{"id":1666,"date":"2017-11-18T20:18:09","date_gmt":"2017-11-18T20:18:09","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-konungabok-7-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T11:10:26","modified_gmt":"2021-06-06T11:10:26","slug":"sidari-konungabok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-konungabok-7-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>En El\u00edsa m\u00e6lti: Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins. Svo segir Drottinn: \u00c1 morgun \u00ed \u00feetta mund mun ein sea af f\u00ednu mj\u00f6li kosta einn sikil og tv\u00e6r seur af byggi einn sikil \u00ed borgarhli\u00f0i Samar\u00edu.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Riddari s\u00e1, er konungur studdist vi\u00f0, svara\u00f0i \u00fe\u00e1 gu\u00f0smanninum og m\u00e6lti: \u00de\u00f3tt Drottinn gj\u00f6r\u00f0i raufar \u00e1 himininn, hvernig m\u00e6tti \u00feetta ver\u00f0a? El\u00edsa svara\u00f0i: \u00de\u00fa munt sj\u00e1 \u00fea\u00f0 me\u00f0 eigin augum, en einskis af \u00fev\u00ed neyta.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Fj\u00f3rir menn l\u00edk\u00fer\u00e1ir voru \u00fati fyrir borgarhli\u00f0i Samar\u00edu. S\u00f6g\u00f0u \u00feeir hver vi\u00f0 annan: Hv\u00ed eigum v\u00e9r a\u00f0 sitja h\u00e9r, \u00feanga\u00f0 til v\u00e9r deyjum?<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Ef v\u00e9r segjum: V\u00e9r skulum fara inn \u00ed borgina, \u00fe\u00e1 er hungur \u00ed borginni og \u00fe\u00e1 munum v\u00e9r deyja \u00fear, og ef v\u00e9r sitjum h\u00e9r kyrrir, munum v\u00e9r og deyja. Skulum v\u00e9r \u00fev\u00ed fara yfir \u00ed herb\u00fa\u00f0ir S\u00fdrlendinga. Ef \u00feeir l\u00e1ta oss l\u00edfi halda, \u00fe\u00e1 lifum v\u00e9r, en drepi \u00feeir oss, \u00fe\u00e1 deyjum v\u00e9r.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>St\u00f3\u00f0u \u00feeir s\u00ed\u00f0an upp \u00ed r\u00f6kkrinu til \u00feess a\u00f0 fara yfir \u00ed herb\u00fa\u00f0ir S\u00fdrlendinga. En er \u00feeir komu \u00fat a\u00f0 herb\u00fa\u00f0um S\u00fdrlendinga, \u00fe\u00e1 var \u00fear enginn ma\u00f0ur.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Drottinn haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 heyrast \u00ed herb\u00fa\u00f0ir S\u00fdrlendinga vagnagn\u00fd og j\u00f3dyn, gn\u00fd af miklu herli\u00f0i, svo a\u00f0 \u00feeir s\u00f6g\u00f0u hver vi\u00f0 annan: Sj\u00e1, \u00cdsraelskonungur hefir leigt gegn oss konunga Het\u00edta og konunga Egyptalands til \u00feess a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 oss.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00de\u00e1 hlupu \u00feeir upp \u00ed r\u00f6kkrinu og fl\u00fd\u00f0u og l\u00e9tu eftir tj\u00f6ld s\u00edn og hesta og asna herb\u00fa\u00f0irnar eins og \u00fe\u00e6r voru og fl\u00fd\u00f0u til \u00feess a\u00f0 for\u00f0a l\u00edfinu.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>En er hinir l\u00edk\u00fer\u00e1u menn komu \u00fat a\u00f0 herb\u00fa\u00f0unum, gengu \u00feeir inn \u00ed eitt tjaldi\u00f0, \u00e1tu og drukku, h\u00f6f\u00f0u \u00fea\u00f0an silfur, gull og kl\u00e6\u00f0i og gengu burt og f\u00f3lu \u00fea\u00f0. S\u00ed\u00f0an komu \u00feeir aftur, gengu inn \u00ed anna\u00f0 tjald, h\u00f6f\u00f0u og nokku\u00f0 \u00fea\u00f0an, gengu burt og f\u00f3lu.