liggja \u00ed l\u00f3fum \u00feeirra.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>F\u00e6tur \u00feeirra eru skj\u00f3tir til ills, og flj\u00f3tir til a\u00f0 \u00fathella saklausu bl\u00f3\u00f0i. R\u00e1\u00f0agj\u00f6r\u00f0ir \u00feeirra eru ska\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00e1\u00f0agj\u00f6r\u00f0ir, ey\u00f0ing og tort\u00edming er \u00e1 vegum \u00feeirra.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Veg fri\u00f0arins \u00feekkja \u00feeir ekki, og ekkert r\u00e9ttl\u00e6ti er \u00e1 \u00feeirra stigum. \u00deeir hafa gj\u00f6rt vegu s\u00edna hlykkj\u00f3tta, hver s\u00e1, er \u00fe\u00e1 gengur, hefir ekki af fri\u00f0i a\u00f0 segja.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed er r\u00e9tturinn fjarl\u00e6gur oss og r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 kemur ekki n\u00e1l\u00e6gt oss. V\u00e9r v\u00e6ntum lj\u00f3ss, en \u00fea\u00f0 er myrkur, v\u00e6ntum dagsbirtu, en g\u00f6ngum \u00ed ni\u00f0dimmu.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>V\u00e9r \u00fereifum fyrir oss, eins og blindir menn me\u00f0 vegg, f\u00e1lmum eins og \u00feeir, sem misst hafa sj\u00f3nina. Oss ver\u00f0ur f\u00f3taskortur um h\u00e1bjartan daginn eins og \u00ed r\u00f6kkri, \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins erum v\u00e9r sem dau\u00f0ir menn.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>V\u00e9r rymjum allir sem birnir, kurrum eins og d\u00fafur. V\u00e9r v\u00e6ntum r\u00e9ttar, en hann f\u00e6st ekki, v\u00e6ntum hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0is, en \u00fea\u00f0 er langt \u00ed burtu fr\u00e1 oss.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Afbrot vor eru m\u00f6rg frammi fyrir \u00fe\u00e9r og syndir vorar vitna \u00ed gegn oss, \u00fev\u00ed a\u00f0 afbrot vor eru oss kunn og misgj\u00f6r\u00f0ir vorar \u00feekkjum v\u00e9r.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>V\u00e9r h\u00f6fum horfi\u00f0 fr\u00e1 Drottni og afneita\u00f0 honum og viki\u00f0 burt fr\u00e1 Gu\u00f0i vorum. V\u00e9r h\u00f6fum l\u00e1ti\u00f0 oss ofr\u00edki og fr\u00e1hvarf um munn fara, v\u00e9r h\u00f6fum upphugsa\u00f0 og m\u00e6lt fram af hjarta voru lygaor\u00f0.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Og r\u00e9tturinn er hrakinn \u00e1 h\u00e6l, og r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 stendur langt \u00ed burtu, \u00fev\u00ed a\u00f0 sannleikurinn hrasa\u00f0i \u00e1 str\u00e6tunum og hreinskilnin kemst ekki a\u00f0.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Sannleikurinn er horfinn, og s\u00e1 sem firrist \u00fea\u00f0, sem illt er, ver\u00f0ur \u00f6\u00f0rum a\u00f0 herfangi. Og Drottinn s\u00e1 \u00fea\u00f0, og honum misl\u00edka\u00f0i r\u00e9ttleysi\u00f0.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Og hann s\u00e1 a\u00f0 \u00fear var enginn, og hann undra\u00f0ist, a\u00f0 enginn vildi \u00ed skerast. En \u00fe\u00e1 hj\u00e1lpa\u00f0i honum armleggur hans, og r\u00e9ttl\u00e6ti hans studdi hann.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Hann \u00edkl\u00e6ddist r\u00e9ttl\u00e6tinu sem pansara og setti hj\u00e1lm hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0isins \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 s\u00e9r. Hann kl\u00e6ddist kl\u00e6\u00f0um hefndarinnar sem fati og hj\u00fapa\u00f0i sig vandl\u00e6tinu eins og skikkju.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Eins og menn hafa unni\u00f0 til, svo mun hann gjalda: m\u00f3tst\u00f6\u00f0um\u00f6nnum s\u00ednum heift og \u00f3vinum s\u00ednum hefnd, fjarl\u00e6gum lands\u00e1lfum endurgeldur hann.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Menn munu \u00f3ttast nafn Drottins \u00ed fr\u00e1 ni\u00f0urg\u00f6ngu s\u00f3lar og d\u00fdr\u00f0 hans \u00ed fr\u00e1 uppr\u00e1s s\u00f3lar. J\u00e1, hann br\u00fdst fram eins og \u00e1 \u00ed glj\u00fafrum, er andgustur Drottins kn\u00fdr \u00e1fram.