{"id":1663,"date":"2017-11-18T20:18:09","date_gmt":"2017-11-18T20:18:09","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-konungabok-4-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T11:10:25","modified_gmt":"2021-06-06T11:10:25","slug":"sidari-konungabok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-konungabok-4-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Ein af konum sp\u00e1mannasveinanna kalla\u00f0i til El\u00edsa og m\u00e6lti: \u00dej\u00f3nn \u00feinn, ma\u00f0urinn minn, er d\u00e1inn, og \u00fe\u00fa veist, a\u00f0 \u00fej\u00f3nn \u00feinn \u00f3tta\u00f0ist Drottin. N\u00fa er l\u00e1nssalinn kominn til a\u00f0 taka b\u00e1\u00f0a drengina m\u00edna s\u00e9r a\u00f0 \u00fer\u00e6lum.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>En El\u00edsa sag\u00f0i vi\u00f0 hana: Hva\u00f0 \u00e1 \u00e9g a\u00f0 gj\u00f6ra fyrir \u00feig? Seg \u00fe\u00fa m\u00e9r, hva\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt til heima. H\u00fan svara\u00f0i: Amb\u00e1tt \u00fe\u00edn \u00e1 ekkert til heima, nema kr\u00fas me\u00f0 ol\u00edfuol\u00edu.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6lti hann: Far \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 og f\u00e1 til l\u00e1ns \u00edl\u00e1t utan h\u00fass hj\u00e1 \u00f6llum n\u00e1gr\u00f6nnum \u00fe\u00ednum, t\u00f3m \u00edl\u00e1t, og heldur fleiri en f\u00e6rri.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Gakk \u00fev\u00ed n\u00e6st inn og loka dyrunum \u00e1 eftir \u00fe\u00e9r og sonum \u00fe\u00ednum og hell \u00ed \u00f6ll \u00feessi \u00edl\u00e1t og set \u00feau fr\u00e1 \u00fe\u00e9r jafn\u00f3\u00f0um og \u00feau fyllast.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Gekk h\u00fan \u00fe\u00e1 burt fr\u00e1 honum. Og h\u00fan loka\u00f0i dyrunum \u00e1 eftir s\u00e9r og sonum s\u00ednum. \u00deeir b\u00e1ru a\u00f0 henni, en h\u00fan hellti \u00ed.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>En er \u00edl\u00e1tin voru full, sag\u00f0i h\u00fan vi\u00f0 son sinn: F\u00e6r m\u00e9r enn \u00edl\u00e1t. Hann sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u00dea\u00f0 er ekkert \u00edl\u00e1t eftir. \u00de\u00e1 h\u00e6tti ol\u00edfuol\u00edan a\u00f0 renna.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>F\u00f3r h\u00fan \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i gu\u00f0smanninum fr\u00e1, en hann sag\u00f0i: Far \u00fe\u00fa n\u00fa og sel ol\u00eduna og gjald skuld \u00fe\u00edna, en haf til vi\u00f0url\u00edfis \u00fe\u00e9r og sonum \u00fe\u00ednum \u00fea\u00f0, sem afgangs ver\u00f0ur.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00dea\u00f0 bar til einn dag, a\u00f0 El\u00edsa gekk yfir til S\u00fanem. \u00dear var au\u00f0ug kona, og lag\u00f0i h\u00fan a\u00f0 honum a\u00f0 \u00feiggja mat hj\u00e1 s\u00e9r. Og \u00ed hvert sinn, sem hann f\u00f3r um, gekk hann \u00fear inn til a\u00f0 matast.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og h\u00fan sag\u00f0i vi\u00f0 mann sinn: Heyr\u00f0u, \u00e9g s\u00e9 a\u00f0 \u00fea\u00f0 er heilagur gu\u00f0sma\u00f0ur, sem st\u00f6\u00f0uglega fer um hj\u00e1 okkur.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Vi\u00f0 skulum gj\u00f6ra l\u00edti\u00f0 loftherbergi me\u00f0 m\u00farveggjum og setja \u00feanga\u00f0 r\u00fam og bor\u00f0 og st\u00f3l og lj\u00f3sastiku, svo a\u00f0 hann geti fari\u00f0 \u00feanga\u00f0, \u00feegar hann kemur til okkar.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Einn dag kom El\u00edsa \u00fear, gekk inn \u00ed loftherbergi\u00f0 og lag\u00f0ist \u00fear til svefns.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an sag\u00f0i hann vi\u00f0 Gehas\u00ed, svein sinn: Kalla \u00fe\u00fa \u00e1 s\u00fanemsku konuna. Og hann kalla\u00f0i \u00e1 hana, og h\u00fan gekk fyrir hann.