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st s\u00f6g\u00f0u \u00feeir hver vi\u00f0 annan: \u00deetta er ekki r\u00e9tt gj\u00f6rt af oss. \u00deessi dagur er dagur fagna\u00f0art\u00ed\u00f0inda. En ef v\u00e9r \u00feegjum og b\u00ed\u00f0um \u00feanga\u00f0 til \u00ed b\u00fdti \u00e1 morgun, \u00fe\u00e1 mun \u00fea\u00f0 oss \u00ed koll koma. V\u00e9r skulum \u00fev\u00ed fara og flytja t\u00ed\u00f0indin \u00ed konungsh\u00f6llina.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an f\u00f3ru \u00feeir, k\u00f6llu\u00f0u til hli\u00f0var\u00f0a borgarinnar og s\u00f6g\u00f0u \u00feeim svo fr\u00e1: V\u00e9r komum \u00ed herb\u00fa\u00f0ir S\u00fdrlendinga. \u00dear var \u00fe\u00e1 enginn ma\u00f0ur, og engin mannsraust heyr\u00f0ist, en hestar og asnar st\u00f3\u00f0u \u00fear bundnir og tj\u00f6ldin eins og \u00feau voru.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00de\u00e1 k\u00f6llu\u00f0u hli\u00f0ver\u00f0irnir og menn s\u00f6g\u00f0u fr\u00e1 \u00fev\u00ed inni \u00ed konungsh\u00f6llinni.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00de\u00e1 reis konungur upp um n\u00f3ttina og sag\u00f0i vi\u00f0 menn s\u00edna: \u00c9g skal segja y\u00f0ur, hva\u00f0 S\u00fdrlendingar \u00e6tla n\u00fa a\u00f0 gj\u00f6ra oss. \u00deeir vita, a\u00f0 v\u00e9r sveltum. Hafa \u00feeir \u00fev\u00ed fari\u00f0 burt \u00far herb\u00fa\u00f0unum til \u00feess a\u00f0 fela sig \u00fati \u00e1 m\u00f6rkinni, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir hugsa: \u00deegar \u00feeir fara \u00fat \u00far borginni, skulum v\u00e9r taka \u00fe\u00e1 h\u00f6ndum lifandi og brj\u00f3tast inn \u00ed borgina.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00de\u00e1 t\u00f3k einn af m\u00f6nnum hans til m\u00e1ls og sag\u00f0i: Taki menn fimm af hestunum, sem eftir eru. Fyrir \u00feeim, sem h\u00e9r eru eftir skildir, fer eins og fyrir \u00f6llum fj\u00f6lda \u00cdsraels, sem \u00feegar er farinn veg allrar veraldar. Skulum v\u00e9r senda \u00fe\u00e1 til \u00feess a\u00f0 vita, hva\u00f0 um er a\u00f0 vera.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>T\u00f3ku \u00feeir \u00fe\u00e1 tvo vagna me\u00f0 hestum fyrir. Sendi konungur \u00fe\u00e1 \u00e1 eftir her S\u00fdrlendinga og sag\u00f0i: Fari\u00f0 og g\u00e6ti\u00f0 a\u00f0!<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>F\u00f3ru \u00feeir \u00fe\u00e1 \u00e1 eftir \u00feeim alla lei\u00f0 til J\u00f3rdanar, og var allur vegurinn \u00feakinn kl\u00e6\u00f0um og vopnum, sem S\u00fdrlendingar h\u00f6f\u00f0u varpa\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r, er \u00feeir fl\u00fd\u00f0u \u00ed ofbo\u00f0i. Sneru sendimennirnir \u00fe\u00e1 vi\u00f0 og fluttu konungi t\u00ed\u00f0indin.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gekk l\u00fd\u00f0urinn \u00fat og r\u00e6ndi herb\u00fa\u00f0ir S\u00fdrlendinga, og f\u00f3r \u00fe\u00e1 svo, a\u00f0 ein sea af f\u00ednu mj\u00f6li kosta\u00f0i einn sikil og tv\u00e6r seur af byggi einn sikil, eins og Drottinn haf\u00f0i sagt.