{"id":1676,"date":"2017-11-18T20:18:13","date_gmt":"2017-11-18T20:18:13","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-konungabok-17-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T11:10:20","modified_gmt":"2021-06-06T11:10:20","slug":"sidari-konungabok-17-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-konungabok-17-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 17. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 t\u00f3lfta r\u00edkis\u00e1ri Akasar J\u00fadakonungs var\u00f0 H\u00f3sea Elason konungur \u00ed Samar\u00edu yfir \u00cdsrael og r\u00edkti n\u00edu \u00e1r.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0, sem illt var \u00ed augum Drottins, \u00fe\u00f3 ekki eins og \u00cdsraelskonungar \u00feeir, er veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0u \u00e1 undan honum.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Salmaneser Ass\u00fdr\u00edukonungur f\u00f3r herf\u00f6r \u00ed m\u00f3ti honum, og var\u00f0 H\u00f3sea l\u00fd\u00f0skyldur honum og galt honum skatt.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>En er Ass\u00fdr\u00edukonungur var\u00f0 \u00feess var, a\u00f0 H\u00f3sea bj\u00f3 yfir svikum vi\u00f0 hann, \u00fear sem hann gj\u00f6r\u00f0i menn \u00e1 fund S\u00f3 Egyptalandskonungs og greiddi Ass\u00fdr\u00edukonungi eigi framar \u00e1rlega skattinn, eins og veri\u00f0 haf\u00f0i, \u00fe\u00e1 t\u00f3k Ass\u00fdr\u00edukonungur hann h\u00f6ndum og l\u00e9t fj\u00f6tra hann \u00ed d\u00fdflissu.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Og Ass\u00fdr\u00edukonungur herja\u00f0i landi\u00f0 allt og f\u00f3r til Samar\u00edu og sat um hana \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>En \u00e1 n\u00edunda r\u00edkis\u00e1ri H\u00f3sea vann Ass\u00fdr\u00edukonungur Samar\u00edu og herleiddi \u00cdsrael til Ass\u00fdr\u00edu. F\u00e9kk hann \u00feeim b\u00fasta\u00f0 \u00ed Hala og vi\u00f0 Hab\u00f3r, flj\u00f3ti\u00f0 \u00ed G\u00f3san, og \u00ed borgum Meda.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00deannig f\u00f3r, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00cdsraelsmenn h\u00f6f\u00f0u syndga\u00f0 gegn Drottni, Gu\u00f0i s\u00ednum, \u00feeim er leiddi \u00fe\u00e1 \u00fat af Egyptalandi, undan valdi Fara\u00f3s Egyptalandskonungs, og d\u00fdrka\u00f0 a\u00f0ra gu\u00f0i.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00deeir f\u00f3ru og a\u00f0 si\u00f0um \u00feeirra \u00fej\u00f3\u00f0a, er Drottinn haf\u00f0i st\u00f6kkt burt undan \u00cdsraelsm\u00f6nnum, og a\u00f0 si\u00f0um \u00cdsraelskonunga, er \u00feeir sj\u00e1lfir h\u00f6f\u00f0u sett.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gj\u00f6r\u00f0u og \u00cdsraelsmenn \u00fea\u00f0, er rangt var gagnvart Drottni, Gu\u00f0i \u00feeirra, og bygg\u00f0u s\u00e9r f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0ir \u00ed \u00f6llum borgum s\u00ednum, jafnt var\u00f0mannaturnum sem v\u00edggirtum borgum.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>\u00deeir reistu s\u00e9r merkissteina og as\u00e9rur \u00e1 \u00f6llum h\u00e1um h\u00f3lum og undir hverju gr\u00e6nu tr\u00e9<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>og f\u00f3rnu\u00f0u \u00fear reykelsisf\u00f3rnum \u00e1 \u00f6llum h\u00e6\u00f0um eins og \u00fej\u00f3\u00f0irnar, er Drottinn haf\u00f0i reki\u00f0 burt undan \u00feeim. A\u00f0h\u00f6f\u00f0ust \u00feeir \u00fea\u00f0 sem illt var og egndu Drottin til rei\u00f0i.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Og \u00feeir d\u00fdrku\u00f0u skur\u00f0go\u00f0, er Drottinn haf\u00f0i sagt um vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u00de\u00e9r skulu\u00f0 eigi gj\u00f6ra sl\u00edkt.