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i hann vi\u00f0 Gehas\u00ed: Seg \u00fe\u00fa vi\u00f0 hana: \u00de\u00fa hefir haft alla \u00feessa fyrirh\u00f6fn fyrir okkur, hva\u00f0 \u00e1 \u00e9g a\u00f0 gj\u00f6ra fyrir \u00feig? \u00dearft \u00fe\u00fa a\u00f0 l\u00e1ta tala m\u00e1li \u00fe\u00ednu vi\u00f0 konung e\u00f0a vi\u00f0 hersh\u00f6f\u00f0ingjann? H\u00fan svara\u00f0i: \u00c9g b\u00fd h\u00e9r \u00e1 me\u00f0al \u00e6ttf\u00f3lks m\u00edns.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i El\u00edsa vi\u00f0 Gehas\u00ed: Hva\u00f0 \u00e1 \u00e9g \u00fe\u00e1 a\u00f0 gj\u00f6ra fyrir hana? Gehas\u00ed m\u00e6lti: J\u00fa, h\u00fan \u00e1 engan son, og ma\u00f0ur hennar er gamall.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i El\u00edsa: Kalla \u00fe\u00fa \u00e1 hana. Og hann kalla\u00f0i \u00e1 hana, og h\u00fan nam sta\u00f0ar \u00ed dyrunum.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6lti hann: A\u00f0 \u00e1ri um \u00feetta leyti munt \u00fe\u00fa fa\u00f0ma a\u00f0 \u00fe\u00e9r son. En h\u00fan m\u00e6lti: Nei, herra minn, \u00fe\u00fa gu\u00f0sma\u00f0ur, skr\u00f6kva \u00fe\u00fa eigi a\u00f0 amb\u00e1tt \u00feinni.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>En konan var\u00f0 \u00feungu\u00f0 og \u00f3l son n\u00e6sta \u00e1r \u00ed sama mund, eins og El\u00edsa haf\u00f0i heiti\u00f0 henni.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00deegar sveinninn var kominn \u00e1 legg, gekk hann einn dag til f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, \u00fat til kornskur\u00f0armannanna.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i hann vi\u00f0 f\u00f6\u00f0ur sinn: \u00c6, h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 m\u00e9r, h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 m\u00e9r! En fa\u00f0ir hans sag\u00f0i vi\u00f0 svein sinn: Ber \u00fe\u00fa hann til m\u00f3\u00f0ur sinnar.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og hann t\u00f3k hann og f\u00e6r\u00f0i hann m\u00f3\u00f0ur hans, og hann sat \u00ed kj\u00f6ltu hennar til h\u00e1degis, \u00fe\u00e1 d\u00f3 hann.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gekk h\u00fan upp, lag\u00f0i hann \u00ed rekkju gu\u00f0smannsins, loka\u00f0i a\u00f0 honum og gekk burt.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00de\u00e1 kalla\u00f0i h\u00fan \u00e1 mann sinn og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Send \u00fe\u00fa m\u00e9r einn af sveinunum og eina \u00f6snu. \u00c9g \u00e6tla sem skj\u00f3tast a\u00f0 fara til fundar vi\u00f0 gu\u00f0smanninn og koma s\u00ed\u00f0an aftur.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>En hann m\u00e6lti: Hvers vegna \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 fara til hans \u00ed dag? \u00dea\u00f0 er hvorki tunglkomudagur n\u00e9 hv\u00edldardagur. H\u00fan m\u00e6lti: \u00dea\u00f0 gj\u00f6rir ekkert til!<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an s\u00f6\u00f0la\u00f0i h\u00fan \u00f6snuna og sag\u00f0i vi\u00f0 svein sinn: Rektu n\u00fa hart! Lina\u00f0u eigi \u00e1, uns \u00e9g segi \u00fe\u00e9r.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an f\u00f3r h\u00fan og kom til gu\u00f0smannsins \u00e1 Karmelfjalli. En er gu\u00f0sma\u00f0urinn s\u00e1 hana \u00e1lengdar, sag\u00f0i hann vi\u00f0 Gehas\u00ed, svein sinn: \u00deetta er konan fr\u00e1 S\u00fanem!<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Hlaup \u00fe\u00fa n\u00fa \u00e1 m\u00f3ti henni og seg vi\u00f0 hana: Hvernig l\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00e9r, hvernig l\u00ed\u00f0ur manni \u00fe\u00ednum, hvernig l\u00ed\u00f0ur drengnum? H\u00fan svara\u00f0i: Okkur l\u00ed\u00f0ur vel.