{"id":2068,"date":"2017-11-18T20:20:02","date_gmt":"2017-11-18T20:20:02","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/jesaja-42-kafli\/"},"modified":"2017-11-18T20:20:02","modified_gmt":"2017-11-18T20:20:02","slug":"jesaja-42-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/jesaja-42-kafli\/","title":{"rendered":"Jesaja 42. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Sj\u00e1 \u00fej\u00f3n minn, sem \u00e9g lei\u00f0i m\u00e9r vi\u00f0 h\u00f6nd, minn \u00fatvalda, sem \u00e9g hefi \u00fe\u00f3knun \u00e1. \u00c9g legg anda minn yfir hann, hann mun bo\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0unum r\u00e9tt.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Hann kallar ekki og hefir ekki h\u00e1reysti og l\u00e6tur ekki heyra raust s\u00edna \u00e1 str\u00e6tunum.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Br\u00e1ka\u00f0an reyrinn br\u00fdtur hann ekki sundur, og dapran h\u00f6rkveik sl\u00f6kkur hann ekki. Hann bo\u00f0ar r\u00e9ttinn me\u00f0 tr\u00fafesti.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Hann daprast eigi og gefst eigi upp, uns hann f\u00e6r komi\u00f0 inn r\u00e9tti \u00e1 j\u00f6r\u00f0u, og fjarl\u00e6gar lands\u00e1lfur b\u00ed\u00f0a eftir bo\u00f0skap hans.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Svo segir Drottinn Gu\u00f0, s\u00e1 er sk\u00f3p himininn og \u00feandi hann \u00fat, s\u00e1 er breiddi \u00fat j\u00f6r\u00f0ina me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed, sem \u00e1 henni vex, s\u00e1 er andardr\u00e1tt gaf mannf\u00f3lkinu \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni og l\u00edfsanda \u00feeim, er \u00e1 henni ganga:<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00c9g, Drottinn, hefi kalla\u00f0 \u00feig til r\u00e9ttl\u00e6tis og held \u00ed h\u00f6nd \u00fe\u00edna. \u00c9g mun var\u00f0veita \u00feig og gj\u00f6ra \u00feig a\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1la fyrir l\u00fd\u00f0inn og a\u00f0 lj\u00f3si fyrir \u00fej\u00f3\u00f0irnar<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>til a\u00f0 opna hin blindu augun, til a\u00f0 lei\u00f0a \u00fat \u00far var\u00f0haldinu \u00fe\u00e1, er bundnir eru, og \u00far d\u00fdflissunni \u00fe\u00e1, er \u00ed myrkri sitja.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00c9g er Drottinn, \u00fea\u00f0 er nafn mitt, og d\u00fdr\u00f0 m\u00edna gef \u00e9g eigi \u00f6\u00f0rum n\u00e9 lof mitt \u00fath\u00f6ggnum l\u00edkneskjum.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Sj\u00e1, hinir fyrri hlutir eru fram komnir, en n\u00fa bo\u00f0a \u00e9g n\u00fdja hluti og l\u00e6t y\u00f0ur heyra \u00fe\u00e1 \u00e1\u00f0ur en fyrir \u00feeim vottar.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Syngi\u00f0 Drottni n\u00fdjan s\u00f6ng, syngi\u00f0 lof hans til endimarka jar\u00f0arinnar, \u00fe\u00e9r sj\u00f3farendur og allt sem \u00ed hafinu er, \u00fe\u00e9r fjarl\u00e6gar lands\u00e1lfur og \u00feeir sem \u00fe\u00e6r byggja!<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Ey\u00f0im\u00f6rkin og borgir hennar og \u00feorpin, \u00fear sem Kedar b\u00fdr, skulu hefja upp raustina. Fjallab\u00faarnir skulu fagna, \u00e6pa af gle\u00f0i ofan af fjallatindunum!<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00deeir skulu gefa Drottni d\u00fdr\u00f0ina og kunngj\u00f6ra lof hans \u00ed fjarl\u00e6gum lands\u00e1lfum!