{"id":1768,"date":"2017-11-18T20:18:38","date_gmt":"2017-11-18T20:18:38","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/nehemiabok-9-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T11:04:09","modified_gmt":"2021-06-06T11:04:09","slug":"nehemiabok-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/nehemiabok-9-kafli\/","title":{"rendered":"Nehem\u00edab\u00f3k 9. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 tuttugasta og fj\u00f3r\u00f0a degi \u00feessa m\u00e1na\u00f0ar s\u00f6fnu\u00f0ust \u00cdsraelsmenn saman og f\u00f6stu\u00f0u og kl\u00e6ddust h\u00e6rusekk og jusu mold yfir h\u00f6fu\u00f0 s\u00e9r.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Og ni\u00f0jar \u00cdsraels skildu sig fr\u00e1 \u00f6llum \u00fatlendingum, og \u00feeir gengu fram og j\u00e1tu\u00f0u syndir s\u00ednar og misgj\u00f6r\u00f0ir fe\u00f0ra sinna.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Og \u00feeir st\u00f3\u00f0u upp \u00fear sem \u00feeir voru, og menn l\u00e1su upp \u00far l\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3k Drottins, Gu\u00f0s \u00feeirra, fj\u00f3r\u00f0a hluta dagsins, og annan fj\u00f3r\u00f0a hluta dagsins j\u00e1tu\u00f0u \u00feeir syndir s\u00ednar og f\u00e9llu fram fyrir Drottni, Gu\u00f0i s\u00ednum.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>\u00c1 lev\u00edta-pallinum st\u00f3\u00f0u \u00feeir Jes\u00faa, Ban\u00ed, Kadm\u00edel, Sebanja, B\u00fann\u00ed, Serebja, Bann\u00ed og Kenan\u00ed og hr\u00f3pu\u00f0u me\u00f0 h\u00e1rri r\u00f6ddu til Drottins, Gu\u00f0s \u00feeirra.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Og lev\u00edtarnir Jes\u00faa, Kadm\u00edel, Ban\u00ed, Hasabneja, Serebja, H\u00f3d\u00eda, Sebanja, Petahja s\u00f6g\u00f0u: Standi\u00f0 upp og vegsami\u00f0 Drottin, Gu\u00f0 y\u00f0ar, fr\u00e1 eil\u00edf\u00f0 til eil\u00edf\u00f0ar! Menn vegsami \u00feitt d\u00fdrlega nafn, sem hafi\u00f0 er yfir alla vegsaman og lofgj\u00f6r\u00f0!<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00de\u00fa, Drottinn, \u00fe\u00fa einn ert Drottinn! \u00de\u00fa hefir skapa\u00f0 himininn, himnanna himna og allan \u00feeirra her, j\u00f6r\u00f0ina og allt, sem \u00e1 henni er, hafi\u00f0 og allt, sem \u00ed \u00fev\u00ed er, og \u00fe\u00fa gefur \u00fev\u00ed \u00f6llu l\u00edf, og himinsins her hneigir \u00fe\u00e9r.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00dea\u00f0 ert \u00fe\u00fa, Drottinn Gu\u00f0, sem kj\u00f6ri\u00f0 hefir Abram og leitt hann \u00fat fr\u00e1 \u00dar \u00ed Kaldeu og gefi\u00f0 honum nafni\u00f0 Abraham.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa reyndir hann a\u00f0 tr\u00famennsku gagnvart \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00e1 gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00fa s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 hann um a\u00f0 gefa ni\u00f0jum hans land Kanaan\u00edta, Het\u00edta, Am\u00f3r\u00edta, Peres\u00edta, Jeb\u00fas\u00edta og G\u00edrgas\u00edta. Og \u00fe\u00fa efndir or\u00f0 \u00fe\u00edn, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert r\u00e9ttl\u00e1tur.