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>En til S\u00edonar kemur hann sem frelsari, til \u00feeirra \u00ed Jakob, sem sn\u00fai\u00f0 hafa s\u00e9r fr\u00e1 syndum segir Drottinn.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00deessi er s\u00e1ttm\u00e1linn, sem \u00e9g gj\u00f6ri vi\u00f0 \u00fe\u00e1 segir Drottinn: Andi minn, sem er yfir \u00fe\u00e9r, og or\u00f0 m\u00edn, sem \u00e9g hefi lagt \u00ed munn \u00fe\u00e9r, \u00feau skulu ekki v\u00edkja fr\u00e1 munni \u00fe\u00ednum, n\u00e9 fr\u00e1 munni ni\u00f0ja \u00feinna, n\u00e9 fr\u00e1 munni ni\u00f0ja ni\u00f0ja \u00feinna, segir Drottinn, h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og a\u00f0 eil\u00edfu.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>59.1<\/b> H\u00f6nd Drottins stutt Jes 50.2+<br \/>\n<b>59.2<\/b> Syndir y\u00f0ar &#8230; Jes 50.1; Jer 5.25 \u2013 hylja auglit hans Jes 8.17; 5M\u00f3s 31.17-18<br \/>\n<b>59.3<\/b> Ata\u00f0ar bl\u00f3\u00f0i Jes 1.15<br \/>\n<b>59.4<\/b> Ganga me\u00f0 &#8230; f\u00e6\u00f0a Slm 7.15; Job 15.35; sbr Jak 1.15<br \/>\n<b>59.5<\/b> N\u00f6\u00f0ruegg Jes 14.29; sbr Slm 58.3-10; Matt 3.7<br \/>\n<b>59.7-8<\/b> Sj\u00e1 Okv 1.16; R\u00f3m 3.15-16<br \/>\n<b>59.8<\/b> Hlykkj\u00f3ttir vegir Okv 2.15; 10.9 \u2013 \u00feekkir ekki fri\u00f0 Jes 48.22; 57.21<br \/>\n<b>59.9<\/b> Myrkur \u00ed sta\u00f0 lj\u00f3ss Jer 13.16; Am 5.18-20; Job 30.26<br \/>\n<b>59.10<\/b> Eins og blindir 5M\u00f3s 28.29; Sef 1.17<br \/>\n<b>59.11<\/b> V\u00e9r v\u00e6ntum &#8230; en Jer 8.15<br \/>\n<b>59.12<\/b> Syndir vitna gegn Jer 14.7 \u2013 st\u00f6\u00f0ugt hj\u00e1 oss Slm 51.5<br \/>\n<b>59.13<\/b> Misgj\u00f6r\u00f0ir Jer 7.9; sbr R\u00f3m 1.29+<br \/>\n<b>59.14<\/b> \u00c1 torginu Slm 55.11-12<br \/>\n<b>59.15<\/b> For\u00f0ast illt Job 1.1,8; 2.3<br \/>\n<b>59.16<\/b> Enginn Jes 41.28+ &#8211; armur Jes 40.10+<br \/>\n<b>59.17<\/b> Hann kl\u00e6ddist Jes 61.10 \u2013 afbr\u00fd\u00f0innar Jes 63.15; sbr Jes 9.6; 37.32 \u2013 hertygi Drottins SSal 5.17-23; Ef 6.14-17; 1\u00deess 5.8 \u2013 r\u00e9ttl\u00e6ti og hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0i Jes 45.8+<br \/>\n<b>59.19<\/b> \u00d3ttast sbr Jes 33.3 \u2013 nafn og d\u00fdr\u00f0 Drottins Jes 24.14-15; Slm 102.16 \u2013 \u00ed vestri og austri Mal 1.11; Matt 8.11 \u2013 stormur fr\u00e1 Drottni Jes 30.27-28<br \/>\n<b>59.20-21<\/b> Sj\u00e1 R\u00f3m 11.26<br \/>\n<b>59.20<\/b> Lausnari Jes 41.14+<br \/>\n<b>59.21<\/b> Andi minn Jes 11.2+ ; 42.1+ &#8211; \u00fe\u00e9r \u00ed munn Jes 51.16+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Sj\u00e1, h\u00f6nd Drottins er eigi svo stutt, a\u00f0 hann geti ekki hj\u00e1lpa\u00f0, og eyra hans er ekki svo \u00feykkt, a\u00f0 hann heyri ekki.2\u00dea\u00f0 eru misgj\u00f6r\u00f0ir y\u00f0ar, sem skilna\u00f0 hafa gj\u00f6rt milli y\u00f0ar og Gu\u00f0s y\u00f0ar, og syndir y\u00f0ar, sem byrgt hafa auglit hans fyrir y\u00f0ur, svo a\u00f0 hann heyrir ekki.3Hendur y\u00f0ar eru bl\u00f3\u00f0i ata\u00f0ar og fingur y\u00f0ar misgj\u00f6r\u00f0um, varir y\u00f0ar tala lygi og tunga y\u00f0ar fer me\u00f0 illsku.4Enginn stefnir fyrir d\u00f3m af \u00fev\u00ed, a\u00f0 honum gangi r\u00e9ttl\u00e6ti til, og enginn \u00e1 \u00ed m\u00e1laferlum sannleikans vegna. Menn rei\u00f0a sig \u00e1 h\u00e9g\u00f3ma og tala lygi, \u00feeir ganga me\u00f0 rangl\u00e6ti og ala illgj\u00f6r\u00f0ir.5\u00deeir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/jesaja-59-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2085","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2085","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2085"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2085\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2085"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}