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Og \u00fe\u00f3 haf\u00f0i Drottinn a\u00f0vara\u00f0 \u00cdsrael og J\u00fada fyrir munn allra sp\u00e1mannanna, allra sj\u00e1andanna, og sagt: Sn\u00fai\u00f0 aftur fr\u00e1 y\u00f0ar vondu vegum og var\u00f0veiti\u00f0 skipanir m\u00ednar og bo\u00f0or\u00f0 \u00ed \u00f6llum greinum samkv\u00e6mt l\u00f6gm\u00e1linu, er \u00e9g lag\u00f0i fyrir fe\u00f0ur y\u00f0ar, og \u00fev\u00ed er \u00e9g bau\u00f0 y\u00f0ur fyrir munn \u00fej\u00f3na minna, sp\u00e1mannanna.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>En \u00feeir hl\u00fdddu ekki, heldur \u00feversk\u00f6llu\u00f0ust eins og fe\u00f0ur \u00feeirra, er eigi treystu Drottni, Gu\u00f0i s\u00ednum.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>\u00deeir virtu a\u00f0 vettugi l\u00f6g hans og s\u00e1ttm\u00e1la, \u00feann er hann haf\u00f0i gj\u00f6rt vi\u00f0 fe\u00f0ur \u00feeirra, og bo\u00f0or\u00f0 hans, \u00feau er hann haf\u00f0i fyrir \u00fe\u00e1 lagt, og eltu f\u00e1n\u00fdt go\u00f0 og breyttu heimskulega a\u00f0 d\u00e6mi \u00fej\u00f3\u00f0anna, er umhverfis \u00fe\u00e1 voru, \u00fe\u00f3tt Drottinn hef\u00f0i banna\u00f0 \u00feeim a\u00f0 breyta eftir \u00feeim.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00deeir yfirg\u00e1fu \u00f6ll bo\u00f0 Drottins, Gu\u00f0s s\u00edns, og gj\u00f6r\u00f0u s\u00e9r steypt l\u00edkneski, tvo k\u00e1lfa, og \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u as\u00e9rur, f\u00e9llu fram fyrir \u00f6llum himinsins her og d\u00fdrku\u00f0u Baal.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00deeir l\u00e9tu sonu s\u00edna og d\u00e6tur ganga gegnum eldinn, f\u00f3ru me\u00f0 galdur og fj\u00f6lkynngi og ofurseldu sig til a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0, sem illt var \u00ed augum Drottins, til \u00feess a\u00f0 egna hann til rei\u00f0i.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00de\u00e1 reiddist Drottinn \u00cdsrael \u00e1kaflega og rak \u00fe\u00e1 burt fr\u00e1 augliti s\u00ednu. Ekkert var\u00f0 eftir nema J\u00fada\u00e6ttkv\u00edsl ein.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>J\u00fadamenn h\u00e9ldu ekki heldur bo\u00f0or\u00f0 Drottins, Gu\u00f0s s\u00edns. \u00deeir f\u00f3ru a\u00f0 si\u00f0um \u00cdsraelsmanna, er \u00feeir sj\u00e1lfir h\u00f6f\u00f0u sett.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed hafna\u00f0i Drottinn \u00f6llu \u00cdsraels kyni og au\u00f0m\u00fdkti \u00fe\u00e1 og gaf \u00fe\u00e1 \u00ed hendur r\u00e6ningjum, \u00fear til er hann \u00fatsk\u00fafa\u00f0i \u00feeim fr\u00e1 augliti s\u00ednu.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00deegar Drottinn haf\u00f0i sliti\u00f0 \u00cdsrael fr\u00e1 \u00e6tt Dav\u00ed\u00f0s og \u00feeir h\u00f6f\u00f0u teki\u00f0 Jer\u00f3b\u00f3am Nebatsson til konungs, \u00fe\u00e1 t\u00e6ldi Jer\u00f3b\u00f3am \u00cdsrael til a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r fr\u00e1 Drottni og kom \u00feeim til a\u00f0 dr\u00fdgja mikla synd.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Og \u00cdsraelsmenn dr\u00fdg\u00f0u allar s\u00f6mu syndirnar, sem Jer\u00f3b\u00f3am haf\u00f0i dr\u00fdgt. \u00deeir l\u00e9tu eigi af \u00feeim,<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>\u00fear til er Drottinn rak \u00cdsrael burt fr\u00e1 augliti s\u00ednu, eins og hann haf\u00f0i sagt fyrir munn allra \u00fej\u00f3na sinna, sp\u00e1mannanna. \u00deannig var \u00cdsrael herleiddur burt \u00far landi s\u00ednu til Ass\u00fdr\u00edu og hefir veri\u00f0 \u00fear fram \u00e1 \u00feennan dag.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Ass\u00fdr\u00edukonungur flutti inn f\u00f3lk fr\u00e1 Bab\u00fdlon\u00edu, fr\u00e1 K\u00fata, fr\u00e1 Ava, fr\u00e1 Hamat og fr\u00e1 Sefarva\u00edm og l\u00e9t \u00fea\u00f0 setjast a\u00f0 \u00ed borgum Samar\u00edu \u00ed sta\u00f0 \u00cdsraelsmanna. T\u00f3ku \u00feeir Samar\u00edu til eignar og settust a\u00f0 \u00ed borgum hennar.