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og er \u00fe\u00fa s\u00e1st eymd fe\u00f0ra vorra \u00ed Egyptalandi og heyr\u00f0ir ney\u00f0ar\u00f3p \u00feeirra vi\u00f0 Rau\u00f0ahafi\u00f0,<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00fa t\u00e1kn og undur \u00e1 Fara\u00f3 og \u00e1 \u00f6llum \u00fej\u00f3num hans og \u00e1 \u00f6llum l\u00fd\u00f0 \u00ed landi hans, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa vissir a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u s\u00fdnt \u00feeim ofstopa. Og \u00feannig afreka\u00f0ir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e9r miki\u00f0 nafn fram \u00e1 \u00feennan dag.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa klaufst hafi\u00f0 fyrir \u00feeim, svo a\u00f0 \u00feeir gengu \u00e1 \u00feurru mitt \u00ed gegnum hafi\u00f0. En \u00feeim, sem eltu \u00fe\u00e1, steyptir \u00fe\u00fa \u00ed sj\u00e1vardj\u00fapi\u00f0 eins og steini, \u00ed str\u00f6ng v\u00f6tn.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa leiddir \u00fe\u00e1 \u00ed sk\u00fdst\u00f3lpa um daga og \u00ed eldst\u00f3lpa um n\u00e6tur, til \u00feess a\u00f0 l\u00fdsa \u00feeim \u00e1 veginum, sem \u00feeir \u00e1ttu a\u00f0 fara.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa steigst ni\u00f0ur \u00e1 S\u00edna\u00edfjall og tala\u00f0ir vi\u00f0 \u00fe\u00e1 af himnum og gafst \u00feeim sanngj\u00f6rn \u00e1kv\u00e6\u00f0i, r\u00e9ttl\u00e1t l\u00f6g og g\u00f3\u00f0a setninga og bo\u00f0or\u00f0.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa gj\u00f6r\u00f0ir \u00feeim kunnugan hinn heilaga hv\u00edldardag \u00feinn, og bo\u00f0or\u00f0, setninga og l\u00f6gm\u00e1l settir \u00fe\u00fa \u00feeim fyrir \u00fej\u00f3n \u00feinn M\u00f3se.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa gafst \u00feeim brau\u00f0 af himni vi\u00f0 hungri \u00feeirra og leiddir vatn af hellunni handa \u00feeim vi\u00f0 \u00feorsta \u00feeirra, og \u00fe\u00fa bau\u00f0st \u00feeim a\u00f0 koma til \u00feess a\u00f0 taka landi\u00f0 til eignar, sem \u00fe\u00fa haf\u00f0ir svari\u00f0 a\u00f0 gefa \u00feeim.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>En fe\u00f0ur vorir ur\u00f0u ofstopafullir og \u00feversk\u00f6llu\u00f0ust og hl\u00fdddu ekki bo\u00f0or\u00f0um \u00fe\u00ednum.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00deeir vildu ekki hl\u00fd\u00f0a og minntust ekki d\u00e1semdarverka \u00feinna, \u00feeirra er \u00fe\u00fa haf\u00f0ir \u00e1 \u00feeim gj\u00f6rt, en gj\u00f6r\u00f0ust har\u00f0sv\u00edra\u00f0ir og v\u00f6ldu s\u00e9r \u00ed \u00fever\u00fa\u00f0 sinni fyrirli\u00f0a til a\u00f0 sn\u00faa aftur til \u00e1nau\u00f0ar sinnar. En \u00fe\u00fa ert Gu\u00f0, sem f\u00fas er \u00e1 a\u00f0 fyrirgefa, n\u00e1\u00f0ugur og miskunnsamur, \u00feolinm\u00f3\u00f0ur og elskur\u00edkur, og yfirgafst \u00fe\u00e1 ekki.