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>En konungur setti riddarann, er hann haf\u00f0i stu\u00f0st vi\u00f0, til a\u00f0 g\u00e6ta hli\u00f0sins, og tr\u00f3\u00f0 l\u00fd\u00f0urinn hann undir \u00ed hli\u00f0inu, svo a\u00f0 hann bei\u00f0 bana samkv\u00e6mt \u00fev\u00ed or\u00f0i gu\u00f0smannsins, er hann haf\u00f0i tala\u00f0, \u00fe\u00e1 er konungur f\u00f3r ofan til hans.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feegar gu\u00f0sma\u00f0urinn sag\u00f0i vi\u00f0 konunginn: \u00cd \u00feetta mund \u00e1 morgun munu tv\u00e6r seur af byggi kosta einn sikil og ein sea af f\u00ednu mj\u00f6li einn sikil \u00ed Samar\u00eduhli\u00f0i,<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 svara\u00f0i riddarinn gu\u00f0smanninum og sag\u00f0i: Sj\u00e1, \u00fe\u00f3tt Drottinn gj\u00f6r\u00f0i raufar \u00e1 himininn, hvernig m\u00e6tti sl\u00edkt ver\u00f0a? En El\u00edsa svara\u00f0i: \u00de\u00fa munt sj\u00e1 \u00fea\u00f0 me\u00f0 eigin augum, en einskis af \u00fev\u00ed neyta.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og svo f\u00f3r fyrir honum. L\u00fd\u00f0urinn tr\u00f3\u00f0 hann undir \u00ed hli\u00f0inu, svo a\u00f0 hann bei\u00f0 bana.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>7.2<\/b> Sty\u00f0jast vi\u00f0 2Kon 5.18 \u2013 raufar \u00e1 himinn Mal 3.10; sbr 1M\u00f3s 7.11; 8.2; Jes 24.18 \u2013 einskis neyta 2Kon 7.17,19<br \/>\n<b>7.5<\/b> Herb\u00fa\u00f0irnar yfirgefnar 2Kon 19.35-36<br \/>\n<b>7.6<\/b> Miki\u00f0 her li\u00f0 sbr 2Kon 6.17<br \/>\n<b>7.7<\/b> \u00deeir fl\u00fd\u00f0u Slm 48.5-6; 53.6; 68.13<br \/>\n<b>7.17<\/b> Samkv\u00e6mt or\u00f0i El\u00edsa 2Kon 7.2<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1En El\u00edsa m\u00e6lti: Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins. Svo segir Drottinn: \u00c1 morgun \u00ed \u00feetta mund mun ein sea af f\u00ednu mj\u00f6li kosta einn sikil og tv\u00e6r seur af byggi einn sikil \u00ed borgarhli\u00f0i Samar\u00edu.2Riddari s\u00e1, er konungur studdist vi\u00f0, svara\u00f0i \u00fe\u00e1 gu\u00f0smanninum og m\u00e6lti: \u00de\u00f3tt Drottinn gj\u00f6r\u00f0i raufar \u00e1 himininn, hvernig m\u00e6tti \u00feetta ver\u00f0a? El\u00edsa svara\u00f0i: \u00de\u00fa munt sj\u00e1 \u00fea\u00f0 me\u00f0 eigin augum, en einskis af \u00fev\u00ed neyta.3Fj\u00f3rir menn l\u00edk\u00fer\u00e1ir voru \u00fati fyrir borgarhli\u00f0i Samar\u00edu. S\u00f6g\u00f0u \u00feeir hver vi\u00f0 annan: Hv\u00ed eigum v\u00e9r a\u00f0 sitja h\u00e9r, \u00feanga\u00f0 til v\u00e9r deyjum?4Ef v\u00e9r segjum: V\u00e9r skulum fara inn \u00ed borgina, \u00fe\u00e1 er hungur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-konungabok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1666","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1666","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1666"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1666\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1666"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}