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>En me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir d\u00fdrku\u00f0u ekki Drottin, fyrst eftir a\u00f0 \u00feeir voru sestir \u00fear a\u00f0, \u00fe\u00e1 sendi Drottinn lj\u00f3n me\u00f0al \u00feeirra. Ollu \u00feau manntj\u00f3ni me\u00f0al \u00feeirra.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u menn svo vi\u00f0 Ass\u00fdr\u00edukonung: \u00dej\u00f3\u00f0irnar, er \u00fe\u00fa fluttir burt og l\u00e9st setjast a\u00f0 \u00ed borgum Samar\u00edu, vita eigi, hver d\u00fdrkun landsgu\u00f0num ber. Fyrir \u00fev\u00ed hefir hann sent lj\u00f3n me\u00f0al \u00feeirra, og sj\u00e1, \u00feau dey\u00f0a \u00fe\u00e1, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir vita ekki, hva\u00f0 landsgu\u00f0num ber.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>\u00de\u00e1 skipa\u00f0i Ass\u00fdr\u00edukonungur svo fyrir: L\u00e1ti\u00f0 einn af prestunum fara \u00feanga\u00f0, \u00feeim er \u00e9g flutti burt \u00fea\u00f0an, a\u00f0 hann fari og setjist \u00fear a\u00f0 og kenni \u00feeim, hver d\u00fdrkun landsgu\u00f0num ber.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>\u00de\u00e1 kom einn af prestunum, \u00feeim er \u00feeir h\u00f6f\u00f0u flutt burt \u00far Samar\u00edu, og settist a\u00f0 \u00ed Betel. Hann kenndi \u00feeim, hvernig \u00feeir \u00e6ttu a\u00f0 d\u00fdrka Drottin.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Samverjar gj\u00f6r\u00f0u s\u00e9r s\u00edna gu\u00f0i, hver \u00fej\u00f3\u00f0flokkur \u00fat af fyrir sig, og settu \u00fe\u00e1 \u00ed h\u00e6\u00f0ahofin, er \u00feeir h\u00f6f\u00f0u reist, hver \u00fej\u00f3\u00f0flokkur \u00fat af fyrir sig \u00ed s\u00ednum borgum, \u00feeim er \u00feeir bjuggu \u00ed.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Bab\u00fdlon\u00edumenn gj\u00f6r\u00f0u l\u00edkneski af S\u00fakk\u00f3t Ben\u00f3t, K\u00fatmenn gj\u00f6r\u00f0u l\u00edkneski af Nergal, Hamatmenn gj\u00f6r\u00f0u l\u00edkneski af As\u00edma,<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>Av\u00edtar gj\u00f6r\u00f0u l\u00edkneski af Nibkas og Tartak, en Sefarv\u00edtar brenndu b\u00f6rn s\u00edn til handa Adrammelek og Anammelek, Sefarva\u00edm-gu\u00f0um.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>\u00deeir d\u00fdrku\u00f0u einnig Drottin og gj\u00f6r\u00f0u menn \u00far s\u00ednum h\u00f3p a\u00f0 h\u00e6\u00f0aprestum. B\u00e1ru \u00feeir fram f\u00f3rnir fyrir \u00fe\u00e1 \u00ed h\u00e6\u00f0ahofunum.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>\u00deannig d\u00fdrku\u00f0u \u00feeir Drottin, en \u00fej\u00f3nu\u00f0u einnig s\u00ednum gu\u00f0um a\u00f0 si\u00f0 \u00feeirra \u00fej\u00f3\u00f0a, er \u00feeir h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 fluttir fr\u00e1.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>Fram \u00e1 \u00feennan dag fara \u00feeir a\u00f0 fornum si\u00f0um. \u00deeir d\u00fdrka ekki Drottin og breyta ekki eftir l\u00f6gum hans og \u00e1kv\u00e6\u00f0um og l\u00f6gm\u00e1li \u00fev\u00ed og bo\u00f0or\u00f0i, er Drottinn lag\u00f0i fyrir sonu Jakobs, \u00feess er hann gaf nafni\u00f0 \u00cdsrael.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>En Drottinn haf\u00f0i gj\u00f6rt s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og bo\u00f0i\u00f0 \u00feeim \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: \u00de\u00e9r skulu\u00f0 eigi d\u00fdrka neina a\u00f0ra gu\u00f0i, eigi falla fram fyrir \u00feeim, eigi \u00fej\u00f3na \u00feeim n\u00e9 f\u00e6ra \u00feeim f\u00f3rnir,<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>en Drottin, sem leiddi y\u00f0ur af Egyptalandi me\u00f0 miklum m\u00e6tti og \u00fatr\u00e9ttum armlegg hann skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r d\u00fdrka, fyrir honum skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r falla fram og honum skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r f\u00f3rnir f\u00e6ra.