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Jafnvel \u00fe\u00e1, er \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u s\u00e9r steyptan k\u00e1lf og s\u00f6g\u00f0u: \u00deetta er gu\u00f0 \u00feinn, sem leiddi \u00feig \u00fat af Egyptalandi, og fr\u00f6mdu miklar gu\u00f0lastanir,<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 yfirgafst \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 ekki \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rkinni vegna \u00feinnar miklu miskunnar. Sk\u00fdst\u00f3lpinn veik ekki fr\u00e1 \u00feeim um daga, til \u00feess a\u00f0 lei\u00f0a \u00fe\u00e1 \u00e1 veginum, n\u00e9 eldst\u00f3lpinn um n\u00e6tur, til \u00feess a\u00f0 l\u00fdsa \u00feeim \u00e1 veginum, sem \u00feeir \u00e1ttu a\u00f0 fara.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa gafst \u00feeim \u00feinn g\u00f3\u00f0a anda til \u00feess a\u00f0 fr\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e1, og \u00fe\u00fa h\u00e9lst ekki manna \u00fe\u00ednu fr\u00e1 munni \u00feeirra og gafst \u00feeim vatn vi\u00f0 \u00feorsta \u00feeirra.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r \u00f3lst \u00fe\u00fa \u00f6nn fyrir \u00feeim \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rkinni, svo a\u00f0 \u00fe\u00e1 skorti ekkert. F\u00f6t \u00feeirra slitnu\u00f0u ekki og f\u00e6tur \u00feeirra \u00fer\u00fatnu\u00f0u ekki.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa gafst \u00feeim konungsr\u00edki og \u00fej\u00f3\u00f0ir og skiptir \u00feeim til ystu takmarka, og \u00feeir l\u00f6g\u00f0u undir sig land S\u00edhons og land konungsins \u00ed Hesbon og land \u00d3gs, konungs \u00ed Basan.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa gj\u00f6r\u00f0ir ni\u00f0ja \u00feeirra svo marga sem stj\u00f6rnur \u00e1 himni og leiddir \u00fe\u00e1 inn \u00ed \u00fea\u00f0 land, er \u00fe\u00fa haf\u00f0ir heiti\u00f0 fe\u00f0rum \u00feeirra, a\u00f0 \u00feeir skyldu komast inn \u00ed til \u00feess a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Og ni\u00f0jarnir komust \u00feanga\u00f0 og t\u00f3ku landi\u00f0 til eignar, og \u00fe\u00fa lag\u00f0ir \u00edb\u00faa landsins, Kanaan\u00edtana, undir \u00fe\u00e1 og gafst \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00feeirra vald, b\u00e6\u00f0i konunga \u00feeirra og \u00edb\u00faa landsins, svo a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu me\u00f0 \u00fe\u00e1 fari\u00f0 eftir ge\u00f0\u00fe\u00f3tta s\u00ednum.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Og \u00feeir unnu v\u00edggirtar borgir og feitt land og t\u00f3ku til eignar h\u00fas, full af \u00f6llum g\u00f3\u00f0um hlutum, \u00fath\u00f6ggna brunna, v\u00edngar\u00f0a og ol\u00edfugar\u00f0a og \u00f3grynni af aldintrj\u00e1m. Og \u00feeir \u00e1tu og ur\u00f0u saddir og feitir og lif\u00f0u \u00ed s\u00e6ll\u00edfi fyrir \u00fe\u00edna miklu g\u00e6sku.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>En \u00feeir gj\u00f6r\u00f0ust \u00feverbrotnir og gj\u00f6r\u00f0u uppreisn gegn \u00fe\u00e9r og v\u00f6rpu\u00f0u l\u00f6gm\u00e1li \u00fe\u00ednu a\u00f0 baki s\u00e9r, og sp\u00e1menn \u00fe\u00edna, \u00fe\u00e1 er \u00e1minntu \u00fe\u00e1 til \u00feess a\u00f0 sn\u00faa \u00feeim aftur til \u00fe\u00edn, \u00fe\u00e1 dr\u00e1pu \u00feeir og fr\u00f6mdu miklar gu\u00f0lastanir.