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>En er h\u00fan kom \u00e1 fjalli\u00f0 til gu\u00f0smannsins, t\u00f3k h\u00fan um f\u00e6tur honum. \u00de\u00e1 gekk Gehas\u00ed a\u00f0 og vildi hrinda henni fr\u00e1. En gu\u00f0sma\u00f0urinn m\u00e6lti: L\u00e1ttu hana vera, \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan er harm\u00ferungin mj\u00f6g, og Drottinn hefir leynt mig \u00fev\u00ed og eigi l\u00e1ti\u00f0 mig vita \u00fea\u00f0.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6lti h\u00fan: Hefi \u00e9g be\u00f0i\u00f0 herra minn um son? Sag\u00f0i \u00e9g ekki: Drag mig ekki \u00e1 t\u00e1lar?<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i hann vi\u00f0 Gehas\u00ed: Gyr\u00f0 \u00fe\u00fa lendar \u00fe\u00ednar, tak staf minn \u00ed h\u00f6nd \u00fe\u00e9r og far af sta\u00f0. \u00de\u00f3 a\u00f0 einhver m\u00e6ti \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00e1 heilsa\u00f0u honum ekki, og \u00fe\u00f3 a\u00f0 einhver heilsi \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00e1 taktu ekki undir vi\u00f0 hann, og legg staf minn yfir andlit sveinsins.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>En m\u00f3\u00f0ir sveinsins m\u00e6lti: Svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem \u00fe\u00fa lifir, \u00fe\u00e1 fer \u00e9g ekki fr\u00e1 \u00fe\u00e9r. St\u00f3\u00f0 hann \u00fe\u00e1 upp og f\u00f3r me\u00f0 henni.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>Gehas\u00ed var farinn \u00e1 undan \u00feeim og haf\u00f0i lagt stafinn yfir andlit sveinsins, en \u00fear var steinhlj\u00f3\u00f0 og ekkert l\u00edfsmark. \u00de\u00e1 sneri hann vi\u00f0 \u00ed m\u00f3ti honum og sag\u00f0i honum svo fr\u00e1: Ekki vaknar sveinninn!<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>\u00deegar El\u00edsa kom inn \u00ed h\u00fasi\u00f0, \u00fe\u00e1 l\u00e1 sveinninn dau\u00f0ur \u00ed rekkju hans.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gekk hann inn og loka\u00f0i dyrunum a\u00f0 \u00feeim b\u00e1\u00f0um og ba\u00f0 til Drottins.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an steig hann upp \u00ed og lag\u00f0ist yfir sveininn, lag\u00f0i sinn munn yfir hans munn, s\u00edn augu yfir hans augu og s\u00ednar hendur yfir hans hendur og beyg\u00f0i sig yfir hann. Hitna\u00f0i \u00fe\u00e1 l\u00edkami sveinsins.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>\u00de\u00e1 kom hann aftur, gekk einu sinni aftur og fram um h\u00fasi\u00f0, f\u00f3r s\u00ed\u00f0an upp og beyg\u00f0i sig yfir hann. \u00de\u00e1 hnerra\u00f0i sveinninn sj\u00f6 sinnum. \u00dev\u00ed n\u00e6st lauk hann upp augunum.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>\u00de\u00e1 kalla\u00f0i El\u00edsa \u00e1 Gehas\u00ed og sag\u00f0i: Kalla \u00fe\u00fa \u00e1 s\u00fanemsku konuna. Og hann kalla\u00f0i \u00e1 hana, og h\u00fan kom til hans. \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann: Tak vi\u00f0 syni \u00fe\u00ednum!<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>\u00de\u00e1 kom h\u00fan og f\u00e9ll til f\u00f3ta honum og laut til jar\u00f0ar. S\u00ed\u00f0an t\u00f3k h\u00fan son sinn og f\u00f3r burt.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>El\u00edsa kom aftur til Gilgal me\u00f0an hall\u00e6ri var \u00ed landinu. Og er sp\u00e1mannasveinarnir s\u00e1tu frammi fyrir honum, sag\u00f0i hann vi\u00f0 svein sinn: Settu upp st\u00f3ra pottinn og sj\u00f3\u00f0 r\u00e9tt matar handa sp\u00e1mannasveinunum.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gekk einn \u00fat \u00ed hagann a\u00f0 t\u00edna jurtir og fann villivafteinung og t\u00edndi \u00e1 honum yfirh\u00f6fn s\u00edna fulla af villi-ag\u00farkum, f\u00f3r s\u00ed\u00f0an heim og brytja\u00f0i \u00fe\u00e6r \u00ed matarpottinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00feekktu \u00fe\u00e6r ekki.