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>En l\u00f6g \u00feau og \u00e1kv\u00e6\u00f0i, l\u00f6gm\u00e1l og bo\u00f0or\u00f0, er hann hefir rita\u00f0 handa y\u00f0ur, skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r var\u00f0veita, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r haldi\u00f0 \u00feau alla daga, og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eigi d\u00fdrka a\u00f0ra gu\u00f0i.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>Og s\u00e1ttm\u00e1lanum, er \u00e9g hefi vi\u00f0 y\u00f0ur gj\u00f6rt, skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki gleyma, og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eigi d\u00fdrka a\u00f0ra gu\u00f0i,<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>en Drottin, Gu\u00f0 y\u00f0ar, skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r d\u00fdrka, og mun hann \u00fe\u00e1 frelsa y\u00f0ur af hendi allra \u00f3vina y\u00f0ar.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>Samt hl\u00fdddu \u00feeir ekki, heldur f\u00f3ru \u00feeir a\u00f0 fornum si\u00f0um.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>\u00deannig d\u00fdrku\u00f0u \u00fe\u00e1 \u00feessar \u00fej\u00f3\u00f0ir Drottin, en \u00fej\u00f3nu\u00f0u \u00fe\u00f3 um lei\u00f0 skur\u00f0go\u00f0um s\u00ednum. B\u00f6rn \u00feeirra og barnab\u00f6rn breyta og enn \u00ed dag eins og fe\u00f0ur \u00feeirra breyttu.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>17.3<\/b> Salmaneser 2Kon 18.9<br \/>\n<b>17.6<\/b> Herlei\u00f0ing 2Kon 15.29+<br \/>\n<b>17.7<\/b> Hj\u00e1gu\u00f0ad\u00fdrkun J\u00f3s 24.14-24<br \/>\n<b>17.8<\/b> Si\u00f0ir \u00fej\u00f3\u00f0anna 3M\u00f3s 18.3+<br \/>\n<b>17.10<\/b> Gr\u00e6n tr\u00e9 5M\u00f3s 12.2+<br \/>\n<b>17.13<\/b> Sn\u00fai\u00f0 fr\u00e1 Jer 18.11; Esk 33.11<br \/>\n<b>17.15<\/b> S\u00e1ttm\u00e1linn vi\u00f0 \u00e6ttfe\u00f0urna 2Kon 13.23+<br \/>\n<b>17.18<\/b> V\u00e9k burt 2Kon 13.23+ &#8211; nema J\u00fada 1Kon 11.13,32<br \/>\n<b>17.21<\/b> Mikil synd 1Kon 12.26-33<br \/>\n<b>17.24<\/b> Herlei\u00f0ing 2Kon 15.29+<br \/>\n<b>17.25<\/b> Lj\u00f3n 1Kon 13.24+<br \/>\n<b>17.34<\/b> Jakob (\u00cdsrael) 1M\u00f3s 32.29; 35.10; 1Kon 18.31<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00c1 t\u00f3lfta r\u00edkis\u00e1ri Akasar J\u00fadakonungs var\u00f0 H\u00f3sea Elason konungur \u00ed Samar\u00edu yfir \u00cdsrael og r\u00edkti n\u00edu \u00e1r.2Hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0, sem illt var \u00ed augum Drottins, \u00fe\u00f3 ekki eins og \u00cdsraelskonungar \u00feeir, er veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0u \u00e1 undan honum.3Salmaneser Ass\u00fdr\u00edukonungur f\u00f3r herf\u00f6r \u00ed m\u00f3ti honum, og var\u00f0 H\u00f3sea l\u00fd\u00f0skyldur honum og galt honum skatt.4En er Ass\u00fdr\u00edukonungur var\u00f0 \u00feess var, a\u00f0 H\u00f3sea bj\u00f3 yfir svikum vi\u00f0 hann, \u00fear sem hann gj\u00f6r\u00f0i menn \u00e1 fund S\u00f3 Egyptalandskonungs og greiddi Ass\u00fdr\u00edukonungi eigi framar \u00e1rlega skattinn, eins og veri\u00f0 haf\u00f0i, \u00fe\u00e1 t\u00f3k Ass\u00fdr\u00edukonungur hann h\u00f6ndum og l\u00e9t fj\u00f6tra hann \u00ed d\u00fdflissu.5Og Ass\u00fdr\u00edukonungur herja\u00f0i landi\u00f0 allt og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-konungabok-17-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1676","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1676","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1676"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1676\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1676"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}