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gafst \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 \u00ed hendur \u00f3vina \u00feeirra, og \u00feeir \u00fej\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e1. En \u00feegar \u00feeir voru \u00ed nau\u00f0um staddir, hr\u00f3pu\u00f0u \u00feeir til \u00fe\u00edn, og \u00fe\u00fa heyr\u00f0ir \u00fe\u00e1 af himnum og gafst \u00feeim frelsara af mikilli miskunn \u00feinni, er frelsu\u00f0u \u00fe\u00e1 \u00far h\u00f6ndum \u00f3vina \u00feeirra.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>En er \u00feeir h\u00f6f\u00f0u fengi\u00f0 hv\u00edld, t\u00f3ku \u00feeir aftur a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 sem illt var fyrir augliti \u00fe\u00ednu. \u00de\u00e1 ofurseldir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 \u00f3vinum \u00feeirra, svo a\u00f0 \u00feeir drottnu\u00f0u yfir \u00feeim. \u00de\u00e1 hr\u00f3pu\u00f0u \u00feeir aftur til \u00fe\u00edn, og \u00fe\u00fa heyr\u00f0ir \u00fe\u00e1 af himnum og bjarga\u00f0ir \u00feeim af miskunn \u00feinni m\u00f6rgum sinnum.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa \u00e1minntir \u00fe\u00e1 til \u00feess a\u00f0 sn\u00faa \u00feeim aftur til l\u00f6gm\u00e1ls \u00fe\u00edns. En \u00feeir voru hrokafullir og hl\u00fdddu ekki bo\u00f0or\u00f0um \u00fe\u00ednum og syndgu\u00f0u gegn skipunum \u00fe\u00ednum, \u00feeim er hver s\u00e1 skal af lifa, er breytir eftir \u00feeim. \u00deeir \u00feversk\u00f6llu\u00f0ust, gj\u00f6r\u00f0ust har\u00f0sv\u00edra\u00f0ir og hl\u00fdddu ekki.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa umbarst \u00fe\u00e1 \u00ed m\u00f6rg \u00e1r og \u00e1minntir \u00fe\u00e1 me\u00f0 anda \u00fe\u00ednum fyrir sp\u00e1menn \u00fe\u00edna, en \u00feeir heyr\u00f0u ekki. \u00de\u00e1 ofurseldir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 \u00e1 vald hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a,<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>en s\u00f6kum \u00feinnar miklu miskunnar gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00fa eigi alveg \u00fat af vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og yfirgafst \u00fe\u00e1 eigi, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert n\u00e1\u00f0ugur og miskunnsamur Gu\u00f0.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Og n\u00fa, Gu\u00f0 vor, \u00fe\u00fa mikli, voldugi og \u00f3gurlegi Gu\u00f0, \u00fe\u00fa sem heldur s\u00e1ttm\u00e1lann og miskunnsemina, l\u00e1t \u00fe\u00e9r eigi litlar \u00feykja allar \u00fe\u00e6r \u00ferautir, er v\u00e9r h\u00f6fum or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 s\u00e6ta: konungar vorir, h\u00f6f\u00f0ingjar vorir, prestar vorir, sp\u00e1menn vorir, fe\u00f0ur vorir og gj\u00f6rvallur l\u00fd\u00f0ur \u00feinn, fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 d\u00f6gum Ass\u00fdr\u00edukonunga og fram \u00e1 \u00feennan dag.