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an helltu \u00feeir upp fyrir mennina til a\u00f0 eta. En er \u00feeir br\u00f6g\u00f0u\u00f0u \u00e1 matnum, hlj\u00f3\u00f0u\u00f0u \u00feeir upp yfir sig og s\u00f6g\u00f0u: Dau\u00f0inn er \u00ed pottinum, \u00fe\u00fa gu\u00f0sma\u00f0ur! og \u00feeir g\u00e1tu ekki eti\u00f0 \u00fea\u00f0.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>En hann m\u00e6lti: Komi\u00f0 me\u00f0 mj\u00f6l! Og hann kasta\u00f0i \u00fev\u00ed \u00ed pottinn. S\u00ed\u00f0an sag\u00f0i hann: Hell n\u00fa upp fyrir f\u00f3lki\u00f0, a\u00f0 \u00fea\u00f0 megi eta. \u00de\u00e1 var ekkert ska\u00f0v\u00e6nt \u00ed pottinum.<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>Ma\u00f0ur kom fr\u00e1 Baal Sal\u00edsa og f\u00e6r\u00f0i gu\u00f0smanninum frumgr\u00f3\u00f0abrau\u00f0, tuttugu byggbrau\u00f0 og muli\u00f0 korn \u00ed mal s\u00ednum. Og El\u00edsa sag\u00f0i: Gef\u00f0u f\u00f3lkinu \u00fea\u00f0 a\u00f0 eta.<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>En \u00fej\u00f3nn hans m\u00e6lti: Hvernig get \u00e9g bori\u00f0 \u00feetta hundra\u00f0 m\u00f6nnum? Hann svara\u00f0i: Gef\u00f0u f\u00f3lkinu \u00fea\u00f0 a\u00f0 eta. \u00dev\u00ed a\u00f0 svo segir Drottinn: \u00deeir munu eta og leifa.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>\u00de\u00e1 lag\u00f0i hann \u00fea\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1, en \u00feeir neyttu og gengu fr\u00e1 leif\u00f0u, eins og Drottinn haf\u00f0i sagt.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>4.1<\/b> \u00der\u00e6lkun 2M\u00f3s 21.2-6; 3M\u00f3s 25.39-55, 5M\u00f3s 15.12-18; Jes 50.1; Jer 34.14; Am 2.6; Neh 5.1-13; Matt 18.25<br \/>\n<b>4.14-16<\/b> H\u00fan \u00e1 engan son 1M\u00f3s 18.9-11<br \/>\n<b>4.17<\/b> F\u00e6ddi son 1M\u00f3s 21.1-2; Slm 113.9<br \/>\n<b>4.20<\/b> Hann d\u00f3 sbr 1Kon 17.17<br \/>\n<b>4.21<\/b> \u00cd r\u00fam 1Kon 17.19<br \/>\n<b>4.23<\/b> Tungl og hv\u00edldardagur Am 8.5+<br \/>\n<b>4.27<\/b> Ekki sagt fr\u00e1 sbr 2Kon 5.26; 6.32; 1Kon 14.5; Jer 11.18-19; Post 9.10-19<br \/>\n<b>4.29<\/b> Stafur minn 2M\u00f3s 4.17,20; 8.1; 14.16; 17.5-6; sbr 2Kon 2.8+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Ein af konum sp\u00e1mannasveinanna kalla\u00f0i til El\u00edsa og m\u00e6lti: \u00dej\u00f3nn \u00feinn, ma\u00f0urinn minn, er d\u00e1inn, og \u00fe\u00fa veist, a\u00f0 \u00fej\u00f3nn \u00feinn \u00f3tta\u00f0ist Drottin. N\u00fa er l\u00e1nssalinn kominn til a\u00f0 taka b\u00e1\u00f0a drengina m\u00edna s\u00e9r a\u00f0 \u00fer\u00e6lum.2En El\u00edsa sag\u00f0i vi\u00f0 hana: Hva\u00f0 \u00e1 \u00e9g a\u00f0 gj\u00f6ra fyrir \u00feig? Seg \u00fe\u00fa m\u00e9r, hva\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt til heima. H\u00fan svara\u00f0i: Amb\u00e1tt \u00fe\u00edn \u00e1 ekkert til heima, nema kr\u00fas me\u00f0 ol\u00edfuol\u00edu.3\u00de\u00e1 m\u00e6lti hann: Far \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 og f\u00e1 til l\u00e1ns \u00edl\u00e1t utan h\u00fass hj\u00e1 \u00f6llum n\u00e1gr\u00f6nnum \u00fe\u00ednum, t\u00f3m \u00edl\u00e1t, og heldur fleiri en f\u00e6rri.4Gakk \u00fev\u00ed n\u00e6st inn og loka dyrunum \u00e1 eftir \u00fe\u00e9r og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-konungabok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1663","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1663","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1663"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1663\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1663"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}