<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Drottinn leggur af sta\u00f0 sem hetja, elur \u00e1 hugm\u00f3\u00f0 s\u00ednum eins og bardagama\u00f0ur. Hann kallar, hann l\u00fdstur upp her\u00f3pi, s\u00fdnir hetjuskap \u00e1 \u00f3vinum s\u00ednum:<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00c9g hefi \u00feaga\u00f0 langan t\u00edma, veri\u00f0 hlj\u00f3\u00f0ur og stillt mig. N\u00fa mun \u00e9g hlj\u00f3\u00f0a sem j\u00f3\u00f0sj\u00fak kona, stynja og standa \u00e1 \u00f6ndinni \u00ed sama bili.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>\u00c9g mun sv\u00ed\u00f0a fj\u00f6llin og h\u00e1lsana og skr\u00e6lna l\u00e1ta allar jurtir, er \u00fear vaxa. \u00c9g mun gj\u00f6ra \u00e1r a\u00f0 eyjum og \u00feurrka upp tjarnirnar.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00c9g mun lei\u00f0a blinda menn um veg, er \u00feeir ekki rata, f\u00e6ra \u00fe\u00e1 um stigu, sem \u00feeir ekki \u00feekkja. \u00c9g vil gj\u00f6ra myrkri\u00f0 fram undan \u00feeim a\u00f0 lj\u00f3si og h\u00f3l\u00f3tt landi\u00f0 a\u00f0 jafnsl\u00e9ttu. \u00deessa hluti mun \u00e9g gj\u00f6ra, og \u00e9g h\u00e6tti eigi vi\u00f0 \u00fe\u00e1.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00deeir sem treysta skur\u00f0go\u00f0unum, h\u00f6rfa aftur \u00e1 bak og ver\u00f0a s\u00e9r til skammar, \u00feeir sem segja vi\u00f0 steypt l\u00edkneski: \u00de\u00e9r eru\u00f0 gu\u00f0ir vorir.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Heyri\u00f0, \u00fe\u00e9r hinir daufu! L\u00edti\u00f0 upp, \u00fe\u00e9r hinir blindu, a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 sj\u00e1!<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Hver er svo blindur sem \u00fej\u00f3nn minn og svo daufur sem sendibo\u00f0i minn, er \u00e9g hefi sent? Hver er svo blindur sem tr\u00fana\u00f0arma\u00f0urinn og svo blindur sem \u00fej\u00f3nn Drottins?<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>\u00de\u00fa hefir s\u00e9\u00f0 margt, en athugar \u00fea\u00f0 ekki, eyrun eru opin, en \u00fe\u00fa heyrir \u00fe\u00f3 ekki.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Fyrir sakir r\u00e9ttl\u00e6tis s\u00edns hefir Drottni \u00fe\u00f3knast a\u00f0 gj\u00f6ra kenninguna h\u00e1leita og vegsamlega.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Og \u00fe\u00f3 er \u00feetta r\u00e6ndur og rupla\u00f0ur l\u00fd\u00f0ur, \u00feeir eru allir fj\u00f6tra\u00f0ir \u00ed gryfjum og byrg\u00f0ir \u00ed myrkvastofum. \u00deeir eru or\u00f0nir a\u00f0 herfangi, og enginn frelsar \u00fe\u00e1, or\u00f0nir a\u00f0 r\u00e1nsfeng, og enginn segir: Skili\u00f0 \u00feeim aftur!<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Hver af y\u00f0ur vill hl\u00fd\u00f0a \u00e1 \u00feetta, gefa \u00fev\u00ed gaum og veita \u00fev\u00ed athygli framvegis?<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Hver hefir framselt Jakob til r\u00e1ns og fengi\u00f0 \u00cdsrael r\u00e6ningjum \u00ed hendur? Er \u00fea\u00f0 ekki Drottinn, hann, sem v\u00e9r h\u00f6fum syndga\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti? \u00c1 hans vegum vildu \u00feeir ekki ganga, og hans l\u00f6gm\u00e1li hl\u00fdddu \u00feeir ekki.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed j\u00f3s hann yfir \u00fe\u00e1 brennandi rei\u00f0i sinni og styrjaldarofsa. H\u00fan b\u00e1la\u00f0ist umhverfis \u00fe\u00e1, en \u00feeir skildu \u00fea\u00f0 eigi, h\u00fan brenndi \u00fe\u00e1, en \u00feeir hugfestu \u00fea\u00f0 eigi.