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>En \u00fe\u00fa ert r\u00e9ttl\u00e1tur \u00ed \u00f6llu \u00fev\u00ed, sem yfir oss hefir komi\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefir au\u00f0s\u00fdnt tr\u00fafesti, en v\u00e9r h\u00f6fum breytt \u00f3gu\u00f0lega.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>Konungar vorir, h\u00f6f\u00f0ingjar vorir, prestar vorir og fe\u00f0ur vorir hafa ekki heldur haldi\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l \u00feitt n\u00e9 hl\u00fdtt skipunum \u00fe\u00ednum og a\u00f0v\u00f6runum, er \u00fe\u00fa hefir a\u00f0vara\u00f0 \u00fe\u00e1 me\u00f0.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>Og \u00fe\u00f3tt \u00feeir byggju \u00ed s\u00ednu eigin konungsr\u00edki og vi\u00f0 mikla vels\u00e6ld, er \u00fe\u00fa veittir \u00feeim, og \u00ed v\u00ed\u00f0lendu og frj\u00f3s\u00f6mu landi, er \u00fe\u00fa gafst \u00feeim, \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3nu\u00f0u \u00feeir \u00fe\u00e9r ekki og l\u00e9tu eigi af illskubreytni sinni.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>Sj\u00e1, n\u00fa erum v\u00e9r \u00fer\u00e6lar, og landi\u00f0, sem \u00fe\u00fa gafst fe\u00f0rum vorum, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir nytu \u00e1vaxta \u00feess og g\u00e6\u00f0a, sj\u00e1, \u00ed \u00fev\u00ed erum v\u00e9r \u00fer\u00e6lar.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>\u00dea\u00f0 veitir konungunum sinn mikla \u00e1v\u00f6xt, \u00feeim er \u00fe\u00fa settir yfir oss vegna synda vorra. \u00deeir drottna yfir l\u00edk\u00f6mum vorum og f\u00e9na\u00f0i eftir eigin hug\u00fe\u00f3tta, og v\u00e9r erum \u00ed miklum nau\u00f0um.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>Sakir alls \u00feessa gj\u00f6r\u00f0um v\u00e9r fasta skuldbindingu og skrifu\u00f0um undir hana. Og \u00e1 hinu innsigla\u00f0a skjali st\u00f3\u00f0u n\u00f6fn h\u00f6f\u00f0ingja vorra, lev\u00edta og presta.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>9.2<\/b> Syndaj\u00e1tning 3M\u00f3s 26.40+<br \/>\n<b>9.5<\/b> \u00deitt d\u00fdrlega nafn VDan 3.30<br \/>\n<b>9.6<\/b> \u00de\u00fa einn 5M\u00f3s 6.4 \u2013 sk\u00f6pun 1M\u00f3s 1<br \/>\n<b>9.7<\/b> Abram 1M\u00f3s 12.1 \u2013 Abraham 1M\u00f3s 17.5<br \/>\n<b>9.8<\/b> S\u00e1ttm\u00e1li 1M\u00f3s 15.18-21<br \/>\n<b>9.9<\/b> \u00cd Egyptalandi 2M\u00f3s 2.23-24; 3.7<br \/>\n<b>9.10<\/b> T\u00e1kn og undur 2M\u00f3s 7-12<br \/>\n<b>9.11<\/b> \u00de\u00fa klaufst hafi\u00f0 2M\u00f3s 14.15-30 \u2013 en eyddir fjendunum 2M\u00f3s 15.4-5,10<br \/>\n<b>9.12<\/b> Sk\u00fdst\u00f3lpi, eldst\u00f3lpi 2M\u00f3s 13.21-22<br \/>\n<b>9.13<\/b> \u00de\u00fa steigst ni\u00f0ur 2M\u00f3s 19 \u2013 sk\u00fdr fyrim\u00e6li 5M\u00f3s 4.5-8<br \/>\n<b>9.14<\/b> Hv\u00edldardagur 2M\u00f3s 20.8-11 og hlst.