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>42.1-4<\/b> sbr Matt 3.17 og hlst.; 12.18-21; 17.5 og hlst.<br \/>\n<b>42.1<\/b> \u00dej\u00f3nn minn Jes 49.3; 50.10; 52.13; sbr Jes 41.8+ &#8211; minn \u00fatvalda Jes 41.9; 43.20; 45.4 \u2013 anda minn Jes 11.2+ ; D\u00f3m 3.10; sbr Jes 44.3; 48.16; Matt 3.16 og hlst. J\u00f3h 1.32-33<br \/>\n<b>42.3<\/b> Br\u00e1ka\u00f0ur reyr 1Kon 14.15; 2Kon 18.21; Esk 29.6 \u2013 slekkur ekki Jes 43.17 \u2013 kemur \u00e1 r\u00e9tti Jes 61.3<br \/>\n<b>42.4<\/b> Lands\u00e1lfur Jes 40.15+<br \/>\n<b>42.5<\/b> Drottinn, sem skapa\u00f0i, \u00fatvaldi K\u00fdrus Jes 44.24-28; 45.12-13; 48.13-14<br \/>\n<b>42.6<\/b> M\u00f3ta\u00f0i Jes 49.8 \u2013 \u00fej\u00f3\u00f0irnar Jes 40.7+ &#8211; s\u00e1ttm\u00e1li fyrir \u00fej\u00f3\u00f0irnar Matt 26.28 \u2013 lj\u00f3s fyrir l\u00fd\u00f0ina Jes 49.6; 51.4; L\u00fak 2.32; sbr J\u00f3h 8.12<br \/>\n<b>42.7<\/b> Opna blind augu J\u00f3h 9; Post 26.18 \u2013 \u00far var\u00f0haldi Slm 107.10-14 \u2013 \u00ed myrkri sitja L\u00fak 1.79<br \/>\n<b>42.8<\/b> D\u00fdr\u00f0 m\u00edna Jes 48.11<br \/>\n<b>42.9<\/b> Fyrri hlutir Jes 43.9; 46.9; 48.3 \u2013 \u00e9g bo\u00f0a Jes 41.22; 48.6 \u2013 n\u00fdjir hlutir Jes 43.19; 48.6<br \/>\n<b>42.10<\/b> N\u00fdjan s\u00f6ng Slm 33.3+ ; J\u00fadt 16.14 \u2013 eyjar Jes 40.15+<br \/>\n<b>42.11<\/b> Kedar Jes 21.16+<br \/>\n<b>42.13<\/b> Drottinn sem hetja Jes 10.21; 5M\u00f3s 10.17; Jer 20.11; 32.18; Slm 24.8; Neh 9.32; sbr Jes 9.5 \u2013 heldur af sta\u00f0 D\u00f3m 5.4; Slm 68.8 \u2013 hugm\u00f3\u00f0ur Drottins Jes 59.17; 63.15; Sak 1.14<br \/>\n<b>42.14<\/b> Ekki hafst a\u00f0 Jes 57.11; 62.1,6; 64.11; 65.6<br \/>\n<b>42.15<\/b> \u00c1r a\u00f0 \u00feurrlendi Slm 107.33<br \/>\n<b>42.16<\/b> Drottinn lei\u00f0ir um veg 2M\u00f3s 13.21<br \/>\n<b>42.18<\/b> Heyrnarlausir og blindir Jes 43.8<br \/>\n<b>42.20<\/b> Hlustar ekki Jes 6.9 \u2013 gefur engar gaum Jes 44.18; Mrk 4.12<br \/>\n<b>42.21<\/b> L\u00f6gin 5M\u00f3s 4.5-8<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Sj\u00e1 \u00fej\u00f3n minn, sem \u00e9g lei\u00f0i m\u00e9r vi\u00f0 h\u00f6nd, minn \u00fatvalda, sem \u00e9g hefi \u00fe\u00f3knun \u00e1. \u00c9g legg anda minn yfir hann, hann mun bo\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0unum r\u00e9tt.2Hann kallar ekki og hefir ekki h\u00e1reysti og l\u00e6tur ekki heyra raust s\u00edna \u00e1 str\u00e6tunum.3Br\u00e1ka\u00f0an reyrinn br\u00fdtur hann ekki sundur, og dapran h\u00f6rkveik sl\u00f6kkur hann ekki. Hann bo\u00f0ar r\u00e9ttinn me\u00f0 tr\u00fafesti.4Hann daprast eigi og gefst eigi upp, uns hann f\u00e6r komi\u00f0 inn r\u00e9tti \u00e1 j\u00f6r\u00f0u, og fjarl\u00e6gar lands\u00e1lfur b\u00ed\u00f0a eftir bo\u00f0skap hans.5Svo segir Drottinn Gu\u00f0, s\u00e1 er sk\u00f3p himininn og \u00feandi hann \u00fat, s\u00e1 er breiddi \u00fat j\u00f6r\u00f0ina me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed, sem \u00e1 henni <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/jesaja-42-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2068","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2068","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2068"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2068\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2068"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}