<br \/>\n<b>9.15<\/b> Brau\u00f0 af himni 2M\u00f3s 16 \u2013 vatn \u00far kletti 2M\u00f3s 17.1-7 \u2013 fyrirheitna landi\u00f0 5M\u00f3s 1.21<br \/>\n<b>9.16-17<\/b> Vildu ekki hl\u00fd\u00f0a 4M\u00f3s 14.1-4; 5M\u00f3s 1.26-33<br \/>\n<b>9.17<\/b> N\u00e1\u00f0ugur og miskunnsamur Gu\u00f0 2M\u00f3s 34.6-7+<br \/>\n<b>9.18<\/b> Gullk\u00e1lfur 2M\u00f3s 32.1-6<br \/>\n<b>9.19<\/b> \u00de\u00fa yfirgafst \u00fe\u00e1 ekki 2M\u00f3s 32.11-14<br \/>\n<b>9.21<\/b> Fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r 5M\u00f3s 8.2-4<br \/>\n<b>9.22<\/b> S\u00edhon og \u00d3g 4M\u00f3s 21.21-35; 5M\u00f3s 1.4; 2.26-3.11<br \/>\n<b>9.23<\/b> Jafnmarga stj\u00f6rnum himins 4M\u00f3s 1.20-46; 26.1-51; 5M\u00f3s 1.10 \u2013 inn \u00ed fyrirheitna landi\u00f0 J\u00f3s 3.14-17<br \/>\n<b>9.24<\/b> T\u00f3ku landi\u00f0 til eignar J\u00f3s 11.23-12.24<br \/>\n<b>9.25<\/b> Unnu v\u00edggirtar borgir 5M\u00f3s 6.10-11<br \/>\n<b>9.26<\/b> Dr\u00e1pu sp\u00e1menn \u00fe\u00edna 1Kon 18.4,13; 19.10,14; Jer 2.30; 26.20-23; 2Kro 24.20-22<br \/>\n<b>9.27<\/b> Frelsarar D\u00f3m 2.16; 3.7-16.31<br \/>\n<b>9.28<\/b> Fr\u00f6mdu aftur illvirki D\u00f3m 3.12; 4.1; 10.6; 13.1<br \/>\n<b>9.29<\/b> Hver s\u00e1 hl\u00fdtur l\u00edf 3M\u00f3s 18.5+<br \/>\n<b>9.30<\/b> Framseldi \u00fe\u00e1 2Kon 17.5-6; 23.31-25.21<br \/>\n<b>9.31<\/b> Yfirgafst \u00fe\u00e1 ekki Esk 37.11-14; Dan 1.17; 2.17-23; 3.28 \u2013 n\u00e1\u00f0ugur og miskunnsamur Gu\u00f0 2M\u00f3s 34.6-7+<br \/>\n<b>9.32<\/b> Gu\u00f0 heldur s\u00e1ttm\u00e1lann 5M\u00f3s 7.9+ &#8211; Ass\u00fdr\u00edukonungur 2Kon 15.19,29; 17.3-6; Esr 4.2,10<br \/>\n<b>9.33<\/b> Gu\u00f0 er r\u00e9ttl\u00e1tur Esr 9.15+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00c1 tuttugasta og fj\u00f3r\u00f0a degi \u00feessa m\u00e1na\u00f0ar s\u00f6fnu\u00f0ust \u00cdsraelsmenn saman og f\u00f6stu\u00f0u og kl\u00e6ddust h\u00e6rusekk og jusu mold yfir h\u00f6fu\u00f0 s\u00e9r.2Og ni\u00f0jar \u00cdsraels skildu sig fr\u00e1 \u00f6llum \u00fatlendingum, og \u00feeir gengu fram og j\u00e1tu\u00f0u syndir s\u00ednar og misgj\u00f6r\u00f0ir fe\u00f0ra sinna.3Og \u00feeir st\u00f3\u00f0u upp \u00fear sem \u00feeir voru, og menn l\u00e1su upp \u00far l\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3k Drottins, Gu\u00f0s \u00feeirra, fj\u00f3r\u00f0a hluta dagsins, og annan fj\u00f3r\u00f0a hluta dagsins j\u00e1tu\u00f0u \u00feeir syndir s\u00ednar og f\u00e9llu fram fyrir Drottni, Gu\u00f0i s\u00ednum.4\u00c1 lev\u00edta-pallinum st\u00f3\u00f0u \u00feeir Jes\u00faa, Ban\u00ed, Kadm\u00edel, Sebanja, B\u00fann\u00ed, Serebja, Bann\u00ed og Kenan\u00ed og hr\u00f3pu\u00f0u me\u00f0 h\u00e1rri r\u00f6ddu til Drottins, Gu\u00f0s \u00feeirra.5Og lev\u00edtarnir Jes\u00faa, Kadm\u00edel, Ban\u00ed, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/nehemiabok-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1768","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1768","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1768"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1768\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1768"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}